Skátablaðið - 01.12.1952, Side 16
út báða seinni daga mótsins og flutti fréttir og
annað efni viðvíkjandi mótinu. Blaðið var að
öllu leyti gert á mótsstað. Einnig voru gefin út
sérstök mótsmerki í fyrsta sinn. Mótinu var
síðan slitið á annan hvítasunnudag kl. 4 af Jóni
Guðjónssyni félagsforingja Hraunbúa, en hann
annaðist mótsstjórn í forföllum Eiríks Jóhann-
essonar.
S. H.J.
SKÁTAFLOKKURINN „ÚTLAGAR
Skýrsla flokksformgja fyrir starfsárið 1951—1952.
Starfið allt var með svipuðu móti og áður með
örlitlum breytingum þó. Skipzt hafa á fundir,
íþróttaæfingar og nokkur vinnuhjálp.
22 voru skráðir meðlimir flokksins í byrjun
starfsársins. Flokksmenn komu 16 sinnum saman
auk vinnugjafatíma og iþróttaiðkanna. Eundir
flokksins hafa flestir verið haldnir í Skátaheim-
ilinu. Helzt það sem tiðindi má telja í húsnæð-
ismálinu, er að loforð fékkst um að flokkur-
inn fengi afnot af einu herbergi Skátaheimilis-
ins. Virðast rnenn ánægðir með þau málalok.
Merki flokksins var búið til á prjón. Er það hið
vandaðasta. Gísli hafði veg og vanda af því.
Stjórn B.Í.S. hefur gefið flokknum leyfi til að
nota merkið.
Allmargir flokksmenn stunduðu körfuknatt-
leik s. I. vetur. Þrjá kappleiki háðu þeir. Þann
fyrsta við Megrunarfélagið. Leiknum lauk með
sigri flokksins. Annan leik léku þeir við starfs-
lið Kristjáns Sigurgeirssonar h.f. Flokkurinn
tapaði. Hinn þriðji var við Gosa. Flokkurinn
tapaði.
Tíu ára afmælis flokksins var minnst á mjög
eftirminnilegan 'Ttátt. Skátahöfðingja og vara-
skátahöfðingja Þorsteini Einarssyni var boðið í
hófið. Hófst það með borðhaldi. Stóð hátíðin
nokkuð fram eftir nóttu. Skemmtiatriðin voru
mörg og góð. Ohætt er að segja, að engin nefnd
innan flokksins hafi starfað af jafnmiklum
dugnaði og hagsýni og þessi afmælisnefnd.
Frá Faxa barst gjöf. Var það fundarhamar.
Ekki reyndist mögulegt að afhenda hann á
afmælinu vegna ófyrirsjáanlegra tafa. I tilefni
afmælisins varstofnaður Lánasjóður með 5000,00
kr. sem stofnfé. Ollum stofnendum flokksins
voru færð skrautrituð heiðursskjöl frá Utlögum.
Sjö flokksmenn hlutu heiðursveitingar frá B.Í.S.
Einnig gaf flokkurinn Þorsteini Einarssyni
fagra bók með mynd af öllum flokksmönnum.
Haldið var áfram uppteknum hætti og ýms-
um mönnum boðið á fundi. Dr. Björn Sigfús-
son kom á fund í okt. Þótti mönnum hann hinn
hressasti. Grétar Fells kom á fund í nóv. Bauð
hann flokksmönnum á fund lijá Guðspeki-
félaginu, hvern menn sóttu. Vilbergur Júlíus-
son og dr. Helgi Tómasson komu á fundi til
okkar eftir áramótin. Voru þeir báðir hinir
skemmtilegustu og fróðustu. Sambandið við
Faxa var betra en oft áður. Margt fréttabréfa
barst frá Oskari Þór. Ritari flokksins tók upp
nýjan þátt á funduni flokksins. „Fréttir úr Eyj-
um“, var það þarfur þáttur.
Frá 10 ára afmcelishófi
Útlaga.
.' \v
Skátahöfðmgi er
að flytja rœðu.
54
SKATABLAÐIÐ