Framsókn - 12.05.1954, Side 1
í ■ ' ■ ' r ' ■■ . / . :
rw, % ' ■ ■
FRAMSÓKN
BjÆJARMÁLABLAÐ
i. árgangur. Vestmannaeyjum 12. maí 1954. 1. tölublað.
©
& *
min 1
¥estma
eyjam
sem fóa: með völdin kjörtímabilið
1950—1954 skilar af sér.
Útdráttur úr fundabók Bæj-
arstjórnar Vestmannaeyja.
Almennur fundur í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja var hald-
inn fimmtudaginn 14. janúar
1954 að Hótel H.B. og hófst
kl. 4 e. li.
í lok fundarns ávarpaði for-
seti bæjarstjórnar bæjarstjórn-
ina þessum orðum:
Gera má ráð fyrir að þetta
verði síðasti fundur þessarar
bæjarstjórnar. Vil ég því nota
tækifærið til þess að þakka fyr-
ir samst.arfið á umliðnum
fjórum árum. Það er ekki ó-
eðlilegt þótt allir hafi ekki á-
vallt verið á einu máli og mis-
jöfn sjónarmið hafi verið uppi
um hverjar leiðir skyldu valdar
til lausnar hinna ýmsu vanda-
mála og viðfangsefna á hverj-
um tíma, en mér finnst það sér-
staklega ánægjulegt um sam-
starfið er ég lít til baka, að
alltaf hefur í lokin náðst sam-
staða um stóru málin, en
skemmtilegastur finnst mér sá
hluti samstarfsins, sem hefur
lotið að því að hjálpa borgur-
unum til sjálfsbjargar, verja
þá áföllum og rétta þeim hjálp-
arhönd, sem hallað hefur á fyr
ir vegna veikinda og annarra ó-
viðráðanlegra atvika, en þessi
starfsemi bæjarstjórnarinnar og
hinn almenni skilningur þess-
ara mála hefur aukizt frá ári til
árs og hafizt upp yfir flokka-
drætti.
Á því kjörtJmabili, sem nú er
að renna út hefur höfnin með
stóru átaki verið gerð skipgeng
öllum skipum íslenzka flotans,
sjúkrahúsið umbyggt og aukið
að tækjum og útbúnaði í sam-
ræmi við kröfur tímans, elli-
heimili verið fullgert og tekið
til nota með frábærum árangri,
þvottahús byggt og búið vélum
og tekið til starfrækslu, barna-
skólinn og umhverfi hans um-
bætt með margvíslegum hætti,
gagnfræðaskólahús byggt og
tekið til nota, rekstur kúabús
bæjarins, Dalabúsins, bættur
og er búið nú rekið hallalaust,
ný rafstöð fullgerð og tekin til
nota, hafnarmannvirki aukin
og bætt, bænum aflað nýrri og
betri vinnuvéla og svo mætti
lengi telja. Eini skugginn er sá,
að vonir þær sem bundnar voru
við togararekstur bæjarins, Bæj
arútgerðina, hafa ekki rætzt að
fullu, en að því liggja margar
samverkandi orsakir, sem eng-
inn einn verður um sakaður.
Fjárhagsafkoma bæjarins er
góð þrátt fyrir miklar fram-
kvæmdir og margvíslega og
aukna þjónustu í þarfir borgar
anna, og fjárhagur bæjarins
traustur. Innheimta bæjargjalda
og reikningshald bæjarins og
stofnana hans í góðu lagi.
Fjárhagsáætlanir bæjarsjóðs
og stofnana hans, sem afgreidd-
ar hafa verið til annarrar um-
ræðu gera ráð fyrir miklum og
áframhaldandi framkvæmdum,
en þó verður á þessu ári hægt
að lækka útsvörin um ríflegan
hlut.
Ráðgerðar eru miklar og fjár-
frekar hafnarbætur í skjóli þess
að nú er búið að greiða hafn-
arframkvæmdir þær, sem stærst
ar voru á fyrstu árum kjörtíma
bilsins. Ákveðin er aukning á
vélakosti rafveitunnar og reikn
að með því, að Eyjarnar komist
á þessu ári í tengsl við raforku
veitur frá orkuverum sunn-
lenzkra fallvatna. Hafin er
bygging áhaldahúss til geymslu
og viðgerða á hinum ýmsu vél-
um bæjarins og stofnana hans,
fyrirhuguð er stækkun elliheim
ilisins, bygging bókasafnshúss,
stækkun Dalabúsins og fram-
liald Gagnfræðaskólabyggingar-
innar.
Á kjörtímabilinu hefur ríkt
árgæzka og jöfn og mikil at-
vinna, framkvæmdir einstakl-
inga og félaga meiri og stærri
heldur en nokkru Sinni fyrr í
sögu þessa byggðarlags og at-
vinnulíf og menning bhimgast.
Bæjarstjórn sú, sem kosin
verður 31. þ. m. tekur við bæj-
arfélaginu og stofnunum þess í
miklum blóma á framfarabraut
og óska ég hinni komandi bæjar
arstjórn allra heilla og velfarn-
aðar í starfi.
Að lokum vil ég sérstaklega
þakka ritara bæjarstjórnarinn-
ar, herra Axel Bjarnasen, fyrir
ágætt, árvakult og samvizku-
samlega unnið starf og gott
samstarf.
Lifið heilir og hafið ágætar
þakkir fyrir samstarfið.
Fundi slitið.
Helgi Benediktsson (sign); Ól-
afur Á. Kristjánsson (sign); Ár-
sæll Sveinsson (sign.); Guðlaug-
ur Gíslason (sign.); Þorsteinn
Þ. Víglundsson (sign.); Hrólfur
Ingólfsson (sign.); Þorbjörn
Guðjónsson (sign.); Sigurjón
Sigurðsson (sign.); Þorsteinn
Sigurðsson (sign.); Björn Guð-
mundsson (sign.).
Hafnarfram-
kvæmdir
Ráðgerð eru kaup á járnþili
í sambandi við fyrirlnigaðar
Itafnarframkvæmdir bæði í sam
bandi við viðgerð og dýpkun
upp að nyrðri hafnargarðshausn
um og bátakvíar og bryggjugerð
ar.
Nauðsyn ber til þess að
breikka innsiglinguna í höfnina
með því að dýpka norður að
nyrðri hafnargarðinum og hef-
ir verið um það rætt að dýpka
i tlýju blaði
iylgi úr hlaði.
!: Blað það, sem liér hefur
!: göngu œtlar að rjúfa þann
!: þagnarmúr, sem sleginn hef
; ur verið um stjórn bcejarmál-
!; anna og gefa Eyjabúum og
I'! öðrum þeim, er láta málefni
Eyjanna■ sig nokkru skipta
kost á að fylgjasl rneð þvi,
sem er að gerast í Veslmanna
eyjum á hverjum tima. —
Blaðinu er fyrst og fremst
œtlað það hlutverk að vera
málsvari Fra msóknarflokks-
ins og stefnu hans, en jafn-
liliða verður mönnum gef-
j, inu kostur á þvi að rœða
j málin frá mismunandi sjón-
;; arhólum.
I; Hvcrsu tekst að rcekja
;j framangreint hlutverk bygg-
;! ist á fólkinu i Eyjum og
: verður i blaðinu cetlaður sér-
j; stakur dálkur fyrir raddir
I; lesenda blaðsins.
Ritstjórinn.
í 10 metra fjarlægð frá garðsend
anum og ramma þar með járn-
þili. Vafasamt er þó, enda með
öllu órannsakað, hvort hægt er
að reka þarna niður járnþil, en
þá gæti komið til greina að
hreinsa grjótið, Sem er í innsigl
ingunni sunnan nyrðri garðsins
og dýpka þar eftir því, sem
hægt er, slétta og treysta botn-
lagið og sökkva steinkeri sunn-
an við garðhausinn til framleng-
ingar á garðinum og byggja of-
an á kerið. Hliðstæð aðgerð
leysti á Sínum tíma vandræðin
með syðri hafnargarðinn.
í sambandi við bátakví. og
fyrirhugaða bryggjugerð þá gæti
komið til álita, hvort slík mann
virki yrðu ekki varanlegust og
ódýrust me ðþví að byggja þau
ofan á steinker sem byggð yrðu
hér á staðnum og sökkt sem und
irstöðum eftir að búið væri að
grafa hæfilega fyrir kerunum.
H. B.