Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.01.1952, Qupperneq 4

Nýi tíminn - 17.01.1952, Qupperneq 4
4) _ NÝI TÍMINN — Flmmtudagur 17. janúar 1952 j&aœ&i cÞ Nfí TlMINN Útgefandi: Samehiln**i'flokkur alþýflu — Sósiafisíaflokkurlnn. Ritstjóri og ábyrgðannaður: Ásmundur Sigurðsson ÁskrLftargjald er 25 króiiur á ári. Qrein&r i blaðið senrtist tll ritstjórans. Adx.: AfgreiBala Nýja tímans, Skólavörðustíg 19, jp,sykjavík AfgreiBsla og auglýsingaskrifstofa SkóiayÆý^ 19. Síml 7600. Prer.ígmiffja Þjóffvlljans ÁbarSðrverksmiðjáii Bygging áburðarverksmiöju er eitt-urestaiiiiagsmunamál islenzku þjóðarinnar, ekki aðeins fyrir íslenzkan landbún- að, heldur gæti slík framleiösla orðiþ mjög mikilvæg út- flutningsgrein íslendinga og fært stórfelldar gjaldeyris- tekjur. Orka er næg hér á landi, fáist hún bcizluð 1 stór- um stíl, og til áburðarframleiðslu þarf ekki áð flytja inn hráefni nema aö óverulegu leyti og við hagstæð skilyrði. Þær eru ófáar ræðurnar sem sósíaíistár hafa haldiö yfir afturhaldsþingmönnunum um áburöajverksrniöj umálið og þá ekki sízt Einax Olgeirsson sem hefur verið óþreytandi við að leiða þingmönnum fyrir sjónir hina víðtæku mögu- leika fslenzkrar stóriðju. En afturhaldsþmgmönnum gengur -írfiðlega að skilja allt það sem stórt er í sniðum. Má bendpr á þaö í því sam- bandi að 1942 flutti Vilhjálmur Þór frumvarp á þingi um byggingu áburðarverksmiðju á Akureyri og átti hún að framleiða 1.200 tonn á ári!! Var sú tillaga auðvitað hin fáránlegasta vitleysa, þar sem ekki var einu sinni um aö . ræða nema brot af innanlandsþörf landsmanna. Þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð var þaö-hins vegar fyrsta verk hýbyggingarráðs fyrir atbeina. áó§íalista að skip'a nefnd til að undirbúa stóriðju á áburðý .Var unnið mikið undirbúningsstarf, en það starf var hinsiyegar ekki hag- nýtt eftir aö afturhaldsflokkarnir treystu sér til að svíkja nýsköpunarstefnuna. Þó var ekki talið þorandi að leggja málið alveg á hill- una. Árið 1949 voru samþykkt lög um ábuí'ðarverksmiðju, og skyldi framleiðslugeta hennar miðuö víð innanlands- þarfir. Kom þar til sama tregðan og áðm’. og eins hitt að erlendir auðhringar sem vissu um fyrirætlanir íslendinga kröfðust þess aö ekkert yrði framleitt til útflutnings. Um svipað leyti voru samþykkt lög urri seméntsverksmiðju, en það mál hafði þróazt á hliðstæðan hátt, og var þar einnig aðeins mið'að viö innanlandsfr|ifnlQðábu En nú um stundir er lagasetning á Alþingi ekki einhlít til framkvæmda og svo fór einnig um þsssi mál. Á þau komst enginn skrið'ur í upphafi, og nú er' svo komið að algerlega hefur verið hætt við sementsverksmiðjuna; marsjallstofnunin neitaði að leggja_ffám' fé til hennar þegar til átti að taka. Og einnig áburðarverksmiðjulögin virtust um skeið ætla að verða haldlaust pappírsgagn. Það er ekki fyrr en landið er hernumið’ endanlega af bandarískum árásarher að verulegur skriður komst á fram kvæmdir í áburðai-verksmiðjumálinu —•. eða öllu heldur ofsalegur áhugi Vilhjálms Þórs og sérfvæðinga lians. Þá kom einnig í Ijós að þessir aðilar hugsuðu sér að láta verk- smiðjuna framleiða eitt öflugasta sprengiefni hcinis, ammoníumnítrat, eingöngu, en það er mikiö notaö til hernaðar, en er auk þess notað sem áburður. Þessar aðferðir eru óneitanlega mjög tortryggilegar og gefa til kynna að það séu ekki fyrst og fremst liagsmunir íslenzks Iandbúnaðar.sem vaka fyrir ráðamÖnnunum. Á 2. síðu blaðsins er skýrsla sú sem G. B. iverkfr. gerð fyrir bæjarráð um sprengiáhrif ammoníumnítrats, en þar er þeim áhrifum jafnað við afleiðingar kjarnorkuspreng- ingar. Hér hefur verið birt frásögn um það þegar skip með ammoníumnítrati sprakk í höfninni í Texas City, en þaö er eitt stórfelldasta slys sem sögur fara af; heil borg 'lagö- ist 1 rúst, mörg hundruð misstu lífiö og þúsundir heilsuna. Þessar staöreyndir eru óhagganlegar og’ óvéfengjanleg- ar, og með tilliti til þeirra hafa sósíaiistar lagt til í bæjar- ráði að skorað verði á stjórn áburðarverksmjðjunnar að framleiða ammoníumfosfat í stað sprengiefnisins. Sú á- burðartegund er algerlega hættulaus, og Ásgeir Þorsteins- son hefur fært fyrir því sterk rök í grein í Morgunbíaðinu að hún sé einnig liagstæðari fyrir íslenzkan landbúnaö og til útflutnings. ' , Hvers vegna er tillagan þá ekki samþykkt umsvifalaust? Hver er ástæðan til þess að hér á að framleiða sprengi- efni, þegar hægt er að framleiða hættulausan áburð sem auk þess vlrðist hagkvasmari? Þeirri spurpýigu er enn ÚJÓsvarað..^. - •ncritw.; er rýtingurinn? Á gamlársdag voru tvö skip í Akureyrarhöfn. Um.v morguninn komu á ann^ð hundrað verkamenn niður að höfninni til að falast eftir vinnu við skipin. Nokkrir fengu vinnu, en hinir voru fleiri sem urðu að hverfa heim aftur eftir langa bið; — gamla árið kvaddi með atvinnuleysis- degi. Og nýja árið virtist heilsa með fyrirboða um en.n verra ástand, ekki aðeins á Akureyri, heldur um land allt; hvaðanæva að bárust sömu fréttimar: tugir, hundruð, þúsundir sem enga atvinnu höfðu. — Skömmu seinna hittust verkamennirn- ir á fundi í félagi sínu og i'æddu horfumar. Þeim kom saman um að alþýðan beitti ekki samtökum sínum, stétt- arsamtökum og stjórnmála- samtökum, nægilega ötul- lega í baráttunni fyrir at- vinnu. Það var jafn þung- hært að vera atvinnulaus, hvort sem memi vom Ál- þýðuflokksmenn eða sósíai- istar; og hvað var eðliiegra en að fylgismenn- þessara tveggja flokka tækjust i hendur með fyrirheiti um sameiginlegt átak til að tryggja atvinnu? Alþýðu- fiokksmaður og sósíaíisíi fluttu tillögu þar sem þtss- um sj''narmiðum var komið á framfæri, og hún var sam- þykKt einróma af fvlgis- ir.önnum beggja flok mnna. Verksmenn á Akurevr: voru sannfærðir um að þessi sannindi væru augljós og ó- vefengjanleg, þama væri leiðin til árangurs. Það eru ti’ hreinlífir sér- fræðingar í trúmálum sem finna vé'abiogð djöfu.s/ns á ólíklegustu stöðum og kenna okkiir að þau Verk sem við héldum scnn og góð séu raunar blekkingar hans úr neðra t'l að trygg j i næg- an gestagang h- þeim slód- um. Og sem betur fer eru slíkir sérfræðingar einnig til í stjómmálum, menn sem kunna að skyggnast bak við yfirborð hlutanna og geta gert hin augljósustu sann- indi að uppvísum lygum. •! Snjóskastur þessara sér- j fræðinga er Stefán Péturs- son, ritstjóri AB-blaðsins, enda hefur hann notið mjög sérstæðrar og óvenjulegrar reynslu í stjórnmálalífi sínu. Og sá var nú ekki lengi aö ,sjá að hinn mikli myrkra- HÖfðingi stjórrimálánna hafði verið að iðju á fundi verka- manna á Akureyri. 1 fyrra- dag rakti hann í blaði sínu með sérstæðri rökvísi hvern- ig tillagan um samvinnu Al- þýðufloklcsins, Sósíalista- flokksins og Alþýðusam- bandsins gegn atvinnuleys- inu sýndi raunar „að komm- únistar hafa nú rétt einu sinni enn fengið skipun frá Moskvu“; Stalín hafði sem sé hringt í Alþýðuflokks- manninn Áma Þorgrímsson og sósíalistann Jóhannes Jósefsson og lagt á ráðin í atvinnuleysisbaráttunni. en „hinir hrekklausu alþýðu- menn“ á fundinum „létu blekkjast“. Það lá að. En hvað kemur til að ill- ræðismennimir 1 Moslcvu hafa slíkan áhuga á atvinnu- leysi verkamanna á Akur- eyri og vilja að þeir taki höndum saman til að tryggja næga atyinlm? Stefán Pét- ursson á svör við því, og það er ekkert smáræðis ráða- bmgg falið bak við tillögu þá sem við töldum i upp- hafi svo augljósa og sjálf- sagða. Hinn mikli sérfræð- ingur um athafnir hins illa sér að hún „miðast við það, livað bezt hentar fyrir út- þenslu og utanríkisstefnu Rúss3ands“, og hinn eigin- legi tilgangur hennar er hvorki annar né minni en sá „að stinga lýðræðisþjóðun- um svefnþorn og afvopna þær, meðan Rússland hefur vígbúizt og vopnað leppríki sín til árása úti um heim“. Skyldu hinir „hrekklausu al- þýðumenn“, atvinnuleysingj- amir á Akureyri, ekki hrökkva við, þegar þeir sjá nú loks sannleikann um gerðir sínar? En sannleikurinn er eng- an veginn upptalinn. Tillag- an um einingu í baráttunni gegn atvinnuleysi er ekki aðeins jiður í almennum véla- brögðum Rússa og leppríkja þeirra, til þess samin að stinga, lýðræðisríkjunum svefnþom, heldur er til- gangur hennar enn nær- tækari og stórfelldari. Stef- án Pétursson þekkir gjörla þá Moskvumenn og veit að „á Alþýðuflokkinn hafa þeir alitaf litið sem höfuðóvin_ ■ '’vj £ ' ' <.:/■ .;•■ ':■ & fa Frá flóðunum á Norður-Italíu í vetur. Yatnið liefur grafið upp- fyllingu undan járnbraut og fceinamir yfir skarðið svífa í lau.su loftl eins og hengibrú. og það gera þeir enn í dag“. Og með Akureyrartillögunni er ætlunin að ganga af „höf- uðóvininum" dauðum. Sam- kvæmt henni eiga „kommún- istar að koma með rýting- inn í erminni til Alþýðu- flokksins“, — „svíkjast að honum undir yfirskini vin- áttu og samvinnuvilja til þess að reyna að koma fleyg- um inn í raðir hans og kljúfa hann að innan“. Ein- ing í baráttunni gegn at- vinnuleysi, fyrir fullri at- vinnu, er sú rýtingsstunga sem Alþýðuflokkurinn iriyndi ekki lifa af, segir ritstjór- inn, og hann þekkir ekki síð- ur eðli flokksforustu sinnar en hina lævísu Moskvumenn. Og nú er flækjan mikla loks greidd til hlítar, og seint verður fulldáð snilld og glöggskyggni hins mikla sérfræðings; hún tekur jafn- vel fram hæfileikum leyni- lögreglumanna þeirra. .sem vinsælastir eru í amerískum bókmenntum. Atvinnúlaúsir verkamenn á Akureýri koiria saman á fund. Þeir komast að þeirri niðurstöðu að traustasta og beittasta vopnið gegn atvinnuleysinu sé eining þeirra fjöldasam- taka sem íslenzk alþýða hef- ur myndað, og þorri fundar- manna er grandalaus. En leynilögreglumaðurinn mikli kemur á vettvang og sér að þarna hefur verið fitjað upp á þeim glæp sem ljótastur er á stjómmálasviðinu; það er ætlunin að stinga rýtingi í Alþýðuflokkinn og svefn- þomi í lýðræðisþjóðirnar. Og snillingurinn mikli birtir niðurstöður sínar í Alþýðu- blaðinu, sannar þær með hugvitssamlegum rökum og þiggur að launum aðdáun og lofsyrði flokksfomstu sinn- ar. Glæpurinn komst upp áður -en tök yrðu á að stinga. En nú er það svo að hreiri- lífum sérfræðingum í trú- málum kemur oft ekki sám- an um hvar fingraför djöf- ulsins sé að finna, og það sem einn telur almættisverk veit hinn að er í flokki véla- bragða þeirra sem verst léika mannkindina. Og því miður er því einnig þanriig farið um hliðstæða sérfræð- inga í stjórnmálum; þótt þeim komi saman um að myrkrahöfðinginn dveljist í Moskvu og sé óðfús að stinga Alþýðuflokkinn með rýtingi, greinir þá um að- fei’ðirnar. Sumir halda því t. d. fram að Stefán Pét- ursson sé hættulegasti er- indreki hins illa, og brott- hlaúp lians frá Moskvu á aolckaleistunum hafi verið blekkingin ein. Þessir menn telja sem sagt að það sé begar búið að stingá Al- býðuf lokkinn; Stefán Pét- ursson sé rýtingurinn í holdi hans. Og við ..hrekklausir ?aíþýðumenn“ vitum ekki í'avað halda skal. Við veltum ;’ovi f’yrir olckur hvort eining Jalþýðunnar í baráttunni gegn atvinnuleysi sé banabiti Al- hýðuflokksins, eða hvort • Stefán Pétursson boði súndr- ungu sína til þess að koma rýtingsoddinum nær hjárta- ,stað. Og á meðan heldur at- ;;vinnuleysið , » ífram að , i magnast. « *

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.