Nýi tíminn


Nýi tíminn - 03.05.1951, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 03.05.1951, Blaðsíða 4
4) _ NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 3. maí 1951 NÝl TÍMiNN Útgefandl: Samelnlnsnrflokkur alþýSu — Sósíallstaflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson Áskriftargjald er 25 krónur á ári. Grelnar i blaðið sendist til ritstjórans. Adr.: Aígreiðsla Nýja tímans, Skólavörðustíg 19, Reykjavík Afgreiðsla og auglýsingaskrifstofa Skólav.st. 19. Sími 7600. Prentsmiðja ÞjóðvUjans h.f. Fyrirbærið Ólaiur Björnsson Ólafur Björnsson hagfræðingur, prófessor við Háskóla íslands, samdi gengislækkunarlögin á sínum tíma ásamt bandarískum embættismanni, Benjjamín Eiríkssyná. í lögum þessum voru ákvæði um vísitölubætur, fyrst mán- áðarlegar, en síðar með lengri millibilum, og skyldi sú síðasta fara fram 1. júlí í .ár. Ólafur Björnsson prófessor hélt margar ræður og skrifaði margar greinar um þaö, hverjar hagsbætur þessar vísitölugreiðslur væru fyrir launafólk, hvílík trygging þær væru fyrir því að laun- þegar yrðu ekki látnir bera þyngstu byrðarnar. Um síðustu áramót ákvaö ríkisstjórnin að afnema þessar vísitölugreiðslur sem Ólafur Björnsson hafði sett rnn í gengislækkunarlögin af mnhyggju fyrir launafólki. Sá hinn sami Ólafur Björnsson geistist þá. á ný fram á ritvöllinn og lýsti yfir því að visitöluuppbætur væru al- gerlega haldlausar og ekki aðeins það, þær væru bein- línis skaðlegar. Afnám þeirra .væri þannig kjarabót fyrir launþega og trygging fyrir því að; á þá yrði ekki lagt meira en þeir þyldu. Nokkrum mánuðum síðar birti stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja ályktun um dýrtíðarmálin. Var þar borin fram sú afdráttarlausa krafa til stjórnarvald- anna að þau tryggðu að verðbólgan yrði stöðvuð um- svifalaust, að öðrum kosti krefðust opinberir starfsmenn þess að fá þær kjarabætur að greidd yrði mánaðarleg vísitöluuppbót á laun. Fyrsti maðurinn sem skrifaði undir þessa ályktun var Ólafur Björnsson, hagfræðingur, pró- íessor við Háskóla íslands. Þegar á þetta var bent í blöðum þeystist þessi sami maöur enn fram á ritvöllinn og skrifaði um það nokkrár greinar að þessi krafa sem hann hefði borið fram fyrir hönd opinberra starfsmahna væri tóm vitleysa og stór- skaðleg launþegum og grátbændl stjórnarvöldin um að taka ekkert mark á henni. Að morgni hins fyrsta maí birtu blöðin ávarp frá alþýðusamtökunum þar sem m. a. var komizt svo að orði: „Alþýðan er staðráðin í því áð berjast gegn vaxandi dýrtíð, atvinnuleysi og hverskonar kjaraskerðingu og hún krefst fullrar mánaðariegrar dýrtíðaruppbótar á kaup sitt “ Fyrsti máður sem skrifaSi undir þetta ávarp á eftir 1. maí nefndinni var Ólafur Björnsson hagfræðingur, prófessor við Háskóla íslands. Að kvöldi hins 1. maí hélt enn hinn sami Ólafur Björnsson ræðu í útvarpið. Hann hóf mál sitt á því að þakka útvarpsráði þann heiður sem það hefði sýnt cpin- berum starfsmönnum með því að bjóða sér, Ólafi Björns- syni, að tala. Eftir þetta sjálfsmat fjallaði ræðan svo mestmegnis um það að mánaðarlegar vísitöluuppbætur væru fráleitar, hættulegar og heimskulegar og alþýðu- samtökin mættu alls ekki bera fram svo fáránlegar kröfur. Þetta stutta sögulega yfirlit sýnir glöggt að Ólafur Björnsson er fyrir löngu kominn á það stig að engin leið •er að ræða við hann. Hins vegar er enn örlítil ástæða til að ræða um hann sem fyrirbæri. Þó skal andlegt ástand hans eftirlátið sérfræðingum á því sviði. Það er skiljanlqgt að Sjálfstæðisflokkurinn noti slíkan mann sem sérfræðing sinn, flokkurinn hefur ekki úr svo mörgum að velja, og um skeið hefur það að sjálf- sögöu verið einkar þægilegt að eiga aðgang að lærðum manni sem ekki lét sig muna um að „sanna hagfræði- lega“ allt sem fariö var fram á: eitt í dag og annað á xnorgun. Þó munu forsprakkarnir nú sjá fram á aö Ólafur Bjömsson er orðinn verri en gagnslaus. En hversu lengi ætla opinberir starfsmenn að hafa slíkt skoffín fyrir forustumann, og eru því engin takmörk sett hvernig starfsmenn æðstu menntastofnunar þjóðar- innar geta hagað sér á sviði „fræðimennsku“ sinnar? )) £f svet „Þá ioks opnuðust svallr alþíngis og þar birtist lít- ill feitur spertur maður, og fer að setja sig í stellíngarn- ar. Hann bíður meðan fólk- ið fyrir neðan lýkur við að sýngja ísland ögrum skorið, hagræðir sér í herðunum, þukiar hnútinn á hálsbind- inu sínu, ldappar sér á lmakkann með Iófanum, ber tvo fíngur uppað vörum og ræskir sig. Og hann upphefur raust sína: íslendíngar, í djúpum, kyrrum, landsföðuriegum tóni; og menn þagna, við- urkenna sjónleikinn. íslend- íngar, hann taiar aftur þetta orð jsem er svo lítið I heiminum og þó svo stórt, og nú upplyftir hann til himins þrem fíngrum yfir múginn, ber síðan ciðinn fram seint og fast með laungum þögnum milli orða: Ég sver, sver, sver .•— við alt sem þessarl þjóð er og var hellagt frá upphafi; ís- land skal eltki verða selt“. Atómstöðln. Fyrir nokkru lýsti Bjarni Benediktsson yfir því í áheyrn alþjóðar að ríkisstjórnin hefði staðið í samningum við Banda- ríkin um nýtt hernám lands- ins, og myndi landið verða opn- að erlendum árásarher, hve- nær sem Bandaríkin teldu það æskilegt. Nú hefur þingmönn- um afturhaldsflokkanna verið smalað í bæinn og er talið að hernámsins muni nú skammt að bíða. Þeir menn sem að lanöráðum þessum standa að þjóðinni fornspurðri hafa á undanförn- um árum aftur og aftur svar- ið þess dýran eið að aldrei skyldi til þess koma að ísland yrði hersetið á friðartímum. Þegar íslendingar gengu í sam tök sameinuðu þjóðanna var það eitt helzta áhyggjuefni á bingi hvort aðild að þessum samtökum gæti haft í för með sér að hugsanlegir herir sam- einuðu þjóðanna hefðu ein- hvern tíma afnot af íslenzku landi, Var talið fráleitt að Is- lendingar gerðust þátttakend- ur ef þær kvaðir fylgdu, og aðildin var samþykkt með eft- irfarandi ein- róma fyrir- vara utanrík- isnefndar: „Islending- ar eru ein- dregið and- vígir herstöðv um í landi sínu og munu beita sér gegn því a® þær verði veittar." I utanríkismálanefnd áttu þá sæti Bjarni Benediktsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Her mann Jónasson, Bjarni Ásgeirs- son, Jóhann Þ. Jósefsson, Garð ar Þorsteinsson og Einar 01- geirsson. Hér fara á eftir nokkrir svar dagar úr umræðunum, valdir af handahófi. Voru þeír svar- dagar síðan endurteknir á enn eftirminnilegri hátt þegar Keflavíkursamningurinn var gerður, og mun að því vikið hér í blaðinu síðar. Ólafur Thors á Alþingi 22. júlí 1946 um þátttöku Islands í samtök sameinuðu þjóðanna: „íslenzka ríkið hefur aldrei liáð styrjöhl og aldrei haft herskyldu né herlið lands- manna. Ber að sjálífsögðu að taka tillit til þess í væntanlegum samn- ingum ísienzka ríkisins og ör- yggisráðsins.“ Hermann Jónasson sama dag: Það er nú áreiðanlega mjög sterkur vilji fyrir þ\í hjá þjóí- inni og næstum einrótr.a, að ekki komi til þess, að hér veiðj herstöðvar, og ég verð að láta þá skoð- un mína í ljós livernig svo sem ég greiði atkvæði um þetta mál, að ég tel að það þyrfti að liggja fyrir frá háttvirtu Al- þingi nú þegar, að til þess gæti aldrei komið, að við vildum fórna því að leyfa var- anlegar herstöðvar hér á landi. Virtist mér hæstvirtur forsæt- isráðherra leggja á þetta á- herzlu, þótt hann talaði óljóst um þetta atriði.“ Stefán Jóhann Stefánsson um sama mál 23. júlí 1946: „Spurningin sem nú er á hvers manns vörum ... er þessi: Leiðir innganga íslend- inga í bandalag hinna samein- uðu þjóða það ekki óumflýjan- lega af sér, að það verði erlend ar herstöðvar á íslandi ? ... Slíku er ekki til að dreifa... j] Um það erum við allir í ut- anhíkismála- nefnd, ríkis- stjórn og fræðimenn ut- an nefndar á einu máli og erlendir fræðimenn einnig ... Um leið og nefndin undirstrik- ar, að samkv. 43. gr. hafi ör- yggisráðið aðeins rétt til samn- inga við ísíand, þá segir nefnd- in, að íslendingar viíji ekki hafa lierstöðvar á íslandi. Skilningurinn á greininni er að mínu áiiti alveg ótvíræður og viljinn, sem þar kemur fram, líka fuilkomlega skýr. ... Við í nefndmni og ríkisstjórnin telj um mikils um vert, að vilji Al- þingis íslendinga komi skýrt og ótvírætt fram um þetta efni, að það sé bæði vilji þingsins og áslenzku þjóðarinnar, að er- fendar herstöðvar verði ekki á íslandi.“ Pétur Ottesen sama dag: „Fyrir þessar kosningar hafði einn fldlíkur, Sósíalista- flokkurinn, tekið þetta mál mjög föstuin tökum og reynt að skapa það al- menningsálit, að hann hefði einhverja sér- stöðu í mál- inu og væri harðari á því en aðrir flokkar að veita hér engin fríðindi, en vitanlega sýndi það sig við gang þessa máls að hér bar ekkert á millj Sósíalistaflokksins og ann arra flokka.“ Hermann Jónasson sama dag: ,Það sem ég álít að leggja beri áherzlu á frá okkar hendi og sérstaklega það sem við þurfum að varast er tveant: Það er í fyrsta lagi, að við yrðum skyldaðir til þess að íaka beinlínis þátt í hernaði, vegna sög'u dkkar, vegna þess að við erum og höfum alltaf verið vopnlaus þjóð. ... Hitt atriðið . er það að við séum ekld skyldaðir til þess að hafa hér herstöðvar. ... I þeirri á- litsgerð sem Alþingi lætur frá sér er mælt á þann veg að tryggt væri að alls ekki þyrfti til slíks að koma.“ Emil Jónsson 25. júlí 1946: „Það hefur komið skýrt fram hjá öllum flokkum, alla tíð síðan hæstvirtur forsætis- ráðherra gaf yfirlýsinguna í o veíur um af- síöðu ríkis- stjórnariiHiarí til herstöðva- málsins yfir- leitt, að það sé æskilegt að hér á landi dveljist eng- inn her. Og Alþýðufldkkurinn telur að við- ræður um þetta mál ætti nú affi hefja sem allra fyrst milli íslenzku ríkisstjórnarinnar anu ars vegar og stjórnar Banda- ríkjanna hins vegar.“ Gunnar Thoroddsen 25. júlí 1946: „Eg hef áður haft tækifæri til þess, einkum 1. des. s.I., að lýsa afstöðu minni til erlendra herstöðva. Eg býst ekki við, að mér sé minna kappsmál en t.d. liáttvirtum 3. landskjörnum þingmanni að hér séu engar lierstöðvar. Og ég hefði ekki verið fylgj- andi inngöngu okkar í banda lag samein- uðu þjóðanna, ég myndi ekki hafa greitt því atkvæði hér á þingi, ef ég teldi, að í því fæl- Framhald á 7. síðu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.