Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 05.07.1974, Side 3

Ný vikutíðindi - 05.07.1974, Side 3
NÝ VMOJTÍÐINDI 3 hann núna, en samt tók liann glasið og drakk úr því. Nokkur stund leið, og hann ákvað að fá sér aftur í glasið sjálfur, meðan hann beið. Ein- mitt, þegar hann var að setja tómt glasið á bakkann, voru dökku flauelstjöldin dregin til hliðar og há, spengileg, ljós- hærð stúlka kom inn. Bros- andi kinkaði hún kolli til eins, Svo hallaði hann sér aftur á bak í djúpum stóln- um og horfði á stúlkuna ganga hægt gegnum herbergið fyrir framan hann. Þegar hún kom að hinum endanum, snéri hún við með þokkafullum hreyf- ingum og kom í áttina til hans. Hún var aðeins klædd fremur stuttri, hárauðri flík. ,,Er það eitthvað í þessa átt- ina, sem þér viljið, herra?“ spurði stúlkan og snéri sér hægt í hring, til þess að hann gæti skoðað. Þá kom hún að stól Roddys og rétti honum horn af flík- inni svo hann gæti skoðað efn- ið betur. „Þetta er ,,hvelljakkinn“ ok'kar,“ útskýrði hún. „Hann er þannig sniðinn, að flestar konur geta borið hann án breytinga og það er meðal annars ástæðan fyrir því, að hann er svo vinsæll sem gjöf. Er konan yðar svipuð á stærð og ég? Ég er hávaxin númer tÓlf.‘ „Nokkurn veginn,“ sagði Roddy og kinkaði kolli hugsi. Hann hellti dálitlu viskýi í glasið og drakk það. „Nokkurn veginn,“ sagði han aftur. „Þessi jakki hefur reynzt ,rpjögK vinsæll,“ sagði stúlkan og dró jakkann þétt að mitti sér. „Það er hugmynd Gert- rude -'sjálfrar að kalla hann hvelljakkann. Hún sagðist hafa kallað hann það vegna þess, að kona gæti farið í hann í hvelli líka. Haldið þér ekki að hann væri töfrandi á konu yðar?‘ „Jú, það er ég viss um,“ sagði hann og glotti. Hann starði á stúlkuna, unz hún gekk aftur á bak út í mitt herbergið. ,Kannske viljið þér sjá eitt- hvað annað,“ lagði hún til. „Það er al'ltaf gaman að velja úr, er það ekki?“ „Það er dagsatt,“ sagði hann og brosti til hennar. Stúlkan hvarf úr herberg- inu, og strax og hún var úr augsýn, hvolfdi Roddy í sig öðru viskýglasi. Hann var nýbúinn að setja tómt glasið á bakkann, þegar eldri konan birtist. „Það er Gertrude aftur,“ sagði hún og lyfti augnabrún- unum tilgerðarleg. ,,Ég leit bara snöggvast inn til að vita, hvort Jeanette hugsaði vel um yður.‘ Roddy kinkaði kolli óþolin- móður á svip. „Jeanette kemur aftur í hvelli og sýnir yður fleiri af okkar dásamlegu flíkum. Það er komið fram yfir venjuleg- an lokunartíma, og dyrnar eru læstar. Þess vegna getið þér valið gjöfina, án þess að verðá fyrir óþægindum af nærveru annarra viðskiptavina. Hikið nú ekki við að fá yður sjálf- ur af bakkanum, hann er þarna bara fyrir yður.“ KOMPAN Ljóð dagsins ■ Fasteignasalar ■ Hærri hámarkshraði Framsóknarhótel ■ Hótel K.F. ■ Lítili áhugi Það hefur vakið athygli margra að á undanförnum vikum og mánuðum hefur „Ljóð dagsins“ í útvarpinu á- vallt verið flutt af meölimum Leik- félags Akureyrar. Er engu líkara en að félaginu hafi verið tryggður einka réttur á þessum flutningi. Þetta er í hœsta máta óeðlilegt ekki sízt þeðar tekið er tillit til þess, að útvarpið greiðir þrjú þúsund krónur fyrir hvern flutning og þar af fcer flytjandi um þriðjung en .höfundur Ijóðs tvo þriðju. En skýringin á þess- ari .einokun .Leikfélags Akureyrar kann að vera sú, að leikhússtjóri fyr- ir norðan er hinn alþekkti kommún- isti Magnús Jónsson og skoðanabróðir hans, Arnar Jónsson er þekktasti leik- ari félagsins. Njarðvík sér um sína. Xr Strax og konan var farin úr ywwwwwwwwywwwwwwwwwyw^ herberginu, leit Roddy óró- legur á úrið sitt, og þegar hann sá að klukkan var orðin hálf sex, fékk hann sér strax í glas. Nú var hann búinn að gleyma, hve oft hann hafði fyllt glasið og velti fyrir sér, hvað hann ætti að gera, ef Sue skyldi koma inn og sjá hann. Hann hallaði sér spenntur fram og horfði á svörtu tjöld- in, þegar ljóshærða stúlkan minni og styttri, meira að eins í einni flík, og miklu minni og styttri meira að segja. Roddy færði sig fram á stólbrúnina, þegar hún gekk hægt gegnum herbergið. Þegar hún snéri við í þetta sinn, — og hreyfingar hennar virtust jafnvel enn glæsilegri en áð- ur, — fálmaði hönd hans í blindni eftir glasinu á bakkan- um. Þegar hann fann það og reyndi að drekka úr því, varð hann hissa, því það var tómt. Hann lét það niður aftur sem bezt hann gat, án þess að geta séð, hvað hann var að gera. „Hvað — hvað er þetta?“ sagði hann og starði á stúlk- una. „Ég er viss um að þú veizt það, herra,“ svaraði hún með töfrandi brosi. „Þetta fallega innflutta efni er handunnin svört blúnda með ívöfðum gleym-mér-ei-blómum. Er það ekki heillandi?“ „Það er svo sannarlega fal- legt — á þér,“ sagði hann strax. „En heldurðu ekki að kon- unni yðar líki það?“ „Ég held, að hún eigi ekkert þessu- •líkt,“. sagði hann. -,,Ef svo skyldi vera, þá veit ég- ekkert um það. Og ef svo er ekki, þá ætti hún svo sannar- lega að eignast svona.“ „Þá er ég viss um að henni þætti gaman að fá það. Hví etoki gefa henni það?“ Roddy ætlaði að taka upp veskið. „Hvað kostar það?“ Gertrude sér um alla sölu,“ sagði hún og gekk aftur á bak að flauelstjöldunum. „Ég er bara módel hérna. Ef þú viit bara bíða andartak.“ Roddy stökk upp, en ljós- hærða stúlkan var farin, áður en hann gat náð henni. f sömu andrá aðskildi Gert- rude tjöldin og gekk inn í her- bergið. „Þetta verða sjöt’íu og fimm dalir,“ sagði hún og rétti fram höndina. „Mér finnst þetta dásamleg flík, finnst þér það ekki? Ég er viss um að konan þín dáist að henni hverja mínútu.“ „Ég vil fá það,“ sagði hann æstur og hækkaði róminn. „Láttu mig fá það!“ ,Auðvitað,“ sagði hún og færði höndina nær. „Sjötíu og fimm dalir, takk.“ f flýti taldi hann fram pen- ingana og rétti henni þá, og þá gekk Gertrude aftur á bak út úr herberginu. Roddy gekk að bakkanum og hellti meira viský í glasið. Þegar hann klár aði úr því, stóð konan hjá honum með lítinn pakka. Hún þrýsti honum í hendur hans. „Og svo þessa leið út,“ sagði hún ákveðin um leið og hún leiddi hann út úr herberginu. „En ég er ekki búinn enn!“ mótmælti hann hástö'fum. „Ég vil vera lengur, segi ég! Ég vil ■: Fasteignasalar kvarta sáran undan því hvað það er orðið dýrt að auglýsa í dagblöðunum, en langflestir þeirra auglýsa að staöaldri í Morgunblað- inu. Hafa jafnvel komið upp raddir um það .meðal .fasteignasala, .að hœtta þessum auglýsingum en senda þess í stað út fjölritaða auglýsinga- lista vikulega. Þessi barningur virðist þó óþarfur, þegar litið er á þœr tekjur, sem fast- eignasalar hafa af hverri sölu, en þœr nema tugum þúsunda. Hins vegar mun staðreyndin sú að fasteignasölur eru of margar í borginni og þar sem þœr eru yfirleitt með sömu eignirnar í sölu er samkeppnin hörð. * viðeigandi ráðstafanir og rýmkun laga um hámarkshraða í þéttbýli er eitt af því sem lagfœra þarf strax. Sigurður Haráldsson fyrrum mót- tökustjóri á Hótel Esju hefur tekið a leigu nýja liótelið, sem Framsóknar- flokkurinn á við Rauöarárstíg. Sig- urður er þekktur fyrir prúðmennsku og þægilegheit og mun eflaust farn- ast vel í starfi hótelstjóra. Ætlunin mun að opna hótelið síð- ar á árinu og á þetta að verða róleg- heita gististaður með einum eða tveim börum, en ekki verða haldnar þarna almennar danssamkomur. -K Talandi um hótel, dettur okkur í hug Vestmannaeyjar. Það er fullyrt að Kristinn Benediktsson fjármála- jöfur Framsóknarflokksins hafi keypt hótel það sem þar opnaði í vor. Reyndar er hann sagður hafa verið aðalmaðurinn á bak við kaupin strax í upphafi þótt hótelið sé á nafm tveggja ungra þjóna sem þar starfa. Háttsettum mönnum innan SÍS er farið að þykja nóg um persónuleg umsvif Kristins á fjármálasviðinu en hann lœtur engan bilbug á sér finna, enda þéttur á velli. -K Ekkert lát er á innflutningi nýrra bifrei&a og síðustu mánuði hafa verið fluttar inn þúsundir bifreiða. Sem nœrri má geta er gatnakerfi borgar- innar og vegakerfi landsins allsendis ófœrt um að taka við þessum fjölda með góðu móti. Umferðarþunginn í borginni er orðinn svo gífurlegur að engu tali tekur. Til að firra algjöru vandrœðaástandi er bráðnauðsynlegt að gera nú þegar Mikil óánœgja er sögð komin upp meðal knattspyrnumanna með störf Ellerts Schram, sem formanns KSl. Þótt Albert vœri umdeildur, sem for- maður báru menn þó virðingu fyrir honum og sjálfur vann hann eins og hestur fyrir knattspyrnuna. Með Ellert kom hins vegar einhver deyfð og drungi og horfir til vand- rœða um að hœgt verði að koma sam- an sæmilegu landsliði. Það er vissulega leiðinlegt til þess að hugsa ef árangur Alberts œtlar að koðna niður í höndunum á eftir- manni hans. Ástandið er orðið þannig að mjög fáir knattspyrnumenn sœkjast eftir landsliðsstöðu en flestir koma með ótal undanbrögð ef þeir eru beðnir um að œfa með landsliðinu. FRÓÐI. láta stúlkuna------“ „Klukkan er sex og komið langt fram yfir lokunartíma okkar,“ sagði hún hörkulega og ýtti honum ákveðin í átt til dyra. „Vertu nú svo góð- ur að fara með góðu.“ Við útidyrnar ýtti hún dug- lega við, honum, og Roddy stóð allt í einu á gangstétt- inni fyrir framan búðina. Hurðinni var skellt aftur, Ijósin voru slökkt og gardínur voru dregnar fyrir gluggana. Hann reyndi að snúa snerlin- um, hann reyndi að opna dyrn ar, og svo sparkaði hann í hurðina eins fast og hann gat. Höggið hristi alla framhlið verzlunarinnar. „Ég vil komast inn aftur!“ hrópaði hann. „Opnið dyrnar, segi ég.“ Ekkert svar, og hann byrj- aði að sparka í glerhurðina eins fast og hann gat. Slangur Framhald á bls. 7.

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.