Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.05.1955, Side 6

Nýi tíminn - 12.05.1955, Side 6
€)' — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 12. maí 1955 NYl TÍMINN Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurlnn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson Greinar í blaðið sendist til ritstjórans. Adr.: Afgreiðsla Nýja tímans, Skólavörðustíg 19, Reykjavík Afgreiðsla og auglýsingaskrifstofa Skólav.st. 19. Síml 7600. Áskriftargja’.d er 30 krónur á ári. Prentsmlðja Þjóðviljans h.f. -x*> Hætta, sem þarf að afstýra Eitt alvarlegasta siúkdómseinkenni sem gerir vart viS sig í þjóðfélaginu um þessar mundir er áköf sókn forráða- manna stjórnarflokkanna í að ná þýðingarmiklum fyrir- tækjum úr eigu þjóðarinnar og afhenda þau braskara- valdinu til eignar og umráða. Öllum er í fersku minni hvernig stjórnarflokkarnir hafa báðir gengið til verks gagnvart Áburðarverksmiðj- unni. Þessu alþjóðarfyrirtæki hafa þeir beinlínis reynt að að ræna frá þjóðarheildinni og afhent umráð þess í hend- ur einkaaðila. Fer ekki milli mála hver sá aðili var sem gerði kröfurnar um þessa breytingu á eignarumráðum Áburðai-verksmiðjunnar. Sá voldugi aðili sem hér var að verki var bandarískt auðvald. Það gerði þá kröfu til erind- reka sinna á íslandi að þetta nýja iðnfyrirtæki mætti ekki vera þjóðareign heldur skyldu yfirráðin í því tryggð í höndum einkabrasksins. Og stjórnarflokkarnir hlýddu hinum bandarísku húsbændum. Lánin og „gjafimar“ sem íhaldið og Framsókn hafa aldrei þreytzt á að lofsyngja revndust ekki alveg kvaðalausar þegar á hólminn kom, þrátt fyrir margendurtekna svardaga erindrekanna um hið gagnstæða. Sama virðist vera uppi á teningnum með hina fyrirhug- uðu Sementsverksmiðju. Fram að þessu hefur hvorki geng- ið né rekið með útvegun lánsfjár til framkvæmdanna þeg- ar þess hefur verið leitað vestan hafs. Hér eru sett fram sömu skilyrðin og áður. Sementsverksmiðjan má ekki verða þjóðareign, slíkt er eitur í beinum Bandaríkja-i manna. Herrarnir vestra skipa svo fyrir að einkaauðvaldið skuli eiga fyrirtækið og fleyta rjómann af rekstri þess. Það er augljóst hvað fyrir bandarísku auðvaldi vakir með þessum afskintum af eignarhaldi á íslenzkum stórfyr- [ tækjum. Fjandskapurinn við ríkisrekin fyrirtæki byggist á; því að bandaríska auðvaldið vill skapa hér fámenna en volduga auðmannastétt sem það hefur algert tangarhald j á og getur sagt fyrir verkum. Fyrirætlun þessa harðsvír-i aða og ósvífna auðvalds Bandaríkjanna er að koma sér upp einskonar leppauðvaldi hér á fslandi sem hlvði fyrir-: mælum þess í einu og öllu og hagi stjómarstefnunni á hverjum tíma í samræmi við vilja og hagsmuni „móður“- auðvaldsins vestra. I ú Tii þess aö koma þessum óskum bandarísks auðválds í framkvæmd hafa umboðsmenn þess á íslandi ekki hikað viö að ræna fyrii'tæki eins og Áburðarverksmiðjunni frá þjóðinni, gera hana að hlutfélagseign í stað ríkiseignar og brjóta þar með skýlaus ákvæði landslaga. Samskonar verknaður er fyrirhugaður varðandi Sem- entsverksmiðjuna nema þjóðin sé því betur á verði og, láti valdhafana vita í tíma að til þess sé ætlazt að þeir yirði landslög og taki íslenzka þjóðarhagsmuni fram yfir þjónustuna viö ásælni bandarísks auðvalds. Engin hætta er þjóðinni jafn geigvænleg og vaxandi ítök erlends auðvalds í sjálfu atvinnulífinu. Þess vegna er nú þjóðarnauðsyn að spyma við fótum og hindra þá óheillaþróun sem fyrirsjáanleg er, takist bandaríska auð- valdinu að festa rætur í atvinnulífi þjóðarinnar, koma upp íslenzkri auðmannastétt á vegum sínum og ná öruggu og endanlegu taki á öllu stjórnarkerfinu í krafti áhrifa sinna og yfirráða yfir hinum íslenzku umboðsmönnum og þvi fjármagni sem þeir hafa undir höndum fyrir tilverknað erlends auðvalds. Hættulegustu erindrekar þessarar erlendu ásælni em Valdamenn í innstu klíku Sjálfstæöisflokksins. Þessir valdamenn nota aöstöðu sína út í æsar til að greiða fyrir hvers konar ásókn bandarísks auðvalds til yfirdrottn- unar í íslenzku efnahagslífi. Gegn þessari hættu þarf þjóð- in að vera á verði og öruggasta varöstaðan er fólgin í því j að brjóta niður pólitískt vald auömannaklíkunnar sem ræður Sjálfstæðisflokknum. í því efni þarf verkalýöurinn að hafa forustuna og ná sem víðtækastri samfylkingu við aðrar alþýðustéttir og önnur þjóðleg og heilbrigð öfi sem skilja hættuna af hinni erlendu ásælni. Bandcxríkjastjórn á undanhaldi eftir ráðstefnuna í Bandung Hefur i fyrsta skipti tekið i mál að set/'- ast við samningaborð með Kina Eftir ráðstefnu 29 Asíu- og Afríkuríkja í borginni Band- ung í Indónésíu um daginn, spurði bandarískur fréttamaður einn af æðstu mönnum Indó- nesíu, eins af þeim Asíuríkjum sem lagt hafa kapp á að gæta hlutleysis í kalda stríðinu, hvernig honum hefði litizt á samkunduna. „Andkommúnist- arnir hér létu eins og óðir menn en Sjú Enlæ kom fram eins'Og séntilmaður og það held ég að hann sé“, svaraði Indónesíu- maðurinn. Öllum sem fylgdust með ráðstefnunni í Bandung ber. saman um, að hafi nokk- ur staðið með pálmann í hönd- unum í fundarlok hafi það ver- ið forsætis- og utanríkisráð- herra Kína. Eins og kunnugt er hefur Bandaríkjastjóm beitt öllu áhrifavaldi sínu árum sam- an til að setja Kína í nokkurs- konar sóttkví. Viðskiptabann hefur verið sett á landið, reiði Bandaríkjanna hefur legið við að taka upp stjórnmálasamband við ríkisstjómina í Peking og henni hefur verið meinað um sæti í Sí> og á fundum hvers- konar alþjóðasamtaka þar sem Bandaríkin og fylgiríki þeirra ráða yfir meirihluta atkvæða. ,17'yrst eftir að stjómir hlut- lausu Colomborikjanna í Asíu ákváðu að efna til ráð- stefnunnar í Bandung hallaðist bandaríska utanríkisréðuneyt- ið að því að bregðá fæti fyrir ráðstefnuna meö því að fá sem flestar ríkisstjórair til að af- þakka boð um að sitja hana. Dyggustu fylgifiskar Bandaríkj- anna, svo sem stjóm Thallands, voru búnir að hafna boöínu um að senda fulltrúa til Band- ung þegar utanrikisráðuneytið í Washington komst að raun um að ekki væri hægt að eyði- leggja ráðstefnuna með því að hunza hana. Var þá breytt um stefnu og vinir Bandarikjanna hvattir til að fara til Bandung og gera þar harða hríð að Kína og kommúnistum yfirleitt. Vesalings Thailandsstjóm varð Strax í upphafi fundahaldanna kom það á daginn, að bandamenn Vesturveldanna meðal ríkisstjórna Asiu og Af- ríku voru staðráðnir í því að r~ Erlend tíðindi reyna að flytja kalda stríðið inn í fundarsalinn í Bandung. Ráðherrar frá írak, Tyrklandi og Filippseyjum héldu bullandí skammaræður um Kominform, Sovétríkin, heimskommúnism- SJÚ ENLÆ JOHN FOSTER DULLES að sætta sig við það að verða að gjalti, hún sendi fundarboð- endum nýtt bréf þess efnis að henni hefði snúizt hugur og vildi nú fyrir hvem mun eiga fulltrúa í Bandung. ann og Kína. Fréttamenn vest- rænna fréttastofnana básúnuðu þessar tölur út um heiminn og sögðu þær stórfellda sigurvinn- inga fyrir Vesturveldin. En hafi verið ætlunin að efna til nokk- urskonar hanaats í Bandung milli fulltrúa bandamanna Vesturveldanna annarsvegar og Kína hinsvegar fór það áform gersamlega út um þúfur. Sjú Enlæ lýsti yfir í fyrstu ræðu sinni, að hann væri ekki kom- inn á ráðstefnuna til að karpa um stjómmálastefnur heldur til þess að kanna, að hve miklu leyti þjóðir Asíu og Afríku gætu átt samstöðu. Þetta strik hélt hann ráðstefnuna út, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst engum að teyma hann út í ill- deilur. ¥»egar að fundarlokum leið ■ kom árangurinn. af þessum ólíku starfsaðferðum í ljós. Framkomu Sjú Enlæ „bar ríku- legan ávöxt“ að, dómi Roberts Alden fréttaritara, New York Times í Bandung. Þegar hann -lýsti yfir að Kínastjórn væri reiðubúin að ræða við Banda- rikjastjórn um ráðstafanir til að draga úr viðsjám í Austur- Asíu og einkum á sundinu milli Taivan og meginlands Kína, lýstu nær allir fulltrú- amir í Bandung yfir fögnuði sínum vegna þess að svo merk tillaga skyldi vera borin fram á þessari ráðstefnu Asíu- og Afríkuríkja. Tillman Durdin, einum af fréttaiíturum New Yorp Times í Bandung, fór- ust orð á þessa leið: „Sú skoð- un að Bandaríkjastjórn og þá einkum stefna hennar varðandl Taivan, valdi hættunni á kjarnorkustyrjöld er undirrót andúðar á Bandaríkjunum sem er orðin hrein andstaða hjá sumum þjóðunum á ráðstefn- unni . . . Ótti við að Banda- ríkin hefji stríð útaf Kvimoj og Matsú og andstaða gegn þeirri stefnu Bandaríkjastj. er hefur skapað þann möguleika er ekki aðeins sameiginleg kommúnistaríkjunum og hlut- lausu ríkjunum heldur einnig öðrum ríkjum sem eru vinveitt Bandaríkjunum á flestum svið- um. Tengd þessu viðhorfi er andúð á tilraunum Bandaríkj- anna með kjamorkuvopn“. 17'yrsta viðbragð Bandaríkja- ■*■ stjórnar við boði Sjú Enlæ um viðræður var sem kunnugt er algert afsvar. Að sögn Dur- dins (New York Times 25. apríl) voru fulltrúarnir í Bandung „undrandi og von- sviknir“ yfir hinu bandaríska svari. Meira að segja Múhameð Alí, forsætisráðherra Pakistan, eina ríkisins á meginlandi Asíu sem verulegu máli skiptir og er í bandalagi við Bandaríkin, staðhæfði að Bandaríkjastjórn bæri skylda til að taka boði Sjú. Sömu afstöðu tóku U Nu, forsætisráðherra Burma, John Kótelawala, forsætisráðherra Ceylon og fjöldi annarra á- hrifamanna á ráðstefnunni. Kötelawala komst svo að orði, að Bandaríkjastjóm virtist hafa svarað Sjú „án þess að hugsa“. Sú skoðun var ræki- lega staðfest í Washington tveim dögum síðar. Þá lýsti Dulles utanríkisráðherra nefni- lega yfir, ,að Bandaríkjastjórn hefði ekkert á mófi því að setjast við samningaborð með fulltrúum frá Kina. Tlringsnúningur eins og þessi ■*■■*■ í afstöðu stórveldis til við- kvæmasta deilumáls sem nú er uppi í heiminum vekur að von- um athygli og fréttamenn í Washington hafa gert sér far um að kynna sér hvað að baki honum býr. Skýring þeirra er sú, að þegar fregnin um boð Sjú um samningaviðræður barst hafi æðsti embættismað- ur sem til náðist í Washington verið Hoover aðstoðarutanrík- isráðherra. Hann hafi samið svarið sem birt var vegna þess að honum hafi fundizt að Bandaríkin yrðu að segja eitt- hvað um málið þegar í stað. Hoover bar handaverk sín und- ir Eisenhower forseta, sem dvaldi um helgina á sveita- setri sínu, og samþykkti þau tafarlaust. Meðan þessu fór fram dvaldi Dulles utanríkis- ráðherra í sumarbústað sínum á eyju í Ontariovatni, en þang- að er hvorki síma- né loft- skeytasamband. Þegar hann kom aftur til Washington var Framhald á 10. síöu.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.