Nýi tíminn - 03.05.1951, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. maí 1951 — NÝI TÍMINN — (3
Skipulögð og sívaxandi verðbólga er aðferð
aflurhaldsflokkanna til að lækka kaupið
18. febrúar s.l. birti Þjóð-
viljinn skrá yfir nokkrar hvers
dagslegustu matvörur og
neyzluvörur almennings og bar
saman verðið í ársbyrjun 1947,
þegar „fyrsta sjórn Alþýðufl.“
tók við og „baráttan gegn dýr-
tíðinni liófst“ og verðið eftir
að „baráttan" liafði staðið í
rúm fjögur ár. Sýndi saman-
burðurinn að þessar óhjá-
kvæmilegustu lífsnauðsynjar
höfðu liækkað í verði að með-
altali um 101%, verðið liafði
me'ð öðrum orðum tvöfaldazt
af völdum „baráttunnar gegn
dýrtíðinni".
^20 hækkanir á
tveim mánuðum
Fyrir nokkrum dögum var
þessi samanburður endurskoðað
ur með tilliti til þeirra breyt-
inga sem síðan hefðu orðið.
Kom þá í Ijós að af 45 vöru-
tegundum sem á listanum eru
höfðu 20 hækkað í verði á þess-
um rúmum tveim mánuðum, og
sumar allverulega. Meðalverð-
hækkunin frá því að baráttan
gegn dýrtíðinni hófst í ársbyrj-
un 1947 var'komin upp í 116%
hafði aukizt um 15% síðan um
miðjan febrúar! Skráin eins og
liún lítur nú út er birt liér á
síðunni.
Verðhækkunin
enn meiri
Eins og skráin ber með sér
nær hún aðeins yfir hversdags
legustu matvæli og aðrar ó-
hjákvæmilegustu neyzluvörur.
'Verðlagi á þessum vörum hafa
stjórnai'völdin þó haldið frem-
ur í skefjum en á öðrum, vegna
þess að þær höfðu víðtækust á-
hrif á vísitöluna, og það hefur
löngum verið stefna stjómar-
valdanna að tryggja að vísitál-
an gæfi sem lélegasta mynd af
raunverulegri dýrtíð. Það er
því efalaust að aðrir vöruflokk-
ar, svo sem skófatnaður, vefn-
aðarvara, búsáhöld o. s. frv. —
svo að ekki sé minnzt á „lúxus-
vörur“ — hafa hækkað enn
meira í verði en þessi tafla sýn-
ir.
^ Kauphækkunin
ekki þriðjungur
Gamla vísitalan var um síð-
ustu mánaðamót komin upp í
516 stig. Þegar baiúttan gegn
dýrtíðinni hófst var hún hins
vegar 316 stig. Hækkunin nem-
ur þannig 200 stigum eða 63%.
Listi sá yfir nauðsynjavarning
sem liér er birtur sýnir hins
vegar 116% hækkun, og gef-
ur það nokkra hugmynd um
það hversu gölluð gamla visi-
talan var, þótt hún sé að vísu
hátíð hjá gengislækkunarvísi-
tölu þeirra Benjamíns og Ólafs.
Þegar baráttan gegn dýrtíðinni
hófst var timakaup Dagsbrún-
armanns kr. 8,36. Það er nú
kr. 11,37. Hækkunin á því nem-
ur þannig 36%, og er aðeins
rúmur helmingur af þeirri
hækkun sem gamla vísitalan
sýnir og tæpur þriðjungur af
meðalliækkun þeirri sem orðið
hefur á nauðsynjavörum þeim
sem hér eru taldar.
^ Fyrst og íremst inn-
lendar ráðstaíanir
Öll þessi gegndarlausa verð-
hækkun er fyrst og fremst inn-
lend ráðstöfun, eins og marg-
sinnis hefur verið sannað hér
í blaðinu. Var hún fyrst fram-
kvæmd með tollum og sköttum
þeim sem, f.yrsta stjórn Albýðu-
flokksins gerði að sérgrein
sinni, og með því móti komst
vísitalan upp í 355 stig lá sama
tíma og lcaupgjaldið var bundið
við 300. Síðan var beitt rót-
tækari aðgerðum, fyrst gengis-
lækkun gagnvart dollar og síð-
an almennri gengislækkun. Að
lokum hafa svo bætzt við nýj-
ar skattaálögur og síðast okur-
gjaldeyririnn, sem samsvarar
verulegri gengislækkun á mikl-
um hluta innflutningsins. Allt
eru þetta aðgerðir íslenzkra
pólitíkusa í þágu auðmanna-
stéttarinnar, framkvæmdar í
því einu skyni að lækka raun-
verulegt kaup alþýðumanua.
^ Eina ráðið gegn
verðbólgunni
Afturhaldsblöðin halda því
fram að mánaðarleg vísitölu-
greiðsla sé hættuleg þar sem
hún stuðli að sívaxandi verð-
bólgu. Þetta er í algerri and-
stöðu við’ reynzluna. Verðbólg-
an jókst þá fyrst fyrir alvöru
þegar Alþýðuflokksstjórnin batt
kaupgja’ldið við 300 stig. Og
aldrei hefur dýrtíðin magnazt
jafnt ört og síðan ríkisstjórn
Framsóknar batt kaupgjalds-
vísitöluna við 123 stig í upp-
hafi þessa árs. Vísitölubinding
er einmitt forsenda þess að
stjórnarvöldin geti haldið á-
fram hinum skipulögðu irerð-
hækkunum; sé lcaupgjald og
verðlag tengt saman er stjórn-
arvöldunum nauðugur einn kost
ur að halda verðinu í skefjum.
Mánaðarleg vísitölugreiðsla er
því ekki aðeins sjálfsögð rétt-
lætiskrafa, heldur eina ráð laun
þega gegn sívaxandi verðbólgu
þróun.
Vörutegund Verð 1947 Verð nú Ilækkui
Kindakjöt nýtt (ófáanlegt nú) 9,85 13,35 36%
Nautakjöt, steik 13,00 28,00 115%
Saltkjöt (ófáanlegt nú) 9,85 13,75 40%
Vínarpylsur 11,50 16,00 39%
Miðdagspylsur 11,00 14,75 34%
Flesk, reykt 20,00 35,00 75%
Ýsa, ný, slægð með haus .... 0,95 1,65 74%
Þorskur, nýr, slægður með liaus 0,90 1,50 67%
Koli, nýr 2,40 4,00 67%
Harðfiskur pakkaður 13,00 18,00 oo oo
Harðfiskur, ópakkaður 12,00 16,80 40%
Fiskbollur 3,85 7,20 87%
Nýmjólk í flöskum 1,98 2,63 33%
Rjómi 13,00 19,80 53%
Skyr 3,30 4,60 39%
Smjör, skammtað (ófáanl. nú) 10,00 32,50 225%
Smjörlíki, skammtað 4,50 7,70 71%
Tólg (ófáanleg nú) 9,45 14,25 51%
Lýsi, y2 fl 2,25 7,00 211%
Mjólkurostur, (45%) 16,00 20,15 26%
Mysostur 6,50 9,85 52%
Egg , 15,00 23,00 53%
Rúgmjöl 1,41 2,30 63%
Hveiti 1,23 3,80 209%
Hafragrjón 1,64 3,10 89%
Hrísmjöl (ófáanlegt nú) .... 2,02 4,15 105%
Hrísgrjón 2,00 4,75 138%
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. . . 2,45 3,90 59%
Normalbrauð (1250 gr) 2,35 3,60 53%
Franskbrauð (500 gr) 1,40 2,60 86%
Vínárbrauð 0,40 0,70 75%
Kartöflur 0,65 1,92 196%
Rúsínur G,25 11,95 91%
Saft (kjarnasaft) 6,25 12,90 106%
Strásykur 1 90 4,65 145%
Molasylcur ‘ 2.02 ' í 5,15 155%
Púðursykur 1,55 4,60 197%
Kaffi, brerint oa mal«ð 8.40 38,40 357%
Kakaó 5,57 2800 403%
Te 1/8 lbs 1,30 3,95 204%
Steinkol 100 kg 18,80 49,80 165%
Steinolía 0,53 . 1,05 98%
Brún sápa (krystalsápa) .... 5,00 8,40 68%
Þvottaefni 1,95 12,00 515%
Sódi 0,75 1,45 93%
Meðalliækkun 116%
um borgir, sem áður þöktu sjö deytt sem flesta meðbræður
„Við skulum nú um stund
beina augunum í huganum að
kvikmyndatjaldi. Það líða fyrir
augu og eyru nokkrar myndir
og hljómar og hljóð, sem eru
órjúfanlega tengd sögu lieims-
ins og einstaklingsins síðustu
árin.
Við sjáum fyrst púka fé-
græðginnar og eitursnák valda-
fikninnar læðast, teygjast og
smjúga inn í mannssálina og
breiðast úr eins og blek í þerri-
pappír eða eld í grárri sinu,- og
kreppast saman eins og skugga
hönd á Iivitu tjaldinu. Og við
sjáum hina rauðu elfi gullsins,
rauðagullsins, fara að renna
örar og örar og boða þann
straum, sem er ennþá rauðari en
gull. Við sjáum gullelfina renna
í gegnum hergagnaverksmiðj-
urnar vitt um heim, við sjáum
skyggð og stálgrá hergögnin
renna á færiböndum út úr verk-
smiojunum svo ört að vart
festir auga á þeim, flugvélar
allt frá rennilegustu orustu-
flugvélum upp í voldugustu
sprengjuflugvélar, skriðdreka,
fallbyssur, vélbyssur, riffla,
Hinn almenni bænadag-
ur íslenzku kirkjunnar
var helgaður friðarhurr-
sjón mannkynsins. I til-
efni af þessu birti Þjóð-
viljinn eftirfaramli kafla
úr ræðu, sem séra Emil
Björnsson flutti á s. 1. ári
Bæðan birtist í bókinni
„Mormunræður í Stjörnu-
bíó“.
skammbyssur, þyésust'ngi.
sprengjúr, allt frá ikjarnorku-
sprengjum niður í handsprengj
ur, kafbáta, herskip af ö’^um
gerðum, allt til eyðingar og
tortímingar mannslífum í lofti.
á jörðu og í sjó, allt er hnit-
miðað í þá átt. Og að baki þes?
arar framleiðslu sjáum við grá
ar heilafrumur starfa af vit:
firrtum ákafa að útreikningi
tortímingarinnar, dýrmætasta
hugvitið í þjónustu dauðans.
sjón-, heyrnarlaust og rétt
steindautt hugvit, gersneytt allri
tilfinningu. Og við sjáum blind
augu, dauf eyru, og hendur og
fætur, sem hlýða í blindni, við
sjáum manninn í álögum, dá-
leiddan af þeirri iðju að drepa,
drepa allar mannlegn.r taugar
í eigin brjósti fyrir fé eða
falska frægð, fyrir ímyndaða
nauðsyn, fyrir lygaáróður og
blekkingar. Og ennfremur drep^
aðra -menn í dáleiðsluástandinu.
gegn hinum raunverulega vilja
sínum, gegn Guðs og manna lög
um, gegn lieilbrigðri skynsemi,
gegn öllu, sem heitir mannlegar
tilfinningar. Og við sjáum flug-
vélarnar spegilfögru fara me'
eldingarhraða, sjáum menn
stjórna þeim, skjóta aðrar flug-
vélar til jarðar, hönd styðja á
hnapp og heilar borgir springr
í loft upp fyrir það eitt að
fingurinn þrýsti á bnappinn
Við sjáum herskipin fögru og
tígulegu síga sundurskotin i
hafið, heilar lestir með liinum
dýru stálgráu hergögnum
springa í loft upp, þyrlast upp
eins og ösku, flugvélarnar falla
í logum til jarðar. Við sjáum
reykjarsúlur stíga til himins,
eldtungur bera við ský, við
sjáum sjóinn blóði litan og þalk-
, inn sundurtættu braki, við sjá-
hæðir með hlýlegum húsum og
glæsilegum steinbyggingum.
sem áttu að standa um aldur
og ævi, við sjáum þær í rústum,
svo gereyddar, að ekki stendur
steinn yfir steini.. Við siáum
brýr og mannvirki, sem nrntugi
tók að reiss og reist vnr ti!
blessunar og hagsbó'ia þjóðum
og mannkyni, við sjáum það
tætast í sundur á einu andar-
taki, og ekkert er eftir af því.
Og hvað sjáum við meira.
við getum ekki sagt það sund-
ur.tætta menn, líkamlega og
andlega, særða, deyjandi, við
sjáum blóðið renna og hjörtun
brenna í myrkri örvær.tingar-
innar. Og við heyrum dauða-
hryglu, skerandi angistar- og
sársau’.-aóp helsærðra manna
sem eru að brenna liiandi
kafna í reyk og sjó, nístast
undir helfargi í húsarús' um,
eða engjast á píningarbekkjum
böðla sinna. — Og við sjáum
heiðursmerki fest í barm þe;rra.
sem skotið hafa niður flestar
flugvélar, grandað flestum skip
um, sprengt borgir í loft upp
með „beztum árangri“ eins op
það er gjarnan orðað, með cðr-
um orðum meitt og kvalið og
sína í þessum heimi. Og er þá
nokkur furða þótt einhver gef-
ist upp fyrir þessari mynd,
fórni höndum til himins og
spyrji: Til hvers var verið að
segja mér að ég ætti að elska
náungann, að ég ætti að gera
öðrum það, sem ég vil að mér
sé gert, til hvers er að vinna
lækninga- og líknarstörf, þegar
menn drepa af ásettu ráði 10
þúsund fyrir hvern, sem þeim
þóknast að lækna, til hvers er
að kenna: þú skalt ekki mann
deyða, til hvers er að vinna
í áratugi að mannvirki til hags-
bóta fyrir mennina, þegar þeir
eyða því með öllu á einu andar-
taki sjálfir, til hvers hefir mönn
unum verið leyft að gera nátt-
úruna, jörðina, hafið og loftið
sér undirgefið, þegar það virð-
ist vera til þess eins að tor-
tíma lífinu á jörðinni. Til hvers
er manni sagt að fara og bjarga
lífi þessa í dag og fara og
drepa þennan og þessa á morg-
un, menn, konur og börn, sem
aldrei hafa gert þeim sem drep-
ur eða neinum minnsta miska,
til hvers er verið að færa guði,
guði kærleikans, börnin saklaus
Framhald á 6. síðu.