Prentarinn - 01.06.1956, Blaðsíða 3

Prentarinn - 01.06.1956, Blaðsíða 3
örðugt að ná sambandi við, ekki sízt sakir þess, að þjóðir Asíu og Afríku sérstaklega væru á öðru menningarstigi en Norðurálfuþjóðir, en enginn vafi léki á því, að þær myndu bráðlega ná Norðurálfu- þjóðunum, er þær hefðu öðlazt nauðsynlegt sjálf- stæði. í>á myndu stéttarbræður þar skjótlega sann- færast um nauðsyn þess að efna til stéttarfélaga. Bæri alþjóðabandalaginu skylda til að 'hvetja þá og styðja í þessu efni og sýna þeim með því, að hvorir tveggja, hvítir menn og litir, ættu sörnu hagsmuna að gæta og að sörnu hugsjónum að starfa. Það væri hvítra manna að brjóta það niður, er nú skilur þessi mannkyn, og taka þátt í baráttu hinna litu fyrir bættum kjörum. Ella myndu hjól sögunnar velta yfir hina hvítu — þrátt fyrir yfirburði þeirra. Launaði þingheimur alþjóðaritaranum erindi hans með almennu lófaklappi. Þá skýrðu forsetar deilda þingsins frá störfum þeirra, og hefir hér áður verið sagt frá athöfnum prentaradeildarinnar. Fóru síðan fram kosningar í framkvæmdanefnd bandalagsins um næstu þrjú ár. Voru alþjóðaritar- inn, forseti og varaforseti kosnir með almennu lófa- klappi, jafnskjótt sem nöfn þeirra voru nefnd. Er ritarinn bókbindari, forsetinn steinprentari og vara- forsetinn prentari. Af prentara hálfu voru kosnir í nefndina Belgi, Svíi og Englendingur, af bók- bindara hálfu Englendingur, Þjóðverji og Dani og af steinprentara hálfu og prentmyndasmiða Svíi, Þjóðverji og Englendingur. „Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm.“ Þess skal að eins getið, að ritar- inn er hinn sarni og áður (endurkosinn), Ch. Woerler, og forsetinn heitir Fritz Segessenmann, en varaforsetinn Ernst Leuenberger, en þeirra allra hefir áður verið getið. Þegar kosningar voru um garð gengnar, fluttu fulltrúar úr öðrum heimsálfum kveðjuávörp, en ekki kom „sjötta heimsálfan" við þá sögu, enda hafði hún áður lokið sér af. Fulltrúi frá Afríku flutti banda- laginu kveðju landssambands síns og þakkaði stuðn- ing bandalagsins við sambandið, sem í væru með jöfnum rétti og skyldum svartir menn og hvítir. Fulltrúi frá Astralíu þakkaði skemmtiferðina um Svissland, er honum hefði sem öðrum fundizt mikið til um. Hann gat þess, að í stéttarsambandi hans væru allir, sem störfuðu í bókiðnaði, og þótt þeir hefðu nú þegar 40 stunda vinnuviku, hefðu þeir góða von um að fá vinnutímann styttan enn meira. Fulltrúi frá Indlandi kvað kjör stéttarsystkina þar hafa batnað nokkuð á síðari árum, en stjórn ríkis- ins yrði að heyja harða baráttu gegn fátækt og Þrjár „útvaldar þjóðir“ (,,þrjú stór 1“): Indvcrji, íslendingur, Israelingur. Janás ritstjóri ljósmyndaði. skorti á lestrarkunnáttu. Kvað hann sér þykja mjög vænt um þann stuðning, er bandalagið veitti sam- tökunum austur þar, og vottaði því þakklæti þeirra með ósk um nánara samstarf eftir því, sem efni leyfðu. Allar þjóðir þyrftu að stefna að sem nán- astri samvinnu án tillits til kynstofns eða litar. Þá er ávörp þessi höfðu verið flutt og að af loknum erfiðum störfum þakkaði forseti öllum vel unnin störf og þolinmóðlega þingsetu og sérstak- lega skipulagsnefnd þingsins og nánasta aðstoðar- fólki sínu, er hefði orðið að inna af höndum mikil verk. „Látum oss halda áfram að vinna að hinu mikla hlutverki voru að þjóna vinnustétt bókiðn- aðar allra landa og hlutazt til um, að vinnandi fólk njóti fulls mannréttar síns og manngildis, hvað sem líður lit og uppruna," mælti hann að lokum og sleit þinginu klukkan fimm síðdegis á jafn- dægri á hausti, föstudaginn 23. september árið 1955. Ef hentugleikar og rúm leyfa, er gert ráð fyrir, að einn kafli komi enn til viðbótar þessari frásögn, og því skrifast hér: (Ni.). H. H. Kínverska á Linotype. Fjölletrunarstofnunin í Moskvu er að fást við vélræna framleiðslu á kínversku sátri, og hefir þegar búið til forlíki setningarvélar með 2 025 typp- urn. Nú er líka búið að gera frumdrætti að setn- ingarvél af svipaðri gerð og Linotype, sem 2 550 typpi eru á fyrir 8 (orð)stíla hvert. (Eftir -x í GR Ö.) PRENTARINN 1 1

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.