Nýi tíminn - 12.02.1959, Qupperneq 1
Gre/3/3
Nýja timanrs
ÚtbreiSiS
Ný}a timann
Föstada&ur 12. fébrúar 1959 — 18. árgangur — 6. tölublað.
Fyrsti dómur fyrir brot á 12
mílna fiskveiðilan dh eiginni
Skipstjórinn hlaut 74 þús. kr. sekt — lágmarkssekt! — Afli og
veiðarfæri gerð upptæk — en hann fékk að halda veiðarfærun-
urn. þvert gegn gildandi lögum!
Nýlega var kveðinn upp á Seyðisíirði íyrsti dómurinn fyrir brot á 12
mílna fiskveiðilandhelginni. Skipstjóri brezka landhelgisbrjátsins Valafells
var dæmdur í 74 þús. kr. sekt, greiðslu alls málskostnaðar og afli og
veiðarfæri gerð upptæk.
Það kemur mönnum mjög furðulega fyrir sjónir að togari þessi sem
10—12 sinnum hefur brotið 12 mílna landhelgina undir herskipavernd
skuli aðeins vera dæmdur í lágmarkssekt!
Þá vekur það ekki síður furðu að togaranum skuli sleppt út með veið-
arfærin, til þess að geta þegar hafið landhelgisbrot að nýju, þvert gegn
gildandi lögum, en þar segir svo í 6. grein:
„Aldrei má þó selja hinum seka uiptæk veiðarfæri".
innar innan 12 milna mark-
Fréttaritari Nýja tímans á
Seyðisfirði gímaði 7. febr. að
réttur hafi verið settur yfir
skipstjóranum á brezka land-
helgisbrjótnum Valafelli kl.
11,40 iþann dag. Verjandi hans
Gísli ísleifsson, fékk frest til
kl. 1 e. h.
Véfengdi 12 mílna fisk-
veiðilandhelgina
Rétturinn var settur aftur
kl. 1 e. h. og flutti þá verj-
andi landhelgisbrjótsins, Gísli
ísleifsson stutta vörn. Krafð-
ist hann sýknunar og til vara
að sakborningur yrði dæmdur
í vægustu sekt.
Véfengdi hann gildi bráða-
birgðalaga nr. 54 frá 28. ág.
1858 og taldi þau ekki hafa
hlotið staðfestingu' Alþingis.
Kvað hann kæruna bvggða á
ákvæðum um 12 mílna land-
helgi, sem hann véfengdi að
hefði fengið fullt giiði.
12 mílna mörkin gilda
Málið var síðan tekið til
dóms. — Skipstjórinn var ekki
viðstaddur uppkvaðningu dóms-
ins.
Safnað lianda að-
Skipstj. Valafells var dæmd-
ur fyrir ólöglega veiði 8,8 sjó-
mílur innan fiskveiðilandhelg-
innar. Þótt skipstjórirm hafi
viljað afsaka brot sitt með
þvi að hann hafi talið sig 7,5
milur frá landi þá hafi það
ekkert gildi hvort hami hafi
verið nokkrum mílum utar eða
anna.
Lágmarkssekt: 74 þús.
Skipstjórinn var dæmdur til
að greiða 74 þús. kr. sekt, all-
an sakarkostnað og afli og
veiðarfæri gerð upptæk. 7 mán-
Framhald á 11. síðu.
Hvað borðar stúlkan?
Alþýðublaðið birti fyrir nokknun dögum mynd af
stúlku og sagði að hún hefði sparað rúmar 20. kr.
á einum degi með því að borða fimm pund af
hveiti, heilt rúgbrauð, heilt franskbrauð, eitt pund
af smjöri, eitt kíló af súpukjöti, 2 kíló af kartöfl-
um, 1 kíló af osti, 1 kíló af molasykri og eitt kíló
af skyri og dreklm fjóra lítra af mjólk; myndi hún
geta sparaö sér kynstrin öll á ári með slíku áfram-
haldi! í gær segir blaðið svo að ekki háfi nú verið
ætlunin að stúlkan borðaði svona mikið á hverjum
dogi, en „með því að spara 15—20 kr. á dag í mat-
arkaup mundi hún spara vegna verðlækkananna
5500—7000 krónur á ári.“
Hér með skal skorað á Alþýðublaðið að birta lista
yfir hin raunverulegu matarkaup stúlkunnar —
fyrst ekki var aö marka upphaflega listann — og
sanna að meö þeim megi spara 15—20 kr. á dag
til jafnaöar eða allt að 7000 kr. á ári. Mun mörgum
þykja forvitnilegt aff sjá þann lista, auk þess sem
fólki veitir sannarlega ekki af aö fá slíkar leið-
beiningar þegar búið er að lækka launin um mm-
an áttunda hluta.
stanciendum
1 Danmörku er hafin fjár-
söfnun til styrktar vanda-
mönnum þeirra, sem fórust meö
Grænlandsfarinu Hans Hedtoft.
Þegar í gær hafði safnazt mik-
ið fé.
Y f irborgarst jórinn í Kaup-
mannahöfn hefur lagt til að
Kaupmannahafnarborg leggi
fram 100.000 krónur til þessar-
ar söfnunar.
íllÖlliF
j i n
'x-
fe LS »
llgfl....''
Ronald Pretious skipstjóri gengnr í réttarsalinn til ’yfirheyrslu. Verjandinn G’sli Isleifsson að baki honum. Yzt til vinstri
er dómarinn Erlendur Rjörnsson bæjarfógeti á Seyðisfirði. — Myndirnar tók Skúii Guimarsson, Seyðisfirði.
JBMÉÉÉ
iSs•
Seyðisfjörður. Varðslúpið Þór við bryggjupa (til vinstri á myndinni) o.g fyrir aftan hann íslenzkur togari, en brezki
landhelgisbrjóturitm Valafell liggnr úti á pollinum fyrir utan.