Nýi tíminn


Nýi tíminn - 30.10.1958, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 30.10.1958, Blaðsíða 4
4) — NYI TÍMINN — Fimmtudagiir 30. október 1958 Ræða Björns Jónssonar — Framhald af 2. síðu. nokkur búsund tonn af frystri síld. Þá hefur fiskileit, skipu- lögð af s.iá.varútvegsmálaráðu- neytinu, skilað tugmilljónum í auknum afla. Kjör sjómanna tvívegis stórbœtt í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa kjör sjómanna tvívegis verið stórbætt með hækkuðu fiskverði og launum. Tvennar skattalækkanir til sjómanna hafa verið framkvæmdar, báta- sjómönnum verið tryggð full greiðsla orlofs til jafns við aðrar stéttir og lífeyrissjóður stofnaður fyrir togarasjómenn. Þetta hefur leitt til þess að sjó- mannastéttin, sem flýði skipin í tíð Ólafs Thors og ungir og vaskir menn aðrir una nú bet- ur á sjónum. í stað 1-2 þús. Færeyinga sem áður mönnuðu flotann eru nú komnir ungir menn og einnig á öll þau skip, sem til þéssa hafa bætzt í hóp- inn. Þetta haggar þó ekki því, að nú verður á allra næstu vikum að gera enn stórt átak til að bæta kjör sjómannastéttarinn- 'ar. hækka fiskverð til þeirra og laun að minnsta kosti til samræmis við hækkað verðlag og laun annarra stélta. Tekjur af framleiðslunni aldrei meiri Þetta eru nokkur atriði sem sýna ljóslega stórfellda efna- hagslega ávinninga, sem náðzt hafa siðustu tvö árin, í fullu samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarfiokkanna frá 1956, atriði sem varða mjklu um sjálfan grundvöliinn, sem heil- brigt efnahagslíf og framfarir verða að byggjast á: Fram- leiðslan hefur verið aukin meira cn áður eru dærni til á jafn stuttum tíma, og fullnægj- ándi markaðir tryggðir fyrir allar frarnlei'ðsluvörur. Hvert atvinnutæki hefur verið knú- ið til ý.trustu afkasta og stór- feíld atvinnuuppbygging verið framkvæmd víðsvegar um landið. Fólksfióttinn til Suður- nesja hefur vei’ið stöðvaður. Nýjar framieiðsiugreinar hafa verið efldar. Útgerðinni tryggð- ur fullnægjandi rekstursgrund- völlur. Kjör sjómanna hafa ver- ið bætt svo að unnt hefur ver- ið að manna allan fiotann ís- lendingum. I stuttu' máli: Tekj- ur þjóðarinnar af framleiðslu hafa aidrei verið meiri en nú. Við liöfum aldrei staðið nær því mark.i ;.ð hver högd gæti haft nýtiiegt verk að vinna. Gjaideyi issaik hefur aldrei ver- ið meiri og sp.arifé aldrei meira. Á fyrstu 7 mánuðum ársins 1957 varð iimstæðuaukn- ing í bönkum og sparisjóðum sámtals 141 milijón kr. en á sáma tíma i ár varð iunstæðu- aukniugin 310 millj. kr. eða irieira. en, helmingi meiri. Að sljkt sku’i gerast þrátt fyrir dvínantíi trú á sparnað sann- sr aðeins eitt: að atvinnutekj- Ur hafa aimennt váxið gífur- lega. Eru þetta nú merki þess að ailt sé að fara i kalda kol, að afkoma almennings og þjóð- arinnar sé á failandi fæti eins og íhaidjð vill vera láta? Skyldi þetta benda til þess að „ríkisstjórnin hafi reynzt vinn- andi stéttum versti böðull og þeim mun meiri, sem lengra hefur iiðið" eins og lesa mátti nú í vikunni í ritstjórnargrein annars aðalmálgagns stjómar- andstöðunnar? Ofar öllum öðrum efnahags- iegum ávinningum, sem náðst hafa rís landhelgismálið, sem nú er að nálgast fullnaðarsig- ur. Landheigismálið er okkar stærsta efnahagsmál í nútíð og framtíð. Fullnaðarsigur í því leggur hinn eina hugsanlega trausta grundvöll að tilveru þjóðarinnar sem efnalega og menningarlega sjálfstæðrar heildar. Án sigurs í landhelg- ismálínu verður allt annað í efnahagsmálum, hversu vel, sem þar er að unnið að ösku og hjómi. Ekki tekizt að tryggja stöðugt verðlag Eg hefi hér rætt sumt af því. sem bezt hefur farið úr hendi núverandi ríkisstjórnar og flokka hennar varðandi eína- hagsmálin, en ekki væri rétt að draga fjöður yfir það, sem miður hefur farið í þeim efn- um. Sú staðreynd er öiium ijós að það hefur ekki tekizt að tryggja stöðugt verðlag í landinu heldur hafa orðið stór- felldar verðbreytingar til hækkunar á öllum vörum, þjón- ustu og kaupgjaidi, Þegar ríkisstjórnin var mynd- uð eða örskömmu síðar gerði hún með fullu samþykki og i fuliu samráði við verkaiýðs- hreyfinguna djarfmannlegt á- tak til þess að stöðva dýrtið- arflóðið, sem hatursaðgerðir í- haldstns eftir verkfallið 1955 hafði hleypt af stað. Verðfest- ingarlögin, sem stöðvuðu ail- ar verðhækkanir um 6 mánaða skeið voru sett. Á Alþýðusambandsþingi í nóv. 1956 mótaði verkalýðs- hreylingin stefnu sína í efna- hágsmálum og lagði þar höf- uðáherziu á stöðvun verðbóig- unnar, uppbyggjngu atvinnu- lífsins og óskertan kaupmátt iaunanna. Við efnahagsaðgerð- irnar, sem nauðsynlegt reynd- ist að gera í des. þá um haust- ið með setningu laga um Út- flutningssjóð var í veigamestu atriðum tekið fullt tillit til al- þýðusamtakanna og vilja þeirr.a. Þessar aðgerðir voru að vísu ekki með öllu sársaukalausar fyrir launafólk, en þær tryggðu framleiðsluatvinnuvegunum starfsgrundvöll, án þess að stofnað væri til nýrrar verð- bólguþróunar eða stórfelidra verðhækkana á 'almennum neyEluvörum. Lækkun yerzl- unarálagningar var ákveðin, komið á ströngu verðlagseftir- liti, lagður stóreignaskattur á þá, sem riflegastan verð- bólgugróða höfðu hrifsað til sín og ýmsar aðrar ráðstafan- ir gerðar jafnhliða tekjuöflun til atvinnulífsins, sem voru til hagsbóta vinnustéttunum, Þessar ráðstafanir dugðu ekki — andstætt því sem menn höfðu ætiað og vonað — til þess að halda atvinnulifinu i gangi nema í rösklega eitt ár En þá var augljóst að til nýrra aðgerða þyrfti að grípa. Höf- uðorsakimar voru án alls vafa annarsvegar ófyrirsjáanlegur aflabrestur, san varð þess valdandi að útfiutningur minnkaði þrátt fyrir fulla nýtingu alira framleiðslutækja og hinsvegar óhagstæð skipt- ing innflutnings milli fjár- festingarvara og neyzluvarn- ings, að viðbættum þeim ár- angri, sem stjórnarandstaðan, íhaldið, óneitanlega náði í því að rifa niður það, sem upp hafði verið byggt. Þegar núgildandi iög um Út- fiutningssjóð voru sett á sl. vori gegndi nokkuð öðru máli um afsíöðu verkalýðshreyfing- arinnar, en tii hinna fyrri að- gerða núverandi ríkisstjgmar í efnahagsmálunum. Að vísu hefur þvi mjög verið haldið á iofti að mikill ágreiningur hafi verið um afstöðu samtak- anna, bæði innan 19 manna nefndarinnar og annars stað- ar. En það er ekki rétt nema að litlu leyti. Þær tiilögur sem þar komu fram í málinu bera þess ljósastan vott, að ágrein- ingur var ekki um grundvallar- atrjði. Allir voru sammála því, að með þessum ráðstöfunum væri í veigamiklum atriðum horfið frá þeirri verðstöðvun- arstefnu, sem þing A.S.Í. hafði mótað og fylgt hafði verið í meginatriðum af ríkisstjórn- jnni í hartnær 2 ár með þeim mikiisverða árangri að verð- sveiflur urðu mjög litlar það tímabil og mun minni vgrð- hækkanir en í flestum eða öli- um grannlöndum okkar. Al- þýðusamtökin óttuðust einn- ig, að þegar til reyndarinnar kæmi, stæðust útreikningar hagfræðinga ríkisstjórnarinnar ekki og verðhækkanir yrðu meiri og stórfelldari en þeir sögðu til um. Á hinn bóginn varð augum ekki lokað fyrir hví að nýrra aðgerða var þörf til þess að at- vinnulífið gæti haldist í fullu fjöri og þegar mál stóðu þann- ig að lokum, að ertgir' pólitísk- ir möguleikar vom á að ki»ýja fram aðgeröir í fuliu sainræmi við vilja alþýðusamtakanna varð niðurstaðan sú sð Al- þýðubandalagið féllst á þá millilc-ið, sem farin var. Rétt er og að muna það, að á sama tíma og efnahagsaðgerðirnar voru á döfinni voru stjórnar- flokkarnir að ráða íil hlunns því máli, sem meta varð öllu ofar — landhelgismálinu — og úrslitum þess á örlagastund hefði verið í voða stefnt, ef til friðslita hefði dregið út af efnahagsaðgerðunum. Nú er Ijóst, svo ekki verður um villzt að aðvörunarorð al- þýðusamtakanna ög Alþýðu- bandalagsins voru ekki að ó- fyrirsynju. Geysilegar verð- hækkanir hafa orðið, sem aft- ur hafa leitt af sér nauðvörn kauphækkana, framleiðslu- kostnaður útflutningsfram- leiðslunnar vex hröðum skref- um — sem fyrr eða síðar leiðir tij þess að nýiar millifærslur til hennar verða óhjákvæmi- legar, eignaskipting í þjóðfé- laginu raskast á óheilbrigðan og skaðlegan hátt.. tilhneiging skapast til óhóflegrar íjárfest- ingar en sparnaðarviðleitni minnkar að sama skapi, þjóð- íélagslegar umbætur m.a. þær, sem beztar hafa verið gerðar í tíð núverandi ríkisstjórnar, svo sem stofnun húsnæðis- málasjóðs og lifeyrissjóða og aðrar svo sem atvinnuleysis- tryggingar eru settar i stór- fellda hættu, því hvers virði verða slíkar sjóðsmyndanir, ef raunverulegt verðgildi þeirra vex lítið eða ekkert þrátt fyrir stöðuga greiðslu iðgjalda af almennings íé. Með slíkri þró- un breytist eðli þessara mik- ilvægu félagslegu umbóta úr þvi að vera trygging fyrir betri lífskjörum í skattheimtu á al- menning, en braskarar og skuldakóngar hirða ávinning- inn. Þessa öfugþróun verður að stöðva Það kann að vísu að vera að„ unnt sé, um takmarkaðan tíma, að ha’da uppi óskertum lífs- kjörum almennings þrótt fyrir vaxandi verðbólgu ef svo vel er haldið á atvinnumólunum, sem gert hefur verið nú um skeið, en það gerist þá með þeim hætti að verkalýðssam- tökin knýja fram stöðugar launahækkanir í kjölfar verð- hækkana, síðan keniur ríkis- valdið til skjalanna og ókveður nýja gjaldheimtu til atvinnu- veganna t>g svo koll af ko’li — en niðurstaðan verður sú að hinar efnahagslegu umtumanir verða æ tíðari með hinum alvarlegustu afleiðingum fyrir þjóðfélagið. Þessa öfugþroun verður að síöðva og það verður að vera sameiginlegt verkefni Alþing- is, ríkisstjórnar og verkalýðs- hrerfingarinnar á . íslandi að vinna það verk og það verður að hefjast nú þegar. Á þessari stundu liggur fyrir að kaupgreiðsluvúsitala er orð- in 198 stig eða 15 stigum hærri en reiknað er með í fjárlaga- frúmvarpinu og ljóst er að ein- hver hækkun því til viðbótar á eftir að koma fram. Að fjór- lagafrumvarpinu óbreyttu að öðru lejdi er þvi auðsætt að allháa upphæð skortir á tekju- liljð þess til að standast út- gjöld af þessum sökum. Síðan koma aukin útgjöld Útflutn- ingssjóðs, sem að vísu má reikna með að náist að r.okkru með aukinni framleiðslu og þar af leiðandi \-axandi inn- flutningi. Enn liggja engin fullnægjandi gögn fyrir um hina auknu fjárþörf Útflutn- ingssjóðs en fullvíst má þó telja að hún reynist óhjá- kvæmileg að öðru óbreyttu. Hvernig á að mæta þessum vanda, án þess að efnt sé til erm meiri almennra verðhækk- ana en orðnar eru eða orðnar verða um næstu áramót? Þessu til svars liggur hendi næst að athuga hv'ort öll þau útgjöld sem hér er um að ræða samtals að upphæð yfir 2000 niillj. kr. séu með öllu óhjá- kvæmileg og hvort þar megi ekkþ draga saman seglin s\ro um muni. Það ber hiklaasl; aö svara þeirri spurningu játandi. Það er unnt að spara margra tugmilljóna útgjö’d miðað við það íjárlagafrumvarp, sem hér liggur fyrir, bæði á rekstrarút- gjöldum ríkisbáknsins og einn- ig á fjárfestingarliðum. Það nálgast hreina fásinnu að rik- ið sjálft hlaupj í kapp við framleiðsluatvinnugreinamar um vinnuafl, sem skortur er á i í landinu til þess að halda uppi framkvæmdum, sem enga sér- staka nauð liða og snerta ekk- ert sjálft athafnalifið, Það er alkunna að fjárfesting á íslandi spennir efnahagsþol þjóðarinn- ar til híns ýtrasta. Um einn þriðji hluti allra þjóðartekn- anna eða meira er festur í framkvæmdum. Meðan ekki hefur tekizt að auka enn meira en orðið er framleiðslu og þjóðartekjur svo að þær geti hvort tveggja i senn staðið undir viðlíka fjárfestingu og nú á sér stað og jafnframt lagt grundvöll að batnandi lifs- kjörum — þá verður að tak- marka hana, svo sem frekast er unnt, við þa?r framkvæmd- ir, sem mestum arði íjkila í þjóðarbúið. En það er mikill misbrestur ó að svo sé. Fjár- festiug þjó§arinnar er að allt of miklu leyti hahdahófs- kennd, gerð án heildaryfirsýn- ar, mótuð aí hreppapólitík og stundum er hún beinlínis þjóð- hagslega skaðleg. Mýmörg dærni mætti nefna þessu tii sönnunar, smá og stór. Hér í höfuðborginni era t. d. þrjár risaspítalabyggingar í smíðum samtíinis og hafa verið um áraskeið. Hver fyrir sig kost- ar tugmilljónir króna og allar standa þær hálfkaraðar vegna fjárskorts og koma því engum að gagni. Hliðstæður þessa má finna á mörgum sviðum, 1 hafnarmál- um. vegamálum og víðar Þar sem hálfkaraðar framkvæmdir standa eins og háðsmerki á skynsamlegri og þjóðnýtri upp- byggingu meðan þjóðþrifa framkvæmdir, sem gætu skil- að tugum eða hundruðum milljóna í þjóðarbúið verða út- undan. Léleg hagíræði I leikmannsaugum verður það að teljast léleg hagfræði að nota ekki nú þegar fáanlegt erlent lánsfé til kaupa á tog- urum, t.d. þeim 15 sem ákveð- ið var í stjórnarsáttmálanum að kaupa, þar sem margsannað er, að engin atvinnutæki kom- ast nólægt. því að skapa þjóð- félag'inu jaínmikil verðmæti miðað við verð og vinnuafls- þörf. Það er staðreynd að hverjir 3 togarasjómenn draga að landi aflamagn sem uunið og útflutt gefur 1 milljón kr. í gjaldeyri ó ári miðað við skráð gengi eða 1.8 milljón með gjaldeyrisuppbót. Á sama tíma tíma og úr hömlu dregst að ráðast í tog- arakaup eru í uppsiglingu verksmiðjubyggingar fyrir allt að 100 millj. kr eða meira, sem m.a. er ætlað að framleiða til útflutíiing'S osta, sem gefa kr. 4,50 i gjaldeyri á hvert kg. eða ' minna en jafnþyngd í hraðfrj'stum fiski og þar á líka að framleiða smjör sem gefur kr. 7.50 fyrir sömu þyngdareiningu eða 1/10 af innanlandsverði. Hvor íram- kvæmdin mundj nú samræm- ast betur þjóðarhagsmunum? Það er fullvíst að það er unnt að mæia a.m.k. að mjög Framliald á 11. síðu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.