Fylkir - 17.09.1977, Blaðsíða 1
29. árg.
Vestmannaeyjum 17. september 1977
11. tbl.
S.U.S. þing
1977
Um pessa helgi er haldið hér
í Eyjum 24. þing S.U.S., hófst
það í gær og stendur það fram
eftir degi á morgun, sunnudag.
Allt frá því snemma í fyrra-
vetur hefur verið að því unnið
að fá þing þetta hingað út í
Eyjar. Hafa Eyverjar lagt mik-
ið upp úr því að fá þingið hing-
að, og hafa þeir barist fyrir því
á öllum vígstöðvum. Og það
tókst. f byrjun ágúst samþykkti
stjórn S.U.S. að þingið skyldi
haldið hér og er það vel. Hefur
unCirbúningur þingsins staðið
frá því í vor. Þingið sjálft er
haldið í Samkomuhúsinu og í
Félagsheimilinu. Hótelið sér um
fæði og gistingu og er þar í
nokkuð ráðist, því alls munu
þingfulltrúár verða töluvert yf-
ir 200 manús.
AÐALMÁL.
— Málefnalegur undir-
búningur þingsins hefur
staðið yfir um langt skeið í
starfshópum, sem hafa und-
irbúið umræðugrundvöll að
ályktunum þingsins. Stjórn
sambandsins hefur jafn-
framt fjallað um málin og
ályktunardrög hafa verið
send stjórnum félaga og
kjördæmissamtaka. Við höf-
um valið þinginu kjörorðin
BÁKNIÐ BURT og GEGN
VERÐBÓLGU, sem gefa til
kynna, að þingið mun að
verulegu leyti fjalla um sam-
dráttinn i ríkisbúskapnum
og baráttuna gegn verðbólg-
unni. Auk þessara mála
verða tekin fyrir húsnæðis-
mál, skattamál, sjávarút-
vegsmál, landbúnaðarmál,
dómsmál, menningarmál,
byggðamál, kjördæmamálið
o.fl. Þá verður rætt uni hugs-
anlega aðild SUS að Æsku-
lýðssambandi íslands, æsku-
lýðssamtökum lýðræðis-
sinna í Vestur-Evrópu og
samtökum ungra hægri
manna á Norðurlöndum.
Þess má geta, að Per Arne
Arvidsson, formaður nor-
rænu samtakanna, verður
gestur þingsins og ávarpar
það.
DAGSKRA ÞINGSINS:
Föstudagurinn 16. sept. Samkomuhúsið.
Kl. 10.00 — 17.45 Þátttakendur mæta á staðinn.
Niðurröðun í gistingu. Afhending gagna.
Kl. 17.45 — 19.30 Þingsetning formaður S.U.S.
Ávarp Magnús Jónsson, form. Eyverja. Skýrsla
formanns Friðrik Sophusson. Lýsing á starfs-
tilhögun. Kosning í nefndir. Lagðar fram til-
lögur um DEMYC, NUU og ÆSÍ. Ávarp Per
Arne Arvidsson form NUU og MUF. Umræður.
Kl. 19.30 — 20.30 Kvöldverður
Kl. 20.30 — 22.30 Nefndarfundir. Álitsgerðir
Kynntar og breytingartillögur mótteknar.
Kl. 22.45 — 24.00 Kvöldvaka.
Laugardagurinn 17. sept. Samkomuhúsið.
Kl. 09.00 — 11.00 Nefndarfundir. Afgreiðsla úr
nefndum.
Kl. 11.00 — 12.00 Umræður og afgreiðsla ályktana
Kl. 12.00 — 13.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 — 17.30 Umræður og afgr. ályktana.
Kl. 17.30 — 19.00 Skoðunarferð um Heimaey.
Kl. 19.30 Kvöldverður. Ávarp Dr. Gunnars Thor-
oddsens varaformanns Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 22.00 — 02.00 Dansleikur.
Sunnudagurinn 18. sept. Félagsheimilð v/Heiðarv.
Kl. 10.30 — 12.00 Umræður og afgr. ályktana
Á SAMA TÍMA, SEM HEIMAFÓLKI ER NEITAÐ UM
GJALDFREST A 73 ÞÚSUNDUM, ER SAMÞYKKT AÐ FÆRA
BREIÐHOLTI H.F. 14,6 MILLJÓNIR Á SILFURFATI.
All snarpar umræður urðu
á síðasta bæjarstjórnarfuncli 8.
sept. s.l. vegna samþykktar bæj
arráðs um að fallast á „auka-
greiðslur” til Breiðholts hf. í
Reykjavík að fjárhæð kr. 14,6
millj. vegna meints umfram-
kostnaðar, er byggingarfyrir-
tækið hefði haft af vinnu sinni
hér fyrir B.Á.V..
Fulltrúar minnihlutans í bæj-
arstjórn vilu’a ekki fallast á
þessi vafasömu fjárútlát og
fella þessa samþykkt.
Það er með ólíkindum að á
sama tíma og aðgangsharka bæj
aryfirvalda er í hámarki við
einstaklinga, sem eru að koma
þaki yfir fjölskyldur sínar skuli
annað eins eiga sér stað. Og
munu bæjarbúar almennt undr-
ast og fyrirlíta þessi vinnu-
brögð og undirgefni við bygg-
ingabraskarana í höfuðstaðnum.
Kom fram á fundinum, að
nýlega var húsbyggenda, er var
að flytja í hús sitt, en hafði
ekki handbærar 73. þús. kr. neit-
að um stuttan gjaldfrest, og
átti þannig að koma í veg fyrir
að fjölskyldan gæti flutt í hús
sitt.
Ekki þarf að taka það fram,
að bæjarlögfræðingurinn, sem
þessu réði —his masters voice —
er framkvæmdarstjóri BÁV og
talsmaður Breiðholts hér og í
Mosfellssveitarframkvæmdun'um
Tillaga Jóhanns Friðfinnsson-
ar og Sigurbjargar Axelsdóttur
vegna málsins var svohljóðanÁi
Þar sem ekki Iiggja ennþá
fyrir reikningar B.Á.V. þrátt fyr
ir loforð þar um á fundi bæj-
arfulltrúa með endurskoðendum
15. júní s.I. treystir bæjarstjórn
sér ekki að verða við tilmælum
ráðamanna B.Á.V. að samþykkja
milljónaframlög (14,6) til Breið
holts h.f. úr bæjarsjóði til styrkt
ar þessum byggingarverktaka,
auk þess þar sem vitað er að á
sama tíma, er einstaklingum,
er sjálfir eru að reyna að koma
yfir sig húsnæði meinað um
smá fyrirgreiðslu í formi láns
til stutts tíma á tengigjöldum
neysluvatns, samt. kr. 73.000,
sbr. nýlegt dæmi úr Hamars-
hverfinu.
Vestmannaeyjum 8. sept ’77
Tillagan var felld með 5 gegn
2. Af þessu sést að fulltrúar
meirihlutans eru gugnaðir á því
að láta G.H.T. ráða ferðinni eins
og verið hefur, þar sem tveir
þeirra sátu hjá við tillöguna.
Kannski er veldi varabæjarstjór
ans að dvína?
Jóh. Friðf.
Ki. 12.00 — 13.30 Hádegisverður.
Kl. 13.30 — 14.30 Umræður og afgr. ályktana.
Kl. 14.30 — 15.30 Kosningar.
Kl. 15.30 — 16.00 Þingslit.
LOKAORÐ.
Von okkar Eyverja er, að þing þetta takist vel
og verði félagi okkar til sóma. Þá er það von okkar
að þingið verði félaginu til framdráttar og starfið
muni aukast að mun. Nýjir félagar bætist í hópinn
og eldri félagar taki meiri þátt í félagsstörfum en
hingað til.
Eyverjar bjóða alla þingfulltrúa velkomna til Vest
mannaeyja og vona að þeir njóti dvalar hér eins og
framast er kostur.