Nýi tíminn


Nýi tíminn - 09.09.1954, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 09.09.1954, Blaðsíða 4
-AA* A'A £4 4 AA. 4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 9. septembber 1954 Harm kaus frelsið Á síðustu árum hefur það verið næsta álitleg atvinnu- grein fyrir vissa tegund manna að kjósa frelsið. Ef búlgarskur sjómaður fær sér svo duglega í staupinu að hann vaknar á annarlegum stað, timbraður og auralaus og skipið siglt frá honum, þarf hann ekki annað en fara til næsta yfirválds og segjast vera að leita að frels- inu, og það eru birtar stór- ar myndir af hohúm ’í 'ftlöð- um og hann fær ágætar, fúlgur fyrir að leggja hafn sitt við sem eftirminnilegast- ar lýsingar frá föðurlandi sínu. Ef þjófur í Austur- Þýzkalandi veit lögreglu á hælunum á sér þarf hann ekki annað en smokra sér í vesturátt, og hann er orðinn frægur baráttumaður fyrir friðhelgi eignarréttarins. it Ekki alls fyrir löngu komu nokkrir Tékkar til Vestur- Þýzkalands, sögðust hafa myrt tvo lögregluþjóna og sloppið síðan nauðulega; þótti þetta hið ágætasta af- rek og voru þeir látnir lýsa dáðum sínum í blöðum og út- varpi en fengu verðuga umb- un hjá Bandaríkjamönnum fyrir afrek sín í þágu mann- helgi. Um líkt leyti varð pólskur maður að vestrænni hetju fyrir að láta múta sér til að stela flugvél og koma henni til bandarískra sérfræð inga; var þetta talið hið frækilegastá verk og mjög 't'il fyrirmyndar —þó tvísýnt væri fyrir hérlenda menn að vinna til sömu launa með því að stela Gullfaxa. □ Þótt við íslendingar fylgj- umst vel með erlendum frétt- um er okkur stundum ósýnt um að bregðast við atburðum á nýtízkulegan hátt. 13. nóvember 1950 gaf erlendur maður sig fram við lögregl- una í Hafnarfirði, sagðist heita Petro Horycz og vera komin til landsins sem laumu farþegi og hafa farið huldu höfði hingað alla leið frá Ukraínu. Talaði hann rúss- nesku, pólsku, þýzku og ensku, og þegar yfirheyrslur hófust varð hann brátt marg- saga og lauk því svo að lög- regían kvaðst ekki trúa einu einasta orði sem hann segði og voru þau ummæii birt í blöðum. Var þessi erlendi rnaður síðan látinn dúsa í Steininum við Skólavörðustíg nokkra mánuði en bví næst fluttur austur að>': Uitia Hrauni, og vissu . yfiíýáJÖin _ ekki hvað þau ættu áð gera við þessa kyniegu sendingu. Og það var ekki fyrr en hálfu ári síöar 'ao loks rann Ijós upp fyrir nokkrum vitrum mönnum: auðvitað var þessi dularfulli laumufarþegi að kjósa frelsið eins og frægir menn í útlöndum. Var þessi kenning síðan borin undir Petro Horycz og féllst hann á hana umsvifalaust. Og þá fyrst áttuðu blöðin sig, tóku að birta stórar fréttir og myndir af þessum ágæta manni, en hann virtist kunna hin beztu skil á þrælabúðum austur í Rússlandi og öðru frásagnarverðu efni og var dögum saman mikið sann- leiksvitni og óvéfengjanleg heimild. ■ / ■; □ Einn kunnasti rithöfundur þjóðarinnar, Guðmundur Daníelsson, skráði eina þess- ara greina og birtist liún í Vísi 20. ágúst 1951. Skýrði hann svo frá að Petro Horycz væri grískur Pólverji, heim- ilisfastur í Sovétríkjunum. Hefði hann barizt í þýzka nazistahernum á austurvig- stöðvunum en síðan var hon- um faiið það sérstaka hlut- verk að ráðá niS'uriögum föð- urlandsvina í Austhrríki og ítalíu. I stríðsiok hefðu Bret- ar tekið hami höndurn og afhent hann Sovétríkjunum, en‘ þar hefði honum verið haidið í herfangabúðum og síðan í þrælabúðum. Petro Horycz slapp úr þrælahald- inu með þvj cinfaida ráði að kááta „þurrum' sáhdi“ í áug- un á varðmanni sínum, en síðan ferðaðist hánn huldu höfði um Sovétríkin, Tékkó- slóvakíu, Pólland, Tékkósló- vakíu aftur, Austurríki, Þýzkaland, Danmörku og Is- land, og gekk allt eins og í sogu — þó ekki lygasögu. Hvergi varð þéssi ágæti mað- ur var við frelsi fyrr en hann kom til íslands, enda segir svo í fyrirsögn: „Nú er ég loks farinn að kenna mig sem frjálsan mann í frjálsu landi“. Og finnist einhverj- um þetta kyníeg kenning hjá manni sem einvörðungu þekkir Steininn og Litla Hraun, er náaari skýringu að finna í undirfyrirsögn: „Heldur vil ég sitja ár á Litla Hrauni en mánuð í rússnesku fangelsi". □ Þegar ljóst var orðið að þarna var kominn í leitirnar einn af frelsisunnendum vorra tíma þótti sjálfsagt að sýna honum verðugan sóma. Tók séra ÁrelíusýNielsson að sér forustu i því máli. Skýrði hann éinnig frá bar- áttu sinni í Vísi og kveðst hai'a leitað víða fyrir sér þar til hann fann skilning: „Snemma í^júní tókst mér ao vinna Bjarna Benedikts- son dómsmálaráðherra, sém er drenglundaður gáíumaður með hjartað á réttum stað; á mitt mál viðvíkjandi, þyí að þessi Pólverji ætti að _fá; frelsi til að vinna sér álit meðal. fólks“. Var mjög.á- nægjulegt að fá þessár frétt- ir af lijarta dómsmálaráð- lierrans, enda lét hann laumufarþegarin þegar íaus- an, og séra Árelíus tók harih inn á heimili sitt, eins og miskunnsömum Samverja sæmir. Kvaðst hann þegar hafa fengið þau kynni af Petro Horycz að hann væri „stórt, viðkvæmt barn .... greindur pg duglegur maður. Fáir eru dugiegri, enginn verkhyggnari, ötulli, áhuga- samari“. Næstæðsta hugsjón hans er sú að komast ■ til A.meríku þar sem „ríkir frélsi friður,'það tvennt, sém hánn :dáir *mest> aíls í heimi. Guð og- heilög María hlutu fyrr eða síð&r -að hjaipa honum til þess fyrirheitna lands“ svo að hann þurfi ekki lengur að vera „fullur ótta við hina grimmu fjendur" eins og presturinn komst að orði. En æðstu ósk sína orðaði hann svo, þegar hann dró íslenzka fánann að hún í garði séra Árelíusar 17. júní 1951: „Bráðum fær Pólland að sjá sinn eigin fána blakta við hún. Guð og María hljóta að gefa þá stund. En hve verð- ur þá dásamlegt að vera kominn heim.“ — Þetta er fögur og fróm ósk, þótt hún sé næsta síðborin. Guði og Maríu hefur þóknazt að láta pólskan fána blakta yfir frjálsu landi alla tíð síðan sigur var unninn á nazista- herjum þeim sem Petro Horycz þjónaði af fullri trú- mennsku, að eigin sögn, bæði á austurvígstöðvunum og í baráttu við föðurlandsvini í Austurríki og Italíu. □ Nú líða tímar fram og það fyrnist yfir frásagnir laumu- farþegans af rússneskum þrælabúðum og frelsisleit í sjö löndum. Og þeir sem hugsa til þessa stóra, við- kvæma, duglega, verk- hyggna, ötula og áhugasama rnanns telja víst að hann sé „að vinna sér álit meðal fólks“. Svo gerist það að- faranótt þess 26. ágúst s.l. að lögregluþjónar veita því athygli að brotizt hefur ver- ið inn í húsgagnavinnustófu Friðriks T'orsteinssonar. Skólavörðustíg 12. Þegar inn kemur er þar engiiin annar fyrir en sá ganili og góðife gistivinur !ögreglunnar,| Petro Horycz. Urðu þetta þó ekki beinlínis fagnaðarfund- ir, því þegar þessum aðdá- arida Litla Hrauns yar boðin vist á fornum slóðum, mót- mælti ha'nn harðlega, kvaðst kjósa frelsið og spurði hvort hér væri búið að taka upp rússneskt þrælahald. Næstu daga fóru síðan fram rétt-, arhöld og komu fram grun- semdir um að Petro Horycz hefði unnið fleiri afreksverk á sviði frelsisins, enda hefði hann haft furðu mikil pen- ingaráð um skeið. En hann hefur þverneitað öllu af mik- il!i leikni og gefið þá skýr- ingu á vist sinni í liúsgagna- vinnustofunni að hann hafi leitað þar skjóls af ótta vio drukkna menn sem hann sá á götunni. Ber auðvitað ekki að efa sanníeiksást hans nú fremur en fyrr. □ Réttarrannsókninni . mun nú vera. ícr/n^/'Petro. Körycz hefur veri80sí^þpt úr g.%zlu- varðhaldi" í"annað sinn og málskjölin seud dómsmála- ráðherra til fi’ekari ákvörð- unar. Er ánægjulegt tií þess að vita að þá lendir málið á nýjan leik hjá „drenglund- uðum gáfumanni með hjart- að á réttum stað“. Og þess er að vænta að hann sjái til þess að hinn ágæti gestur vor fái óáreittur. að njóta hér frelsis þess sem honum er neitað um austantjalds, þótt ástæða sé til þess að kenna honum betur þær aðferðir í því efni sem löggiltar eru í vestrænum heimi. Blýxiám með fullum krafti á Grænlandi innan tveggja ára Stjórn námufélagsins, spm myndaS var til aö kanna blý- lögin sem fundust á Austur-Grænlandi fyrir nokkrum ár- um, hefur tekið endanlega ákvörðun um að hefja þar námugröft í stórum stíl. Umsvifalaust verður farið að undirbúa framkvsemdaáætlun, sem verður við það miðuð að námugröfturinn geti hafizt vorið 1956. 200 metra djúpir gangar í tilkynningu, sem námufélagið lét frá sér fara fyrir nokkrum dögum, segir að búið sé að grafa allt að 200 metra langa ganga inn í Blýfjallið og jarðboranir sem alls eru 5000 metrar á lengd hafa verið gerðar. Rannsóknir á því efni, sem fengizt hefur á þennan hátt, hafa sannfært menn um að þama sé að finna vinnanlegt zink og blý, sem með núverandi verðlagi á málmum sé hundrað milljóna danskra króna virði. Rannsóknirnar hafa að nokkru verið gerðar í tilraunastofu fé- lagsins á Grænlandi en að nokkru í Svíþjóð og Kanada. 6 tii 7 ára vinnsla Með hæfilegri ársframleiðslu ætti að vera hægt að vinna þetta magn á sex til sjö árum,. segir fé- lagsstjórnin. Hún bætir. því við að fengin reynsla og- útreikning- am-bendi til þess áð -með pú- •verandi verðlagi muni blývinnsl- ' an, þarna 'gefa viðunanlegan arð. Dýr undirheimur Hluthafar í námufélaginu, sem eru danskir, sænskir og kana- diskir, hafa þegar varið um 20 milljóna danskra króna hlutafé til undirbúningsrannsóknanna. Þar að auki hefur danska ríkið veitt 12Vo milljón til rannsókn- anna og veitt 10 milljóna tapsá- byrgð. Námurekstur þarna vex-ður feikna dýr. Samgöngur á sjó eru útilokaðar vegna ísalaga nema tvo mánuði á ári hverju að með- altali. Flugvélar eru því helztu flutningatækin og hafa flugvélar Flugfélags íslands farið fjölda ferða til Meistaravíkur á vegum námufélagsins. En dýrt er að halda þar við lendingarskilyrð- um fyrir flugvélar. Útgjöld við að ýta snjó af flugbrautunum voru 30.000 danskar krónur einn einasta mánuð í fyrra. Fékk •' við tvö áföll Áttræður maður í Dartington á Englandi fékk allt í einu sjón- ina aftur í síðustu viku eftir að hafa verið blindur í 14 ár. „Eg sé“, hrópaði hann til konu sinn- ar, þegar hann vaknaði að morgni dags. Maður þessi, William Pass- more að nafni, heldur því fram að tvö áföll sem hann vai’ð fyrir daginn áður hafi orðið til þess að hanp fékk sjónina. Annað var að hann rak höfuðið í við að moka kolum. Hitt var sú frétt, að bíll hefði ekið yfir hund nágrannans Sjón Passmore hélt áfram að batna smáit og smátt fyrsta daginn. Hann réði sér ekki fyrir gleði þegar hann leit fjögur barnabörn sín augum í fyrsta skipti. Þegar Passmore varð blindur sögðu læknar honum að blindan stafaði af vagli á auga. Engin aðgerð var reynd. »0 .■«( i SMO '» rui [VH/tY' FítrftS oo»«£o OJ’ Slftli. t nvl e nrcs mí/ss vov. mcs Hmunuae i h*vi ttt tOYC t «H’ *H0 *U tH| UjVS t HE£0 rou m ’h! couxt ssmr cs ro uvt wrn áu.vr ejrc. OHICM l> iUÍTi’ TME wav £'0 uorso IV cout.0 ®e<Mt our «m£m é$Hor o/.osr rnt ritoureco.sax IT/UDOíV «|TM rmJ ivu i r\£v »•** in tns u/et/T TA9LS a«o ccnv oocMS’sins atto *ut '«S ou» ■» , uowtrvs H*U0 6H0 íTitOTCO TMt.CRYIWC AC’ ■4 'rvjAAa Hér að ofan sésí kafli úr einu þeirra hasarblaða, sem gefin eru úí í fnilljónaupplögum í Bandaríkjunum og eiga ríkan þátt í að spilla bandarískum æskulýð. „Myndasagan“, sem þessar inýnd- ir eru úr segir frá lítilli telpu, sem myrðir föður sínn með sliammbyssuskoti og kemur móður sinni í rafmagnsstóliim fyrir morðið. 1 lok sögunnar segir telpan brosandi: Það fór ei.ns.og ég hafði ætlað.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.