Skátablaðið


Skátablaðið - 01.09.1974, Side 14

Skátablaðið - 01.09.1974, Side 14
LFLJOTS VATN ~ jag:"Helgum frá döggvumV Undurfagra ðlfljó'tsvatn aldna kirkjujörö. Æskan bjarta auðnurík um þig heldur vörð. Guði .vígð þú geymir mátt og glæðir hugans þrá. Hjá þár ljómar heiðið blátt og hjalar sérhvert strá. Langeldar frá lándnámsöld lýsa hér á ný. Sama elfan Sogið breitt og sólin björt og hlý. Hefja skal hér skátaöld og ska,pa nýja tíð. Friði og drengskap veita völd er vari ár og síð. beturseint EN aldrei ! Jón Oddgeir Jónsson. Kæru skátar! Þetta ár mun verða mörgum minnistætt,vegna þei.rra atburða sem gerðust í heims og landsmálum. Þetta árið þegar íslandsbyggð varð ll.alda gömul. f heimi skátanna ber ’ Landsmótið hæst, hápunkt fjagra ára starfs. Þar sem kannað verður hvernig starfinu hefur vegnað. Við skátar hér á landi megum þakka fyrir góða landkosti okkur í hag. Ekki þarf nema að skreppa rétt út fyrir borg eða bæi til að finna heppilegan útilegu stað. Gnægð er staða þar sem gott er að stunda skáta íþróttir. En oft■er ekki hugsað um það, heldur tekið sem sjálfsögðum hlut, það er síður en svo sjálfsagður hlutur. Við höfum ómengaða náttúru, sem allir geta því miður .ekki státað af. Ekki veitir af að brýna fyrir skátum, jafnt sem öðrum að ganga vel um landið sitt. Þegar fyrstu landnámsmenn komu hingað var landið skógi vaxið milli fjalls og fjöru og gnægð fiskjar £ ám og fjörðum. Skógurinn er horfinn og eitthvað hefur fisknum fækkað. NÚ á dögum tækni-og auk- innar fræðslu verðum við að auka græðslu á örfoka sárum landsins. Skátar liggið ekki á liði ykkar notið þetta afmælisár- umfram önnur til að sýna vilja ykkar £ framkvcemd. GRÆÐUM UPP LANDIÐ! ÞAÐ ER YKKAR HEILL!

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.