Ný vikutíðindi - 07.11.1969, Side 8
8
NÝ VIKUTlÐINDI
Vlælikvarbi á stjórnmálaáslandið?
Hugleiðingar vegna bæja- og sveitastjórnakosninganna
á næsta vori
Kosningaskjálfti vegna.
bæja- og sveitastjórnarkosn
inga á næsta vori gerir nú
vart vi'ö sig í vaxandi mæli
víða um land, og ráöstafanir
ríkisstjórnannnar og vax-
andi ábyrgöarleysi í meöferö
fjármuna talar sínu máli.
Vestmannaeyjar eru me3
vissum hætti nokkur mæli-
kvarði á stjórnmálaástand-
ið. Þar tapaði Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihiutaaðstöðu
sinni í síðustu bæjarstjórn
arkosningum, og er Vest-
mannaeyjum nú stjórnað af
samstjórn Framsóknar-
flokksins, Alþýðubandalags-
ins og Alþýðuflokksins. Tveir
fyrst nefndu flokkarnir hafa
tvo fulltrúa hvor, en Alþýðu-
flokkurinn einn og er sá
fulltrúi bæjarstjóri, og skap-
ar Alþýðuflokknum sterka
aðstöðu.
Innan Alþýðuflokksins í
Eyjum var og er nokkur vilji
fyrir þvi að stjórna með
Sjálfstæðis'flokknum, og telja
ýmsir að til slíks samstarfs
kunni að draga eftir næstu
kosningar, en þó er það ekki
allskostar líklegt.
Það, sem hefur komið
Sjálfstæðisflokknum verst í
Eyjum, er að bæjarstjórnar-
meirihlutinn, með forgöngu
bæjarstj órans (Alþýðuflokks
manns) og forseta bæjar-
stjórnar ( Framsóknar-
manns) réðust í það hervirki
fljótlega að afstöðnum kosn-
ingum, að kæra framtöl
helztu fiskvinnslufyrirtækj-
anna í Eyjum og kveðja
skattalögregluna til bókhalds-
rannsókna í Vestmannaeyj-
um. Má segja að skattalög-
reglan hafi nánast verið þar
landlæg síðan, með miklum
árangri til skattahækkana
fyrir bæ og ríki. Bera þar
að sjálfsögðu hæst tekjuund-
anskot eins aðila, tuttugu og
fimm milljónir, en sérstak-
lega eru það fyrirtæki og ein
staldingar, sem Sjálfstæðis-
menn stýra eða eiga, sem
þarna hefur borið hæst, þótt
ekki sé um neinn hreinan
flokkslit að ræða á þeim, er
skattalögin hafa brotið.
Þessi skattsvikamál í Eyj-
um hafa með vissum hætti
orðið bæ j arst j ómarmeiri-
hlutanum til framdráttar.
Mikil óánægja hafði 'ríkt um
árabil yfir því, að tekjuháir
einstaklingar, sem sýnilega
eyddu milljónum til persónu-
legra þarfa, voru nánast
skattlausir og útsvarslausir;
greiddu í sumum tilvikum
lægri opinber gjöld heldur en.
einstakar konur með barn eða
börn á framfæri sínu.
Smekkur Sjálfstæðis-
manna er aftur á móti slík-
ur, að menn, sem ábyrgastir
eru í skattsvikum, sitja á
vegum Sjálfstæðisflokksins
sem bæjarfulltrúar og full-
trúar í framfærslunefnd,
þrátt fyrir það að þeir á
undanförnum árum hafa
komið skattabyrðum sínum
yfir á almenning. Er ekki ó-
algengt að konur láti orð falla
á þann veg, að þær hefðu get-
að keypt sér þvottavél eða
frystikistu fyrir mismun
þeirra bæjargjalda, sem
menn þeirra hefðu verið látn-
ir gjalda og þess, sem menn
þeirra hefðu átt að gjalda, ef
fiskvinnslufyrirtækj unum og
ákveðnum aðilum öðrum
hefði ekki verið sleppt við
réttmæta skattaálagningu.
Loks er svo einn þeirra ný-
ríku manna, sem fast sækir
fram á stjórnmálasviðinu,
bæði persónulega og eins fé-
lagslega, stórvirkur þátttak
andi í skattsvikunum. Svo
bætist það við, að nánast að-
albaráttumál Sjálfstæðis-
flokksins við síðustu bæjar-
stjórnarkosninga var að fá
enduropnaða áfengisútsölu í
Eyjum.
Áfengisútsala hefur nú
starfað í Vestmannaeyjum
yfirstandandi kjörtímabil
með þeim fyrirséðu afleið-
ingum, að drykkjuskapur
hefur stóraukizt og alls konar
vandræði fylgt í kjölfarið
eins og hjónaskilnaðir og
upplausn vegna drykkjuskap-
ar. Af framangreindum á-
stæðum til viðbótar því, að
Sjálfstæðisflokkurinn i Eyj-
um hefur minnihluta kjós-
enda að baki sér, þá er ólík-
legt að breyting verði á
flokksfylgínu Sjálfstæðis-
mönnum til framdráttar. Hitt
er ekki ólíklegt, að margt
verði reynt til þess að fá eín-
hvern hinna flokkanna til
samstarfs að loknum kosn-
ingum. Munu Sjálfstæðis-
mennirnir, sérstaklega þó
Gísli Gíslason, leita fastast á
um samstarf við Alþýðu-
bandalagsmennina.
Við næstu kosningar í Eyj-
um er líklegt, að Framsókn-
arflokkurinn haldi sínu og
jafnvel vel það. Líka kemur
til mála að Alþýðuflokkur-
inn bæti við sig einhverjum
atkvæðum, án þess að það sé
sennilegt að sá flokkur fái
nema einn fulltrúa. Það sem
ef til vill mun þykja merki-
legast er, að Alþýðubanda-
lagsmennirnir í Eyjum munu
halda sínu fylgi og vel það.
Það er þrátt fyrir bresti á
yfirborðinu fast samanþjöpp-
uð fylking, sem heldur sam-
an.
Svo kemur að því, sem hef-
ur verið flotholt Sjálfstæðis-
flokksins í kosningum í Eyj-
um, en það eru flokksleg yf-
irráð yfir tJtvegsbankanum,
en líklegt er talið — og nán-
ast fullvíst — að að ríka
bankastjóranum burtfluttum,
þá breytist sú aðstaða þannig
að Útvegsbankinn í Eyjum
hætti að verða aflgjafinn að
baki Sjálfstæðisflokknum og
það getur riðið baggamun-
inn.
Núv. bæjarstjórnarmeiri-
hluti hefur verið fundið
margt til lasts, en haldið hef-
ur verið uppi mikilli atvinnu
og framkvæmdum á vegum
Vestmannaeyjabæjar á kjör-
tímabilinu, og vatnsveitu-
framkvæmdunum hefur mið-
að eðlilega áfram.
Skólakostur Vestmanna-
eyja hefur verið aukinn og
bættur og aðstaða fyrir fé-
lagasamtök íþróttamanna og
ungs fólks stórbætt; og fjár-
málastjórn Vestmannaeyja-
bæjar hefur sízt verið verri
en hjá Sjálfstæðismönnunum,
þannig að ósýnt er um það,
hversu óflokksbundnir kjós-
endur snúa fylgi sínu í næstu
kosningum.
Næstu bæjarstjórnarkosn-
ingar í Vestmannaeyjum eru
líklegar til þess að vekja
mikla athygli víðar en í Eyj-
um. Fullvíst má telja að eng-
inn einn flokkur fái meiri-
hluta, þannig að til samstarfs
tveggja eða fleiri flokka
komi áframhaldandi að kosn-
ingunum loknum, og þá er
mikið undir því komið,
hverjum kjósendurnir eru
fúsastir að veita brautar-
gengi.
x+y.
.nrtíWWWWWVWVWWWWWVWVWNWWW/ÆWWWWJVVWMAVWW^VVWVVWV^WVWtfWVWVUWWVWWVWVUVVWWWVyWVyVUWWV
NAUST 15 ARA
Veitingahúsið Naust á 15
ára afmæli um þessar
mundir. Það er rekið í hin-
um sögufrægu húsum Geirs
Zoéga við Vesturgötu og
liefur ýmislegt, sem þar var
fyrir, haft áhrif á innrétt-
ingar og veggskraut, enda
eru Reykvíkingar stoltir af
því og sýna það gjarnan
gestum sínum, ekki sízt er-
lendum.
Geta má þess, að Ásgeir
Ásgeirsson, fyrrv. forseti,
hélt þar veizlur fyrir ýmsa
þjóðhöfðingja, svo sem
Svíakonung, Danakonung,
Finnlandsforseta og ríkis-
arfa Noregs.
Naust hefur bryddað upp
á ýmsum nýjungum í mat-
argerð, t. d. körfukjúkling
og glóðarsteiktum humar-
hölum í skel. En fi-ægast er
það fyrir að hafa endurvak-
ið neyzlu rammíslenzks
matar á Þorranum, sem þá
er framreiddur í trogum að
gömliun sið.
>f
SÖNGUR GRÍN OG
GLEÐI
Þeir gera feikna lukku í
Súlnasalnum á föstudags-
og sunnudagskvöldum,
Ragnar Bjarnason,
Krunimi Páls, Grettir og
þeir félagar, ásamt Ómari
Ragnarssyni og fleirum.
Þella er líka „söngur, grín
og gleði“, eins og segir í
auglýsingunni, alveg ósvik
ið og er liálfgert nýjabrum
í reykvísku skemmtana-
lífi, a. m. k. upp á síðkast-
ið, einkum þegar rigningin
hefur leitt slíkt þunglyndi
yfir fólk að sjálfsmorð
(eða tilraunir til þeirra)
eru orðin daglegt brauð.
Fyrir skömmu komu
þeir með nýtt prógram,
sem vekur mikinn lilátur.
>f
LÆKJARBOTNA-
FERÐIR
Mikið er nú deilt um það,
hvort leggja eigi Lækjar-
botnaferðir SVR niður eða
ekki. Telur forstjóri SVR
milljónatap á ferðunum, en
íbúar þarna upp frá mót-
mæla niðurfellingunni harð-
lega.
Segja má með vissu að
fækka mætti ferðunum stór-
lega að vetrarlagi, einkum
þegar sérstakur bíll er í för-
um með skólabörnin. Væri
t. d. hugsanlegt að fara
þrjár ferðir á degi hverjum,
kvölds, morgna og um miðj-
an daginn.
Hitt er svo annað mál, að
á sumrin mætti láta bílinn
líka fara um Heiðmörk, a.
m. k. um helgar, en það hef-
ur hann aldrei gert. Auk
þess er það mjög bagalegt
fyrir hina fjölmörgu eig-
endur sumarbústaða á
Lækjarbotnaleiðinni, ef
ferðir að sumarlagi yrðu
felldar niður.
Og mætti ekki hafa
minni bíl á þessari leið en
á fjölförnustu leiðunum?
>f.
ÆSKAN
Bamablaðið Æskan er 70
ára um þessar mundir og
er í því tilefni gefið út stór-
glæsilegt heftí, sem borist
hefur blaðinu.
Undir ritstjói.i Grims
Engilberts hefur barnablað-
inu sífellt verið að fara
fram, enda virðist ekkert
vera til þess sparáð af liálfu
útgefanda. Er það nú prent-
að í 16.000 'n'.ökum, sem
mun yer~ langsamlega
mesta útbreiðsla, sem nokk-
urt mánaðarblað efur náð
bér á landi.
Til hamingju með afmæl-
ið!
X-
BRANDARI VIKUNNAR
Ungi maðurinn átti í erf-
iðleikum með vinkonu sína,
sem var mjög ágeng í ásta-
lífinu. Hann spurði því föð-
ur sinn, hvernig HANN
hefði leyst svipað vanda-
mál.
„Jú, sonur minn,“ svaraði
faðirinn, „í hvert skipti,
sem móðir þín fór að gera
sig til við mig, þá tók ég
hana og rassskellti hana.“
„Já, ég hef líka reynt
það,“ svaraði pilturinn,
„en þegar ég er kominn svo
langt, að ég er búinn að
færa vinkonu mína úr bux-
unum, þá er ég ekki lengur
reiður við hana.“
X-
tr> ..
„Pabbi,“ sagði pilturinn,
„ég hef komið stúlku í
bobba, og nú heimtar hún
2000 dollara til að redda
þessu.“
Faðirinn skrifaði nöldr-
andi ávísun fyxár upphæð-
inni, en þegar hani. var að
Ijúka við það, kom yngsti
sonurinn þjótandi inn i
skrifstofuna með sams kon-
ar slæmar fréttir, með þeim
hreytingum þó, að í þetta
skipti var ki’afist 3000 doll-
ai’a. Meðan faðirinn var að
skrifa seinni ávísunina,
kom yngsta dóttirin grát-
andi inn.
„Ö, pabbi,“ sagði hún
með ekkasogum, „ég held
ég sé ófrísk!“
„Fínt,“ sagði kaupsýslu-
maðurinn glaður í bragði.
„I jietta skipti er það okkar
að innheimta peninga.“
SPLRULL
SPYRILS
OG SVO ER ÞAÐ ÞESSI
Auðugur kaup ýslumaður
sat við skrifborðið sitt, þeg-
ar elsti sonur hans kom inn.
Er það satt, að rithöfund-
ar ætli í verkfall, ef ríkið
kaupir ekki 500 eintök af
hverri bók, sem þeir skrifa?