Nýi tíminn - 08.03.1956, Síða 3
FimTntudagur 8. marz 1956 — NÝI TÍMINN —- (3
Hóskólaráð Alab-
ama hótar Lucy bana
Dæmt til að veita hezmi skólavist en
neifar nm vernd gegn óþjóðalýð
Einn af stjórnendum Alabamaháskóla í Bandaríkjunum
hefur hótaö svertingjastúlkunni Autherine Lucy bráöum
bana, ef hún reyndi aö neyta réttar síns til aö stunda
nám í skólanum.
ílr Húsafellsskógi, málverk ertlr Ásgrím Jónsson
(
Asgrím ur Jónsson listmálari
áttræður
Fýrir skömmu kvað alríkisdóm-
stóll í Birmingham, stærstu borg
Alabama, upp dóm í máli, sem
Lucy höfðaði gegn rektor og
skólastjórnarnefnd Alabamahá-
skóla.
Dæmd skólavist í annað
skipti
Dómarinn úrskurðaði, að rekt-
or og háskólastjórn hefðu sýnt
dómstólnum fyrirlitningu með
því að reka Lucy úr skóla. Hún
ætti lögum samkvæmt ótvíræð-
Það gæti verið fróðlegt að
athuga viðhorf manns sem
fæddur er á fyrri helmingi
þessarar aldar til manns sem
J>á- þegar var farinn að ganga
óstuddur á þeirri braut sem
íhann hafði valið sér sem
listamaður. I fljótu bragði
virðist svo að segja með öllu
ókleift fyrir hinn unga mann
að. geta skilið eða sett sig
inn í það stríð, sem liinn
eldri hefur orðið að heyja
fyrir list sinni.
Það er siður fólks að
tala um slæma tíma, erf-
iða lífsbaráttu, fátækt. Að
sjálfsögðu er þetta böl
þjóðfélagsins hvar sem
það finnst, en það tilheyr-
ir ekki aðeins fortíðinni
ennþá, því miður. Eins og
fátæktin sem slík er sú
sama í dag og í gamla
daga, er stríð listamanns-
ins við verk sitt hið sama
og það he ur alltaf verið
á öllum tímum.
Þegar listamaðurinn
hefur agað sjálfan sig
með látlausu striti og
starfi, fundið til með því
verki sem hann vinnur og
er þó aldrei ánægður, er
ef til vill hægt að tala
um sigra og þá fyrst
verður mannsins getið.
S'íkur maður er Ásgrím-
ur Jónsson.
Ásgrímur er fæddur í Rúts-
staðahjáleigu í Gaulverjabæj-
arhreppi í Flóa 4. mars 1876
og ólst þar upp til 14 ára ald-
urs. Stundaði síðan ýmis stör'
til lands og sjávar, þar til
!hann ákvað rúmlega tvítug-
ur að aldri að hefja listnám
og sigldi til Kaupmannahafn-
ar. Þar vann hann fyrir sér
sem húsamálari samhliða því
sem hann stundaði nám í
teikniskóla og síðar við lista-
íhásköla á Charlottenborg. 1
listasafni ríkisins í Kaup-
mannahöfn kynntist hann
málverkum ýmissa gamalla
me’stara. Að dönskum mál-
verkum undanskildum var þar
mest um málverk hollenzkra
má’ara og urðu þeir Ruisdael
og Rembrandt eftirlæti hans.
Lítið mun hafa verið um
franska list í safninu. Eina
mynd sá hann sem varð hon
um opinberun. Höfundurinn
var Vincent van Gogh. Van
Gogh sem var Hollendingur
(1853-1890) hafði verið
Frakklandi um nokkurra ára
skeið fyrir dauða sinn og
fyllt flokk málara sem að-
hylltust að nokkru leyti stefnu
hinna svokölluðu impression-
ista. Dir'ska og litkraftur
myndarinnar fyllti Ásgrím
eldmóði og hrifningu og hann
ÁSGRÍMUR JÓNSSON
Höggmynd eftir Sigurjón Ólafsson
ákvað að komast lengra suður
á bóginn og sjá meira af hinni
nýju list.
Árið 1903 hélt Ásgrímur
sína fyrstu málverkasýningu
hér heima og aðra sýningu
1907. Það ár fékk hann styrk
til ítalíuferðar og var tæp
tvö ár í þeirri ferð. Á ítalíu
sá hann og kynnti sér lista-
söfn Rómaborgar, Flórenz,
Napólí og Feneyja og hreifst
af verkum Renæssancins og
Siennamálaranna. Afdrifarík-
ust mun þó sú ferð hafa ver-
ið fyrir Ásgrím fyrir það að
hann á heimleið fór um
Þýzkaland og sá á söfnum í
Berlín og Weimar verk im-
pressionistanna frönsku. Þess-
ar nýju myndir höfðu djúp
nhrif á viðhorf hans til mynd
listar og hafa markað þá leið
Framhald á 10. síðu
Kveðja frá forseta
r
Islands
Mér er það bæði ljúft og skylt.
að senda Ásgrími Jónssyni
kveðju og þökk á áttræðisaf-
mælinu. í dag minnist öll þjóð
in hans með þakklæti og virð-
ingu.
Áttatíu ár er löng mannsævi
en stutt listasaga. Ég minnisi
hans fyrstu sýninga í Vinaminni
fyrir fimmtíu árum. Það var
viðburður í þá daga. Við
unglingar gátum tekið und-
ir með gamla manninum
skaftfellska, sem sagði, að
„kortin“ hjá Ásgrími væru
betri en hjá dönsku land-
mælingamönnunum. Þjóðin
var auðug að náttúrufeg-
urð og snilldarlegum lýs-
ingum í ljóði og nú steig ,
Ásgrímur fram, fullþroska 1
á ungum aldri, og leysti
landvættir fossanna, fjall-
anna og jöklanna úr álög-
um. Skilningur hans jók
oss skilning, og það sem
Bakkabræðrum tókst ekki,
að bera ljósið inn í húsið
í skjólum, varð nú kleift
með nýrri tækni Ljós og
litir og línur landsins var
fest á dúk og borið inn í
hús og á heimili til yndis
og ununar í skammdeginu.
Það er ótrúleg breyting
sem orðin er á þessum
fimmtíu árum, og Ásgrím-
ur er brautryðjandinn.
Listaverk skreyta nú ís-
lenzk heimili í ríkara mæli
en þekkist með öðrum
þjóðum. Málaralistin er almenn-
ingseign eins og bókmenning-
in áður. Nafn Ásgríms stendur
sjálfstætt, án nokkurs titils,
föstum fótum í íslenzkri lista-
sögu, og minnir á hið mikla nafn
Hallgríms. Ásgrímur er einn af
stórmeisturum sinnar samtíðar.
Og vel hefur hann skilið, að það
er eitthvað í íslenzkri náttúru
á sólbjörtum sumardegi, sem
næst bezt með vatnslitum, hið
tæra loft, hin léttu fjöll og
skæru litir. Mikinn yndisarí
skilur hann þjóð sinni eftir. Og
slcylt er að þakka sérstaklega
hina miklu gjöf, sem hann hefur
ánafnað ríkinu sjálfu.
Vér íslendingar erum fámenn
þjóð, og því stoltari af hverjum
samlanda, sem reynist hlutgeng-
ur á heimsmælikvarða. Miklar
gáfur og óþreytandi elja gefa
list Ásgríms það „Langalíf“, sem
eru þessa heims beztu laun. í
dag hyllum vér einn af beztu
sonum íslands, Ásgrím Jónsson!
Ásgeir Ásgeirsson
Autherine Lucy,
an rétt á að fá inngöngu í
Alabamaháskóla, sem fylkis-
stjómin rekur.
Sami dómari hafði áður dæmt
Lucy skólavist og var hún fyrsti
svertingjastúdent sem fékk inn-
göngu i háskólann í Alabama
þau 125 ár sem hann hefur starf-
að. Ekki hélzt hún þó þar við
nema í þrjá daga, skríll hvítra
stúdenta og borgarbúa i há-
skólaborginni Tuscaloosa gerði
aðsúg að henni, háskólastjórnin
lét uppþotið afskiptalaust en vék
Lucy úr skóla. Uppþotsmenn
viidu með engu móti una því
að sækja sama skóla og stúdent
af „lægri kynþætti".
500 af 7500
Nokkrir hvítu stúdentanna
voru andvígir aðförunum gagn-
vart Lucy og hófu söfriun und-
irskrifta undir áskorun á há-
skólastjórnina um að taka stúlk-
una aftur í skólann. Ekki feng-
ust þó nema 500 af 7500 stúdent-
um við Alabamaháskóla til að
rita nöfn sín undir áskorun-
ina.
Nýlega barst sú frétt frá Tusca-
loosa að háskólastjómin hefði á
fundi sínum kvöldið áður ákveðið
að hafa úrskurð alríkisdómstóls-
ins að engu og víkja Autherine
Lucy aftur úr skólanum.
Háskólastjórnin, sem hefur
æðsta vald í málum Alabama-
háskóla, er kjörin af fylkisþing-
inu. Einn af þeim mönnum sem
sæti eiga í háskólastjórninni
hefur sagt að Lucy yrði í
bráðri lífshættu ef hún reyndi
að neyta réttar síns og stunda
nám við háskólann. Háskólinn
mim ekki gera neinar ráðstafan-
ir til að vernda hana, sagði
nefndarmaður þessi.
Hveltiríkin reið Bretumf
eir hafna verðfestinp ■
Allt komst á ringulreið í síðustu viku á alþjóða hveiti-
ráðstefnu í Genf. Ástæðan var að brezku fulltrúarnir
lýstu yfir að brezka stjórnin myndi ekki gerast aðili að
nýjum alþjóöasamningi um hveitiverð.
Þessi ákvörðun Breta hefur
vakið mikla gremju í samveld-
islöndunum Kanada og Ástralíu,
sem selja mikið af hveiti til
Bretlands.
Offramleiðslubirgðir þrefalt
meiri en í kreppunni
Afstaða Bretlands getur haft
afdrifarík áhrif á hveitiverðið
á alþjóðamarkaði. Hveitiútflutn-
ingsríkin eru lengi búin að vera
með lífið í lúkunum vegna þess
að óseljanlegar hveitibirgðir eru
nú meiri en nokkru sinni fyrr
í sögunni.
Kunnugustu menn fullyrða að
hveitibirgðirnar í heiminum séu
þrisvar sinnum Tneiri nú en þær
voru árið 1929 til 1933, þegar
hveiti var brennt í tonnatali og
hveitiverðið hrapaði niður úr
öllu valdi. í birgðaskemmum
fjögurra helztu hveitiræktarland-
anna, Bandaríkjanna, Kanada
Ástralíu og Argentínu, eru nú
2377 milljónir skeppa af hveiti,
en ársneyzlan er ekki nema
850 milljónir skeppa.
Rennur út í ágúst
Hveitisamningurinn, sem Bret-
land sagði upp 1953, rennur út
í ágúst í sumar. Þar var kveðið
á um hámarksverð og lágmarks-
verð á hveiti.
Bretland flytur inn miklu
meira hveiti en nokkurt ann-,
að ríki, svo að hveitisamningur
án þátttöku þess er gagnslaus.
Eftir að Bretar tilkynntu ráð-
stefnunni í Genf ákvörðun sína
var fundi frestað, svo að fulltrú-
arnir gætu ráðgazt við ríkis-
stjórnir sínar.
KaupiiS
Nýja tiniauu