Skátablaðið


Skátablaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 17

Skátablaðið - 01.09.1974, Blaðsíða 17
Þetta kvæði er ort um landnám skáta á Ölfljótsvatn og vonandi verður þetta landnám okkur til farsældar við skátastarf á íslandi um ókominn tíma og þar megi blómstra góð aðstaða til skátaíþrótta. Land fyrir stafni,lokkandi fyriheit, lifnar í brjósti von um betri daga. En hvað var að flýja,enginn um það veit, þó ástæður greini óljóst gömul saga. Rýnum betur forna sögusögn sjáum í anda,hvað er hér á seiði. Ferðbáinn bíður farkostur í höfn, ferðin skal hafin,þegur gefur leiði. Sögurnar gömlu þsr segja frá siglingu manna af norrænu kyni Atlandshafið eins var þá en ekki skipin þau voru minni. Húsbóndi og húskarlar husfreyja og stúlkurnar strákarnir og stelpurnar starfa allir saman. Kýrin Skjalda og kálfarnir klárinn gamli og folarnir Hryssan Brúnka og hundarnir hér mun verða gaman. Ærnar sína eiga kró að þe im gætir smalinn vandaður og vel upp alinn. Vist er fyrir flestu séð sem fólkið þarf að taka með verði því svo lukkan léð lán £ nýju landi og að höndum enginn beri vandi. Helzt má engu hérna megin gleyma hvar verður þeirra næst að kalla heima. Á er runninn aflands byr upp með segl í skyndi. Bíða Atlandsálarnir enginn hefur séð þar fyr öldugang í ógnar norðan vindi. Æfintýrið um eylandið eftir vill byrjar nú svona. Okkur er falið framhaldið fynnst ykkur ekki tilvalið við aldamóta afmælið að óska þess og vona. Til lukku verði landnámið um lífsins framtíð alla nú skín sól á nýja jökul skalla. Á okkar dögum ennþá flýja lönd ótaldir menn og leita nýrra kynna. Er land fyrir stafni er til önnur strönd ætli þeim takist nokkra ey að finna. ók. höf. Komið var líka kisu hró komin að hlýrri eldastó. Með fallega strokinn feldinn sinn fer hún strax að mala um músaveiðar verður ekki að tala. Þv£ enginn vissi um það par sem inn£ heystakk falið var. Músapabbi mátti þar mýslu litlu hugga músarhjarta mátt af duldum ugga. Ekki er gott að eiga bú f Skugga.

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.