Fylkir - 12.11.1977, Blaðsíða 4
FYIKIR
Friðarhafnarbryggjan: Það er
sannarlega gaman að koma nið
ur að sjó, á Friðarhafnarbryggj-
una og mikill munur frá því
sem áður var. Búið
að malbika allan bryggjukant-
inn norðan Vmnslustöðvarinn-
ar og kringum Vigtarhúsið.
Austurendi bryggjunnar er að
vísu eftir, en vonandi verður
ekki bið á því að þessi hluti
bryggjunnar verði „tekin í gegn"
og öll bryggjaa senn malbikuð.
Það hefur dregist um of að
gera þessu mikla athafnasvæði
við höfnina skil. Ber því að
fagna því, að þetta svæði skuli
nú loks vera komið í það á-
stand að sæmaíidi sé að vinna
þár að matvælaframleiðslu.
Nýtt skip: í flota Eyjamanna
hefUr bætst nýtt og glæsilegt
skip. Fiskimjölsverksmiðjan hf.
hefur fest kaup á einu glæsi-
legasta og nýtískulegasta skipi
íslenska flotans, þar sem er
Guðmundur Jónsson GK 475.
Skipið er búið að vera á veið.
u^n í rúmlega ár, var smíðað í
Slippstöðinni á Akureyri og af-
hent fyrrverandi eigendum,
Rafn hf.,, í Sandgerði um mitt
s.l. ár Skipið er 491 smálest
að stærð, með 1740 Alpha-vél
og búið öllum hugsanlegum
siglingar- og fiskileitartækjum
og gert fyrir tog- og nótaveiðar.
Smíði þessa skips vakti á
sínum tíma nokkra athygli og
erlend fiskveiðitímarit töldu
það eitthvert fullkomnasta fisk.
veiðiskip er til þess tíma hafði
verið smíðað. Fylkir óskar hin-
um nýju eigendum, Fiskimjöls-
verksmiðjunni, til hamingju
með hinn glæsilega farkost.
Síldarsöltun: Svo sem fyrr hef-
ur verið getið í þessum þáttum
er síld söltuð á fjórum stöðum
hér í Eyjum, Hraðfrystistöð-
inni, fsfélaginu, Vinnslustöð.
i'ani og Fiskiðjunni. Að urdan-
förnu hefur verið nóg um að
vera í síldarsöltuninni. Mikið
af síld hefur borist að, og segja
má helst til mikið í einu. Hef-
ur því verið erfitt að koma
öllu í lóg á tilsettum tíma. Nokk
uð af þeirri síld sem að hefur
borist hefur farið í frost, en
meginhluti þó farið í salt.
S.l. miðvikudag var búíð að
salta í 17700 tunnur og skipt-
ist á söltunarstöðvarnar sem
hér segir:
Hraðfrystistöðin 5600 t
Fiskiðjan 5100 t
Vinaslustöðin 3900 t
fsfélagið .3400 t
Saltað var af miklum ^rafti
á öllum stöðum núna um helg
ina, svo að ofangreindar tölur
eru sjájfsagt allt aðrar í dag.
Ef mig misminnir ekki þá var
heildarsöltunin hér í fyrra um
20 þús tunnur.
Netin: Einhver hreyfing er að
komast á 'netaveiðarnar. Ég
hefi fyrir satt, að eftirtaldir
bátar munu verða „á netum" í
haust: Þórunn Sveinsdóttir,
Andvari, Glófaxi, Ölduljón,
Eyjaver og Árni í
Görðum. Einhverjir bess-
ara báta eru þegar byrjaðir,
en aðrir fara á stað mjög bráð-
lega. Talið er að flestir þess.
ara báta mimi „sigla" með afl-
ann.
Linan: Gamla góða „línan" er
aftur að komast til vegs og
virðingar. Það má marka af
því að Elliðaey er búin að vera
við línuveiðar í einn mánuð og
aflinn orðima 100 tonn, róðrarn-
ir eru um 20, svo að meðalafl-
inn í róðri er um 5 tonn. Það
er nú vel bærilegt. Tveir aðrir
bátar eru á linu Sif og Öðl-
ingur. Þeir hafa einnig fiskað
vel, til dæmis fékk Öðlingur
um 12 tonn á miðvikudagi'.in.
Línuaflinn er að verulegu leyti
keila og langa.
Veður og afli: Veðrið getur nú
varla verið betra, sólfar og logn
flesta dagana. Mikil blessuð
blíða. Það snýst nú allt um
síldina þessa haustdaga, en
þrátt fyrir það má nú ekki
gleyma hefðbundmi veiðunum,
botnvörpunni. Verst er að það
er svo lítið af þeim að segja.
Líklega innan við 10 bátar á
trolli og afli mjög tregur. Þegar
ég var á „vigtunum" sögðu þeir
mér að Sæþór Árni hefði land
að 10 tonnum um seinustu helgi
og Sigurbára hefði komið með
um 30 tonn í byrjun vikunnar.
Af spærlingsveiðunum er það
að segja að~ þar hefur verið
heldur dauft yfir. Sjö bátar
eru á þessum veiðum. Best hef-
ur verið hjá Berg, en Bjarnar-
ey var einnig með góðan túr í
vikunni.
Togararnir: Sindri var inni á
má'nudaginn með 80 tonn. Þetta
var erfiður túr hjá þeim á
Sindra, afh tregur og það sem
verra var hluti af aflanum
reyndist skemmt og var keyrt
í gúanó. Vestmannaey er að
fiska „í siglingu", en gengur
frekar illa að því er seinustu
fréttir herma. Klakkur kemur
inn á mánudag, um afla vissi
ég ekki.
Frá höfninn1: Lagarfoss var hér
á miðvikudag og setti í land 8
þús. síldartunnur. Stuðlafoss
var hér um seinustu helgi og
lestaði freðfisk til Rússlands.
Loðnan: Guðjón skipstjóri á
Gullberginu var hér í bænum í
vikunni. Hafði hana þær fréttir
að segja mér af loðnumiðunum
fyrir norðan, að þar hefði eng-
in veiði verið að undanförnu,
bæði væri að veður hefði verið
óhagstætt svo og að loðnan
hefði dreift sér og væri þar af
leiðandi ekki veiðaaleg. Á vest.
ursvæðinu út og norður af Vest
fjörðum væri allt fullt af ís.
Eyjabátarnir hafa því engu
bætt við sig að undanförnu, en
eins og ég sagði frá síðast er
Gullberg hæst með liðlega 10
þús. tonn.
Sfldveiðin: Skorið var á rek-
netarana á fimmtudagran þann
xó. þ.m. Búriir með skp.mmfinn
10 þús. tonn. Af þeim fimm uat
um er héðan voru á reknetum
mun Dala-Rifn vera hæstur.
Hinsvegar hefi ég ekki getað
orðið mér út um aflatölur, þar
sem bátai'nir hafa lagt upp
bæði á Hornarfirði og hér og
því dálítið óhægt um vik. Nóta
bátarnir, Andvari, Eyjaver,
Gunnar Jónsson, Suðurey,
Heimaey, Glófaxi, Þorbjörn II,
eru allir búnir að fiska
„skammtinn", 200 tonn. Bylgja,
Stígandi og Sæfari munu eiga
lítilsháttar eftir ea verða að
öllum líkindum búnir að fylla
sinn kvóta, þegar þetta kemur
fyrir augu lesenda.
Ég hitti Erling Pétursson á
Eyjaver aðeins að máli í fyrra-
dag; Hann var þá nýkominn
áð landi með ágætis síldarafla
á báti sínum, Eyjaver. Sagði
Erlingur mikla síld á ferðinni
á miðunum austur með landi,
góð og falleg síld austur „á
milli Horna" en aftur smær.ri
og lélegri í Meðallandsbugt
Eigendaskipti: Sigurfari Ve 138
hefur skipt um eiganda. Sigurð
ur Kristinsson er átt hefur
bátinn undanfarin 3 ár hefur
nú selt hann Kjartani ívarssyni.
Hinn nýi eigandi hefur gefið
bátnum nýtt nafn og heiti*
hann nú Faldur.
Útvegsbændafélagið: Á morg-
un kl. 2 eJi. hefur Útvegsbænda
félagið boðað til fundar með
meðlimum sínum. Er fundur-
inn í Félagsheimilinu við Heið-
arveg. Stjórnin óskar þess að
félagar fjölmenni, svo fremi að
þeir geti komið því við.
Bj. Guðm.
N0TUÐ
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
Notuð borðstofuhúsgögn
óskast. Upplýsingar í sím-
um 2477 og 2092.
Junion Chamber
Vestmannaeyjum.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega.
Skrlfiioto Vm.: Báni(. t, t. heð
ViauUiiml: UJ0—19. mlðvlkiid.
—ntotwUfs- Siml ÍMT.
Skrititofs KTÍk: Guaaitnetl 11.
VUUIitiml: Minodaf* ef þriðJB.
dao- — Slml UM(-
JÚN HJALTASON, hrl.
tónskolið
Nú er jólatraffíkin að hefj-
ast í íslenskiun hljómskífúm og
ætlar hún að verða engu minni
enn í fyrra. Þá komu út um
40 skífur. Hæst ber nýja plat.
an frá Bókaútgáfúnni Iðunni,
„Út um grænar grundir", þar
hafa Gunnar Þórðarson, Björg-
vin Halldórsson og Tómas Tóm
assca allan veg og vanda af
henni eins og þeirri síðustu,
„Einu sinni var" en hún seldist
í rúmlega 15 þús. eintökum,
sem er íslandsmet.
Næst er það svo skífan með
þeim í „Mannakorn", Pálma
Gumarssyni og félögum. Ber
hún heitir „í gegnum tíðina".
Eru lög og textar eftir Magnús
Eiríksson nema Ræfilskvæði
sem er eftir Stein Steinarr.
Er allur flutningur til fyrir-
myndar eins og við mátti bú-
ast. Góð skífa.
Og enn, Dúmbó og SteLii eru
komnir af stað á nýrri skífu.
Þar taka þeir til við gömlu lög
in. Þetta er skífa sem geng-
ur í hvaða Diskóteki sem er.
Jóhann G Jóhannsson á tvö lög
og texta, eru það lögin Hljóm.
sveitin og Graumbær. Kemst
hljómsveitin ágætlega frá þessu.
KÚTUR
Verslið ódýrt í Kaupfélaginu
í FYRRA FENGU VIÐSKIPTAVINIR OKKAR 17,6 MILLJ. KRÓNA VÖRUMARKAÐSAFSLÁTT.