Framsókn - 22.06.1960, Side 6

Framsókn - 22.06.1960, Side 6
6 FRÁMSÓKN, bæjarmálablað um að gefa burt verulega fjár- muni miðað við allar aðstæð- ur. Með bréfi, dagsettu 22. okt. s. 1. kærði Ólafur Þorgrímsson fyrir Guðbrandi Magnússyni forstjóra í Reykjavík og er sú kæra efnislega lík kæru þeirri, er hér er rætt um. Guðbrand- ur sendi mér bréf Ólafs og svaraði ég Guðbrandi aftur 25. s. m., efnislega eins og framan er rakið. Eg teldi eðlilegt, að Ólafur Þorgrímsson legði fram víxla- skrár Blöndalsfyrirtækjanna, út af fyrir sig gæti það annars ver ið rannsóknarefni, að rannsaka hverjar aðferðir Ólafur Þor- grímsson notaði til þess að kúga einstaklinga og fyrirtæki til skuldaeftirgjafar, og þá jafn hliða, hvern þátt Ólafur kann að hafa átt í því, að víxlar Blöndalsfyrirtækjanna voru sett ir í umferð með þeim hætti er gert var. Annars kann að vera, að um einhvern persónulegan kala sé að ræða í minn garð frá Ólafi Þorgrímssyni, ber þar tvennt til, hann dró úr hófi fram að skila mér innheimtufé frá mér 1928 og ég hef neyðst til þess að lögsækja skjólstæðing hans vegna viðskiptalegra van- skila. En að lokum skal það endur tekið, að víxla þá er um ræðir fékk ég frá Guðmundi H. Þórðarsyni, en ekki frá Gunn- Hall, og allir víxlarnir eru af- hentir mér sem nýir og sjálf- stæðir víxlar, en ekki sem fram lengingarvíxlar, vfxlarnir báru engin einkenni, er þeir komu í mínar hendur umfram fjárhæð- ir og gjalddaga. Viðskipti Gunnars Hall og Guðmundar H. Þórðarsonar eru mér með öllu ókunn. Vestmannaeyjum 30. nóv. 1957- Helgi Benediktsson. Til Bœjarfógetans i Vestmannaeyjum. Skv. beiðni Helga Benedikts- sonar skal það tekið fram, að ég tel samkvæmt minni, að efn islega sé rétt með farið í bréfi Helga, dags 30. nóvember 1957 til bæjarfógetans í Vestmanna- eyjum, þar sem segir: „Gunnar Hall framkvæmdastjóri Blönd- alsfyrirtækjanna hefur viður- kennt í viðtali við Hauk Jóns- son hdlm. að hann hafi enga víxla látið mig hafa sjálfur." Eg man ekki betur en Gunn ar Hall segði mér, að hann þekkti Helga ekki og hefði eng in skipti haft við hann. Þetta sagði ég I-Ielga nokkru síðar. Viðtal mitt við Gunnar Hall mun ég hafa átt í nóvember 1956. Reykjavík 20. maí 1958. Haukur Jónsson, hdlm. Á árinu 1954 afhenti ég und irritaður Guðmundi H. Þórðar syni nokkra víxla, samþykkta af mér og Efnagerð Hafnarfjarð ar, gegn kvittunum frá Guð- mundi H. Þórðarsyni, Spítala- stíg 5, en víxla þessa tók Guð- mundur H. Þórðarson að sér að selja fyrir mig. Síðan kom í ljós, að Guðmundur H. Þórðar son hafði selt víxlana án þess að skila mér andvirðinu og inn heimti Helgi Benediktsson nokkra þessara víxla, sem hann liafði keypt af Guðmundi H. Þórðarsyni og síðan selt Útvegs bankanum í Vestmannaeyjum, og endurleyst víxlana þar sam- kvæmt áritun bankans á þá. Eg hef engin skil fengið frá Guð- mundi H. Þórðarsyni á and- virði víxlanna. Reykjavík, 26. maí 1959. Guðmundur Guðmundsson. Vesturgötu 20. Hafnarfirði 27. jan. 1960. Þar sem fullt samkomulag hefur náðst í deilumálum þeim milli Ragnars Blöndal h. f. ann arsvegar og Helga Benediktsson ar, kaupmanns, Vestmannaeyj um hinsvegar, þá leyfi ég mér hérmeð að afturkalla kærur þessar og óska þess að ekki verði frekar aðgert í málinu. Jafnframt óska ég eftir að fá endursend frá réttinum skjöl þau, sem ég á sínum tíma sendi varðandi málið. Virðingarfyllst, Ólafur Þorgrímsson. Samrit af frumriti sendu Sakadómi Vestmannaeyja. Ólafur Þorgrímsson. 19. marz 1960. Út af fyrirspurn yðar, herra sakadómari, um samkomulag okkar Helga Benediktssonar í sambandi við kæru mína á hendur Helga vegna víxilvið- skipta hans við Ragnar H. Blöndal h. f. og Nærfatagerð- ina Lillu h. f„ leyfi ég mér að tjá yður eftirfarandi: Með tveim bréfum kærði ég Helga Benediktsson fyrir saka- dómi Vestmannaeyja vegna þess að ég taldi, að hann hefði með sviksamlegum hætti haft fé af umbj. m. með því að selja Brandi Brynjólfssyni víxla, sem umb. m. höfðu greitt með fram lengingarvíxlum, en þá víxla hafði Helgi fengið greidda við skuldaskil Ragnars Blöndal h. f. Mál það hefur síðan verið fyrir sakadómi Vestmannaeyja, án þess að ég gæti nokkuð feng ið að fylgjast með því, þrátt fyrir ítrekaðar eftirgrenslanir. Fyrir nokkrum mánuðum kom Helgi Benediktsson hing- að í skrifstofu mína, kvaðst leið ur á þessu málaþrasi og vilja sættast. Varð það að samkomu- lagi, að hann gerði upp fjár- kröfuna sumpart með pening- um og sumpart með skuldavið urkenningu þeirri, sem hér fylg ir með í afriti. Jafnframt skrif aði ég samstundis sakadómi Vestmannaeyja og tilkynnti um samkomulagið og jafnframt það, að umbj. m. óskuðu ekki frekari aðgerða fyrir sitt leyti. Þá æskti ég þess að fá endur- send skjöl þau, sem ég hafði sent réttinum. Ekkert svar hef ur mér borizt við því bréfi. Eg vil taka það fram, að ekk erl komfram í viðræðum okkar Helga í þá átt, að hann viður- kenndi sök í málinu, heldur aðeins hitt, að hann vildi frið og sátt um málið. Virðingarfyllst. Ólafur Þorgrímsson. sign. Til sakadóms Reykjavíkur. Ofsóknirnar gegn Helga Bencdiktssyni og fjölskyldu hans er orðinn landsfrægur smánarblettur á Vestmannaeyj- um, þótt þar séu aðeins að verki fáir menn. Að því kann að líða, að málum þessum verði gerð nokkuð gleggri skil, en að þessu sinni skal aðeins stiklað á nokkrum atriðum. Fyrir tæpum þrjátíu árum, er einn af sonum Helga Bene- diktssonar, þá á fjórða ári, var að leika sér við heimili móður foreldra sinna, ók bíll á krakk ann, lítt var um þetta hirt af lögreglu eða þeim, sem slysinu olli, og ekkert gert úr meiðsl- um, en er barnið dögum sam- an var viðþolslítið af kvölum var farið með það í sjúkrahús til myndatöku og reyndist þá drengurinn handleggsbrotinn. En þetta var að engu bætt. Ekki alllöngu síðar á miðri vertíð, er afli tók að glæðast, var sandur settur í smurkassa á vélum í tveim bátum Helga Benediktssonar með þeim af- leiðingum, að vélarnar bræddu legur sínar og urðu frá veiðum beztu veiðidagana, kunnugt var hver stóð að baki þessu, en ekki um sinnt. Helgi Benedikts son byggði á nokkrum árum fimm fiskiskip og báta í Eyj- um og endurvakti þá bátabygg- ingar í Eyjum til fornrar frægð ar, fyrir atbeina þáverandi þingmanns Eyjanna var Helgi sniðgenginn með alla fyrir- greiðslu á sama tíma og öðrum bátabyggjendum var endur- greiddur tollur af skipabygg- ingarefni, þá var umleitunum Helga ekki svarað ,og þegar Heigi hafði byggt skip sitt, Helga, árið 1939 og allir aðrir höfðu fengið byggingarverð- laun, þeir er samtímis byggðu skip, þá kom sami þingmaður í veg fyrir að Helgi Benedikts son nyti þar jafnréttis. Frægast í þessum efnum er þó er Helgi hafði byggt skip sitt, Helga Helgason, árið 1947, en skip þetta var og er enn stærsta og glæsilegasta og bezt búna fiskiskip, sem hérlendis hefur verið byggt, að þá var neitað uni stofnlán út á skipið, og er þess var freistað með málssókn að fá lánið tildæmt, þá komust dómstólarnir að þeirri niður- stöðu, að íslenzk skipasmíði væri ekki sambærileg erlendri, en það merkilegasta var þó, að málskostnaður var látinn niður falla. Það atvikið, sem lengs mun í minnum haft, og sennilega aldrei fyrnist yfir, er þegar Ár- sæll Sveinsson, formaður Björg unarfél. Vestmannaeyja, hindr- aði Benóný Friðriksson frá því að bjarga mönnunum úr Sker- inu 1950. En það er margs að minnast á langri leið. Bátaá- byrgðafélagið hefur verið not- að af forráðamönnum sínum til þess að firra Helga Benedikts- son tjónbótum og halda fyrir honum uppgjörum á annan ára tug. Og eitt sinn, er Helgi og einn af sonum hans leituðu eftir uppgjöri tjónbóta, þá réð- ist svokallaður framkvæmda- stjóri Bátaábyrgðafélagsins á son Helga og barði hann. Eftir að Helgi Benediktsson hafði haft forgöngu um stofnun Vinnslustöðvarinnar var fjár- hlutur hans þar tekinn án dóms og laga og margir þekkja

x

Framsókn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn
https://timarit.is/publication/880

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.