Fylkir - 22.11.1977, Side 3
FYLKIR
Framhald af 4. síðu
STEFNUSKRÁ. . . .
G.H.T. ekki brask fésýslu-
manna?
Alþýðuflokkurinn vill stuðla
að styrkri landstjórn, sem taki
málefni þjóðarinnar föstum tök
um og láti hvergi bugast af of-
ríki ófyrirlitinna sérhagsmuna.
hópa. Er það ekki einmitt það
sem kratarnir hafa verið hér
á undanförnum árum, ófyrir-
leitinn sérhagsmunahópur, sem
leikið hefur sér að því að vera
tvöfaldur í roðinu. Hvað mundi
Vilmundur Gylfason segja um
krataflokkinn hér er hann væri
öllum hnútum kunnugur? Tæk-
ist honum að uppræta siðspill.
ingu, brask og bitlingastarf
kratanna?
Kannski er birting stefnu-
skrár Alþýðuflokksins bending
um hugarfarsbreytingu hjá Mm
og Co. Betur að svo væri.
— S.A.
LANDAKIRKJA
Messufall vegna viðgerða á
kirkjunni.
Sóknarprestur
Til umhugsunar
Þær umbætur, sem orðið hafa á gatna.
kerfinu að undanförnu, eru til mikilla bóta
og bæjarprýðis. Við höfum dregist svo aft-
ur úr í vegaframkvæmdum að gott er til
þess að vita, að nú verði blaðinu snúið við.
Eftir því sem götur verða greiðfærari má
búast við aukinni slysahættu og hörmulegt
er til þess að vita, að á þessu ári eru orðin
fleiri dauðaslys í umferðinni á landinu, e.i
nokkru sinni fyrr.
Aukin aðgæsla og árvekni er brýn nauð-
syn og ekki má láta undir höfuð leggjast að
gera þær ráðstafanir, sem verða mættu til
þess að bægja hættu frá.
Víða hefur verið komið fyrir gangbrautum
í nálægð barnaskólans og er það vel. Auk-
in umferðafræðsla barna er sjálfsögð, en
við sem eldri erum og berum ábyrgð á stjórn
farartækja verðum að sýna fyrirmynd og
gætni.
Það hefur oft hvarflað að mér niður á
Básaskersbryggju, hvort ekki væri tilvalið
að gera einstefnuakstur kring um húsin,
sem þar standa, til að gera umferðina :•
sambandi við Herjólf greiðfærari og hættu-
minni. Sömuleiðis mætti benda á nauðsyn
þess að fá betra merki in i á Hlíðarvegi við
Strandveg, svo nokkuð sé nefnt.
Lögreglan er mjög hjálpleg og sanngjörn
að greiða úr þegar til hennar er leitað, en
það myadi auðvelda störf hennar, ef um.
ferðamerkingar væru betri en nú er.
Þegar farið er að skrifa um slysavarnir
er ekki hægt annað en láta hugann reika
til hins mikla öryggis, er við búum við, þar
sem er okkar fullkomna sjúkrahús, með
þeim ágætu starfskröftum, sem þangað hafa
valist.
Það er ómælt og verður ekki í tölum talið,
hve bæjarbúar eiga þessu ágæta fólki upp
að unna, þótt stofnunin í núverandi mync-
sé ung að árum og ennþá í mótun. Aðgerð-
ir allar og meðhöndlun, er eins og best verð
ur á kosið og þolir allan samanburð við það
sem til þekkist hérlendis. Slysin gera ekki
boð á undan sér og er því aldrei nógsam.
lega þakkað fyrir, hve mörgu er hægt að
bjarga við, eins og reynslan hefur sýnt.
Hinar fyrirbyggjandi ráðstafanir sem unn-
ar eru á Heilsugæslustöðinni eru einnig mik-
ilsverðar og eiga eftir að bæta mjög heil-
brigði og velsæld bæjarbúa eins og þegar
hefur komið áþreifanlega í ljós.
Koma sérfræðinganna hingað á nokkra
mánaða fresti er bæjarbúum mikið öryggi,
að ekki sé talað um þann sparnað á tíma og
fjármunum fyrir okkur að geta fengið þess-
ar rannsóknir og aðhlynningu í heimabyggð.
Hér skal látið staðar numið að sinni, en
hægt er að fullyrða að bæjarbúar kunna vel
að meta þessi störf, sem hér hafa laus.
lega verið gerð að umtalsefni og vænta þess
heils hugar að þau verði áframhaldaidi svo
gæfu- og heillarík, sem hingað til.
— Jóh. Friðf.
Hvernig hægt er að ná
%
betri hljóm
orlofon
accuracy in sound
Um allan heim eru hljómtækjasalar,
plötuútgefendur og músik unnendur
sammála um að ORTOFON tónhöfuð
sé það albesta sem hægt er að setja í
nokkurn plötuspilara, og þar sem að
það er tónhöfuð sem ákveður gæði
hljómsins sem þú færð af plötunni er
það ekki svo lítið. VMS 20 E Mk II er
gott dæmi um þau gæði sem
ORTOFON tónhöfuð standa fyrir.
Óviðjafnanleg hljómgæði og undraverð
nákvæmni, lítið nálar- og plötuslit og
frábær ending eru aðalkostir
VMS 20 E Mk II tónhöfuðs.
Því eru nánast engin takmörk sett hvað
jafnódýrt tónhöfuð og VMS 20 E Mk II
gert fyrir þín hljómtæki og borgar sig
fljótt með lengri endingu á dýrmætu
plötusafni. Það er heldur ekki bara
tilviijun að framleiðendur plötuspilara
láta ORTOFON tónhöfuð fylgja sínum
bestu plötuspilurum.
Hlustaðu á VMS 20 tónhöfuð frá
ORTOFON, það borgar sig.
Jafnvel ORTOFON tónhöfuð kostar
enga fúlgu.
Ortofon mun bæta gæði plötuspilara
þíns fyrir lítið verð.
Margir Hi-Fi sérfræðingar út um allan
heim halda því fram, að ORTOFON
tónhöfuð sé það besta sem þú getir
sett í plötuspilara.
ORTOFON hefur um árabil framleitt
professional tapki fyrir plötuiðnaðinn,
og eftir öllum kröfum sem þeir hafa
þarfnast. Hin mikla tæknilega reynsla
sem ORTOFON hefur náð hefur verið
beytt í hinum frábæru tónhöfða
framleiðslu.
Hið nýja FF 15 E Mk II er með sömu
(breytileg segul-tengi) tækni og notuð
er í miklu dýrari og þekktum
ORTOFON tónhöfðum, sem fram-
leiðendur margra bestu plötuspilara
heims, hljóð sérfræðingar og áhuga-
menn nota út um allan heim.
FF 15 E Mk II er mögulegt að fá með
bæði kúptri og sporöskjulagaðri nál.
Passar í alla plötuspilara.
Með ORTOFON ert þú öruggur um
mikil gæði fyrir hóflegt verð.
Heimsækið næsta ORTOFON
umboðsmann og hlustið á FF 15 E
Mk II. sú ferð borgar sig.