Fylkir - 06.06.1999, Qupperneq 1
51 . árgangur
Yestmannaeyjum 6. júní 1999 - Sjómanndagurinn
2. tölublað
Gullberg VE 292 er nýjasta skipið í tlota Eyjamanna. Það kom til heimahafnar fyrir skömmu og ber eigendum
sínum gott vitni um djörfung og kjark, fjölskyldu sem staðið hefur í útgerð í Vestmannaeyjum í hart nær heila öld.
Árni Johnsen, alþingismaður
Þakkir fyrir öflugan stuðning
í Alþingiskosningunum
Sjómenn og fjölskyldur, til hamingju með daginn
Öflug útkoma Sjálfstæðisflokksins
í Alþingiskosningum í maí tryggir
það að landsmenn búa áfram við
trausta stjóm á landinu undir forystu
sjálfstæðismanna. Á Suðurlandi kom
Sjálfstæðisflokkurinn mjög vel út
með 36% atkvæða og er hinum ötulu
og fjölmörgu stuðningsmönnum
flokksins þakkaður frábær
stuðningur.
Mörgum ofbýður að flokkur sem
er með helmingi minna fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn fái jafn marga
ráðherra í ríkisstjóm og auðvitað er
það umdeilanlegt,en þannig hefur
þetta verið frá 1991 er
Sjálfstæðisflokkurinn bauð upp á slík
skipti til þess fyrst og ffemst að
skapa eins mikinn stöðugleika í
samstarfi ríkisstjómaflokka og unnt
er. Það er ekki allt fengið með
ráðherraembætlum. Reynslan hefur
sýnt að þeir sem þekkja leiðir
kerfisins og vinna skipulega geta náð
ýmsu fram sem jafnvel ráðherrar
geta ekki af því að þeir em frekar
bundnir breiðara sviði.
Suðurlandskjördæmi er nú öflugasta
Árni Johnsen
landsbyggðarkjördæmi
Sjálfstæðisflokksins og hefur lengi
haft ráðherra úr röðum
sjálfstæðismanna,en þau tímamót
urðu í síðustu kosningum að
sjálfstæðismenn eiga nú fyrstu
þingmenn í öllum kjördæmum
landsins nema Austurlandskjördæmi.
Ef við hefðum náð því markmiði
sjálfstæðismanna á Suðurlandi að ná
'þremur þingmönnum kjömum f
kosningunum hefði staða okkar verið
sterkari þótt vissulega sé ekki undan
neinu að kvarta. Við bættum við
okkur 3 prósentum og það er ekki
lítið. Við munum vinna af krafti og
markvísi og styrkja enn betur stöðu
okkar fyrir næstu kosningar þegar
kosið verður í nýju kjördæmi,
Suðurkjördæmi með samruna
Suðurlands og Suðumesja og
hugsanlega Austur-Skaftafellssýslu.
Ekki ástæða til þess að fara ofan í
saumana á síðustu kosninga-
bai'áltu.en þó get ég ekki látið hjá líða
að segja frá því að þingmenn
Samfylkingarinnar hafa verið að
gantast með það í hópi þingmanna að
undanfömu að þeir hafi á ýmsum
stöðum kynnt allt aðra stefnu en
opinbera stefnu Samfylkingarinnar.
Einn staðurinn sem þeir hafa gumað
af í þessum efnum er
Vestmannaeyjar, enda munu þeir
Lúðvík Bergvinsson og Guðmundur
Árni Stefánsson sem komu
Hyggjuvitið, reynslan
og tilfinningin skipta
megin máli
Sjómannadagurinn er nú haldinn
hátíðlegur í sextugasta og fyrsta
skipti. Helstu markmið hans í
upphafí vom að efla samhug meðal
sjómanna og minna á mikilvægi
starfa sjómanna fyrir þjóðina.
Mikilvægi starfa sjómanna er síst
minna í dag en fyrir jtessunt rösku
sextíu árum. 1 dag er
sjávarútvegurinn undirstaða
fjölbreytts og flókins upplýsinga-
og þjónustuþjóðfélags og engin
teikn á lofti um að það muni
breytast. Fjölbreytni þjóðfélagsins
er hinsvegar svo mikil og
framboðið af alls konar
upplýsinginunt og afþreyingu svo
mikil að mörgunt sést yfir það á
hverju við byggjum okkar
þjóðfélag. Það er því enn sem fyrr
ástæða fyrir sjómenn að halda upp
á Sjómannadaginn og bjóða öðrum
starfsstéttum þjóðfélagsins að taka
þátt í þeim fagnaði.
Minn heimabær hefur, eins og
Vestmannaeyjar, verið einn stærsti
og mikilvægasti útgerðarbær
landsins. Bærinn hefúr hinsvegar
breyst mikið. Hann hefur þanist út
og fjölmargar aðrar atvinnugreinar
eiu orðnar snar þáttur í atvinnulífi
bæjarins. Samt sem áður er það
alltaf þannig að bæjarlíftð hverfist
um höfnina. Höfnin er miðpunktur
þess. Þar er auðvitað blómleg
starfsemi en aðrir bæjarbúar sækja
þangað ekki síður til þess að hittast
og ftnna það að þeir eru hluti af því
líft sem þar fer fram.
Breytingamar hafa ekki skilið
sjávarútveginn eftir ósnertann. Þar
Árni Mathiesen
hafa líka orðið miklar breytingar og
þar er verið að nota alla þá miklu
tækni sem notuð er í hinum nýju
atvinnugreinum. Það er því langur
vegur frá þeim, sem réru til ftskjar á
opnum bátum og til þeirra sem
standa í brúnni á stórum nýtísku
togurum í dag. Samt er verið að
vinna sama verkið og það skiptir
máli hver það er sem stendur í
brúnni. Tæknin hefur ekki tekið öll
völd. Hyggjuvitið, reynslan og
tilfmningin er ennþá nauðsynleg, ef
vel á að takast til.
Sjómannadagurinn undirstrikar
því enn sem fyrr mikilvægi þeirra
starfa, sem sjómenn inna af hendi.
Til hamingju með daginn.
Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra
sérstaklega til Eyja á vinnustaði hafa
ákveðið að segja ekki eitt orð um
hina raunverulegu stefnu
Samfylkingarinnar í sjávarútvegs-
málum, heldur fara eins og kettir í
kring um heitan graut og blekkja
fólk. Það að þeir treystu sér ekki til
að kynna stefnu Samfylkingarinnar í
fiskveiðistjómunarmálum er ekki
undarlegt því hún var bein árás á
sjávarplássin í landinu. Við
sjálfstæðismenn vöktum athygli á
þessu,en það eina sent er ástæða til
að segja um þetta er: Passið ykkur á
þeim næst.
Um þessar mundir er verið að
skipta verkum innan Alþingis,
nefndum og öðm sem þarf að sinna
og ég fyrir mitt leiti sem 1.
þingmaður Suðurlands mun gera
ákveðnar kröfur í þeim efnum þar
sem ég held að það muni nýtast
okkar kjördæmi vel inn í framtíðina.
Við höldum okkar striki fast og
ákveðið og ég vil undirstrika að
varðandi Vestmannaeyjar er það
enginn flokkur nema
Sjálfstæðisflokkurinn sem sinnir
Vestmannaeyjum í alvöm eins og
verkin reyndar sýna.
Ég vil sérstaklega þakka
sjómönnum öflugan stuðning í
Álþingiskosningunum. Það fór
ekkert á milli mála að sjómenn
studdu sérstaklega vel við bakið á
okkur og um leið og ég ítreka þakkir
til þeirra og þess þorra fólks sem
veitir okkur brautargengi þá vil ég
óska sjómönnum og fjölskyldum
þeirra til hamingju með daginn.
Sendum sjómönnum í Vestmannaeyjum bestu kveðjur á sjómannadaginn