Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 14.04.1967, Page 4

Ný vikutíðindi - 14.04.1967, Page 4
•i NY VIKUTlÐINDI GKÍSKIR DÖLGAR — Framhald af bls. 1 iiandbæra peninga fyrir mán aðarleiguimi, !því nú væru bankamir lokaðir. iÉg lét það gott 'heita. Þegar vika hafði liðið, án þess að hjónin létu til sín heyra, byrjaði rukkun- aramstur mitt, en leigu fyrir fyrsta mánuðinn fékk ég þó eftir hálfan annan mánuð. LÉg var sjáif upptekin í erf iðri vinnu, svo að ég dró á ianginn að gera ráðstafanir til að koma skötuhjúunum út, en tnúði loforðum þeirra og lygum um greiðslur. Eina skiptið, sem þau borguðu á réttum tíma, var 1. nóvem- ber. Hinn 10. desember fór Vív- eka til Svíþjóðar, en áður hafði ég fengið heimilisfang hsnnar þar, vegna ógreiddra siímareikninga til Svíþjóðar, o g féfck ég það — en bara falsað; það get ég sannað. Seinna frétti ég að hún hefði verið rekin úr vinnunni. Þann sama dag gerði ég harða hríð að Konstantín. Lét ég lesa af hita- og raf- magnsmælum og reyndist sknldin þá vera 2.400 krónur. Sagði ég þá Grikkjanum upp húsnæðinu í votta viðurvist. Sýndi hann mér þá faktúrur fyrir vörum, sem hann ætti í vörugeymsluhúsi hér á hafnarbakkanum og að hann ætti von á peningum frá föð- ur sínum til að leysa þær út. Væri hér um 100 þús. kr. kapítal a)ð ræða og skyldi hann óðara borga allar skuld ir, þegar hann hefði komið viðskiptunum í kring. I september varð ég vör við að þriðji maðurinn var farinn að halda til í íbúðinni að mér forspurðri. Kvað Kon stantán það vera frænda sinn. A.uk þess sagðist hann hafa borgað 25 þús. kr. fyrir heild söluleyfi hér, en seinna, þeg- ar ég leitaði mér upplýsinga um það, reyndist það lýgi eins og allt annað, sem þessi maður sagði. Eftir þessar fortölur og lygar fellst ég á að iþeir mættu vera til 20. desember, en þá sögðust þeir myndu greiða skuldirnar. Grikkimir voru nú orðnir þdr frá því í nóvember. Þeg- ar ég gefck eftir greiðslu 20. desember, kvaðst Konstantín eiga von á 25 þús. kr. frá Víveku. Eg hafði þá þau orð að ég myndi efcki láta bera þá út yfir jólin, sem þeir notuðu, því nú bættust í íbúð ina hjón utan af landi. Hef ég sterkan grun um að þau o'g hinir gestimir tveir hafi borgað Konstantín húsaleigu, (bótt ég væri aíldrei beðin leyfis um dvöl þessa fólks. Þann 2. janúar fór ég enn á stúf ana og nú var mér sagt að skeyti hefði borist frá Viv eku um að peningamir væru á leiðinni. Undirritaði Kon- stantin þá viðurkenningu um að skulda mér 12 þús. kr. í húsaleigu ásamt rafmagni, hita og símareikningum. Bjóst ég nú við, að ég þyrfti ekki annað en kref jast þess að hann yrði kyrrsettur í landinu, þar til hann hefði greitt skuld sína. Til þess að gera langa sögu stutta um göngur mín- ar milli opinberra aðila, get ég sagt að þær reyndust all- ar árangurslausar. Um miðjan janúar reyndi ég lögtak, en án árangurs. Sagði ég þá Konstantín að hann yrði borinn út án tafar, ef hann færi ekki með góðu, sem hann kvaðst skyldi gera en að hann yrði að fá 2—3 daga til að pakka niður (það hefðu þeir þó getað á hálf tíma). Seinna/ sama dag kemur hann til mín, segir að þeir Grikkimir séu búnir að fá vinnu og grátbiður mig um að lofa þeim að vera áfram; þeir skuli borga 4 þúsund á viku þar til upp sé greitt. Félilst ég á það, enda taldi ég vonlaust að ég fengi nokk uð borgað, ef ég léti bera þá út. Vikan leið og ekki kemur greiðslan þann föstudag. Seg ir Konstantín mér þá að ekki sé greitt kaup hjá fyrirtæk- inu, sem hann nafngreindi, fyrr en að tveim vikum liðn- um. Ég leitaði upplýsinga hjá fyrirtækinu og kom þá í ljós, að þeir höfðu mmið þrjú fcvöld í vikunni og áttu að byrja aftur á mánudags- morgun. Ég lét mig því enn. Aðfaranótt mánudagsins komu þeir heim klukkan þrjú, og þá með stúlkur. Mættu þeir auðvitað ekki í .vinnunni morguninn eftir og ekki .heldur á þriðjudag og var mér þá sagt hjá fyrir- tækinu, að þeir yrðu ekki tefcnir aftur. Á miðvikudag sagði ég að þeir skyldu nú fara með góðu eins og þeir hefðu lof- að, en Konstantín neitaði því; sér yrði fyrst að berast bréf frá fógetanum. Tvisvar fengu þeir tilkynn ingu frá fógetanum og loks var lögreglan send á þá. Gátu iþeir þá enn logið sér út 5 daga frest. Að lofcum voru þeir bornir út 15. febrúar 1967. Skuldin var þá orðin: Þriggja mánaða húsaleiga 18.000.00 Símaskuld 6.633,80 Hiti og rafmagn 3.970.47 Samtals kr. 28.604.27 íbúðin leit út eins og þar hefðu búið skepnur en ekki menn. Varð ég að láta mála hana hátt og lágt, skipta um klósettskál, gólfteppin voru nær ónýt og öll húsgögnin meira og minna skemmd, m. a. var íssfcápurinn brotimi. Ég vil einnig geta þess að allan tomann, sem Grikkirnir voru hér, varð óg ekfci vör við aJð þeir stunduðu vimiu. Hins vegar vissi ég að þeir voru vanir að fara út á kvöld in, klukkan þetta 9 til 11, en koma ekki heim fyrr en 2 til 5 á nóttunni. Ég sagði útlendingaeftirlit inu frá þessum háttum þeirra strax í nóvember. Konstantín villti á sér heimildir og taldi sig vera með heildverzlun. Vann hann sér þannig tiltrú ýmsra, m.a. veit ég að hann Sveik út úr kaupmanni nokkrum 5000 krónur. Fleiri slífc dæmi veit ég um. Mér er tjáð að það, sem þessir menn raunverulega stunda, sé fjárhættuspil og reyni að selja sig jafnt kon- um sem körlrnn, þótt ég geti að vísu ekki sannað það, en veit þó um einn, sem segist geta borið þess vitni. KÁRA ÞÁTTUR Framliald af bls. 1. svo snúðugt að hinn síðar- nefndi hringdi heim frá Síka gó og sagðist vera kominn á hausinn — og samkvæmt þvi var bílaleigal hans tekin til gjaldþrotaskipta að eigin ósk. Það næsta, sem vakti at- hygli á Kára, var sérstakt grínnúmer, sem sett var á syið í Biskupsskrifstofunni, þegar nokkrir þekktir fjár- málamenn komu saman þar í höfuðstöðvum föður, sonar og heilags anda og tóku að bítast um aurana, sem Kári átti hjá aðalfulltrúa guðs al- máttugs á Islandi, biskupn- um yfir Islandi. Varð þessi skrípaleikur á biskupsskrifstofunni lands- mönnum kærkomið aðhláturs efni, enda langt síðan Is- lendingar fóru að álíta að kirkjan gegndi þó einhverju hlutverki, ef hægt væri að hafa af þeirri stofnun nokk- urt stundargaman. Og það síðasta, sem frétt- ist af margnefndum Kára, var svo það, að hann lokaði borgarfógetann inni með þeim orðum, að hann væri blindfúllur að bjóða upp eig- ur sínar — og gaf raunar yf- irlýsingu í blöðin þess efnis. Borgarfógeti svaraði um hæl og hirti ekki um að bera af sér fylliríið, en sýndi fram á það, að Kári hefði fengið sama servis hjá embættinu og aðrir fallítt fjármálamenn —og er trúlegt að þetta mál sé úr sögunni. Hins vegar ætti það nú að vera orðið deginum ljósara að umræddur Kári sé gjald- þrota og mun það enda al- mennt álitið. En nú skeður það, að gróu sögur ganga fjöllunum hærra um Kára og f jármála- sviftingar hans, eftir að hann átti samkvæmt formúl unni að vera eignalaus. Nán- 'ustu ættingjar hans hafa gert tilboð í húseignir bæði fyrir austan og vestan læk og flokkur iðnaðarmanna undir hans stjóm stendur í ströngu að flifcka upp á gamlar (húse’jgnir og koma þeim í söluihæft ástand. Og nú bíða allir í ofvæni eftir iþví að fá nánari vit- neskju um það, hvort Kári sé f jáður eða fallítt. **♦ ♦*♦ »*♦ **♦ **♦♦ JÖRGENSEN — Framhald af bls. 8. að fjármál sín væru öll í stakásta lagi og að sögusagn ir, sem hnigu í aðra átt, væru rógur einn og illmælgi þekk- ingarsnauðra og öfundsjúkra manna, sem ekki væru sam- keppnisfærir. KÆRAN. Þegar svo einn af aðalrík- isbönkum, sá bankinn, sem hefir þýðingarmestu þjón- ustu við útveg og fiskvinnslu ásamt með útflutningsverzl- uninni innan sinna vébanda, kærði vanskil Friðrifcs Jörg- ensens og margháttuð biot, sem líkleg voru til þess að baka bankanum og öðrum lánastofnunum þjóðarinnar. stórfelld töp og fjárihagsaf- hroð, þá var kærunni lengi vel nánast svarað, eða svo virtist sem kæran væri ekki virt afgreiðslu, en önnur mál, smáhnupl og þessháttar, virtist sitja í fyrirrúmi. Svo, eftir að Friðrik Jörg- ensen hafði haft mánaða fresti til að hagræða bók- haldsgögnum sínum að eigin vild, þá fóru fram að þvi er virðist einhvers konar mála- myndaréttanhöld og því næst öllu sópað í nýjar endurskoð- anir og Friðrik látin valsa um hnakkakerbur og halda áfram starfsemi sinni. LYKLAVÖLDIN. Fyrri félagar Friðriks Jörgensens í Vestmannaeyj- um, þeir sem upphaflega höfðu verið eins konar móð- urskip atvinnureksturs Frið- riks, fengu í friði að hagræða sínum málum og velja sér það af eignum Friðriks Jörg- ensens, sem þeim hentaði, þar á meðal er talið að þeir hafi leyst úr höndum Frið- riks hlutabréf hans í fyrir- tækjum sínum 1 Vestmanna- eyjum. Og bankarnir virðast hafa haldið áfram að moka fé í allan þennan atvinnu- rekstur eftir því sem með hefir þurft. I sambandi við bæjarstjóm arkosningarnar á s.l. vori, þá varpaði Gísli Gíslason, vara- bankaráðsmaður Útvegs- bankans, fram þeirri spurn- ingu í kosningabaráttunni í framboðsræðu sinni í Vest- mannaeyjum, hvar andstæð- ingar Jörgensens, félaga Gisla, ætluðu að fá peninga ef þeir næðu völdum í Vest- mannaeyjum. Fór það ekki á milli mála að Gísli var þai-na að hóta með bankalegu pen- ingavaldi, þar sem hann taldi sig og Jörgensena sína hafa lyklavöldin. Nýlega var frá því sagt í fréttum blaða og útvarps, að umkomulítill rithöfundur, sem hafði fyrir rúmu ári dregið sér rúma milljón af aimarra fé og þá verið sett- iu’ í gæzluvarðhald, meðan á rannsókn málsins stóð, hafi verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. KOKHREYSTI. Á sama tíma er það haft í hámælum, að salta eigi öll mál Friðriks Jörgensens og hinna skattlausu samstarfs- manna hans og félaga fram yfir alþingiskosningar, en að hann muni reka útflutnings- verzlun sína og aðra starf- semi með miklum krafti í skjóíí stjómarvalda og opin- berra aðila. — Ekki hefir maðurinn verið gerður gjald- þrota, sem þó er skyldugt ef maðurinn á ekki fyrir skidd- um, eins og í almæli er, en að væntanlega muni fésterkir aðilar rétta við f járhag hans áður en yfir lýlcur. Talið er að stjómin álíti sig ekfci haf a bolmagn til þess að glíma við fleiri f jár- svika- og uppivöðslumál en þegar eru komin í gang og að nöfn, sem ekki þola mikla bletti, kunni að flækjast inn í mál Friðriks JörgensenS, verði þvi framhaldið. En á hinn bóginn mun Friðrifc búinn að endurheimta kokhreysti sína og hafi bara í hótunum við hvem sem er á móti honum. x+y.'

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.