Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.05.1955, Blaðsíða 9

Nýi tíminn - 12.05.1955, Blaðsíða 9
4 Laugardagur 7. inai 1955 — 1. árgangur — 11. tölublað Heilabrot Stafatígull a a a a b f f i 1 1 ó ó r r u Raða skal stöfum þess- um í tíglunum svo að fram komi, hvort sem lesið er lárétt, svo sem venja er, eða lóðrétt, nið- ur: — 1. veiki. — 2. bönd. •— 3. trjáblöð. — 4. gras. (Hér birtist merkileg frásaga eftir 10 ára telpu í Mosfellssveit). Kæra Öskastund. Ég ætla að segja þér af henni kisu minni. Hún heitir Kittý. Þegar hún eignast kettlinga eru þeir venjulega 4. Svo þegar þeim er fækkað, er einn látinn lifa. En kisa virð- ist vera óánægð með þennan eina kettling, því næsta dag, þegar ég kem til hennar þá er hún búin að taka í fóstur þrjá músaryrðlinga. Hún ber mat í kassann til þeirra. Hún gerir þeim aldrei mein. Það er eins og hún þurfi að hafa 4 kettlinga og verði að bæta upp missinn. Kettlingurinn og mýsnar leika sér saman x kassanum og kisa horf- ir á með mestu ánægju. Gátur. (Unnur K. Karlsdóttir, Kjartansstöðum sendi). 1. Hvar bjóða hrafnam- ir hver öðrum góða nótt? 2. Tvö höfuð og tveir handleggir, 6 fætur og 10 tær, ekki nema 4 fætur á gangi, hvernig á ég að skilpa það? 3. Áður var það gras, nú er það duft, það er geymt í gulli, silfri, homi eða tré eftir vild hvers og efnum. Sumir vilja ekki sjá það, en sumir geta ekki verið án þess. Ráðning í næsta blaði. Bústaðurinn hennar kisu er á hlöðuloftinu, því mamma vill ekki fá þenn- an ófögnuð í bæinn. — Af því mér finnst þetta skrítið, þá langaði mig að segja frá þessu. Vertu blessuð og sæl. Skrítlur Konan: Viltu ekki fara að slökkva ljósið, góði minn? Það er komið und- ir morgun og dagsbirtan er farin að gægjast inn um gluggann. Maðurinn litur upp úr bókinni): — Ha? Hvað? Hver er svo ósvífinn að vera að gægjast inn um gluggann? Ráðningar á þraut- um í síðasta blaði Eldspýtnaþrautin. Gátumar. 1. Þegar hann nær ekki lengur niður með fæturn- ar. — 2. Af því að dagur er á milli. — 3. ís (frosið vatn). Finun kvenmannsnöfn og finun karlmannsnöfn. Þið voruð beðin að finna 10 íslenzk nöfn skrifuð með þremur stöf- um hvert (5 kvenna og 5 karla). Hér eru okkar nöfn, — allt nöfn, sem núlifandi fólk ber: Ása, Eva, Ósk, Rós, Sif, — Ari, Jón, Már, Öli, Örn. .— Nú getið þið borið saman. Að ,,óska hamingju'' eða „óska til hamingju" Hvort skyldi nú vera fallegri íslenzka að „óska hamingju“ eða „óska til hamingju". Hugleiðing til næsta laugardags. Ártölin 1241 og 1941 Hvaða minnisstæðir at- burðir íslandssögunnar eru bundnír við ártölin 1241 og 1941? Otnilegt en satt! Útgefandi: Þjóðviijinn — Ritstjórí: Gunnar M. Magnúss — Pósthólf 106). Þykir liestum gaman að tónlist? (Höfundur þessararfrá- sagnar sendi langa grein um íslenzka hestinn. Greinin er góð og ber vitni þess, að dýravinur skrifar. Hér birtist síð- ari hluti greinarinnar). Hér á bænum er bleik- álóttur hestur, reiðhestur góður og hinn mesti stólpagripur, en hefur þann afleita galla að vera snarvitlaus, þegar verið er að járna hann. Þegar hann var járnaður í fyrsta skipti, voru reynd við hann öll ráð, svo sem snarvöndull og haus- poki, en ekkert dugði. Oft hefur orðið að hætta við hann vegna illsku. Hefur þó ætíð verið farið vel að honum. Einu sinni var það ráð tekið, að maður fór á bak hon- um. Var klárinn þá fyrst góður, en fann svo að verið var að gabba hann, og varð þá hálíu verri en áður. Svo var það í fyrra- sumar, að við lásum i blaði frásögn eftir mann, sem taldi hesta mjög músikalska og nefndi mörg dæmi þess. T. d. Nú hefst ný verðlauna- samkeppni og stendur hún til 1. júní. Þeir sem taka þátt í henni eiga að skrifa stökur Hannesar Hafsteins, sem hér eru birtar, á sérstakt blað, en ekki setja neitt annað á það, nema nafn sitt, aldur og heimilisfang í efstu línu. Nú er skól- unum að verða lokið, svo að gaman verður að sjá árangurinn hjá ykkur eft- ir veturinn. Allir sem eru jmgri en 15 ára mega taka þátt í skriftarkeppn- sumar inni. Verður veitt viður- kenning fyrir beztu skrift- ina í hverjum flokki. En vísurnar sem þið eigið að skrifa eru svona: Blessuð sólin elskar allt. allt með kossi vekur, haginn grænn og hjarniö kait hcnnar ástum tekum. Geislar hcnnar út um aUt. eitt og sama skrifa, á hagann grænan, hjarnið kalt; liinmeskt er að lifa. Framhald á 3. síðu. i\\ Þökk fyrir skemmtiiega samvinnu, kæru lesendur, frá því blaðið okkar hóf göngu sína. Skrrftarkeppni KHPPIÐ HÉR! - ■■••■■■■■«■■■■■■ Fimmtudagur 12. maí 1955 — NÝl TÍMINN — (9 Látum þá jórtra í einrúmi Þegar skráð verður saga hernámsins verður eflaust oft vitnað til greinar þeirrar sem birtist fyrir nokkru í banda- ríska tímaritinu Top Secret og prentuð er upp hér í blað- inu í dag. Hver gleymir t. d. þessari mynd sem greinarhöf- undur dregur upp af vonum •bandarískra hermanna annars- vegar og veruleikanum hins vegar: „Hermennirnir komu von- glaðir með hinu vingjarnlega fasi sem einkennir ameríska hermenn, hvert sem loftslagið er (!). .Vasar þeirrar voru út- troðnir af sigarettum, súkku- laði og tyggigúmmii; þeir von- uðust eftir að geta unnið vin- áttu smápattanna og geta sjálf- ir samlagazt íbúunum. Þeir voru rólyndir, kátir og vin- gjamlegir, en þeir mættu ís- kaldri gestrisni, sem blés eins og vindurinn frá Faxaflóa. Menningarfrömuðirnir gerðu enga tilraun til að skapa vin- gjarnlegt samband milli íbú- anna og gestanna. Það var tek- ið á móti Bandarikjamönnum með dauðaþögn og síðar með opinberum fjandskap.“ Vonsviknu verndararnir urðu þannig yfirleitt að jórtra tugg- una sína sjálfir. Þessi frásögn bandarísku hermannanna er mjög keimlík lýsipgum þeim sem birtar hafa verið um lærdóma þýzku naz- istanna i Danmörku og Noregi fyrstu hernámsárin. Einnig þeim hafði verið sagt að þeir færu sem „verndarar“ og það yrði tekið á móti þeim með ánægju og þakklæti. Einnig þeir reyndu að troða vasana fulla af góðgæti til þess að fleka hrekklaus börn og kom- ast þannig í tæri við íbúana. En þeir fundu brátt að það var nístingskalt í kringum þá, engin sómakær maður vildi hafa nokkurt samnejdi við þá — þeir áttu aðeins aðgang að rónum, skækjum og hliðstæðri tegund stjómmálamanna. — Bandarisku hermennirnir á Keflavíkurflugvelli mega vita það að þeir eru aðeins að fá sömu kynni af sjálfsvörn her- numinnar smáþjóðar. Þau spaugilegu tíðindi gerð- ust um helgina að Tíminn komst að þeirri niðurstöðu að vanlíðan vemdaranna væri af- rek Kristins Guðmundssonar utanríkisráðherra. Allir vita að afrek þess manns hafa ein- vörðungu verið j því fólgin að reyna að hremma helming hernámsgróðans og afhenda hann Framsóknargæðingum. Hinar margræddu girðingar vekja aðeins hlátur íslendinga og hemámsliðsins, Og ekki síð- ur hinar alræmdu reglur sem eru svo vesælar að ráðherrann hefur ekki enn þorað að birta þær, Enda skýrir bandaríska blaðið Top Secret svo frá að Kristinn Guðmundsson sé „einlægur vinur Bandaríkj- anna,“ enda þótt sú mannteg-' und sé mjög torfundin á þess- ari „hrúgu af hraungrjóti." Enda þótt Bandaríkjamenn hafi beðið mikinn andlegan ó- sigur fyrir íslendingum eru þeir engan veginn uppgefnir á því að reyna að „samlagast í- búunum“. Síðasta árið hafa þeir gripið til þess ráðs að rejma að nugga sér utan í líknarstofnanir, sem þeir vita að njóta almennra vinsælda, í von um að eitthvað af vin- sældunum lendi á þeim líka. Bandarískar hemámshljóm- sveitir hafa verið látnar leika til ágóða fyrir bamaspítalasjóð Hringsins, og á sama hátt hafa hinir erlendu menn reynt að troða sér inn í starfsemi slysavamafélaganna. Nú siðast voru þeir látnir taka þátt í sýningu Slysavarnafélags ís- lands í Nauthóls.vik s.l. sunnud. Hafa þeir eflaust haft vasana úttroðna af sígarettum, súkku- laði og tyggigúmmíi, og kannski hafa einhverjir þegið. I sambandi við slysavarnar- starfsemi minnist almenningur hins vegar bezt „björgunarleið- angursins“ fræga á Vatnajök- ul, þegar slösuð þernan varð að standa upp af sleðanum til þess að hægt væri að draga bandarísku „björgunarmenn- ina“ til byggða. Þess ber að krefjast að for- ráðamenn Slysavarnafélagsins og annarra hliðstæðra stofn- ana hætti þegar í stað að láta misnota sig í þágu hemáms- ins. Þetta eru samtök sem njóta stuðnings og styrktar Áætlaður kostnaður við bygg- inguna er um 4 milljónir króna, en hún verður fimm hæðir auk kjallara, og kostar hátt í tvær milljónir að koma henni undir þak Sú upphæð þarf að vera til- tæk um leið og byrjað er á framkvæmdum. Eins og kunnugt er var hluta- félagið Vegamót stofnað til þess að hrinda þessu stórvirki af stað, og var hlutafé þess ákveðin ein milljón króna. Var Mál og menn- ing skrifuð fyrir þriðjungi upp- hæðarinnar en annað lögðu stuðningsmenn og vinir félagsins fram. Mál og menning hefur nú snúið sér til allra félagsmanna sinna og skorar á þá að þeir styrki húsbygginguna með ár- legu framlagi, minnst 100 kr. hver, árin 1955—1957, eða með allrar þjóðarinnar — ekki sízt þess mikla meirihluta sem ósk- ar þess heitast af öllu að her- námsliðið hypji sig héðan sem allra fyrst. Og það flýtir fyrír burtförinni ef hermennirnir neyðast til að tyggja gúmmíið sitt í einrúmi. þrem hundruðum alls á þrem ár- um. Á móti niuii það koma frá Máli og inenningti, að félagið hef- ur ákvcðið útgáfu með sérstökum hætti á skáldskap Jónasar Háll- grímssonar 1957, en þá á hann 150 ára afmæli. Hefur Halldór Kiljan Laxness tekið að sér að sjá um útgáfuna og rita forspjall að henni, en Hafsteinn Guð- mundsson prentsmiðjustjóri hef- ur tekið að sér að annast vand- aðan frágang hcnnar frá prent- listarsjónarmiði. Verður útgáfa þessi cingöngu gerð handa þeim sem styrkt hafa húsbygginguna. og fá þeir bókina áritaða af stjórn Máls og menningar. Er ekki að efa að áskorun Máls og menningar fær góðar undirtektir, þannig að félaginu takist að ljúka stórvirki sínu á tilteknum tíma. Hús Máls og meimingar komið upp á 20 ára afmæli félagsins Skorað á félagsmenn að leggja bygging- unni lið með fjárframlögum Mál og menning hefur sett sér það mark að nýbygging fyrir starfsemi félagsxns verði komin upp á Langavegi 18 á tuttugu ára afmæli félagsins 1957.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.