Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.05.1949, Qupperneq 6

Nýi tíminn - 19.05.1949, Qupperneq 6
NÝI TÍMINN -. Fimmtndagnr 19. maí 1949. -'.’hLsi'' jð') Framhald af 3. síðu. um einstaklinganna). Það hefur ekkert verið gert til að bæta kjör þessara 10 milljóna. Þeir lifa enn við sultarkjör og án nokkurra réttinda. Það er öfl- ugt mótstöðuafl og djúpar til- finningar meðal þessa fólks. , * Þegar lögreglan vernd- aði Robeson Hefur þú sjálfur orðið fyrir persónulegri, áþreifanlegri reynslu, sem gæti styrkt þessa ályktun ? — Eg gæti nefnt mörg dæmi en ég ætla aðeins að minnast á tvö frá kosningabaráttunni í fyrra. Eg átti að tala í borg í suðurríkjunum, þar sem negr- ar eru enn réttdræpir og yfir- stjórn lögreglunnar Jeit svo á, að nú væri nóg komið af því að ég gengi laus og héldi ræður — nú átti að skjóta mig niður þeg ar ég kæmi til borgarinnar. En þessi ákvörðun barst út í tíma, og verkamennirnir, bæði hvítir og svartir, gerðu lögreglunni skiljanlegt, að ef svo mikið sem eitt hár yrði skert á höfði mínu, skyldu þeir sjá um að innan sól- arhrings yrði ekki mikið uppi- standandi í borginni. Það dugði! Robeson brosir: :— Mér hefur aldrei fundizt ég vera eins öruggur í neinni borg. Hvert sem ég fór og hvar sem ég stóð var ég umkringdur af fimmtíu lögregluþjónum! I annarri borg í suðurríkjunum hafði Ku-klux-klan tekið sér aðsetur í húsinu andspænis því sem ég átti að tala í. Meðan á fundinum stóð voru negrarnir í þéttum fylkingum kringum húsið, og Ku-klux-klan mennirn ir héldu sér í skefjum af góðum og gildum ástæðum. Jú, alþýða négranna er langt um framfara sinnaðri en stjórnendur eins og Richard White, sem hafa ekki annað hlutverk en að halda henni niðri. Sögulegt hlutverk — Geta þeir það? — Að minnsta kosti ekki ef okkur tekst að láta negrana kynnast staðreyndunum, því þá er. óhugsandi. að þeir styðji þá sem halda þeim í þrældómi og snúist gegn þeim þjóðum,‘sem liafa gefið kynbræðrum þeirra fullt jafnrétti. Er það er ekki eingöngu kyn- þáttavandamál. ÖIl ameríska þjóðin stendur andspænis jafn þýðingarmiklu vandamáli og þýzka þjóðin 1914 eða franska þjóðin 1939. Við verðum að berjast gegn liinni gífurlegu einbeitingu afturhaidsafianna — gífurlegri að áhrifum en ekki að fjölda. Gleymið ekki hinum 150 milljónum Afríku jÞú hefur áðpr við ,annað tæki færi lagt áherzlu á þýðingu Afríku í þessu sambandi ? v Það er rétt. Þegar. Jóð í Skandínavíu talið um negra, hugsið þið einkum um þær 14 milljónir sem eru í Bandaríkj- unum. En þið megið ekki gleyma þeim 40 milljónum sem eru í Vesturindlandi og 150 milljónum í Afríku. Megnið af því sem íramundan er veltur á því sem gerist í Afríku og Vest urindlandi. Asíuvandamálið horf ir allt öðruvísi við eftir atburð- ina í Kína — allir hljóta að sjá þau miklu áhrif sem þeir munu hafa og vissulega er Indland geysilega mikilvægt fyrir brezku heimsveldisstefnuna, sem reynir að finna einhver úr- ræði. Hin augljósa ágengni erj úr sögunni, og nú þarf að gera samning við indversku þjóðina. En Englendingar hafa sjálfir viðurkennt að herstjórnarlist þeirra aé ekki lengur undir Ind- landi einu kpmin. Þeir hafa sagt — og breyta I samræmi við það — að vernd- un brezka heimsveldisins bygg- ist á yerndun innsta hluta Af- ríku ásamt amerískri aðstoð. Afríka er orðin þýðingarmesta athafnastöð þeirra. Það sem ger ist í Miðasíu er undir Afríku komið. Afríka er orðin að mið- punkti og það er óhætt að full- yrða að afstaða íbúa Afríku geti haft úrslitaþýðingu í bar- áttunni um stríð eða frið. — Gera innbornir íbúar sér þetta sjálfir ljóst? —- Þeir vita allir að kjörum þeirra er þannig háttað, að styrjöld fyrir heimsveldisstefn- una, sem héfur þrælbundið þá öldum saman, getur aðeins fært HL þeirrt?. Jiýjan þrældóm. Og ' það eru gt|rk,'; frapifaraöf 1 í Afríku, einkum í Nigeríu, en einnig í Kenyu, Rhodeslu, í námtínum i Suðticafriku og víða annars stað ar. Þeir fylgjast með .á-huga með mannréttindaskrániíi og þeir hafa tekið eftir þeim skerf sem Ráðstjórnárríkin hafa lagt til þessará mála í Sameinuðu þjóðununí. Negrarnir í Afríku eru farnir að skilja það hlutverk sem John Foster Dulles leikur, þegar hann styður hinn fas- istíska forsætisráðherra Suður- afríku, Malan, í kröfunni um innlimun Suðvesturafríku og þegar hann styður kröfu hinnar hálffasistísku ítalíu um Eritreu. Svipað á sér Stað í Vesturindí- um, sem eru nú í dag ein bæki- stöð amerísku heimsveldisstefn unnar, að hinir innfæddu íbúar vita dæmalaust vel hvað þræl- dómur er. Hámark fjarstæðnanna — Voru það ekki þessi vanda mál sem þú talaðir um á friðar- þinginu í París ? Oii f. • . — Jú, einpiitt. Eg ræddi ein- mitt um öll þpssi öfl, en orðum mínum hefyr yerjð umsnúið svo að .þau eru óþekkjanleg. Kvöld ið Í^JÍIÆJi.é^.fór til Parísar.tal- aði áff, í, hýá^anavittnu- nefnd, ,ný|epduþjóðaana og þeir fólu mýr að flytja friðarþing- inu kveðju sína og þá ákyörðun þeirra að berjast fyrir friði. I öllu, sem ég sagði í París, lagði ég aðaláherzlu á barátt- una fyrir friði, en ekki hvort einn eða annar færi í styrjöld. Og það er áreiðanlega hámark f jarstæðnanna þegar menn eins og Dean Acheson, Churchill og blaðamilljónamæringurinn Henry Luce segja þessnm millj- ónum nýlendubúa að þeir eigi að fara í styrjöld til að vernda eignarrétt sinn, persónulega sæmd og heilagt frelsi — hluti, sem þcir hafa auðvitað aldrei átt. Ef menn gætu talað við þá eins og ég og margir aðrir hafa gert, gætu menn komizt að raun um að hjá alþýðu negranna um allan heim hefur hið svonefnda frjálslynda lýðræði sannarlega verið dregið fyrir dóm. Afhjúpandi samlíking — Og hjá sjálfum þér ? — Hvað sjálfan mig snertir get ég sagt að það eru margar leiðir til frelsis í þessum heimi, heimi sem hlýtur og verður að breytast. Það má ekki aðeins hugsa um hina fáu, heldur frelsi fyrir hina fjölmörgu. Þegar þetta er tekið til hliðsjónar hlýt ur maður að líta með mestu virð ingu á það sem Ráðstjómarrík- in hafa framkvæmt á tima einn- ar kynslóðar: Meira en 200 milljónir manna geta ekki leng- ur talizt ,,á lágu menningar- stigi". Þegar menn skilja hvað hér hefur átt sér stað, skilja menn einnig hvað við eigum við með hinu „nýja lýðræði" sem til er orðið í löndum austurev- rópu. Það er eina haldgóða sam líkingin á Ráðstjórnarríkjunum og brezka heimsveldinu. Látum okkur ekki nægja aðj tala um frelsi fyrir fáeina íj London. Tölum um frelsi fyrir fólkið í Nigeríu, Suðurafriku, Vesturindíum — hvernig eru lífskjör þess og hvað fær það af þeim auðæfum sem það skapar? Eða berum saman Ráðstjórn- arríkin og ameríska heimsveld- ið, ekki aðeins negrana í New York sem líður skár, enda þótt kjör þeirra séu nógu ill og megn ið af þeim lifi í fátækrahverf- um, heldur einnig hvítu og svörtu daglaunamennina á bóm- ullarekrunum í suðurríkjunum. Hvernig eru lífskjör þeirra? Og hvað er að s.egja um námu- mennina af skandínavískum upp runa í Minnesota og Michigan, sem búa enn í sömu kofunum sem afar þeirra og ömmur bjuggu í? Hvað um Vít ame- rísku þjóðarinnar, sem — eins og Roosevelt benti á — býr ^ð skort, er illa klædd og hefur óviðunandi húsnæði? Allt þetta umtal um hin góðu lífskjör í Bandaríkjunum þolir ekki dags- ins ljós. Og hvað um þjóðirnár í þeim hlutum ameríska heims- veldisins sem búa að vísu ekki við .þersetg ea er stjórnað af Bandaríkjunum: Puerto Rico, Kúbu, Suður- jog hHðameriku. - Við skulum bera samau frelsi þeirrá ög lífskjör og þjóða Ráð- stjórnarríkjahna. Það verður að sameina * ... -., krafta okkar Það er óþarfi að spyrja. um hverjum þessi samanburður. verður í hag. Þeirri spurningu er sjálfsvarað. En það má ekki láta vandamálið afskiptalaust, Við verðum að halda áfram bar áttunni til að breyta þessu ósam ræmi. Og þá minnist Robeson á mál sem hann álítur einn aðaltil ganginn með heimsókn sinni:- --- 1 þessum heimi, sem við viðurkennum öll að er einn heim ur, er það eftirtektarverð stað reynd að öfl afturhaldsins með Marshalláætlunum sínum, Tru- mankenningum og Atlanzhafs- samningum, eru í náinni sam- vinnu, skiptast á upplýsingum í mjög ríkum mæli og bera sam an ráð sín um að stofna keim, sem þau geti stjórnað, heim sem grundvallaður er á hinu svokallaða einstaklingsfram taki, þar sem bæði sósíalisrai og samvinnustefna líða undir lok, ef þau fá vilja sínum fram- gengt. Við sjáum hvernig full- trúar þeirra fljúga fram og aft- ur, halda ráðstefnur annan hvern dag til að reyna að tryggja yfirráð þeirra. En hvað gerum við í fram- farahreyfingunni ? Við erum á- litnir þeir sem upprunalega gerðu áætlanir — ættum við þá ekki að geta gert áætlanir sam- an? Við verðum einnig að skilja að við verðum að sameina krafta okkar, svo að við verðum ekki ofurliði bornir, fet fyrir fet. — Þetta er einmitt hugsjón maídagsins sem þú leggur á- herzlu á .... — Það er það, og það er gott að hafa hana í huga á þeim tíma sem stjórnir allra landa segja okkur, að þegar við berj- umst fyrir friði og vináttu við .........- .......... ■' hliðina á Ráðstjómarríkjunum, Rína og lýðraiðisríkjunum, sé- um við ekki lengur Améríku- menn eða Danir. Þetta er auð- vitað helber vitleysa. Við, fram farasinnar allra landa, berum einmitt þá miklu ábyrgð að eiga að taka upp baráttuna fyrir hinu sanna lýðræði um allan heim. Og um leið er ástandið þannig að stjórnir landa okkar segja að ef við fylgjum þeim séum við ekki lengur Ameríku- menn, eða bara Danir eða bara Frakkar, því að við eru þegar orðin hluti af fasistisku Vest- urþýzkalandi, fasistísku Grikk- landi, fasistísku Tyrklandi og við verðum bráðum hluti af hin um fasistiska Franco-Spáni. Við hSfum ekki aðeins stjérn arfarslegan rétt til að segja þetta. Við berum þá heilegu á- byrgð gagnvart okkur sjálíum, börnum okkar og afkomendum okkar að við verðum að krefj- ast þess sem sannir Ameríku- menn, sannir Frakkar, sannir Danir, að við verðum hluti af sameinuðum heimi, þar sem frelsi og framfarir eru fyrir allt mannkynið. I heiminum í dag veljum við ekki þessa fasistísku „vini“ til að heyja neins konar árásarstyrjöld. Við viljum held- ur, eins og prófessor Joliot- Curie tók til orða á friðarþing- inu, neyða styrjaldaröflin til friðar og byggja upp heim, þar sem allir geta lifað og unnið við jafnrétti og við full mannrétt- indi. ‘i . . ;. . .• ffJTTí•> Þetta var sá boð'skaþur sem Paul Robeson bað okkur um að flytja öllum vinum friðar og framfara einmitt í dag, þann 1. maí. Það er ekki ástæða til að fjölyrða um hann. Hann tal- ar sínu máli, þótt ekki sé hægt að sýna á prenti þá persónu- legu hlýju, sannfæringarkraft og það mikla mannvit sem ein- kenndi hvert orð sem Paul Ítobeson sagði. Léif Gundel. tíÞlíufélagið greiðir hluihöf■ um sinum G% arð Aðalfundur Olíufélagsins h. f. var haldinn í Reykjavík þann 26. apríl s.l. Fundarstjóri var Sig- urður Kristinsson fyrrv. forstjóri en fundarritari. Þórður Ólafsson útgerðarmaður. Rekstursafgangur s.l. árs vár ‘ 336 þús. kr. og nófðu þá eignir félagsins verið afskrifaðáþ um 580 þús-.kr____ ú, 5 ‘ • Aðalfundurinn ákvað að greiða hluthöfum 6% arð af hlutabréfum þeirra. sem nýlega hefur verið ákveðin milli Olíufélagsins h.f. og dótt- urfélags þess, Hins íslenzka steinolíuhlutafélags. Annast hið síðarnefnda nú sjálfstætt öll viðskipti við innlend og erlend skip, þ. á m. hina samnings- bundnu nýsköpunartogara, svo og benzinsölu til flugvéla á Keflavíkurflugvelli. Þá annast H.I.S. sölu á eldsneytisolíu til Formaður félagsstjórnarinn- ar, Vilhjalmur Þór, setti fund- inn og gerði ýtarlega grein fyrir störfum stjórnarinnar og fram kvæmdum félagsins á s.l. ári., '..Þi..- ; , .., 1 Samningur sá milli Olíufélags- ins og togaraeigenda ,sem und irritaður var snemma á árinu 1947 , haf$i verið framlengdur til ársins 1955, og viðskiptin við togaraeigendur farið vax- andi, senr og1^p^iir;Jyi^liiPÚ;fé- lagsins. Einnig skýrði forínað- urinn frá verkaskiptingu þeirri, Framhald á 8. síðu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.