Nýi tíminn


Nýi tíminn - 27.06.1957, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 27.06.1957, Blaðsíða 4
I) — NÝI TÍMINN — Föstudagur .27. júni 1957 Ntl TÍMINN Öf.»«fandl: Sótfalistaflokkurinn. Rltstian ot aoyreBarmaBur: /ismundur SigurSsson. - ÁskrlftaraJald kr. 50 4 árl. PientsmlSJa í>Jó3vUlans h.t. Nóttlaus voraldar veröld |^ó ekki séu liðin nema þrettán ár frá þeim seytj- ánda júní þá íslendingar fögnuðu um land allt lýð- ,veldi sínu endurreistu, er þeg- ar sem leiki hillingaljómi um etundina og dagana og það góða ár 1944. Þjóðareining- in í lýðveldiskosningunum, þjóðarvakningin júnídagana, imannhafið á Þingvöllum 17. jfmí og í Reykjavík 18. júní, ihver man það án þess að Bterk tilfinning gleði og metn- aðar fari eldi um hug hans? L ■ í Qvo bjartan ljóma ber frá ^ dögunum, sumrinu, ár- inu 1944, að það er nú þegar 1 eins og hálffyrnt í huga að einnig á síðasta skeiði barátt- 1 unnar er hlaut lausn sína og eigur 1944 varð að berjast, berjast djarft, af snilli og harðfengi, einnig á vettvangi innanlandsstjórnmálanna. Um það var barizt, hvort sú leið yrði valin sem farin var, svo nást mætti sú þjóðareining ! Bem hæst reis í lýðveldiskosn- ingunum og þjóðarvakningin, 1 Bem knúði fram síðar á árinu ■ Bamtök um þingmeirihluta og * Btjómarmyndun. Það var ný- 1 eköpunarstjórnin sem hóf með 1 Etórkostlegu átaki það við- ■ reisnarstarf í efnahagslífi ’ landsins, er þjóðin hefur bú- | ið að og á að þakka þau ^ lifskjör sem hún býr við nú. ' 17'remst í þeirri örlagaríku baráttu og það aflið sem yrslitum réð ,var hin róttæka | Verkalýðshreyfing íslands, ÍAlþýðusambandið með rót- tækri stjórn og Sameining- arflokkur alþýðu—Sósíalista- flokkurinn. Þáttur hinnar róttæku verkalýðshreyfingar að mótun stefnunnar síðasta éfangann að lýðveldisstofnun- inni mun metinn að verðleik- um þegar saga þeirrar bar- áttu verður sögð til fulls, og um hitt verður ekki deilt, að nýsköpunarstefnan var framlag hinnar róttæku verkalýðshreyfingar landsins ' til þjóðfélagsbaráttunnar | fyrstu ár lýðveldisins, og gæddi þau ár stórhug og bjartsýni. Formaður Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokks- ins, Einar Olgeirsson, var einn áhrifamesti íslenzki Btjórnmálamaðurinn i baráttu þessara örlagaríku ára, og mun ekki annar þeirra hafa átt meiri þátt að mótun stefn- unnar sem tekin var. Daginn eftir lýðveldisstofnunina, við ihátíðahöldin í Reykjavík, íflutti Einar ásamt öðrum flokksleiðtogum ræðu til snannfjöldans, frá Stjórnar- ráðshúsinu. Þar sagði hann sn.a. þessi orð: Gamla lýðveldið okkar var skapað af höfðingjunum, og voldugustu höfðingjarn- ir tortímdu því. Það eruð þið, fólkið sjálft, sem hefur skap- að nýja lýðveldið okkar. Frá fólldnu er það komið, fólkinu & það að þjóna og fólkið verð- ’ ur að stjórna því, vakandi ! Og virkt, ef hvoru tveggja. lýðveldinu og fólkinu, á að vegna vel. Það er ósk mín í dag, að fólkið sjálft, fjöldinn sem skapaði íslenzka lýðveld- ið, svo samtaka og sterkur, megi aldrei sleppa af því hendinni, heldur taka með hverjum deginum sem líður fastar og ákveðnar um stjðrn- völ þess. Þá er langlífi lýð- veldisins og farsæld fólksins tryggð“. Hvað gerðist næsta áratug? Þeir sem fólkið treysti brugðust trausti þess, sviku lýðveldið unga á vald striðs- óðs herveldis, reyndu að kæfa eldinn, lama stórhuginn, eyða bjartsýni þjóðarinnar með barlómsvæli og betlistefnu. Og fólkið var ekki nógu „vakandi og virkt“ eins og Einar hafði óskað lýðveldinu, það lét ókjör áratugsins 1946 —1956 yfir sig ganga án þess að sópa til hliðar þeim stjórn- málamönnum er svo gífurlega höfðu brugðizt vonum manna hin fyrstu lýðveldisár. Og enn er það hin róttæka alþýðuhreyfing Islands, sem vísar veginn út úr þungbæru svartnætti þessa áratugs. Sameiningarflokki alþýðu — Sósíalistaflokknum og Al- þýðusambandi Islands, með róttækri forystu, tekst að vekja nýja öldu vonar og skilnings á mætti þjóðarinnar, að hún sé megnug þess að sækja fram til velmegunar í landi sínu, að hún geti losað sig við smán og hættuna af bandarískri hersetu á Is- landi. Stofnun Alþýðubanda- lagsins og kosningasigur þess knýr fram myndun vinstri stjórnar, sem hefur brott- flutning hins erlenda hers og alhliða nýsköpun atvinnulífs- ins, í nánu samstarfi við al- þýðusamtökin, að yfirlýstri stefnu. Framkvæmd þeirrar stefnu getur fólkið tryggt sé það „vakandi og virkt“ og vinni að því dag hvern og hverja stund að sameina krafta alþýðunnar í samtök- um sínum, í verkalýðsfélög- unum og ekki sfzt að sam- stilla átak og afl alþýðuflokk- anna. Seytjánda júní ríkir á ís- landi nóttlaus voraldar veröld. Ferskur ilmur og lífs- máttur hins unga sumars vek- ur íslendingi þrótt og unað og eftirvæntingu. Það er á valdi íslenzkrar alþýðu að láta rætast fyrirheit og vonir beztu sona og dætra þjóðar- innar, um velmegun og gró- andi þjóðlif, um lausn frá smán hersetunnar, um lýðveld- ið Island sem griðastað mann- göfgi og mannhelgi, um út- rýming fátæktar, um mennt- unarfæri og þroska fyrir hvert íslenzkt ungmenni. Töfraorðin eru eining og sam- taka afl alþýðunnar. Megi þau töfraorð öðlast fyllingu og þrótt svo þau nái að móta örlög þjóðarinnar. Þá rætist sýn Stefáns G. Þá verður Is- land og íslenzkt þjóðlíf nótt- laus voraldar veröld, þar sem víðsýnið .skín. Heiðursvörður bandarískra sjóliða hellsar Sjnng Kaisék, er liann gengur á skipsfjöl á flaggskipi banda. riska flotans við Taivan. „Ör því þeir kæra sig ekki m okkur er bezt við flytjum drenpa okkar heim” Bandarískir þingmenn krefiasf brottfarar úr herstöSvum Bandarik]anna erlendis Árás almennings á Taivan á bandaríska sendiráðið í höfuðborginni Taipeh hefur vakið umræður í Bandaríkj- uniun um hersetu Bandaríkjamanna í löndum annarra þjóða. Tilefni árásarinnar var reiði kallaðar úr herstöðvum í öðr- Taivanbúa yfir sýknudómi, sem um löndum. bandarískur herréttur hafði t öldungadeildinni sagði Will- kveðið upp yfir bandariskum is Robertson, demókrati frá hermanni, sem hafði skotið Virgima, að atburðirnir í Taip- innborinn mann til bana. eh sýndu, að hersetan skapaði Bandarílcjunum óvild hlutað- Þrumu lostnir eigandi þjóða. Herstjórninni Fréttaritari United Press í bæri að fækka sem mest her- Washington kemst svo að orði, stöðvum erlendis og liði, sem að bandarískir ráðamenn hafi Þar hefði dvöl. verið sem þrumu lostnir yfir Ýfingar milli þjóða i banda- heiftinni i árásunum á Banda- lagi við Bandaríkin og banda- ríkjamenn i Taipeh og hversu rískra hermanna sem dvelja þátttaka í þeim var almenn. | meðal þeirra fara sívaxandi, Bandaríkjamenn höfðu talið sagði Robertson. sér trú um, að herseta þeirra Utaiiríkisinálanefndarmaður á Taivan væri í þökk alls þorra J I fulltrúadeildinni var repú- eyjarskeggja, þar sem hún blikaninn John M. Vorys frá væri ómissandi ef hindra ætti Ohio skorinorðastur. Kvað að eyjan kæmist undir yfiiTáð ( stjórnarinnar í Peking. hann það löngu sannrejmt, að Bandaríkin gætu ekki keypt sér vináttu og velvild annarra þjóða með fégjöfum né hera- aðaraðstoð. „Úr þvi að þeir kæra sig ekki um okkur, er bezt að við flytjum drengina okkar heim,“ sagði Vorys, sem á sæti í ut- anríkismálanefnd deildarinnar. Snorri Hallgríms- son formaður Vísindasjóðs Menntamálaráðherra hefur skip- að dr. med. Snorra Hallgríms- son, prófessor, formann stjórn- ar Vísindasjóðs. Þá hefur Þor- björn Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ríkiisins, verið skipaður vara- formaður sjóðsstjómar. Lögreglan hafðist ekki að Atburðirnir á föstudaginn í síðustu viku kollvörpuðu þess- um hugmyndum. Tugir þús- unda óbreyttra borgara tóku þátt í árásunum á bandaríska sendiráðið og bandarísku upp- lýsingaskrifstofuna, þar sem allt var brotið og bramlað og bandarísku starfsfólki mis- þyrmt. Bandarískir hermenn urðu fyrir árásum víða um borgina og liermenn* úr liði Sjang Kaiséks urðu að halda vörð um herbúðir Bandaríkja- manna til að koma í veg fyrir árásir á þær. Karl Rankin, sendiherra Bandaríkjanna 1 Taipeh, kvart- aði sérstaklega yfir því við Sjang Kaisék, að lögregla hans hefði látið greinilega íljós samúð með árásarmönnum. Lögreglusveitir hefðu staðið álengdar og ekki hafzt að með- an mannfjöldinn var að brjót- ast inn í sendiráðið. Vaxandi ýfingar I báðum deildum Bandaríkja- þings komu fram kröfur um að bandarískar hersveitir yrðu Menningar- og íriðarsamtök ísl. kvenna: Víg&unaðarkapplilaupinu sé tafarlaust hætt ÞjóSirnar krefjast friSar Á fundi, sem haldinn var í Menningar- og frið- arsamtökum íslenzkra kvenna var samþykkt að senda Heimsfriöarráðinu eftirfarandi álitsgerð: „Kapphlaupið um vígbúnað hlýtur að hafa i för með sér síaukna hœttu á styrjöld. Eina raunhœfa leiðin til að forðast heimsstríð er að stórveldin komi sér saman um afvopnun stig af stigi. Þess- vegna tökum við heils hugar undir álitsgerðir þeirra dr. Alberts Schweitzer og dr. Joliot Curie og þá kröfu heimsfriðarhreyfingarinnar, þá kröfu almennings í heiminum, að afvopnunarnefnd Sameinuðu þjóðanna gangi til samkomulags og stórveldin stigi nú þegar fyrstu sporin til af- vopnunar. Við krefjumst af þeim að vígbúnaðar- kapphlaupinu sé tafarlaust hætt, að samkomulag sé gert um að hœtta tUraúnum með vetnisspi'engj- ur og að þau geri nú þegar samninga um afvopn- un. Þjóðimar fordœma styrjáldarundirbúning. Þjóð- imar krefjast friðar.“

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.