Nýi tíminn - 12.05.1955, Blaðsíða 1
LESENDUR!
Útvegið blaðinu nýja
kaupendur og tilkymr
ið þá til afgreiðslunnar
TIMINN
MUNIÐ
að greiða Nýja tímann
skilvíslega
Fimmtudagur 12. maí 1955 — 15. árgangur — 16. tölublað
íslandi verður ekki stjðrnað
á móti verkalýðnum^
Myndun ríkisstjórnar, sem styðst við samtök alls hins vinnandi fjölda er
mikilvægasta verkefnið sem nu þarf að vinna í íslenzkum stjórnmálum
Oft var íslandi þörf á róttækri stjórn en nú er það
lífsnauðsyn að mynduð sé þjóðleg, framsækin ríkis-
stjóm, sem alþýða landsins getur stutt og stjórnar
með hag vinnandi stéttanna fyrir augum og heillj
þjóðarheildarinnar að leiðarljósi.
í*annig mœlti Einar Olgeirsson í snjaliri og efnismikilii ræðu
í út%arpsræðunum frá Aiþingi 9. þessa mánaðar. Var ræða hans
þung og markviss ádeiia á spillingarkerfi afturhaidsins í landinu
og máttug hvöt til einingar allrar alþýðu og lýðræðisafia þjóð-
arinnar.
í framhaldi af ummælum þeim
sem tilfærð voru hér að framan,
lauk Einar ræðu sinni á þessa
leið:
Slík ríkisstjórn myndi stór-
efla sjávarútveginn, iand-
búnaðiun og iðnaðinn um allt
iand, — koma upp tugum
nýrra togara, vélbátiun, fisk-
iðjuverum um landið, hraða
vélvæðingu landbúnaðarins,
ræktun landsins og rafvæð-
ingu og útvega jafnt land-
búnaði sem sjávarútvegi
næga markaði erlendis. Slík
ríldsstjórn myndi þannig
setja aleflingu íslenzks at-
atvinnnlífs í stað þess ame-
ríska hermangs, sem er nið-
urdrep islenzkra atviimu-
vega, eyðing íslenzkra
byggða og svívirðing ís-
lenzkrar menningar.
Slík stjóm myndi ekki aðeins
rétta hlut allrar alþýðu. Hún
myndi og hafa góða samvinnu
við alla íslenzka atvinnurekend-
ur, sem efla vilja atvinnulíf
vort eftir sínum einkaframtaks-
leiðum. En það hringa- og her-
mangaraauðvald, sem sýnir sig
að kúga og niðurbeygja þjóðina,
verður að víkja fyrir samvinnu
og sameign þjóðarinnar sjálfrar.
Slík stjóm getur tryggt
vinnufriðinn í landinu, því
liann verður aðeins tryggður
með réttlæti í garð hinna
vinnandi stétta. Slík stjórn
getur hindrað að hér verði
komið á því alræði braskar-
anna, því nýlenduástandi eft-
Stærstl sigur verk-
lýðshreyfingarlnn-
ar síðon 1944
Enda þótt verkamenn hafi ékki fengið allar pær
réttarbœtur sem peir áttu heimtingu á er sigur
peirra samt mjög mikilvægur; petta er stærsti sig-
ur sem verkalýöshreyfingin hefur unnið í kjara-
haráttunni síðan 1944 en pá fengust 16,6%. Þetta
sést glöggt ef rifjuð eru upp verkföll þau sem Dags-
brún hefur háð síðan og úrslit peirra. Sá saman-
burður lítur pannig út:
1946 8,2%
1947 5,7%
1949 10,0%
1951 9,0%
1952 7-10%
1955 17.0%
Sum verkföllin voru mjög hörð og langvinn, eins
og verkfallið 1947 sem stóð í fimm vikur. Við petta
bætist að nú hefur verkalýðshreyfingin fengið
framgengt einhverju mikilvœgasta og brýnasta
hagsmunamáli sínu, stofnun atvinnuleysistrygg-
inga, en fyrir pm hefur verið barizt um langt ára-
bil og pingmenn sósíalista hafa ár eftir ár flutt
um pað frumvörp og nú síðast ásamt pingmönnum
Alpýðuflokksins. Sá sigur mun reynast verkalýðs-
hreyfingunni mun mikilvægari en pau 4%, sem
renna eiga í sjóðinn, gefa til kynna.
EiEnar Olgeirsson
ir suður-amerískri fyrirmynd,
sem ameríska auðvaldið
stefnir að. Slík stjórn ein er
fær um að varðveita „lögin
og friðinn", sem of rík og of
voldug yfirstétt nú grandar.
Það er á valdi alþýðunnar að
skapa slíka stjóm.
Sú alþýða, sem hefur mátt-
i inn til að rísa gegn auðstéttinni
og sigra hana, hún býr og yfir
kraftinum til að frelsa Island.
Tökum því höndum saman,
vinnandi stéttir íslands og þjóð-
hollir íslendingar, hvar í flokki
sem þið standið, allir þið, sem
hafið ábyrgðartilfinningu fyrir
þjóð vorri, tökum höndum sam-
an um að skapa slíka stjórn.
Sú veröld vetnissprengjunnar
sem við lifum í, þarf á því að
halda að sannað sé að mennim-
ir geti lifað saman í friði og ein-
drægni, þrátt fyrir ólíkar skoð-
anir.
Island þarfnast þess að
Framhald á 11. síðu.
Lænkar treysta
bóluefni Salks
Schele, landlæknir Bandaríkj-
anna, sagði nýlega að hann von-
aðist til að innan nokkurra
daga yrði aftur hægt að hefja
bólusetningu við lömunarveiki
með bóluefni Salks. Kvað hann
það vera niðurstöðu tveggja
daga fundar færustu sérfræð-
inga að bóluefnið væri öruggt
og' áhrifamikið. Til enn frekari
öryggis yrði hver sending hér
eftir þrautprófuð en ekki látið
nægja að taka sýnishorn af
handahófi til prófunar.
í Kanada er búið að bólusetja
55.000 börn með bóluefninu og
er bólusetningu haldið áfram
Drc Kristinn á
stríðsbandalags-
fundi
Dr. Kristinn Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra, hélt siðastliðinn
laugardagsmorgun þann 7. maí
af stað áleiðis til Parísar. Mun
hann sitja ráðherrafund Norður-
Atlantshafsbandalagsins, er þar
verður háður 9.—11. maí.
(Frá ^jtanrikisráðuneytinuj
Verkomannoflokkur inn vinn-
ur á í Bretlandi, segir Gallup
Vinstrimenn sigurscelir viS val frambjóSenda
Fyrsta könnun brezku gallupstofnunarinnar á fylgis-
horfum flokkanna 1 þingkosningunum sem fram eiga aö
fara 26. maí bendir til þess að' Verkamannaflokknum sé
að aukast fylgi.
Þetta er fyrsta skoðanakönnun
sem fram hefur farið í Bret-
landi siðan Eden forsætisráð-
herra skýrði frá því að hann
hefði ákveðið að rjúfa þing og
efna til nýrra kosninga.
Það sýndi sig að íhaldsmenn,
sem höfðu fjögurra hundraðs-
hluta yfirburði yfir Verka-
mannaflokkinn við næstu skoð-
anakönnun á undan, hafa nú að-
eins hálfan hundraðshluta yfir.
Af aðspurðum sem höfðu ákveð-
ið, hvernig þeir myndu greiða
atkvæði, kváðust 47.5% myndu
kjósa íhaldsmenn en 47% Verka-
mannaflokklnn.
Fimm af hundraði kváðust
myndu greiða frambjóðendum
Frjálslynda flokksins atkvæði og
0.5% öðrum, Meirihluti þeirra
14% aðspurðra, sem ekki höfðu
endanlega ráðið við sig, hvernlg
þeir myndu verja atkvæði sínu
bjóst við að greiða Verkamanna-
flokknum atkvæði þegar til kast-
anna kæmi.
Stjórnmálamenn í Löndon
segja, að alltof snemmt sé að
draga ályktanir um kosningaúr-
slitin af þesari skoðanakönnun.
Þeir telja engan vafa á því að
Verkam-annaflokkurinn hafi bætt
aðstöðu sína upp á síðkastið, en
benda á að vegna kjördæmaskip-
Konni Zilliacus
unarinnar þarf hann að fá tveim
hundraðshlutum meira kjörfylgi
en íhaldsflokkurinn til þess að
halda til jafns við hann í þing-
sætum.
Zilliacus í framboði.
Það hefur vakið töluverða at-
hygli, að við val frambjóðenda
hafa fylgismenn Bevans og aðrir
vinstrimenn í Verkamannaflokkn
um oftast orðið sigursælir þar
sem þeir hafa keppt um framboð
við frambjóðendaefni úr hægri
armi flokksins.
Til dæmis var Konni Zilliacus
i fyrradag valinn frambjóðandi
Verkamannaflokksins i Gordon
kjördæmi í Manchester. Zillia-
cus var rekinn úr Verkamanná-
flokknum árið 1949 fyrir harða
gagnrýni á utanríkisstefnu
Ernests Bevins og fyrir að taka
þátt i Heimsfriðarhreyfingunni.
Hann var aftur tekinn í flokk-
inn 1952. Deild Verkamanna-
flokksins í Gordon tók Zilliacus
fram yfir sir Frank Soskice,
fyrverandi ráðherra og einn á-
kafasta hægrimanninn í stjórn
þingflokks Verkamannaflokksins.
í kjördæminu Laywood í Birm-
ingham valdi flokksdeild Verka-
mannaflokksins Victor Yates fyr-
ir frambjóðanda. Hann var einn
af 6 þingmönnum, er vikið var úr
þingfiokki Verkamannaflokksins
í tvo mánuði í vetur fyrir að
greiða atkvæði gegn hervæðingu
Vestur-Þýzkalands. Hann felldi
Woodrow Wyatt, einn helzta
stuðningsmann þýzkrar hervæð-
ingar í þingflokki Verkamanna-
flokksins, frá framboði. Þegar
Yates var spurður, hvort hann
væri í hópi fylgismanna Bevans,
sváraði hann: „Eg tel mig vera
lengra til vinstri en hr. Bevan.“
Fjöldi þingmanna úr báðum
stóru flokkunum í Bretlandi leit-
ar nú nýrra kjördæma, vegna
þess að kjördæmaskiptingu var
breytt verulega á þingi í vetur,
fámenn kjördæmi sameinuð en.
fjölmennum skipt.