Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.02.1959, Blaðsíða 6

Nýi tíminn - 12.02.1959, Blaðsíða 6
6) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 12. febrúar 1959 NYi TIMINN * Útgefandi: Sósía 1 KtafIolíku r'vi11. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson. Áskriftargjakl kr. 50 á ári. T>að eru mikil tíðindi að nú hefur fyrsti brezki land- helgisþjófurinn verið færður iil hafnar og bíður dóms fyrir brot á reglugcrðinni um 12 irnílna fiskveiðilandhelgi við jsland. Um fimm mánaða íkeið hafa Islendingar háð árangurslausa baráttu við brezlku veiðiþjófana, þeim Laafa verið birtar kærur svo hundruðum skiptir, en brezk iierskip hafa með vopnavaldi komið í veg fyrir að unnt væri að fuilnægja íslenzkum Dögum. En nú er loksins kom- iið að þvi að brezkt skip verði áæmt samkvæmt reglugerö • inni nýiu og styrkir það að- gerðir íslendinga í landhelgis- málinu að sjálfsögðu til mik- illa muna. Jafnframt ber íslendingum að veita þvi athygli hvernig ’áessa fyrstu handtöku ber að: Eftir langt þóf saniþykkir Prezíka útgerðarfélagið, sem á •iogarann, að hann skuli h’ita r'yrirmælum ísienzku land- ifelgisgæzlunnar og halda til ’.iafnar og dóms. Og brezki fundurspillirinn, semnokkra 'iaga kom í veg fyrir að Þór hirti togarann, beitti sér nú fyrir því rið togarinn lilýddi lándhelgisgæzhinri og rak hann að lokum beinlínis til Seyðisfjarðar. Eru þessar að- ifarir býsna ólíkar því sem líðkaðist alit fram til síðustu áramóta og sýna að brezka stjórnin hyggur nú á breytt- ar baráttuaðferðir í átökum sf/num við Islendinga. Hver Lainn raunverulegi tilgangur er kemur glöggt í ljós í Skeyti :-em Reutersfréttasto.fan sendi írá sér í fyrradag, en þar segir svo m. a.: Sir Farndale Phillips hers- höfðingi forseti sambands þrezkra togaraeigenda sagði ■úýlega: „Eg fagna þv> að eigendur Valafells liafa tekið irumkvæðið því að reynia uð leysa á friðsamlegan hátt það mál sem togari þeirra hefur lent í við íslenzk yfir- völd“ .... Talsmaðu’r brezka utanrikisráðuneytisins lagði í iag áherzlu á það að ákvörð- unin um að láta Valafel] sigla -il hafnar væri tákn góðvilja l»rezkra togaraeigenda og sýndi að þeir væru reiðubún- ir að leita vinsamlegrar lausn- ar á núverandi vandainálum.“ Undanhaldið í sambandi við Va’afell er þannig af hálfu brezlcia útgerðarmanna jg stjómarvailda tilraun til þess a.ð koma á hinum lang- þráðu samningum við ís’end- :nga irn landliclgina, samn- ;ngum um r.ð íslcndingar sætti sig við eitthvað minna en 12 "iílur. Ýms fleiri atriði hafá ’acnt ti] þess að undanförnu að Bretar telji möguleika á sllkum samningum; þannig Liaftv bæði tpguracigendur og og stjórnarvöld í Bretlandi beitt sér gegn kröfunum um löndunarbann með þeim rök- um að nú þurfi umfram allt að fara vel að Islendingum- Er augljóst að þetta nýja mat Breta á rætur að rekja til stjórnarskiptanna; þar- lendir ráðamenn ímynda sér að með brottför Alþýðubanda- lagsins úr ríkisstjórn hafi opnazt möguleikar á samn- ingum um eftirgjafir af ls- lendinga hálfu. Hér skal eng- um getum að því leitt á 'hverju Bretar byggja slíkt mat en vafalaust er það runn- ið undan rifjum brezka sendi- ráðsins hér í Reykjavík og annarra aðila sem þykjast eitthvað vita um það sem gerist að tjaldabaki í íslenzk- um stjórnmálum. Oinn sérstaki tilgangur með * undanháldinu i sambandi við Valafell virðist vera sá að gefa tii kynna að bnezkir togaraeigendur séu reiðubún- ir til að viðurkenna „fjögurra mílna landhelgi“ — þar sé samningsgrundvöllurinn af þeirra hálfu! Sú afstaða þeirra markast m.a. af því að hér á landi hafa sumir tal- að um það sern eitthvað sér- stakt brot að togarinn Vala- fell skyldi staðinn að veiðum innan fjögurra mílna marka, en auðvitað eru öll brot innan 12 mílna markanna jafn al- varleg, og skipta línur sem innar kunna að verða dregn- ar engu máli í því sambandi. Toga.rinn Valafell verður þá að sjálfsögðu aðeins dæmdur fyrir brot á reglugerðinni um 12 mílur en ekki fyrir að brjóta einhverjar eldri reglu- gerðir, sem fallnar eru úr gildi. T|að er nauðsynlegt fyrir Is- * ilendinga að gera sér ljóst thver er tilgangur Breta með þvi að taka nú upp „mildari“ framkomu og svara öllum brögðum þeirra á réttan hátt. Einnig er nauðsynlegt að Bretum verði sagt það skýrt og skorinort að af íslendinga íhálfu verði aldrei samið um neina tilslökun frá 12 mílna landhelginni, hvaða baráttu- aðferðum og brögðum sem IBretar kunna að beita, hvort sem þeir viðhafa skefjalaust ofbeldi eða svokalLaðan „góð- vilja.“ Hvað svo sem Bretar telja sig kunna að vita um hugrenningar sumra íslenzíkra stjórnmálamanna, ber ]>eim að horfast i augu við þá stað- reynd að llslenzka þjóðin mun aldrei láta nokkrum manni haldast það uppi að skerða í neinu 12 mílna landhelgina. Þeim mun fyrr sem Bretar átta sig á þeirri staðrejmd, iþeim mun fyrr munu þeir láta af íhinni vonlausu og lög- lausu og siðlausu styrjöld sinni, við íslendinga. Brezkur forsætisráðherrcE fer í kosnmgdferðcslag til Moskva Harold Macmillan isv egar hinn framgjami öld- ungadeildarmaður Hubert Humphrey tryggði sér í vetur dögum saman rúm á forsíðum bandarískra blaða og í sjón- varpsdagskrám með maraþon- viðtali við Nikita Krústjoff, varð einhverjum keppinaut hans í Demókrataflokknum að orði. að þetta væri í fyrsta skipti sem bandarískt forseta- efni byrjaði kosningabaráttu sína á bæjarhellunni í Kreml. Nú er komið á daginn að fleiri vestrænir stjórnmálamenn en Humphrey telja sigurvænlegt að skréppa til Moskva þegar kosningar fai'a í hönd. í tæp þrjú ár eru forsætisráðherrar brezku íhaldsstjórnarinnar bún- ir að eiga heimboð í Kreml. Þir.gmenn Verkamannaflokks- ins eru mar'gbúnir að reka eftir Harold Macmilian að nota sér boðið, en hann hefur farið und- an í flæmingi þangað til nú. Nýlega tilkynnti brezki for- sætisráðherrann þingheimi, að hann hefði fyrir nokkru látið sovétstjórnina vita að sig fýsti að endurgjalda komu Búlganíns og Krústjoffs til Bretlands vor- ' ið 1956. Kremlverjar töldu sér ekkeil; að vanbúnaði ,að taka á móti honum, og nú hefur verið ákveðið að forsætisráð- heirann og Lloyd utanríkisráð- herra leggi af stað í austurveg 21. febrúar. ¥>rezkur forsætisráðherra hef- ur aldrei áður heimsótt Sovétríkin á friðartímum, og sú var tíðin að það hefði verið pólitískt sjálfsmorð fyrir brezk- an íhaldsforingja að sækjast eftir gistivináttu bolsévika. Nú er svo komið áð Harold Mac- William 'Fulbright millan hyggst hressa við sigur- hörfur flokks síns í þingkosn- ingunum sem í hörid fara með því að skreppa austur á Volgu- þakka og skáia við Krústjoff. íhaldsstjórnin stefnir að Þing- kosningum í Bretlandi í maí í vor. Unanfarið hefur gætt frá- hvarfs kjósenda frá íhalds- flokknum vegna vaxandi at- vinnuleysis, nýlenduerja og annars mótgangs. Þegar þannig stendur á telur Macmillan snjallasta ráðið tii að vinna traust þrezkra kjósenda að faia til Moskva og taka þar ,upp viðræður við sovézka stjórnmálamenn um heims- vandamálin. |7ramtíð Þýzkalands verður ■*■ efst á blaði í viðræðum brezku og sovézku ráðherranna. Allt frá því Anthony Eden bar frarn tillögu um afvopnaAbelti í miðju Þýzkalandi hefur brtzka íhaldsstjómin haft nokkra sérstöðu meðal Vestur- veldanna í því máli. Innan I- haldsflokksins eru öfl, sem telja að brezk utanríkisstefna eigi að miða að þvi að hindra að Þýzkaland verði öflugt her- veldi á ný. Þessa skoðun að- hyllist hópur íhaldsþingmanna undir forustu Hinchingbrooke lávarðar, og hún er túlkuð í blöðum Beaverbrooks lávarð- ar. Verkamannaflokkurinn hef- ur lýst sig andvígan kjamorku- hervæðingu Vestur-Þýzkalands og borið fram tillögu um tak- mörkun vopnabúnaðar í Mið- Evrópu, sem í mörgu svipar til Rapackiáætlunarinnar, sem kerrtd er við utanríkisráðherra Póilands. í þessari viku báru 44 Verkamannaflokksþingmenn fram þingsályktunartillögu, þai sem skorað er á brezku stjórnina að viðurkenna Þýzka alþýðuríkið og beita sér fyrir því að myndað verði ríkja- bandalag beggja þýzku ríkj- anna. Times hgfur í forustu- greinum deilt á ríkisstjórn Adenauers, í Vestur-Þýzkalandi íyr{r að hafa í frammi landa- kröfur á hendur nágrannaríkj- unt Þýzkalands og skorað á Vesturveldin að athuga gaum- gæfilega hugmyndina um þýzkt ríkjabandalag. illögár áövétstjómarinnar unv /Berlínbog friðarsamn- ing við Þýzkaland hafa komið Vesturveldunum í vanda. Stjómir Bandaríkjanna og Bretlands geta ekkj sagt þvert nei vegna almennjngsáiitsins heima fyrir og erlendis, sem er þreytt á kalda stríðinu og vill að stórveldin gangi til samn- inga Eigi samningar að bera einhvern árangur verða vest- urveldin að sýna lit á tilslök- unum, koma i einhverju til móts við sovézku tillögurnar, en á slíkt má Adenauer ekki heyra minnzt. Lífakkeri yfir- ráða hans í Vesfur-Þýzkalandi er valdstefnan, að V.esturveldin eigi að hervæðast þangað . til þau séu fær um að setja Sovét- ríkjunum úrsIitakösti Nú við- urkenna allir nema öljlungur- inn í Bonn og nánustu sam- starfsmenn hans að valdstefn- an hefur beðið skipbrot..Dulles og Macmillan hafa báðir horf- ið frá þeirri kröfu Vesturveld- anna að almennar kosnipgar verði að vera upphaí samein- ingar Þýzkalands. Engjnn veit hve langt undanhaldið kann að verða hjá Dulles, sem nú verður að taka nokkurt tjllit til vilja skæðasta andstæðings sín.s á þingi, Wiliiams Fúlbr- ights, sem er nýorðinn formað- ur hinnar voldugu utanríkis- málanefndar öldungadeildar- innar. Fulbright hefur stungið upp á því að Bandaríkin fallist á að erlendir herir' hverfi frá markalinunni miUi þýzku rikj- anna Hann hefur einnjg hvatt Bandaríkjastjóm til að athuga austurþýzku tiUöguna um þýzkt ríkjabandalag. Mans- field, annar áhrifamesti demó- kratinn í utanríkismálanefnd öldungadeildarinn.ar,. sagði á þingi fyrir noklcrum dögum: „Það er ekkert á móti því að bandarískar hersveitir yfirgefi Berlín og siðan allt . Þýzká- land“. Embættisrncnp j bandp- ríska utanríkisráðuneytinu hafa látið . hafa eftir sér, að þeir telji sjálfsagt að V.estur- veldin bjóðist til að hætta.víð að kjarnorkuhervæða ,■ Yestur- Þýzkaland.og kynni sér á. þann hátt hve. langt Sovétríkin séu • Framhald á_ll, sjðu. ’

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.