Fylkir


Fylkir - 20.02.1986, Blaðsíða 4

Fylkir - 20.02.1986, Blaðsíða 4
FYLKIR Guðmundur —Framhald Tölvuhugbúnaður hefur ver- ið eitt sem menn gefa lítið gaum. Nú er sá færasti farinn erlendis. Og ég spyr, af hverju? Hvar er forystuviljinn og hvar eru þeir sem tala um atvinnu- tækifæri. Nú fyrir stuttu las ég í Eyja- blaðinu grein sem hafði fyrir- sögnina: ,,Þarf eitt gos enn?” Þar var rætt um dagvistunarmál barnanna okkar. Er það furða að allt sé eins og það er þegar svona er spurt. Eg segi nei, það þarf ekki annað gos. Bærinn á ekki að vera pólitískt fyrirtæki. Hanna Birna Jóhannsdóttir Ýmsar leiðir eru farnar til að velja fulltrúa á lista hinna ýmsu Við eigum að gefa hámennt- uðum fóstrum tækifæri. Tæki- færi til að reka sitt eigið fyrir- tæki. Bærinn á ekki að reka dagheimili frekar en hár- greiðslustofu, öskubíl eða bakarí. Á dagheimilum eru frábærir starfskraftar sem gætu auðveldlega rekið dagheimili fyrir börn á mun hagkvæmari og ódýrari hátt en gert er öllum til hagsbóta. Enda ekkert sann- girni í að fólk sem er barnlaust eða búið að koma börnum sínum upp greiði barnapössun fyrir aðra. Ég sé fyrir mér fyrirtæki sem bæri nafnið „Dagheimilið Sól h/f’ t.d. flokka. Sjálfstæðisflokkurinn í Ve. ákvað að viðhafa prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninga 31. maí n.k. 16 frambjóðendur taka þátt í þessu prófkjöri, og er það ánægjulegt. Því mín skoðun er að fólk eigi að taka virkari þátt í stjórnmálum, og um leið þátt í að bæta sitt eigið umhverfi. Eftir 4 ára meiri- hlutastjórn Sjálfstæðisflokksins eru kjósendur eflaust mis- ánægðir, og sitt sýnist hverjum. Þó margt hafi áunnist og vel til tekist, bíða mörg stór mál af- greiðslu næstu bæjarstjórna. Má þar nefna varanlega lausn í orkumálum. Sem ég tel for- gangsverkefni. Ég hef lengi tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins, og veit að Æskulýðsmál? Hvaða æsku- lýðsmál? Það er von að spurt sé. Flest öll þau æskulýðsstörf sem unnin eru í bænum koma frá skólunum eða íþrótta- félugum. Þar vinna kennarar og áhugamenn félaganna mikið og frábært starf. Til hvers þá æsku- lýðsfulltrúa? Ég bara spyr. Ég vísa máli mínu til stuðnings upp á Akranes og bið menn að skoða hvernig æskulýðsmálum er komið þar. Að lokum til sjálfstæðisfólks. Takið þátt í prófkjörinu og styðjum það fólk sem nær kjöri. Ég bið um ykkar stuðning. Lifið heil. það er krefjandi og mikið starf að vinna sem bæjarfulltrúi, ef vel er unnið. En það hlítur að vera metnaður hvers fram- bjóðanda, sem umboð fær til áhrifa, að vinna störf sín samviskusamlega og eftir sinni bestu sannfæringu. Sterkur framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins tryggir að áfrarn verður unnið að framgangi bæjarfélagsins. Ég hvet þig því kjósandi góður að taka þátt í prófkjörinu og velja þá 6 full- trúa sem þú treystir best til setu í bæjarstjórn. Stöndum saman. Tryggjum Sjálfstæðisflokknum sterkan lista í kosningunum 31. maí n.k. Og tökum um leið þátt í að gera góða bæ betri. Ólafur Lárusson í síðustu bæjarstjórnar- kosningum vann Sjálfstæðis- flokkurinn aftur meirihluta í bæjarstjórn. Aðdragandinn að þeim glæislega sigri var án efa prófkjör sem Sjálfstæðisfélögin héldu fyrir þær kosningar. Enn er komið að prófkjöri, og verður framkvæmd þessa prófkjörs með svipuðu sniði og síðast. Stuðnings- og flokks- bundnir sjálfstæðismenn fá sendan kjörseðil og hafa því áhrif á val á frambjóðendum. Ég gef kost á mér í þetta próf- kjör af því að ég vil að skoðanir ungs fólks fái að koma fram og hafi áhrif á gang mála í þessu bæjarfélagi. Margt hefur verið gert að undanförnu, mætti þar nefna malbikun eatna og fram- kvæmdir við höfnina sem er í raun Iífæð þessa bjarfélags. Auk þess hefur verið gert átak í skólamálum hér og er nú hægt að bjóða uppá menntun sem áður varð að sækja uppá fasta- landið. Þetta hefur það í för með sér að ungt fólk verður í sinni heimabyggð við nám. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að hægt sé að veita þessu fólki tækifæri á vinnumarkaðinum er námi lýkur. Það hefur verið talað um verkmenntahús hér, tel ég það verðuga viðbót við þá menntun sem nú er hægt að fá hér. Og væri í því sambandi mjög verðugt verkefni að fá hingað kennslu í fiskiðn og fiskirækt. í gegnum tíðina hafa farið mikil verðmæti for- görðum í formi slógs og annars úrgangs úr fiskafurðum, þarna eru kannski ónýttir mögu- leikar, sem gætu skapað ný atvinnutækifæri hér í bæ. En hvað er það sem gerir það svo eftirsóknarvert að búa hér. Hér hefur þótt gott mannlíf og næga atvinnu af fá. En til þess að svo geti orðið í næstu fram- tíð þá tel ég að gera þurfi gangskör að er varðar að greiða niður fjármagnskostnað ýmissa stofnana bæjarins, svo hér verði ekki dýrara að búa en á sam- bærilegum stöðum. Gerum okkar bæ að eftirsóttum bæ til að búa í. Tökum því virkan þátt í prófkjörinu. Sigurður Jónsson Á hverju ári þarf bæjarstjórn að fjalla um og afgreiða mikinn fjölda ólíkra mála. Sérhver bæjarfulltrúi sem ætlar að starfa af ábyrgð þarf því að setja sig vel inní málin, þannig að hann sé sem best fær um að taka afstöðu. Menn verða að varast að taka á málunum af þröngsýni eða afturhaldssemi, * Asmundur Friðriksson Það hafa m'argir vinir mínir sagt við mig á síðustu dögum: „Hvað ertu að gera í þessari þess í stað eiga menn að setja sér það takmark að taka á málum bæjarins okkar af víð- sýni og bjartsýni. Skiptar skoðanir eru oft um það á hvaða máli skuli helst leggja áherslu hverju sinni. Þetta á jafnt við þótt rætt sé um aðila sem tilheyra sama stjórn- málaflokki. Við getum haft misjafnar skoðanir á því hvaða mál skuli hafa forgang. Þannig er það einmitt hjá okkur sjálf- stæðismönnum. Ég vil hér nefna fjögur mál, sem ég tel að sérstaklega þurfi að fást við og berjast fyrir: • Á þessu ári var loksins tekin sú ákvörðun að greiða úr sam- eiginlegum sjóði okkar til að halda verði á hitaveitunni niðri. Hér voru stigin rétt spor. Bæjarstjórn verður að halda áfram á þessari braut, þótt allir geri sér grein fyrir að þá verður minna hægt að framkvæma í bænum. Með greiðslum úr bæjarsjóði er hægt að halda verðinu á heita vatninu niðri. • Málefni aldraðra skipa sér- pólitík, þetta er mannskemm- andi”, og flest annað finna þeir pólitíkinni til foráttu. Fyrir mig er pólitík eins og hvað annað áhugamál sem ég vil nota allan minn frítíma til, pólitísk umsvif í Vestmanna- eyjum eru ekki meiri en svo að frítíminn dugar ef hann er vel notaður. Ég legg því áherslu á árangur í þessu prófkjöri, ég hef þegar öðlast dýrmæta reynslu í bæjarmálefnum sem varamaður í bæajrstjórn, með setu í nefndum og stjórnum fyrir ríki og bæ. Mér finnst ekki rétt að vera nteð langan loforðalista í stuttri kynningu. Ég hef á undan- förnurn árum skrifað mikið í blöð um málefni bæjarins og líðandi stundar, til þess vísa ég. Ég mun samkvæmt þeirr sann- stakan sess í mínum huga. Ég tel að þau eigi að verða eitt af höfuðmálum sem næsta bæjar- stjórn setur sér að berjast fyrir. Fleiri íbúðir aldraðra þarf, stækka þarf Hraunbúðir, koma þarf á heimahjúkrun og svo mætti áfram telja. 9 Hjá núverandi bæjarstjórn hefur verið gert stórátak í skólamálum. Áfram þarf að halda á þeirri braut. Góðir og velbúnir skólar hafa mikið að segja fyrir bæjarfélagið. • Bæjarstjórn þarf að sýna ákveðið frumkvæði við að komið sé upp hentugu húsnæði fyrir ungt fólk. Hér á ég við að nýta sér reglur um byggingar og eða kaup á íbúðum eftir verka- mannabústaðakerfinu. Á þann hátt gefst ungu fólki kostur á að eignast íbúðir á hagkvæman hátt. Mörg fleiri mál væri hægt að nefna, en þetta eru mál sem ég hef mikinn áhuga fyrir og vil berjast áfram fyrir innan bæjar- stjórnar. færingu minni að einstaklings- frelsi og einkaframtak sé það sem tryggir ungu fólki bjarta framtíð, með því að hverfa frá bæjarrekstri eins og hægt er, og koma honum í hendur einstak- linga. Þessari grundvallar- hugmynd Sjálfstæðisflokksins hefur flokkurinn hér í Eyjum því miður ekki sinnt sem skildi. Ég get að sjálfsögðu lofað því að vinna af heilum að mál- efnum bæjarfélagsins, til þess að svo megi verða þarf ég ykkar stuðning. Munið að númera frá 1 og upp í 6 ATH.: það á ekki að setja X fyrir framan nöfnin Helga Jónsdóttir Það er ekki lítil ábyrgð að mínu mati að gefa kost á sér í prófkjör. Ég tel að hver sem það gerir verði að vera tilbúinn að takast á við mörg og vanda- söm verkefni. Einfaldast hefði því verið að færast undan beiðni þess efnis að taka þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins. En þar sem mér hefur lengi fundist fólk almennt og ekki síst konur alltof tregar til að hafa áhrif á gang mála í þjóðfélaginu, fannst mér illa stætt á að skorast undan þátttöku, fyrst til mín var leitað. Ég mun sem einn af fram- bjóðendum í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins kosta kapps um að kynna mér sem best málefni Vestmannaeyjabæjar og stofn- ana hans. Með því að fá sem gleggsta heildarsýn yfir stöðu mála í bænum, tel ég mig verða færari um að taka ábyrgari af- stöðu til málefna sem varða alla Eyjabúa. VESTMANNAEYJABÆR Félagsstarf eldri borgara 1986 Finrmtud. 20. feb. kl. 15:30 Fimmtud. 27. feb. kl. 20:00 Fimmtud. 6. mars kl. 15:30 Fimmtud. 13. mars kl. 20:00 Fimmtud. 20. rnars kl. 15:30 Fimmtud. 27. mars Finrmtud. 3. apríl kl. 15:30 Fimmtud. 10. apríl kl. 20:00 Fimmtud. 17. apríl kl. 15:30 Fimmtud. 24. apríl kl. 20:00 Fimmtud. 8. maí kl. 15:30 Fimmtud. 15. maí kl. 20:00 Kvenfélagið Líkn Iþróttafélagið Þór Kvenfélagið Líkn Knattspyrnufél. Týr Kvefélagið Líkn Árleg heimsókn Sinawik Kvenfélagið Líkn Sunna, Eyjarós Kvenfélagið Líkn Félagsmálaráð Kvenfélagið Líkn Kór Landakirkju —Félagsmálaráð.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.