Prentarinn - 01.06.1956, Page 8
373 blöð með 66 línum víðast, og eru enn til af
honum 25 eintök, prentuð á bókfell eða pappi'r.
Það, sem gefur þessum Katholikon alveg sérstak-
lega mikið gildi, eru hin stórmerkilegu niðurlags-
orð hans, þar sem Gutenberg án þess að nefna
sjálfan sig talar í fyrsta sinni um uppfundning
sína opinberlega og raunar með þeirri hógværð,
sem jafnan er merki hins sanna mikilleika. Niður-
lagsorðin, skráð á latínu ef til vill af vini Guteri-
bergs og bjargvætt í neyð, dr. Humery, hljóða
þannig í þýðingu: „Með hjástoð hins hæsta, sem
tungur hinna ómálgu fá mál fyrir bendingu hans
og oft opinberar smælingjum það, sem hann dylur
fyrir vitringum, hefir þessi ágæta bók, Katholikon,
á 1460. ári hingaðburðar herrans í hinni blessuðu
borg Mainz, einni af borgum hinnar frægu þýzku
þjóðar, sem hylli guðs hefir virzt að ágæta fram
yfir aðrar þjóðir með svo háu andans Ijósi og
frjálsri náðargjöf, verið prentuð og lokið að fullu
ekki fyrir hjálp reyrs, ritals eða fjaðrar, heldur
fyrir undursamlega samstilling, samsvörun og jafn-
mæli fyrirmynda og móta.“
Uppfundning prentlistarinnar hafði feiknamikil
áhrif á alia andlega menning og einkum á alþýðu-
menntunina, því að ailt þangað til voru visindi og
menntun einkaeign rétthærra flokks lærðra manna
og andlegrar stéttar. Ollum almúga var fyrirmunað
að verða aðnjótandi hinna æðstu gæða mannkyns-
ins. List Gutenbergs breiddi út birtu, þar sem myrkur
hafði ríkt; hún var merkisberi í þjónustu fræðsl-
unnar á sviði trúar, vísinda og þess, er áhrærði
stofnanir ríkja og samfélaga. Um leið og hún gæddi
hina þöglu hugsun orðum, birtist hún mannkyn-
inu svo sem frelsari þess frá andlegum þrældómi,
hjátrú og siðmenningarleysi, og henni var alls
staðar heilsað með fögnuði, þótt klerkdómurinn,
heillaður af stirfinni trúfræði, berðist á hinn bóg-
inn á móti henni af kappi. Prentlistin hlaut að
koma; hún var sprottin af mikilli þörf tímanna,
var nauðsyn, sem allir fundu til, og einungis þannig
verður skiljanleg hin ótrúlega hraða útbreiðsla
hennar — ekki einungis í Þýzkalandi, heldur og í
öðrum löndum. Mun í næsta kafla verða reynt að
fræða lesarann stuttlega um það. (Frh.)
Samtök bókbindara 50 óra.
Hinn II. febrúar síðastliðinn voru fimmtlu ár
liðin frá því bókbindarar hér á landi stofnuðu fyrst
til stéttarsamtaka sín á milli. Saga þeirra er ekki
óslitin fram á þennan dag, því fyrstu árin var það
erfiðleikum bundið fyrir svo fámenna stétt að halda
uppi félagsstarfsemi, en þótt dauðir punktar mynd-
uðust við og við, var félagið ávallt endurvakið.
Til að minnast afmælisins hefir Bókbindarafélagið
gefið út vandað afmælisrit, þar sem meðal annars
er rakin saga samtakanna og birtar myndir af
þeim, sem mest koma við sögu þeirra. Einnig
efndu bókbindarar til afmælishófs að Röðli 11.
marz síðastl. til þess að minnast þessa merka
áfanga.
Vinnukaup frá 1 . júní 1956 .
Grunnkaup Með vísi-
tölu 178
Vélsetjarar .... 657,00 1169,46
Setjarar og prentarar .... 623,00 1108,94
Kvenfólk fyrstu 6 mán .... 177,00 315,06
Kvenfólk næstu 6 mán .... 213,00 379,14
Kvenfólk næstu 6 mán. . . .'. .... 247,00 439,66
Kvenfólk næstu 6 mán .... 281,00 500,18
Kvenfólk fullnuma ... 367,00 643,26
Kvenfólk eftir 3 ár .... 405,00 720,90
Kvenfólk eftir 5 ár .... 474,00 843,72
Nemar 1. ár (30%) .... 186,90 332,68
Nemar 2. ár (35%) .... 218,05 388,13
Nemar 3. ár (45%) .... 280,35 499,02
Nemar 4. ár (50%) .... 311,50 554,47
Hlaupavinnumenn á dag .. .... 110,00 195,80
Þar sem handsetjarar eru hraðari
en setningarvélar.
Japanska dagblaðið „Mainichi Shimbun“, stærsta
blað Japans, með 6 000 000 eintaka upplagi daglega,
er enn I dag aðallega handsett. Raunar eru þar
til sérstaklega útbúnar setningarvélar með 4 typpa-
borðum með 500 typþum hvert, en vinna við þær
er svo umsvifamikil, að einungis 1 800 leturmerki
(orðstíla) er unnt að setja á klukkustundu, en
lipur handsetjari japanskur getur raðað saman 2 500.
í því landi reynist handavinna þá fremri tækninni.
Setningarvélarnar eru enn um sinn á talraunastigi.
Þó má 'búast við, að unnt verði að bæta þær svo,
að þær geti afgreitt að minnsta kosti sama sátur-
magn sem handsetjarar. Avinningurinn myndi þá
vera í því fólginn, að úrköstun sáturs félli burt.
'X.
(Þýtt úr G R Ö.)
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H.F. — VITASTÍG
16 PRENTARINN