Framsókn - 22.06.1960, Blaðsíða 5

Framsókn - 22.06.1960, Blaðsíða 5
FRAMSÓKN, BÆJARMÁLABLÁÐ 5 Vinnslnstöðvarmálið. Að marggefnu tilefni Almennasta umtalsefni Eyja- búa er nú Vinnslustöðvarmálið svokallaða, en að lokadómi í málinu er vikið annarsstaðar í blaðinu. Manna á meðal er um það spurt, hvort hér muni ekki vera um stærsta fjársvikamál að ræða, sem komið hefur fyrir ís- lenzka dómstóla og um það er líka spurt, hvort ráð Ástþórs Matthíassonar verði ekki fjár- plógsseggjunum dýr um það lýkur. Menn velta því mjög fyrir sér, hverjar verði endanlega af- leiðingar þeirrar dómsniður- stöðu Hæstaréttar að viður- kenna Kristinn Sigurðsson frá Skjaldbreið réttan sameiganda að öllum eignum Vinnslustöðv arinnar á þeim tíma, þegar fyrirtækinu var breytt í hluta- félag. Sjóðaeignir Vinnslustöðvar- innar eru mælikvarði, sem fé- lagsstjórnin hefur lagt á við- skiptalega arðsúthlutun úr fyr- irtækinu, en stofnframlögin eru hinn raunverulegi skipta- grundvöllur á eignum Vinnslu stöðvarinnar. Ekki er vitað, hverjar eru hinar raunverulegu eignir Vinnslustöðvarinnar um- reiknaðar til núgildandi pen- ingaverðs, en ef borið er saman skúrahrúgald það í Reykjavík, sem nefnt er Fiskiðjuver ríkis- ins og selt var á s. 1. ári fyrir nær þrjátíu milljónir króna, fyrir síðasta gengisfall, og séu svo aftur á móti hinar reisu- legu stórbyggingar Vinnslustöðv arinnar teknar til samjafnaðar, þá er ólíku saman að jafna. Svo koma skrifstofubygging Vinnslu stöðvarinnar, fyrirtækið Gunn- ar Ólafsson & Co. með sínum byggingum og dýrmætu lóðum og lendum, meirihlutaeign í Fiskimjölsverksmiðjunni, ásamt sameign í öllum helztu sölusam tökum fyrir sjávarafurðir m. m. þá blandast engum hugur um, að þarna er búið að safna eign um, sem nema tugum milljóna og væru hundrað milljónir ekki ólíkleg tala. Miðað við það, að Kristinn Sigurðsson sé eigandi að 2% af stofnfé Vinnslustöðv- arinnar og raunhæfum eignum 50 milljónum, væri eignar- hluti hans ein milljón króna, sem hækkaði svo hlutfallslega séu eignimar meiri, sem líklegt má teljast. Hér við bætist svo tap Krist- ins við það, að vera haldið ut- an félagsins og þátttöku í rekstri þess. Ein af líklegum afleiðingum Hæstaréttardómsins er, að kraf- ist verði gagngerðrar endurskoð unar á öllu reikningshaldi Vinnslustöðvarinnar og endur- mati á ákveðnum stjórnarat- liöfnum, sem fram hafa farið. En það hefur lengi verið í há- mæli haft, hversu vissum framá mönnum hjá Vinnslustöðinni hafi vegnað vel fjárhagslega, þrátt fyrir litlar sýnilegar tekj- ur. Hitt er svo aftur vitað, að mikið kapp verður nú á það lagt að komast að samkomu- lagi við Kristinn Sigurðsson um að kaupa hann út úr fyrirtæk- inu og frá dómsréttindum sín- um með einhverri fjárfúlgu, mun þar mörgu verða beitt, vinmælum, fláttskap, hótunum, vitnað til flokksfylgis og flokks hagsmuna, ætternis og að Krist ni reynist illa úr ætt skotið, ef hann ætli að beita bjargvætti byggðarlagsins harðræðum. Líkleg afleiðing á endurmati á eignum Vinnslustöðvarinnar og því að sannreynt verði hverj ar raunverulegar eignir fyrir- tækisins eru er það meðal ann- ars að núverandi hluthafar liins nýja hlutafélags endur- skoði afstöðu sína og láti sér nægja að leggja fram sem hluta fé séreignarsjóði sína, en krefj ist útborgunar á öðrum eignar hluta sínum í Vinnslustöðinni, sem leyst var upp og slitið við stofnun hlutafélagsins. Það þarf engan að undra þótt aðilar, sem ekki eru lengur aðilar að útgerð, kjósi heldur að fá fjármuni sína lausa og út- borgaða, og afleiðingar þess hvílík brjóstvörn Vinnslustöð- in hefur á undanförnum ár- um verið með það að halda afurðaverði niðri, speglast í fjárþörf útgerðarmanna lang- flestra og sem afleiðing hinna háu vaxta, sem nú gilda í við- skiptum, er að vonum hagkvæm ara fyrir útgerðarmenn að fá eignarhluta sinn í Vinnslustöð inni útleystann og lækka eigin skuldir og fjárráð, enda á nú- verandi hlutafé hins nýstofn- aða hlutafélags að vera fyrirtæk inu næg fjárhagsleg kjölfesta. til þess að koma fram hefndum vegna þess, að hafa verið kúg- aðir til skuldaeftirgjafar, en aðrir þeir, sem ekki gáfu eftir af viðskiptakröfum sínum á liendur Blöndalsfyrirtækjunum, voru kærðir og hundeltir af Ól- afi Þorgrímssyni, er þeir inn- heimtu kröfur sínar. Eg skrifaði Ólafi Þorgríms- syni 12. september 1956 og bað hann um að hafa milligöngu um innlausn víxla minna, því bréfi svaraði Ólafur ekki og ekki lieldur bréfi mínu frá 24. s. m. um sama efni. Skrifaði ég þá Hauk Jónssyni hdlm 3. nóv. 195ö og bað hann að leita eft- ir um greiðslu víxlanna. Að ekki kom til innheimtu- aðgerða haustið 1956 kom til af því, að að því var látið liggja, að ef til vill myndi vera hægt að fa víxlana greidda gegnum reikning hjá Búnaðarbankan- um, en á það var ekki full- reynt. Um líkt leyti fékk ég boð frá Brandi Brynjólfssyni hdlm í Reykjavík um, að hann vildi kaupa víxla þá, er hér um ræð- ir og voru á s. 1. sumri teknir upp samningaviðræður um þessi efni og var Ólafi Þor- grímssyni kunnugt um þær, og átti hann, Ólafur, allan tíma kost á því að leysa víxlana til sín, en gerði hins vegar ekki annað eftir því sem Brandur Brynjólfsson hefur sagt mér, en að liafa í hótunum, en það sem tafði þessa samninga okkar Brands var, að ég vildi gjam- an samtímis losna við kröfur á fleiri þá aðila, sem ég hafði orðið að leysa inn víxla á, sem endaði með því, að ég afsalaði Brandi Brynjólfssyni skúr við Miklatorg og söluturni í Kópa- vogi, er ég hafði orðið að yfir- taka í sambandi við viðskipti, er að framan greinir. Eg leit svo á, að með kaupunum á víxlum þeim, er að framan ræðir um væri Brandur Brynjólfsson meðal annars að létta ábyrgðarkröf- um af Hirti Hjartarsyni frænda sínum, sem mun vera einn þeirra manna, sem ábyrgð tóku á því, að ekki kæmu fram fleiri kröfur 4 Blöndalsfyrirtæk in en þær, sem upp voru gefn- ar í upphafi. En framkvæmd viðskipta okkar Brands varð sú, að Brandur veðsetti mér til tryggingar víxlakaupunum og fleiru, hluta af húseign í Reykja vík, sem Hjörtur Hjartarson hafði afsalað til Brands, og skildi ég þetta þann veg, að með þessu væri verið að dreifa skuldum þessum á lengri tíma, en ég tók skuldabréf Brands affallalaus. Víxlar þeir, er um ræðir, voru allir áritaðir af Út- vegsbankanum, samkvæmt fyrir mælum Helga Guðmundssonar bankastjóra um að ég hafi inn- leyst þá . Brandur Brynjólfsson, sem keypti víxlana, vissi allt um slúður Ólafs Þorgrímssonar, sem er endurtekning, eins og að framan greinir á hliðstæð- um söguburði gagnvart öðrum þeim, er innheimt hafa skuldir sínar hjá Blöndalsfyrirtækjun- um. Herra Haukur Jónsson, hdlm. var milligöngumaður um endanlegt uppgjör mitt og Brands Brynjólfssonar. Víxlana framseldi ég í samráði við Hauk og að ósk Brands „til handhafa með skírskotun til á- ritunar Útvegsbankans og án á- byrgðar." Gunnar Hall, fram- kvæmdastjóri Blöndalsfyrirtækj anna hefur viðurkennt það í viðtali við Hauk Jónsson, hdlm. að hann hafi enga víxla látið mig hafa sjálfur, en að alla þá víxla, er ég hafi eignazt á Blön- dalsfyrirtækin hafi ég fengið hjá Guðumundi H. Þórðarsyni, og er það rétt. Um aðdróttanir Ólafs Þor- grímssonar um, að ég hafi reynzt erfiðastur lánadrottna Blöndalsfyrirtækjanna er reynsl an ólygnust, ég sýndi alla til- hliðrun, sem í mínu valdi stóð, aðra en skuldaeftirgjöf, og hefi til skamms tíma beðið með inn heimtu á verulegum fjárhæð- um. Þessu til viðbótar má geta þess, þótt það komi málinu ekki beinlínis við, að atvinnu- rekstur minn hefur verið mjög erfiður undanfarin ár, en fast gengið eftir skuldheimtu á mig, auk þess sem ég á yfirstandandi ug s. 1. ári þurfti að verja mikl- um fjármunum til þess að standa straum af lækniskostnaði erlendis vegna blindra tvíbura- sona minna, þurfti t. d. á s. 1. sumri að selja einkabíl minn til þess að greiða kostnað við Ameríkuferð drengjanna í ár. Tel eg mér óskylt og nánast ó- leyfilegt undir kringumstæðun-

x

Framsókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsókn
https://timarit.is/publication/880

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.