Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.11.1959, Side 6

Nýi tíminn - 19.11.1959, Side 6
6) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 19. nóvember 1959 NYI TIMINN Útgefandi: Sósíalirtaflokkuibni. RÁtstjóri og ábyrgðarmaður- Ásmundur Sigurðsson. Áskriftargjald kr. 50 á ár». /----------------------------------- Samvmniihreyfingin ber ekki ábyrgð á hermangshneykslunum ¥»egar Framsóknarflokkurinn reynir nú með öllum ráð- um að gera sem lengst á milli sín og Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga annarsvegar og stórhneyksla oiíufélaganna er rétt að minnast þess, að svo hefur ekki verið fram að þeim tíma að nokkur hluti hneyksl- anna var unpvís orðinn. í nýj- ustu ,,fræðslubókinni“ sem Samband íslenzkra samvinnu- félaga lét áróðursstjóra sinn rita og gefin er út á kostnað samvinnumanna er rík áherzla lögð á hve hlutafélög þau er . stofnuð hafa verið undir vernd- arvæng Sambandsins séu ná- tengd því. Svo langt er geng- ið að reynt er að telja fólki trú um að það skipti svo sem engu máli að þessum félögum er valið hlutafélagsform en þau ekki rekin með samvinnusniði, cg það taiin sérstök trygging íyrir heiðarleik beirra að menn úr innsta hring Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga veiti þeim forstöðu! Tlfleð sérstakri velþóknun er þannig t.d. fjallað um Olíu- félagið h.f. og Hið íslenzka steinolíuhlutaféiag í bók Bene- clikts Gröndals „íslenzkt sam- vinnustarf“, og miklast yfir íjárplógsstarfsemi þeirra. „I>að kom í ljós að olían á Keflavík- urflugvelli var allarðvænleg á íslenzkan mælikvarða, enda telja Ameríkumenn eðlilegt að fyrirtæki skili liagnaði, en hættulegt að þau geri það ekki“, segir í þessari fræðslu- bók um „samvinnuhreyfinguna" á íslandi, og síðar er því lýst, hvernig „Keflavíkurféð var plægt inn í starfsemi félagsins og hefur gert því kleift að byggja upp miklar olíustöðvar og dreifingarkerfi um land allt“. Ðálítið einkennilegur hijómur verður óneitanlega í þessari Jræðslu um „samvinnustarf" eftir að u.ppvís eru hin stór- felldu lögbrot og misferli for- ráðamanna olíufélaganna ein- mitt í sambandi við starf þeirra á Keflavíkurflugvelli, lögbrot sem unnin eru í samvinnu við stjórn hins erienda heriiðs í landinu. Samvinnustarf er það að sjálf- sögðu ekki, auðgunar- og lögbrotaferill þessara hlutafé- l^ga, óskabarna afturhalds- Híku Vilhjálms Þórs og Ey- .'“eins Jónssonar. Það er háðung og óþokkaskapur við samvinnu- hugsjónina í landinu að vera að nudda samvinnumönnum upp i'ir þessum fyrirtækjum. en það er óspart gert í umræddu ,.fræðsluriti“ Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga. Stofn- tm auðbraskarafélaga af hálfu )j;Safflþ§öj}g^Ásl. /fSajBvin0Wjjf|pga,>, ásamt burgeisaklíkum Sjálf- stæðisflokksins er hin versta og svívirðilegasta misnotkun á samvinnuhreyfingunni, að reyna að gera hreyfingur\a siðferði- lega ábyrga fyrir braskara- hlutafélögum sem auðmenn Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins mynda milli sín til þess að raka saman her- mangsgróða. Og það er langt frá því að vera samvinnustarf að „plægja“ illa fenginn gróða af Keflavíkurflugvelli inn í rekstur slíkra félaga. Jafnfrá- leitt er að teija íslenzkum sam- vinnumönnum trú um að Fram- sóknarforstjórarnir, gegnsýrðir af auðshyggju og lúxuslífi, séu trygging fyrir því að hlutafélög þessi séu rekin á heiðarlegan hátt, en verði ekki til að gefa andstæðingum samvinnustefn- unnar höggstað á hreyfingunni, séu þau eitthvað við hana orð- uð. Svo hlálega vildi til að nauðsyn þótti að fjarlægja tvo af forstjórum þessara ágætu „fyrirtækja samvinnumanna“ áður en bókin kom út, sem taldi starf þeirra algera trygg- ingu fyrir því að hlutafélög þessi væru heiðarlega rekin, og í anda samvinnuhugsjónarinn- ar! Þarna hefur átt sér stað hin stórkostlegasta misnotkun afturhaldsklíku Vilhjálms Þórs og Eysteins Jónssonar á sam- vinnuhreyfingunni. Þessi aftur- haldsklíka Framsóknarflokksins hefur af fullkominni ósvífni notað Samband íslenzkra sam- vinnufélaga til þess að kaupa sig inn í auðsöfnunarkh'kur Sjálfstæðisflokksins og her- mangsins, enda þótt að því hlyti að koma að hin stórfelldu lögbrot og misferli í rekstri þessara auðfélaga kæmust upp, og yrði notuð til ómaklegra árása á samvinnuhreyfinguna. En auk þess að færa burgeisum Framsóknarflokksins ofsagróða og það lúxuslíf sem orðið er efni í þjóðsögu meira að segja í Reykjavik, hefur sam- vinnuhreyfingin með þessu móti verið misnotuð til að kaupa afturhaldsklíku Fram- sóknarflokksins pólitíska samn- ingaaðstöðu við auðbraskara- klíkur Sjálfstæðisflokksins, en undir hefur róið bandaríska auðvaldið, sem reynt hefur að treysta herstöðvarnar og að- stöðu til framtíðargróða á ís- landi með því að tengia sem flesta hagsmuna- og spillingar þræði milli afturhaldsmanna Framsóknar og íhalds. Þetta .pólitíska brask með samvinnu- hreyfinguna verður að hætta eigi hún að geta haldið virð- ingu sinni sem heiðarleg al- þýðuhreyfing og sótt fram sam- kvæmt hugsjónum mannanna, er mótuðu hana í byrjun. Sam- vinnuhreyfingin hlýtur að gera , hreint f íyrir,, BÍaum - <Jyru nv. og- sýna alþjóð að hún ber ekki ábyrgð á hermangshneykslum Framsóknarbraskaranna. W Osamkomulag Vesturveldanna æðstu manna Hverju skyldi Eisenhower vera að hvísla að Krústjoff? tefur fund egar Krústjoff og Eisen- hower skildu í Washing- ton fyrir hálfum öðrum mán- uði, voru þeir sammála um að efna bæri hið fyrsta til fundar æðstu manna Sovét- ríkjanna og Vesturveldanna til að ræða aðkalla:. ' li vanda- mál. Á fundi Eisenhowers með fréttamönnum daginn eftir að Krústjoff lagði af stað heim á leið, var að heyra að hann byggist við að fundurinn yrði haldinn öðru hvoru megin v:ð ára- mótin. Sama sinnis var Har- old MacmiHan, sem sagði brezkum kjósendum rétt fyr- ir kosningarnar, að ekkert væri eftir annað en að á- kveða fundardaginn. Nú er komið í ljós, að löng töf verður á fundi æðstu manna. Af honum getur varla orðið fyrr en í maí í vor. Ástæðan er að forustumenn Vestur- veldanna hafa ekki enn getað komið sér saman um hvað ræða skuli á fundi æðstu manna né hvernig þar slculi halidið á málum af þeirra hálfu. Undirrót þessa ósam- komulags er svo aftur tog- streitan milli núverandi stjórna Bretlar.ds, Frakk- lands og Vestur-Þýzkalands um forustuna í Vestur-Ev- rópu. Adenauer forsætisráðherra hefur aldrei farið dult með að hann hefur óbeit á fundi æðstu manna og þykir því betra sem hann dregst lengur. Hann mun ekki fá sæti á slíkum fundi, og telur að samkomulag sem þar kunni að nást um mál Ev- rópu hljóti að verða á kostn- að Vesur-Þýzkalar.ds. Gamli maðurinn í Bonn trúir enn á va'dstefnu Dullesar, þótt Eis- enhower hafi skilið við hana og leggi nú orðstír sinn að Cliarles de Gaulle veði fyrir því að unnt reyn- ist að koma sambúð Sovét- ríkjanna og Vesturveldanna í skaplegt horf. Eins og oft ~ áður-reynir Adenauer að fá Bandaríkjastjórn ofan af því sem honum er ekki að skapi. Hingað til hefur þetta tekizt oftast nær, en nú er við rammari reip að draga en nokkru sinni fyrr. Banda- ríkjastjórn hefur nefnilega á- Harohl Macmillan kveðið að taka upp af alvöru samninga við Sovétríkin, og því fær hvorki Adenauer né nokkur annar bandamaður hennar breytt með fortölum einum. En hann, reynir samt. Rétt fyrir mánaðamótin hélt Adenauer ræðu í Baden-Bad- en. Þar hafði hann í hótunum um að vesturþýzka stjórnin myrdi ekki sætta sig við samkomulag ,,sem ekki sam- rýmist þýzkum hagsmunum“. Jafnframt lét hann það álit í ljcs, að á fundi æðstu manna ætti einungis að ræða arvopnun, en alls elcki stöðu Berlínar né önnur Þýzka- landsmál. þi'rafan um að forustumenn fjórve'danna ræði ekki Þýzkalandsmál, er til einskis annars fallin en koma í veg fyrir að af fundi þeirra verði. Eisenhower hafði einmitt heitið Krústjoff því í Camp Davld, að staða Berlínar skyldi rædd á fjórveldafundi. Síðan hefur Eisenhower við- urkennt, að þar sé þörf breytinga sem samrýmist hagsmunum allra sem hlut eiga að máli „einnig Austur- Þjóðverja og Sovétríkjanna“. Olnbogaskotum Ailenauers svaraði Eisenhower á síðasta fundi sínum með fréttamönn- um með því að láta orð liggja að því við fréttamenn, að ú und'rbúningsíundi forustu- manna Vesturveldanna undir fund æðstu manna myndi vesturþýzki forsætisráðherr- ann einungis fá að vera við- staddur þegar rætt yrði um mál Þýzkalands. Þessi fund- ur verðUr settur í París 19. desember. Stjórn'r Bar.daríkj- anna og Bretlands gerðu sér vonir um að ekki löngu síðar gæti orðið af fundi æðstu manna, en nú hefur de Gaulle ónýtt þá fyrirætlun. TJins og Adenauer vi1! de ^ Gaulle að fundur æðstu manna dragist, en ástæður hans eru aðrar. Frá því hers- liöfð:nginn tók við völdum í Frakklandi á ný, hefur hann stefnt markvisst að því að auka veg og vald Frakklands innan samtaka Vesturveldanna. Hann hefur lagt til að komið verði á þríveldastjórn þess, Bandaríkjanna og Bretlands, •iVpmhslrl á 1 siðu Konrad Adenauer j

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.