Nýi tíminn


Nýi tíminn - 15.11.1951, Side 8

Nýi tíminn - 15.11.1951, Side 8
STÖRFRAMKVÆMDIR KOMMÚNISMANS — Sjá 5. síðu — STAÐA KONUNNAR í SOVÉTRÍKJUNUM Sjá grein Grethe Forchammer á 7. síðu blaðsins Kveðja flokksþmgsins til Sigfósar Signrhjartarsonar Fulltrúar á 8. þingi Sósíalistat'lokksins sendu í gær Sigfúsi Sigurhjartarsyni, varaformanni flokksins svohljóðandi skeyti, en hann dvelst nú í Sovétríkjun- um til lækninga: ,,8. þing Sameiningarílokks alþýðu — Sósíalistaílokksins, sem í dag er að hefja störf sín, sendir þér sínar beztu kveðiur. Flokkur vor saknar þess allur að njóta ekki i svipinn þinna ágætu starfskrafta, eins og vér höfum notið þeirra í svo ríkum mæli og svo heilla- drjúgt frá upphafi flokks vors. En vér vonum að þú megir sem fyrst hverfa heim til starfa heill heilsu og getir aftur helgað krafta þína flokki vorum og þjóðinni allri." Verður hcxfinn inn- flutningur á Isféii Fáránlegt að kjötskortur sé í landinu meðan hverskyns óþarfi er fiuttur inn fyrir millj. Bins og hlaðið skýrði frá fyrir nokkrum vikum hai'a ]>egar verið flutt til Bandaríkjanna — sem huiulafæða — 500 tonn af dilkakjöti. Áformað mun að haida útflutningi þessuin áfram og senda a. m. k. 1000 tonn í viðbót. Ársjyamjeiðsian er hins vegar aðeins um 4000 tonn, þannig að eftir yrðu ])á 2500 tonn handa landsmönnum, — en eðlileg ársneyzla er talin nema um 5000 tonnuin. Afíeiðingin er sú, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, að nú þegar, í lok sláturtíðar, á að taka upp kjötskömmtun og miðað við að almenningur eigi kost á kjöti einu sinni í viku, á sunnudögum. (Ilins er ekki getið hversu oft bandarísku kjölturakkarnir eigi að fá að borða íslenzkt dilka- kjöt á viku.) Félag kjölkaupmanna í Reykjavík hé.lt fund um þetta mál. — Var þar gengið frá bréfi til Framleiðsluráðs land- búnaðarins og í því lögð hin ríkasta áherzia á að tekið yrði tafarlaust fyrir þennan fárán- lega útflutning og látið sitja við þau 500 tn. er þegar hafa verið flutt út. Gerðu fundarmenn sér allgóðar vonir um jákvæðar und irtektir hjá framleiðsluráðinu. A fundinum var einnig um |>að rætt að ef ríkisstjórnin skipulegði algeran kjötskort í Jandinu bæri kjötkaup- inönnum að beita sér fyrir innflutningi á kjöti í stað- inn. Á undanförnum mánuð- um hefur verið fluttur inn allskyns óþarfi fyrir milljón- ir króna, m. a. vatn í dósum og niðursoðinii lax frá Kan- ada, og ríkisstjórnin hefur lýst yfir því að hún telji það hlutverk hinnar „frjálsu verzlunar" að fullnægja eft- irspurninni á öllum sviðum. Kjöt er óuindeilanleg nauð- synjavara, og innflutningur þess ætti að ganga fyrir flestu öðru, samkv. stefnu stjórnarinnar, ef kjötskortur er í landinu. Haldi ríkisstjórnin hins veg- ar áfram kjötútflutningi sínum og ieggist einnig gegn innflutn- ingi á kjöti í staðinn, hlýtur ástæðan að vera sú, að það sé stefnumál hennar og yfirboð- ara hennar að Islendingai' borði aðeins kjöt einu sinni í viku. Þá er það eitt af fyrirmælum marsjallstofnunarinnar framkv- af Benjamíni Eiríkssyni Sekir flokkar hindra rannsékn Þingmeim SiálfsSæðisllokksins. Fiðmsóknar og Alþýðuiiokksins rcyna að bfarga Benfamín 13. nóvember. Þingmenn allra marsjallflokkanna þriggja auglýstu í gær á Alþingi sekt sína og ótta viö aó klækir þeirra yrðu uppvísir. Þetta varö er allir viöstaddir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, Framsóknar og Alþýöuflokksins hindruðu að tillaga Einars Olgeirssonar um rannsókn á baktjalda- makki Benjamíns Eiríkssonar færi til þingnefndar í at- hugun. Einar lýsti því yfir að tillag- an hefði þegar gert nokkurt gagn, því viðskiptamálaráðherr- ann hefði í umræðunum lýst því yfir að ríkisstjórain bæri ábyrgð á þeirri íhlutun um lána WJV'- ‘ starfsemi bankanna sem rann- saka átti. Fellt var áð visa tillögunni til fjárhagsnefndar með atkv. allra viðstaddra marsjallþing- manna og tillagan sjálf felld á sama hátt. Skipsfióíi Varðar sviptur réftirídum ©ift ár osf — icr. sekt - 5 sgómenn tórust Undméfigardómu? í Varðarmálinu Siglingadómur kvað s.l. mánudag upp dóm í Varðar- málinu svonefnda. Var skipstjórinn á Verði, Gísli Bjarna- son, dæmdur í 5 þús. kr. sekt og sviptur skipsstjórnarrétt- mdum um eitt ár. Mál þetta hefur vakið alþjóðarathygli og svo mun og verða um dóm þenna, scm ekki aðeins sjómenn heldur allur almenningur hefur beðið eftir með eftirvæntingu. Sögu Varðarslyssins, þegar togarinn Vörður fórst í hafi á leið til Englands, er óþarfi að rekja hér. Rannsókn þessa máls gekk mjög tregt og eftir að henni var lokið ?á dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, á málinu óra- ííma og urðu aðstandendur hinna látnu sjómanna að gangast í það að það fengist tekið fyrir. bjart var. Er það álit hinna að morgni. Kom annar togari, siglingafróðu dómenda, að eins og veðri, sjó og öðrum aðstæð- um var hátíað hafi verið gjiir- Iegt að flytja sldpshöín Varð- ar á korkflekunum yfir í Bjarna Ólafsson meðan birta hélzt, og rétt að freistg ]>ess allt fram tii kl. 18,00. Þegar litið er til þess, að veður fór vaxandi a. m- k. eftir Id. 17,00 AÐ skips- höfn „Varðar“ mun hafa verið orðin mjög Jireytt eftir að hafa staðið í austri og kola- mokstri frá því snemma morg- uns, AÐ austurinn mun lítinn sem engan árangur hafa borið og alft óvíst um orsök hins alvarlega leka, þá lítur dómur- inn svo á, að ákærða hafi borið að hefjast handa fyrst og fremst meðan birtu naut, og allt fram til kl. 18,00 að freista þess að bjarga slcipverjum á korkflekunuin um borð í tog- arann Bjarna Óialsson. Þao gerði ákærði ekki. Engar ráð- stafanir gerði hann heldur í þá átt að hafa þessa íleka tiltæki- lega við skipslilið- Þar sem mik- >11 leki hafði komið að skipinu, bar ákærða að leggja svo fyrir Lekans, sem leiddi til þess að Vörður sökk, varð vart snemma Bjarni Ólafsson, á vettvang og hélt sig í grennd við Vörð í 4 klst., reiðubúinn til hjálpar, en skipstjóri Varðar gerði ekiki ráðstafanir til að bjarga á- höfn togara síns fyrr en hann var að sökkva. I dóminum, en hann verður betur rakinn síðar, segir m. a. svo: „Sainkvæmt 48. gr. siglinga- laganna er skipstjóra skylt að gera allt, er hann má, til bjarg- ar skipi, ef það kemst í sjáv- arháska, og má ekki hverfa frá því meðan nokkur von er um björgun þess. Ber að hafa þetta í huga, þegar kannað er, hvort ákærði hafi of seint haf- ist handa um að flytja skips- Framhald á 3. síðu. Allijeífiuvi TIMÍNN saiíði nýlega að Þjóðviljinn hefði nú at - bjúpað hug sinn tii sam- vlnnuhreyfingarlnnar meö skrifunum um kaupfélags- stjórann í Borgarnesi. Það er ánægjulegt ef Tínianiun hefur aukizt skilningur |>au skrif. en hugur Þjóð- viljans er sá sami og hann liefur ævinlega verið. Þjöö viljinn telur J>að lífsnauðsyn fyrir samvinnufélögin að sú spiiling sem mótað hefur ver7.1unarmáliii á ískyggi- Iegasta hátt síðustu árin nái ekki til samvinnulireyf- ingarinnar, að hver vott- itr slíkrar spillingar sé upii- rættur, hverjir sem í hlut eiga. Þessi afstaða æt,ti vissu- lega ekki að vera nein ný afhjúpun, hins vegar er su afsfaða Tímans lærdómsrík að leggjast gegn réttarraiin- sókn l>rátt fyrir alvariega og rökstudda kæru, setta frani á fullkomnlega viö- eigandi liátt. lílcki getu. umhyggja fyrir samvinnu- hreyfingunni valdið þeirri afstöðu — en ef tii vi!I umhyggja fyrir Þóiði Pálmasyni, helzta forvígis- mannl Framsóknarílokksins i Borgarnesi. Framleiðsluráð kýs kornræktarnefnd Framleiðsluráð landbúnaðarins ákvað 25. fyrra mánaðar að kjósa 5 manna neínd tii þess að atliuga og gera tillögur um kornrækt og hefur nefnd ]>essi nú verið skipuð. Verkefnið sem nefndinni er falið er nánar tilgreint: a) Að athuga aðstöðu land- búnaðarins til aukningar korn- ræktar. b) Að athuga og gera til- lögur um hverra aðgerða er þörf til þess að auka korn- rækt, ef aðstaða hennar hér- lendis þykir þess eðlis. I nefndina voru kosnir þesáir menn: Pálmi Einarsson lana- námsstjóri, og er hann formað- ur nefndarinnar, Klemenz Krist jánsson tilraunastjóri á Sáms- stöðum, Runólfur Sveinsson sandgræðslustjóri, Jón Sigurðs- son alþm- og Sverrir Gíslason form. stéttarsambands bænda. Þess er að vænta að nefndar- skipun þessi beri tilæt’.aðan árangur og að nú komist loks skriður á kornrækt í þeim hér- uðum landsins sem til hennar eru fallin, en eins og áður hef- ur verið sagt í Þjóðviljanum telur Klemenz Kristjánsson til- raunastjóri á Sámsstöðum að með kornrækt mætti komast hjá kaupum á erlendum fóður- bæti sem fluttur er inn fyrir tugi millj. árlega. — Með hlið- sjón af kornrækt Klemenzar á Sámsstöðum með góðum ár- angri í aldarfjórðung verður ekki sagt að flasað hafi verið að framangreindri nefndarskip- un. WcrBskipiajöfnuðurinn í ár óhag- stæðar um 185,7 milljónir króna Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu frá Hagstofunni var vöru- skiptajöfnuðurinn við útlönd óhagstæður um 185,7 millj. króna frá ársbyrjun til októberloka, og í októbermánuði einum var hann óhagstæður um 20,4 millj. Á þessu tímabili, jan,—okt. 1951 voru fluttar út afurðir fyrir samtals 550,5 millj. kr„ en innflutt. fyrir 736,2 millj. Innflutningur skipa er þarna meðtalinn, en nam 53,4 millj. kr. að verðmæti- Er viðskipta- jöfnuðurinn nú rúmlega 14 millj. kr. óhagstæðari en á sama tímabili í fyrra, en þá var flutt út fyrir 308,3 millj. kr. fyrstu 10 mánuði ársins, en innflutt fyrir 479,4 millj. kr. Innflutningur skipa var þá einnig minní að krónutölu, eða 27,8 millj. kr. I síðasta mánuði voru fluttar út vörur fyrir 87,2 millj. kr-, en innflutningurinn nam sam- tals 107,6 millj. kr. og vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um rösklega 20 milljónir. I október í fyrra var mismunur á verðmæti innfluttra og út- fluttra vara. hinsvegar hverf- andi lítill. eða 115 þús kr. Var þá flutt út fyrir 38,5 millj. kr. rt/ 7 I . og innflutt fyrir 38,6 milljónir, ra oamsstyrki Ráðuneytið hefur veitt Krist- jönu Helgadóttur, cand. med. 4000 króna styrk úr Kanada- sjóði til framhaldsnáms í lækn- isfræði (bamasjúkdómum) við Children’s Hospital í Winnipeg. Þá hefur Ingvar Emilsson, stúdent, hlotið 2,250 kr. styrk úr Snorrasjóði til náms í haf- fræði (oceanografi) við háskól- ann í Bergen, og Ingvar Hall- grímsson, stúdent, 2,250 króna styrk úr sama sjóði til fiski- fræðináms í Osló. Lofthernaður á Malakkaskaga Yfir 40 brezkir og ástralsk- ar flugvélar gerðu nýlega heift- aflega loftárás á bækistöð hers sjálfstæðishreyfingar íbúa Mal- akkaskagans í frumskóginum á skaganum. Er þetta mesta loftárás, sem Bretar hafa gert í nýlendustyrjöld sinni gegn Malakkabúum. Orgeltónleikar Páls vekja hrifningu Páll ísólfsson hélt organtón- leika í Westminster-kirkju föstu dagskvöldið var. Aðsókn var á- gæt og aimenn hrifning áheyr- enda. Dagblöðin lýstu aðdáun á organleikum og hinum ís- lenzku tónverkum. (Skv. skeyti Grettis L. Jó- hannssonar, ræðismanns ís- lands í Winnipeg)-

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.