Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.05.1955, Side 4

Nýi tíminn - 12.05.1955, Side 4
4)' — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 12. maí 1955 1. maí er mikill dagur um allan heim og viðurkenndur r dagur verkalýðsins. Einu sinni var menningu Útvarps Reykja- víkur svo komið, að í tilefni af þvá, að 1. maí er dagur verka- lýðsins, lét Útvarpsráð verka- lýðssamtökin annast kvölddag- skri dagsins og gerði verka- lýðssamtökunum þannig jafn- hátt undir höfði og héraðasam- tökum ýmiss konar, Búnaðar- félagi íslands, slysavarnar- deildum og f leiri samtökum innan þjóðfélagsins. Nú eru þeir timar liðnir og voldugasta stétt landsins ,fær ekki Útvarp- ið til umráða á alþjóðlegum degi stéttarinnar. Fyrsta ræða kvöldsins er nú alltaf gefin í hendur opinberasta andstæð- ingi vinnandi alþýðu, fulltrúa ríkisvaldsins. Hefur Steingrím- ur Steinþórsson félagsmálaráð- herra tekið að sér það hlut- verk undanfarin ár að vera fulltrúi ríkisvalds auðstéttar- innar, og hefur hann leyst það af hendi með mikilli prýði. Hefur hann hvergi dregið dul á fjandsamlegar fyrirætlanir ríkisvaldsins á "hendur alþýðu manna og sýnt í skýru ljósi það andleysi og þann gáfna- skort sem dauðadæmd þjóðfé- lagsstétt á við að búa. Það er Útvarpsráði mikil háðung að vera að svívirða verkalýðssam- tökin og þeirra dag með því að útvelja daginn til áróðurs gegn samtökunum ng hagsmun- •um þeirra. Útvarpsráði er það engin afsökun, þótt í þeirri sömu dagskrá ræði fulltrúi launþegasamtaka af engu minni fjandskap og hálfu meiri heimsku í garð stéttarbaráttu verkalýðsins. Krefja verðurþar til ábyrgðar aðra en Útvarps- ráð, og af félaga inr.an starfs- mannafélags rikis og bæja verðtir rétt að teljast að kæra á öðrum vettvangi en í þessuqi pistli. Hitt er rétt að þakka, er hagfræðingur auðstéttarinn- ar sagði við þetta tækifæri, að stéttaátökin í þjóðfélaginu væru átök milli launþega ann- ars vegar og atvinnurekenda og ríkisvaldsins hins vegar. Það er alltaf nokkurs virði að hagfræðingur auðvaldsins lýsi því yfir, að ríkisvald auð- atéttarinnar hljóti alltaf að vera í andstöðu við verka- mennina og aðra launþega. Þar er þó nokkuð fyrir vinnandi stéttir landsins til að læra af. Undanfarin ár hefur Út- varpsráð átt því láni að fagna að gefa notað 1. maí til ein- hliða áróðurs gegn verkalýðs- stéttinni á þann einfalda hátt að láta félagsmálaráðherra, forseta BSRB og forseta Al- þýðusambands íslands halda ræður. Tilræði þetta brást að þessu sinni, því að nú er Helgi Hannesson ekki lengur forseti Alþýðusambandsins. — Ræða Hannibals Valdimarsson- ar var með hreinustu ágætum, og minnist ég ekki að hafa öðru sinni hlýtt á áhrifa- meiri ræðu eða sannari frá fulltrúa verkalýðsins fyrir hönd alþýðu manna á íslandi. Setti hann baráttu fyrir friði efst á blað í ræðu sinni, síð- an baráttu gegn her í landi, og síðan minntist hann kjara- baráttu verkalýðsins á mjög skýran og skipulegan hátt. — Þá féll söngpr Söngfélags verkalýðssamtakanna í Reykja- 3fík prýðilega við ,tilefn» dags- síóuslu viku ins, og á Sigursveinn Kristins- son, söngstjóri kórsins miklar þakkir skildar fyrir framlag kórsins í menningarbaráttu verkalýðsins. En þótt söngur kórsins og ræða Hannibals og jafnvel hin botnlausa vitleysa hinna ræðumannanna gerði kvöldið hið ánægjulegasta, þá er það engin afsökun fyrir Út- varpsráð, sem gerir sig sekt í slíkri ósvinnu sem þeirri að troða félagsmálaráðherra inn í dagskrána, og því síður er það afsökun fyrir BSRB, að það skuli hafa þvílíkan full- trúa á' þessum degi sem Ólaf Björnsson. Prýðilegt var erindi Friðriks Einarssonar um hernámsárin í Danmörku, og hafði það sitt að segja um áhrif af frásögn háns, þótt ekki væri fyrirlesar- inn þess valdandi, að á 10 ára afmæli frelsis Dana úr klóm nazismans, þóknaðist auðvalds- ríkjunum að leysa fjötrana, af þýzka nazismanum á nýjan leik. Má mikið vera, ef erindi Friðriks læknis hefur ekki ýtt við neinum til frekari skiln- ings á eðli nazismans og hvert muni vera viðhorf þeirrar stefnu, sem þráir það heit- ast að leggja nazismanum að nýju vopn í hönd. — Þá var niðurlag þáttanna af hafnfirzk- um sjómanni, sem Stefán Júl- íusson hefur saman tekið skýrt og skipulega. Er hér um á- hrifamikla frásögn að ræða, sem verður enn áhrifameiri fyrir það, að hún er tekin úr sögu samtíðarinnar. Húnavakan var fremur bragðlítil, þegar undan er skil- in hljómlistin, einkum píanó- leikur Ragnars Bjönissonar, sem var einstaklega yndislegur. ,,Ofdirfskuferð“ var bezt frá- sagnanna, en yantaði þó alla spennu, sem góðar frásagnir verða að vera gæddar.. Fram- burður flytjenda var yfirleitt ekki góður, stundum þvoglu- legur og hljóðvilltur. Þulur var þó góður og einnig Páll Kolka. — Spennu og stíganda skorti einnig á frásögn Matthi asar Helgasonar á fimmtudags kvöldið, en flutningur var þar í góðs höndum, þar sem And- rés var Björnsson. Það var vorblær yfir spum- ingum og svörum um náttúru- fræði hjá Ingólfi Davíðssyni. — Aftur á móti var dagur og vegur með afbrigðum þunnur hjá Páli Þorsteinssyni alþm. Var hann ekkert annað en ut- anaðlærðar vitlausustu grein- arnar, sem birzt hafa í Tím- anum undanfarin ár. Hvergi vottaði fyrir viðleitni til sjálf- stæðrar og skynsamlegrar hugsunar. — Bjarni Vilhjálms- son talaði um íslenzkt mál með sömu ágætum og ávallt áður, og verður honum seint full- þakkað vetrarstarfið á þessum vettvangi. — Guðmundur Mar- teinsson rafmagnseftirlitsstjóri ræddi um hættur rafmagnsins í fræðsluþætti á föstudaginn. Var mál hans skýrt og skil- merkilegt og mikill fróðleikur fyrir alþýðu manna varðandi umgengni við þennan merka, ómetanlega og ægilega nátt- úrukraft. „Já eða nei“ var hin bezta skemmtun, eins og löngum fyrr, hagyrðingar listfengir og hnittnir og stjórnandi glaður og reifur. En svo virðist, sem Sveinn megi ekki gefa sér of lausan tauminn í spjalli sínu. Það var anzi vafasamt, þegar hann var að ræða við verð- launahafa, sem reyndist gift- ur maður, að segja, að ekki væri nóg að eiga konu, heldur yrði maður einnig að halda henni, og segja honum síðan að fara með konu sína í á- kveðna verzlun, því að þar gæti hún fengið á sig, hvað sem hún vildi. Barnatími þeirra Valtýs- dætra á sunnudaginn var mjög góður, náði hann til yngstu kyrislóðar áheyrenda. — Tón- list þakka ég aldi'ei að .verð- leikum, en vil að þessu sinni láta í ljós sérstaka þökk fyrir Don-Kósakkakórinn á fimmtu- dagskvöldið, lög Karls Run- ólfssonar og þjóðlagastílsþætt- ina eftir Schumann á föstu- dagskvöldið. Nýr fréftaþulur er með öllu ómögulegur. Útvarpið má ekki taka þul, sem ekki kann ein- földustu atriði framsagnar, fyrr en honum hafa verið kennd þau. G. Ben. Sölufél. garðyrkjumanna seldi 180 tonn tómata á s.l. ári Sölufélag garðyrkjumanna hélt aðalfund sinn í apríHok. Sl. ár voru seld á vegum þess 180 tonn af tómötum og ein agúrka á hvern íbúa landsins. Á aðalfundinpm flutti Axel Magnússon, garðyrkjufræðing- ur, kennari hjá Garðyrkjuskóla ríkisins, mjög fróðlegt erindi um jarðvegsrannsóknir, en rann- sóknir þessar, sem eru nýlega byrjaðar hafa nú þegar gefið mjög góða raun og vænta garð- yrkjubændur sér mikils af þeim í framtíðinni. Tómatar og agúrkur voru helztu söluvörur félagsins, enn- fremur seldi það gulrætur, hvít- kál, grænkál, salat og fleira. Alls nam grænmetissala á vegum fé- lagsins 4% milljón króna. Félagið á nú í smiðum hús fyrir starfsemi sína. Stendur það við Reykjanesbraut, og standa vonir til að hægt verði að taka hluta þes i notkun á þessu sumri. Húsið er 540 fermetrar að stærð. f því verða kæliklefar, búnir fullkomnustu kælitækj- um. Á aðalfundinum var minnzt 15 ára afmælis félagsins, en það var stofnað 14. janúar 1940, og yar aðaltilgangur þess að ann- ast fyrir félagsmenn sölu garð- ávaxta, ennfremur að útvega þeim fræ, umbúðavörur og varnarlyf gegn jurtasjúkdómum, efla vöruvöndun og svo fram- vegis. í stjórn félagsins eru nú þess- ir menn: Stefán Ámason Syðri- Reykjum, Ólafur Steinsson Hamrafelli. Helgi Kristjánsson Hvammi, Sveinn Guðmundsson Reykjum og Pétur Jónsson Hell- um. Herriot segir af sér Hieiðursformanns- embætti Edouard Herriot, helzti leið- togi Róttæka flokksins franska í heilan mannsalduri sagði í gær af sér heiðursformanns- embætti, sem flokkurinn hafði veitt honum til æviloka. Hann segist ekki vilja þiggja þennan heiður eftir þau úrslit mála sem urðu á sérstöku þingi flokksins, sem haldið var fyrir skömmu. Bendir það til, að hon- um þyki hægri armur flokksins, sem hann hefur jafnan verið' mótsnúinn, hafa borið sigur úr býtum á þinginu. Verdur hneykslismál Steln- gríms og íhaldsins stöðvað? Fékk FramsóknargœSingur greidda Nóbeis- verSlaunaupphœS fyrir árásarrit á Grœnmetisverzlun rikisins? Svo virðist sem takast muni að stöðva eitt þeirra hneykslismála, sem Framsókn og’ Sjálfstæðisflokkurinn ætluöu að þröngva gegnum Alþingi, frumvarpið um aö leggja niður Grænmetisverzlun ríkisins og afhenda stofn- un, sem óljóst er hverjir yrðu eigendur að, einkasölu á garöávöxtum og grænmeti og einokun á innflutningi þess. Er þetta einn liður í þeirri viðleitni afturhaldsins að ræna eignum ríkisins og afhenda þær gæðingum sínum, eins og reynt er að gera með Áburöarverksmiðjuna, Skipa-' útgerö ríkisins o. fl. I þessu máli vekur það sér- staka athygli að það er ráð- herra Franisóknarflokksins, Steingrímur Steinþórsson, sem hefur mest beitt sér fyrir þessu máli. Var spurt um það á þingfundi nýlega, hvort hann hefði látið greiða úr ríkissjóði Framsóknargæðingi nokkrum upphæð sem svaraði Nóbels- verðlaunum fyrir samningu bókar, sem átti að verða rök- stuðningur fyrir frumvarpinu um Grænmetisverzlunina. Bjarg- aði forseti ráðherranum frá því að þurfa að svara, með því að taka málið snögglega af dagskrá, og er mál manna, að ríkisstjórnin muni ekki treysta sér til að setja það oftar á dag- skrá á þessu þingi. Minnihluti landbúnaðarnefnd- ar, Gunnar M. Magnúss og Hanníbal Valdimarsson, er and vígur frumvarpinu og leggur til að því verði vísað frá. Lýsti Gunnar þessu áhugamáli Fram- sóknarráðherrans og félaga hans .íhaldsrpanna í ýtarlegri framsöguræðu. Vakti lýsing hans á hinni mildu og dular- fullu Nóbelsverðlaunabók sem áður getur, almenna kátínu þingmanna, nema þeirra sem eiga mest skömmina skilið af fyrirtækinu. Ekki virtist þó Steingrímur landbúnaðarráðherra með öllu blygðunarlaus, því þegar Gunn- ar spurði um hina miklu bók í ráðuneytinu var því fyrst svarað að hún væri ekki til! Tilvera hennar var þó játuð nokkru síðar, en óhugsandi tal- ið að hún fengist til athugunar alþingismanni i landbúnaðar- nefnd, virtist upplagið hafa gufað upp! Hafði Gunnar þó upp á eintaki af bókinni og nefndist hún „Álit um matjurt- aræktina og drög að tillögum um skipan matjurtasölunnar, Jóhannes B. Helgason, M.B.A., Beykjavík 1954“. Þetta er doðr- ant á við stærstu biblíu í broti, mörg hundruð blaðsíður. (Voru ýmsar getur leiddar að því hvað hinir dularfullu bókstafir aftan við nafn höfundar þýddu, og varð ofan á, að þeir væru skammstöfun einhvers banda- rísks pungaprófstitils er út- legðist: Master of Bureaucratic Activities, eða eitthvað þvílíkt). Gunnar las nokkur dæmi úr þessari Nóbelsverðlaunabók, og hlógu þingmenn óspart að speki þeirri sem þar er flutt, í marg- endurteknu máli. Benti Gunnar á, að bókin mætti í heild telj- ast árásarrit á það kerfi í af- urðasölumálum á þessu sviði, sem Framsóknarflokkurinn hefði byggt upp og þótzt af. Lauk hann ræðu sinni með því að endurtaka spurninguna til landbúnaðarráðherra: Hvað borgaði landbúnaðar- ráðuneytið ndldð fé í ritlaun og* útgáfukostnað á árásarritinu gegn stefnu Framsóknarfloklis- ins í þessum málúm? Viðrœður ó ný í Þórshöfn • «/*• - I gær hófust á ný í Þórshöfn í Færeyjum viðræður milli danska ráðherrans Kampmanns, fulltrúar landsstjómarinnar og bæjarstjórnarinnar í Klakksvík um læknisdeiluna þar. Stóð fundurinn fram á kvöld og hafði ekkert frétzt um árang- ur.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.