Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.06.1948, Side 5

Nýi tíminn - 17.06.1948, Side 5
Fimmtudagur 17. júní 1048. NÝI TÍMINN Fyrsta skýrsla stjérna riniiar uni elgnirnar vestanhafs: lankalnneignimar einar saman andvirði 10 nýsköpunartogara! Eftír eru skýrslur um fyrirtæki, Uutabréf fasteipir o. s. frv. þar sem margfalll hærri upphæðir eru geymdar - ásamt skrá um ameríkufs rðir síðostu 4 mánnðina! Eftir fjögnrra mánaða undanbrögð, útúrsnún- iiiga og þögn, þögn, þögn, hefur ríkisstjómin loks séð sig knúöa til að lyfta ögn slæðu leyndariimar frá hinum stórkostlegu fjársjóðum auðstéttarimiar vestur í Bandaríkjunum. Hún heíur ekki gert það af frjálsum vilja, eins og reynsla hinna fjögurra mánaða sýnir bezt, heldur knúin af þunga almenn- ingsálitsins — og hún hefur reynt að sýna sem minnst, hopað eitt skref í einu í von um að reiði almennings myndi lægja. Og þó er þessi skýrsla, svo ófullkomin sem hún er, mjög athyglisverð og gefur tilefni til nánari athugunar. Og það er einnig athyglisvert að ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér tii að bera fram þá fáránlegu bleklcingu að með þessari skýrslu væri allt talið, þar sem hún kveðst hafa falið sendiherra íslands í Bandaríkjunum að safna upplýsingum um eignimar í heild „og vísað 3\fEÐAL ANNARS til upplýsinga alþjóðagjaldeyr- issjóðsins“. Enda veit stjómin betur. Hún hefur sjálf í fómm sínum — að minnsta kosti hluti hennar — önnur og stórum alvarlegri gögn sem staðfesta frásögn Þjóðviljans um heildartöl- una — 320 milljónir króna um síðustu áramét — og upplýsingar Hermanns Jónassonar í Hornafirði 30. maí. Og þau gögn mun stjómin einnig verða neydd til að birta, þó seinna verði. En í dag er rétt að athuga ^ nánar skýrslu nr. 1. — fjTstu frásögn ríkisstjórnarinnar um hina földu fjársjóði vestan hafs,- en hún er birt i heiid á öðrum stað í blaðinu sem sögu- legt plagg. Hún skýrir frá bvi hvar 46 milljónir króna eru niðurkomnar — 7. bluti heild- arupphæðarinnar. Af þeirri r.pp hæð voi*u 20 miiljónir opinber eign, og er það óneitanlega hjá kátiegt að rikisstjómin skuli þurfa að leita uppiýsinga al- þjóðagjaldeyrissjóðsins nra op- inbera eign vestra. Fjármála- ráðherrann ætti að gefa sér þann tíma frá prfvátbraski sínu að hann viti slíka hluti sjálfur. En það er hinn hluti upphæð arinnar sem mesta athygli vek- ur. 26 mDIjónir króna í tign ísl. einstakliuga, opinberlega geymt í bönkum. Sein sagt: ís- ienzkir auökýfingar hafa gcymt í sparisjóðsbókum eða á aniian hátt — á sinum eigin nöfnum — slíka upphaað sem 26 miilj- ónir króna! Og það er vissu- lega ekki nein smávægileg upp- hæð — að minnsta kosti ekki - frá sjónarmiði íslenzkrar al- þýðu. Svo nefnt sé eitt dæmi er sú upphæð ekki fjarri því að samsvara andvirði þeirta 10 nýju nýsköpunartogara r,em rikisstjómin hefur- nú neyðzt til að lofa þjóðinni. Aðeins raeð því að hirða bankaeign nokk- ura íalenzkra milljónara í !.'9* Bandaríkjunum eru þessir tog- arar greiddir!! Það sem undrun vekur er hversu há þessi upphæð er. Þao sjmir hvílíkt traust milljónar- amir hafa borið til ríkisstjóm- arinnar islenzku og það sýnir ekki síður hitt, hvílíkar fjár- fúlgur þeir hafa haft handa á milli þar vestra. Fjárplógsmenn leggja það yfirleitt ekki í vana sinn að geyma fé sitt í bönkum og hirða venju’egar rentur, allra sízt á glámbekk á sí.num eigin nöfnum. Bankaeignin er ævinlega örlítið brot af heildar- eigfiinni, varasjóour til notkun- ar í viðlögum, t. d. ef menn þurfa að leggja upp í ferða- lag ,,sér til heilsubótar"! Hvað skyldu t. d. milljónararnir hér í Reykjavík ciga mikið fé í sparisjóðsbókum í Landsbank- anum? Þeir telja sig blátt á- fram ekki hafa efni á því að 1 láta fjármuni sína renta sig á i jafn litilmótlegan hátt, engu í frek'ar en þeir höfðu efni á. þvi j að kaupa stofnlánadeildarbréf ' á sínum tima. Þessi upphæð — 26 milljónir | ! króna, andvirði 10 nýsköpimar- i í togara — er þó ekkí heildar- | bankaeign íslenzku milljónar- I anna í Bandaríkjunum. Hinir 1 forsjálli, sem ekki hafa haft I nægilega tröllatrú á ríkisstjórn inni, hafa bankaeignir sínar ge\ mdar á nöfnum bandarískra leppa, vina sinná og samstn.rfs- marnia, eða þeir leigja banka- hólf og geyma fjársjóðina í þeim, en þar eru þeir ekki skrá- settir. En bankaeignin er þó eins og áður cr sagt aðeins brot af heildarupphæðinni, varasjóð- ur sem við bætist ágóði af arð- bærari f járfestingu. Miklum meirihluta eignanna vestanhafs hefur verið komið fyrir í arðbærum fyrirtækjum og hlutabréfum sem gefa af sér góðar tekjur, eins og vera ber í landi gróðahyggjunnar. Þetta fjármagn sem tekið hefur verið á „löglegan“ og „ólöglegan" hátt af hinni stríðandi alþýðu íslands er nú notað til að pína meiri arð út úr stritandi alþýðu Bandaríkjanna. Fjármagnio á sér ekkert föðurland, það er þess vegna sem milljónörum verður manna tíðræddast um föðurlandsást. Arður fyrirtækj- anna er siðan la.gður í banka og er nokkur hluti milljónanna 26 þannig til kominn. Og þegar nægilega mikið hefur safnazt er meira fé lagt í fyrirtæki og fleiri hlutabréf keypt. Það er kallað „framtak einstáklings- ins“ þegai’ íslenzkir miiijónar- ar safna þannig fé í framandi þjóðlandi. Og enn er nokkur hluti eign- anna fólginn á annan hátt. Þeg- ar hinir íslenzku milljónarar fljúga vestur sér „til heilsubót- ar“, láta þeir sér ekki nægja að búa á lúxushótelum. Margir þeirra eiga glæsileg liús búin dýrindis húsmunum. Einnig í slílium eignum eni miklir pen- ingar niður komnir. Og það eru vissulega lánsamir menn sem eiga höll í Reykjavík, sumar- bústað við Þingvallavatn og villu í Bandarikjumirn! Það kall ar b!að forsætisráðherrans „jafnrétti og bræðralag". ★ Það er vissulega ástæða fyr- ir þjóðina að festa sér vel í minni að ríkisstjómin lofar því í skýrslu nr. 1. að „géra allt sem í liennar valdi stendur til að upplýsa mál þetta að fullu". Ilún hefur einnig slíkar aðstæð- ur ao full ástæða væii til ao vænta skjóts árangurs eftir jafn ákveðið loforð, ef heiðarleg ir menn ættu í lilut. Bandaríkja stjórn hefur heitið fullri aðstoð sinni, og hún hefur enga ástæðu til að hylina yfir með íslenzkum milljónörum í þessu máli, þó hún eigi þeim annars gott upp að unna. Hér er nefnilega einn- ig um að ræða fjárhagslegt hagsmunamál fyrir bandaríska aðila, Ef þeir finna erlendaí eignir í Bandaríkjunum drag- ast þær frá liinni svonefndu Marshallaðstoð, en Bandaríkin jrw*-’-”'’ halda „skilyrðum" sínum engu að síður. Og l>egar fjármunir eru annars vegar líggja banda- rískir fjárplógsmenn ekki á liði sínu. Þess er því að vænta að bandarísk yfirvöld gefi fljótt og greiðlega skýrslur um eignir íslenzkra f járplógsmanna í bönk um, fyrirtækjum, hlutabréfum og fasteignum, þegar Thor Thors fer „þess á leit við stjóm Bandaríkjanna að hún láti safna upplýsingum um ísler.zk- ar innstæður þar í Iandi og hverjir séu eigendur þeirra og vísar meðal annar.s til upplýs- inga alþjóðftgjaldeyríssjóðsins", eins og segir í skýi-slu ríkis- stjómarinnar. ★ Annars kemur einlægni sú sem býr bak við hið ákveðna loforð rikisstjómarinnar vel fram í Morgunblaðsgrein ný- lega. Blaðið segii' í athugasemd við skýrslu ríkisstjómarinhar: „Er vitað um heildarupphæðina sem til greina getnr komið. — Eftir er svo að fá skilgreint hversu mikið af inneignum þess um eru, þangað komnar á fylii- lega löglegan (!) hátt, eins og þegar menn hafa greitt háar uppHæðir fyrir ameríska fram- leiðslu sem ekki hefur fengist afgreidd úr landi þaðan(!!)“ Auk hinnar fáránlegu skýring- ar á tilvist 26 milljóna króna í bandarískum bönkum á ísler.zk- um nöfnum, reynir blaðið að halda því fram að liér sé uin „heildampphæð" að ræða. Rikis stjómin hefur þó vit á að forð- ast það, heldur játar hið gagn- stæða.. En auðsjáanlega er nú ætlunin að láta stjómarblöðin hamra á því að eignirnar hafi ekki verið nema 26 milljónir — aðeins andvirði 10 nýsköpunar- togara! — og auk þess fylli- lega lögmætar, þannig til komn- ar að menn hafi borgað fyrir vöm sem þeir fengu aldrei — og væntanlega gleymt að skýra. yfirvöldunum frá því!! Slík rök Framhald á 7. siðu. Skýrsla nr. 1 „Út af umræðum, að undan- förau, bæði í blöðum og á mann- fundum, um gjaldeyriseign ís- lendinga í Bandaríkjum Norð- ur-Ameríku, vill rikisstjórnin taka fram eftirfarandi: Samkvæmt upplýsingum al- þjóða gjaldeyrissjóðsins (inter national Monetary Funcl) hefur gjaldeyriseign íslendinga í bönk um í Bandarikjunum verið sem hér segir: 30/6. 1947. Opinber eign (official holdings)... .3.0 Eignir einstaklinga (private holdings).... 4.0 Samtals 7.0 Allar upphæðir eru taldar í milljónum dollara. Samkvæmt þessu hafa eignir íslenzkra. einstaklinga og féiagaj numio 2S milljónum ísl. krónaj 30. júní 1947. Ríkisstjórnin hefui' gert itrék \ aðar tilraunir til að afla sér! upplýsinga um eigendur þessara1 inneigna, en jafnan fengið það svar, að það gæfu innstæðuvið-! takendur ekki upp, heldur að-! eins upphæðiha í heild frá við- komandi landi. Með samþykki | Banda.rikjaþings á lögum frá! 1948 um aðstoð til erlendra i þjóða (hinni svokölluðu Mars-! hall-hjálp) hefur hinsvegar nýtt viðhorf myndazt í 14. málsgr. 115. gr. þessara laga, er gert ráð fyrir því, að þátttökuríkin skuldbindi sig til „eftir því sem. hægt er, að gerðar séu ráð- stafanir til þess að hafa upp á, aðgreina og nota á viðeigandi hát.t í sambandi við framkvannd þeirrar áætlunar, eignir og tc-kj- ur af þeim, sem tilheyra þegn- um þess rikis, og eru iniian Bandaríkjanna eða lendna þeirra". Samkvæmt þessu virð- ast möguleikar til að leita samn inga við Bandaríkjastjórn um að fá- úppgefnar innstæður ís- lendinga í Bandaríkjunum. Hcf ur ríkisstjórnin þrí falið sendi- ráði íslands í Washington, í s.b maí mánuði, að fara þess A leit við stjórn Bandarikjanntv að hún léti safna upplýsinguff? um íslenzkar innstæður þar landi og hverjir séu eigenöijþ þeirra og vísað m. a. til v,p£. - lýsinga alþjóðagjsldeyrissjóðáw ins. Enn er óséð liver áranguT' verður af þessum tilmælum ríl isstjórnarinnár, en hún mvu: gera allt sem í hennar vah,f- stendur til að upplýsa mé’ þetfé að fullu. Að lokum skal á það beni^ að íslen'zk fyrirtæki og einstalÆ:. lingar hafa átt og eiga enx löglega reikninga hjá bönkun . í Ba'ndaríkjunum, t. d. nutíífc. Eimskipafélag Islands hafa á'Ö þar á nýbyggingarrcikningi 3*-r.Í júni 1947 611.857 dollara. # Reykjavík, 12. júní 1948®’".

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.