Ný vikutíðindi - 04.06.1965, Qupperneq 3
Ní VIKUTIÐINDI
8
og erlends fólks. Meðan setið
var að glæsilegri danskri mál
tíð, þá kom Gullfoss brun-
andi út Eyrarsund. Islend-
ingamir og borðfélagar
þeirra risu úr sætum og
gengu út að glugga salarins,
þeim er að Eyrarsundi vissi,
og það fór fagnaðarbylgja
um hugi þeirra. En hitt var
merkilegra, að allt hið er-
ienda fólk, sem þama var
statt, reis líka úr sætum sín-
mn og horfði með engu
minni hrifningu á hinn glæsi
lega farkost.
Það er nefnilega eitthvað
sérstakt, sem erfitt er að
lýsa með orðum, við Eim-
skipafélagsskipin og þá al-
veg sérstaklega við Gullfoss,
flaggskipið góða og fagra.
Það er helzt hægt að iikja
þvi við, að þar væri hluti af
islenzku þjóðarsálinni innan
borðs.
hjalpandi
bróðurhönd
En Eimskipafélagið er
okki eingöngu félag, sem á
skip sem flytja farþega og
vörur landa á milli og með
ströndum fram. Eimskipafé
lagið er með vissum hætti
nokkurs konar þverskurður
af öllu því bezta, sem ís-
lenzkt er.
Eimskipafélagið tók
snemma upp þann hátt að
%tja námsmenn og lista-
menn landa á milli fyrir lágt
fargjald til stuðnings mennt-
am og listum.
Eimskipafélagið hefur líka
iagt fram fé til hafnarfram-
kvæmda víða um land, og
þegar þrengst var um fjár-
ráð hjá Flugfélagi Islands í
brautryðjendastarfi þess fé-
iags, þá var það Eimskipa-
félag íslands, sem rétti fram
hjálpandi bróðurhönd.
Loks hafa svo Vestur-ís-
lendingar stofnað myndar-
legan sjóð við Háskóla ís-
lands á vegum og í tengsl-
um við Eimskipafélagið.
SIGURGLEÐI
Yfir Eimskipafélagi Is-
lands hvíhr viss ferskur og
virðulegur svipur. Aðalfund-
ir Eimskipaféiagsins eru
virðulegar samkomur, þar
sem fram koma góðar erfðir
fortíðar í nánu samstarfi við
líðandi tíð og með brúar-
sporða yfir til framtíðarinn-
ar.
Það var bjartur og léttur
blær yfir aðaifundinum 21.
maí s. 1. Fundarmönnum
svall móður í brjósti; sigur-
gleði og sigurvissa settu svip
sinn á fundinn.
Vel virðist koma til greina,
til þess að sem flestir lands-
menn geti verið og eignazt
hluti í félaginu, að heimila
útgáfu nýrra viðbótar smá-
hlutabréfa, t. d. þúsimd
króna bréfa, sem nýir hlut-
hafar gætu fengið keypt, til
þess að afla sér félagslegra
réttinda og afla sér þeirrar
tiifinningar, að þeir séu líka
þátttakendur í uppbygging-
ar- og þjónustustarfi félags-
ins.
Það var ánægjulegt að sjá
Guðmund Vilhjálmsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra
Eimskipafélagsins, á aðal-
fundinum, manninn með ára-
tuga langt farsælt starf að
baki. Og hinn bjarti og ein-
beitti svipur framkvæmda-
stjórans nýja fól í sér fyrir-
heit inn, að merki félagsins
skuli ekki falla, meðan hans
nýtur við.
*
*
¥
¥
¥
¥
¥
t
¥
¥
¥
¥
¥
Sími 17333.
GLAUMBÆR
Dansað öll kvöld
(nema á miðvikudögum).
Borðpantanir í síma 11777.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00.
GLAUMBÆR
SÓII 11777 og 19330
KOMPAN
Hátt fargjald - Börnin í sveit. - Viðey -
I
Engey - Bossa Nova. - Lokaðir baðstaðir -
Astarvísa. - Hábær
ÞAÐ er mál manna, að Akraborgin sé
dýrasti farkostur í veröldinni, en far-
miði með henni upp á Akranes kostar
eitt hundrað og tuttugu krónur.
Lætur nærri að hver míla, sem þetta
ágæta skip flytur mann, kosti tíu krón-
ur og er það sannarlega drjúgur skild-
ingur fyrir ekki lengri ferð.
Þrátt fyrir hin háu fargjöld hefur
útgerðin gengið hálf-brösulega, og mun
um að kenna ónógri fragt.
Til dæmis fer Akraborgin ekki nema
einu sinni í viku til Borgamess, en
kaupfélagið þar mun hafa tekið þann
kostinn að flytja allar sínar mjólkuraf-
urðir hingað suður með bílum.
ÞEIR munu þykja alra manna lánsam-
astir, sem hafa komið bömum sínum
í sveit, en að því er nú ekki hlaupið.
Þó hefur það aukizt talsvert á síðari
árum, að sveitaheimili taki nokkuð
mörg böm yfir sumartímann og höfum
við fregnað að gjaldið fyrir hvert bam
sé 2.500 krónur.
Það er sem sagt vissara að hafa góð-
ar tekjur, ef senda á mörg böm frá
sama heimilinu í sveit.
ER EKKI hugsanlegt að gera skemmti-
garð úti í Viðey? Víst er að fólk hefur
talsverðan áhuga á því að fara þang-
að út, en hins vegar mun eigandinn,
Stefán Stephensen, ekki vera yfir sig
hrifinn af rápi út í eyjuna. Mun Stef-
áni hafa gramist blaðaskrif um slæma
umgengni í eyjunni, þar sem hann var
hafður fyrir rangri sök, og það svo
mjög að hann er varla fáanlegur til að
leyfa fólki að skoða hina merku Viðeyj-
arstofu. Annars hefur heyrzt að Stef-
án hafi boðið bænum Viðey til sölu, en
verðið er fimmtán milljónir.
ÖNNUR eyja er í nágrenni Reykjavík-
ur, Engey, og hefur löngum verið búið
þar, en þó ekki síðustu áratugina.
Þar standa tvö hús og hafa til
skamms tíma verið í megnustu van-
hirðu.
Svo brá við um síðustu helgi, að ein-
hver tók sig til og málaði húsin, og er
það sannarlega þakkarvert.
ÞAÐ mun heldur hafa hlaupið á snær-
ið hjá einum af blaðamönnum viku-
blaðsins Fálkanum á dögunum.
Fréttzt hefur, að Sigurjón Jóhanns-
son hafi komizt yfir myndir, sem tekn-
ar voru á hinum frábæru tónleikum
Músíka Nóva (sem nú er ahnennt
nefnd Bossa Nóva) og mxmu myndim-
ar koma í Fálkanum innan tíðar.
MIKIL gremja er meðal sóldýrkenda I
þeirra, sem sækja baðstaði höfuðborgar I
innar, út af því að ekki skuli vera op-
ið á almenmun frídögum, þegar fólk
hefur einna helst tækifæri til að slíeikja |
sólskinið, fáklætt.
Þessu má til með að kippa í lag, og
væri til dæmis hugsanlegt að hafa að-
gangseyrinn ögn hærri rnn helgar, til
að standa straum af helgidagavinnu-
kaupi starfsfólksins.
Á skólaárum sínum varð Tómas Guð-
mundsson skáld eitt sinn ástfanginn af
danskri stúlku, og eins og við var að
búast orkti hann henni ástarljóð og það
ekki af verri endanum:
,Du ved ej hvor jeg længes
min elskede eftir dig
Jeg tror jeg ville hænges
hxis du blev hængt með mig“.
TALSVERÐ aðsókn mim hafa verið að
liinum ldnverska matstað í Hábæ, enda
er maturinn þar ágætur, þó að hér-
lendis sé að vísu ekki hægt að fá allt
til kínverskrar matargerðar.
Þarna er hægt að velja mn fjóra
kínverska rétti og sitja í rólegheitum,
laus við hávaða í lélegum músiköntum.
Ef ástæða væri til að kvarta yfir ein-
hverju á þessum ágæta matstað, væri
það helst loftræstingin, en eins og allir
vita svitna menn, þegar étinn er kín-
verskur matur með tilheyrandi kryddi.
Bö rkur
ifc