Nýi tíminn


Nýi tíminn - 03.05.1951, Qupperneq 2

Nýi tíminn - 03.05.1951, Qupperneq 2
2) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 3. maí 1951 I kpning. í vetur kom út í Stoklihólmi myndabók er nefnist Islaiul oj;' liel'ur inni að halda hinar prýði- legustu myndir frá fslandi, eft- ir ungan sænskan Ijósmyndara. Helgi P. Briem sendiherra hef- ur skrifað ágætan formála fyr- ir bókinni. Þessi sænski ijósmyndari, Hans Malmberg að nafni, j dvaldi um tíma hér á landi og! ferðaðist allmikið hér á vegum Flugfélagsins, enda eru mynd- irnar viðsvegar að af land- inu, frá atvinnu- og menningar lífi, landslagi í byggð og ór byggðum. Bókin er 128 bls. og eru í henni um 130 myndir, flestar þeirra sérstaklega góð- ar. Er bók þessi hin bezta land kynning fyrir ísland og eiga liöfundarnir, Briem sendiherra og hinn ungi sænski ljósmynd- ari Malberg, skilið beztu þakk- ir íslendinga fyrir þessa ágætu bók. — Einhverra mistaka vegna gleymdist Þjóðviljinn þegar höf imdurinn var hér á landi í vet- ur, eftir ýtkomu bókarinnar, og barst blaðinu hún nú fyrir 4 eða 5 dögum, og er það á- stæðan fyrir því að hennar hef- ur ekki verið getið fyrr. Lagarfoss bryggju í öflugarðar fyrir 5 árum „Friðarhöfn“ í Vestmannaeyjum — höfninni þar sem voru luirt- VESTMÁNNAEYJAHÖFN Fyrir 5 árum kartöflugarður — m 21 feta dýpi Miklar hafnarbætur hafa verið framkvæmdar í Vestnjanna- eyjum á undanförnum árum, svo þar er nú orðið ein öruggasta höfn Iandsins. Merkilegasta framkvæmdin innanhafnar, fyrir utan almenna dýpkun á höfninni, er hin svo- nefnda „Friðarhöfn“. Grafinn hefur verið vogur inn í sandinn MÍNJAGRIPASAMKEPPNI Ferðaskrifstofunnar og Heimilisiðn- aðarfélags Islands Eins og á síðastliðnum vetri hafa Ferðáskrifstofa ríldsins og lleimilisiðnaðarfélag Islands ákveðið að efna á ný til sam- keppni um bezt gerða íslen/.ka minjagripi. Samkeppni síðasta árs var einkum miðuð við sölu til er- lendra ferðamanna, en nú er ætlunin að hún nái einnig til hagnýtra muna, sem selja má á innanlandsmarkaðinum. — Þá verða og sérstök verðlaun veitt fyrir snjallar hugmynd- ir (tei’kningar eða framkvæman legar ábendingar) um fram- leiðslu minjagripa, þótt við- komendur hafi ef til vill ekki aðstæður eða hentugleika til að sýna munina fullgerða. Ferðaskrifstofan og Heimilis iðnaðarfélagið efna til sölu- sýningar að lokinni samkeppn- inni í vor og verður hún upp- haf að minjagripa- og heimilis- iðnaðarverzlun þessara aðila. Margs konar munir koma hér til greina, og má nefna hér sem dæmi: 1. Fjölbreytt prónles. Á- herzla lögð á góðar skíðapeys- ur og sterka stígvélaleista hyrnur, trefla, vettlinga alls- konar, einnig vinnuvettlinga.. 2. Vefnaður, svo sem javi, refl- ar, mottur og gólfdreglar. 3 Útsaumur eftir íslenzkum gerð- um, gömlum og nýjum. 4. Skinnavara, t.d. hanzkar, barna skór, inniskór, veski og íslenzk ir skór með illeppum. 5. Smá- hlutir, bæði telgdir og renndir, bæði úr horni svo og úr birki og öðru tré. 6. Brenndir og handunnir leirmunir. 7. Telgd- ir eða renndir smáhlutir úr fiskabeinum (t.d. ýsubeinum) svo og úr hvalbeinum. 8. Smá- hlutir, handunnir, úr góðmálm- um. og viljum vér þá sérstak- lega minna á hið íslenzka víra- virki. Einnig smáhlutir úr ís- lenzkum bergtegundum (hrafn- tinnu, silfurbergi o.fl.). 9. Brúður, klæddar íslenzkum þjóðbúningum. 10. Einnig heimaspunnið band, margar tegundir. Ýmissikonar fleiri munir koma til greina, en umfram allt skal leggja áhrezlu á það, að vandað sé til munanna, þeir séu framleiðendum og ís- lenzku þjóðinni til sóma. Fólk er vinsamlega beðið að senda munina til Ferðaskrif- stofu ríkisins í Reykjavík eða útibúsins á Akureyri, eftir því hvað hverjum hentar bezt, svo fljótt sem auðið er. Um leið og muninrnir berast verða beir teknir til athugunar af sérstakri dómnefnd, og þyki þeir í alla staði ákjósanlegir, verða viðkomandi framleiðend- ur þegar beðnir um fre'kari framleiðslu. Þátttakendur eru beðnir að gæta þess vandlega að hafa góðar umbúðir um muni sína, merkja þá greinilega og láta nafn og heimilisfang sendanda fylgja i lokuðu umslagi; taka fram það, sem þeir telja sér nauðsynlegt að fá fyrir mun- ina. Æskilegt væri, að þátttak- endur úti~ á landi gætu haft umboðsmenn í Reykjavík, sem mætti snúa sér til. innst í höfninni, og þar gerðar bryggjur fyrir skip allt að 3000 brúttólestir að stærð. Þar sem fyrir nokkrum ár- um voru ræktaðar kartöflur er nú um 20 feta dýpi á stór- straumsfjöru. Er þarna hið á- kjósanlegasta var fyrir stormi og sjógangi og svo gott lægi fyrir stór skip, eins og t. d. nýju „fossa“ Elskipafélagsins, að Tröllafossi undanskildum, að vart mun annað betra hér á landi. Nú er það talinn viðburður ef skip þarf að bíða meira en 2—4 tíma til þess að kom- ast í höfn, þar eð dýpi sjálfr- ar innsiglingarinnar er 20 fet á stæstu stórstraumsfjöru, og talið útilokað að skipi hlekkist á innan hafnar eftir áð það hefur verið fest við hafnar- bakka. Banaslys 26. apríl. Á föstudaginn var gerðist það sorglega slys á Bræðraá í Skagafirði, að steinn féll af bæjarþakinu í höfuð þriggja ára telpu og beið hún bana af. Telpan var dóttir bóndans á Bræðraá, Jóns Dagssonar, og voru börn hans þrjú að leika sér úti. Þýða var og mun bróð- ir telpunnar hafa spyrnt við steininum uppi á þakinu, svo hann rann niður. Læknir var sóttur á Hofsós, en þegar hann kom var telpan látin. Nýtt knattspyrnu- samband 26. apríl. S.l. mánudag var stclfnað hér í bænum Knattspyrnusamband fyrirtækja í Reykjavík. Á stofhfundinum voru mætt- ir fulltrúar frá eftirtöldum 10 fyrirtækjum: Egill Vilhjálms- son h.f., Flugfélag Islands h. f., Héðinn h.f., Hreyfill, Keilir, Landssmiðjan, Olíufélagið h.f., Oliuverzlun Islands, Slippfélag- ið og Strætisvagnar Reykja- víkur. Samþykkt voru lög fyrir sambandið og ennfremur reglu- gerð fyrir væntanlega firma- keppni. Keppt verður í deildum og er ráðgert að ekki verði fleiri en 6 fyrirtæki í hverri deild. Ákveðið hefur verið, að firmakeppnin hefjist 10. maí n. k. og er öllum fyrirtækjum i Reykjavík heimil þátttaka í henni sé vissum skilyrðum upp fyllt. Þátttöku ber að tilkynna til formanns K.F.R., Baldvins BaldvinSsonar c/o Olíuverzlun Islands, eigi síðar en 5 dögum fyrir keppni. FcgEuiaríéiag Kafp.aljasðar Sunmidaginn 21. apríl s. 1. var stoínað Fegrunarfélag Hafnarfjarðar. Var það stoínað að tilhlutan Rotaryldúbbs Hafn arfjarðar. Á fundinum var kosin 7 manna stjórn, skal liún starfa fram að næsta aðalfundi og safna félagsmönnum, skulu all- ir er ganga inn til næsta aðal- fundar teljast stofnendur félagp ins. Tilgangurinn er að prýða Hafnarfjarðarbæ. Nefnd un hagkvæmari vinnubrögð Atvinnumálaráðuneytið hef- ur skipað þriggja manna nefnd til að „gera tillögur um bætt vinnuskilyrði og hagkvæmari vinnubrögð við íslenzkan iðnað og önnur þau atriði, sem máli skipta í því sambandi". I nefndiimi eru Þorbjöm Sig- urgeirsson framkvæmdastjóri rannsóknamáðs, og er hann f-or maður nefndarinnar, Þorsteinn Gíslason vélaverkfræðingur og Páll Kr. Pálsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenzkra iðnrek- enda. Erlendir rann- sóknarleiöangrar A s. 1. ári voru liér allmargir erlendir rannsóknarleiðangrar. Á þessu ári liefur f'ram að þessu fjórum slíkum leiðangr- um verið eitt leyfi til rann- sólma í sumar, Rannsaka framburð jökulvatna. Fyrsti leiðangurinn er frá Svíþjóð, undir forustu prófess- ors Hjulströms, ætlar hann að rannsaka framburð jökulvatna og sanda í nánd við Homafjörð. 1 leiðangrinum eru 5 menn, ei'.n þeirra íslenzkur, Jón Jónsson. jarðfræðistúdent er liefur dval i'ð við nám í Uppsölum í SvL þjóð. Leiðangurinn mun senni- lega koma hingað í júní. Frá Durhamháskóla, Þá er væntanlegur hingað 7 manna hópur frá Durhamhá- skóla í Bretlandi. Ætla þem að dvelja við jökulrannsóknir, grasafræðirannsóknir og athug anir á fuglalífi á Breiðamerkur sandi. Mun s’á leiðangur starfa. í samráði og samvinnu við Jón Eyþórsson veðurfræðing, a. m. k. hvað jöklarannsóknirnar snertir. Brezkir skólapiltar. Ennfremur er væntanlegur hópur skólapilta frá Bretlaridi er mun ferðast eitthvað um landif, en tæpast mun hægt að telja þá för til vísindarunn- sókna nema þá að einhverju takmörkuðu leyti. Þýzkur jarðfræðingur. Loks mun svo Emmy Todt- man, þýzkur jarðfræðingur, halda áfram rannsóknum sín- um á jökulruðningi austur við Vatn'ajökul, en hún var hér slíkra eiinda á s. 1. ári, auk þess sem hún kom hingað: laust eftir 1930. I FYRRA. S. 1. ár voru hér 3 brezkir leiðangrar, 1 austurrískur, 1 hollenzkur, einn Þjóðverji (Emmy Todtmann) og 3 Frakkar úr Grænlandsleiðangri Victors. Þrjú erlend haframi- sóknaskip voru um tírna við ls- land. S.ögr®f?ían eigitas! hund Morgunblaðið skýrir frá því að lögreglan hafi eignazt hund, hinn fyrsta lögregluhund hér. Morgunbl. tekur það skýist fram að þetta sé ,,ís!enzkur“ lög- regluhundur, en kunni þó ekki nema dönsku, en hann sé nú sem óðast að læra íslenzku, enda bæði gáfaður og vel ætt- aður. — Lögregluhundinum er ætlað það hlutverk að haía uppi á sökudólgum, finna týnt fólk o. fl. Skaut á vegfar- awda lir loftbvssu Maður nokkur, sem var á gangi eftir Tjarnargötu fyrra mánu- dag varð fyrir skeyti úr loft- byssu og hlaut nokkurn áverka á læri, þar eð skeytið úr bvss- unni gekk inn úr fötum hans. Skyttan var 15 ára ungling- ur, sem hafði það sér til af- þrejdngar að skjóta á vegfar- endur. Maðurinn sem varð fyrir skotinu kærði þetta atferli fyrir lögreglunni og gerði hún býss- una upptæka.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.