Nýi tíminn - 24.03.1960, Qupperneq 1

Nýi tíminn - 24.03.1960, Qupperneq 1
i»ii[fiimiiiiii«Hiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiin Kauplb Nýja tírnann lllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Yl TIMINN M111111111111111111 ■ 11111111II11111111111II Kaupið Nýja tímann í immtudagur 24. marz 4960 — 19. árgangur — 12. tölublað. L iillilllililllllllltllllllillllllllllllllllllll 12. þingi Sósíalistaílokksins lokið St}órnmálaályktun samþykkt einróma - Einar Olgeirsson endurkjörinn formaÖur; Lu&vik Jósepsson varaforma&ur 12. þingi Sameiningar- flokks alþýöu — Sósíalista- flokksins er lokiö — Á lokafundinum var fjallaö um stjórnmálaályktunina og hún síðan samþykkt í einu hljóði; verður hún birt í næsta blaði. Síöan var kosin stjórn fyrir flokkinn á næsta kjör- tímabili; var Einar Olgeirs- son endurkjörinn formaöur og Lúðvík Jósepsson vara- formáður í einu hljóði og þeir hylltir af þingfulltrú- um. 1 miðstjórn, sem nú er skip- uð 33 fulitrúum, voru þessi kjörnir auk formanns og vara- f ormanns: 'Ad.da Bára Sigfúsdóttir, Ársæli Sigurðsson, Asgeir Bl. Magnússon, Ásmundur Sigurðsson, Benedikt Davíðsson, Björn Bjarnason, Björn Jónsson, Brynjóllur Bjarnason, Jiðvarð Sigurðsson, Eggert Þorbjarnárson, Guðmundur Hjartarson, Guðmundur J. Guðniundsson, Guðinundiir Vigfússon, Gunnar .Jóhannsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Hannes M. Stepliensen, Ingi K. Hélgason, Jón Kafnsson, Karl Guðjónsson, Kristinn E. Andrésson, Kristján Andrésson, Magnús Kjartansson, Margrét Auðiuisdóttir, Ólafur Jónsson, Kagnar Ólafsson, Sigurður Guðgeirsson, Sigurður Guðnason, Snorri Jónsson, Stefán O. Magnússon, Stefán Ögmundsson, Steinþór Guðmundsson. Varamenn í miðstjórn voru kjörnir: 1. Gísli Ásmundsson, 2. Tryggvi Emilsson, 3. Björn Þorsteinsson, 4. Geir Gunnarsson, 5. Jónas Árnason, 6. Böðvar Fétursson, 7. Nanna Óiafsdóttir, 8. Sigurður Guðmundsson, 9. Magrét Sigurðardóttir, 10. Einar ögmundsson, 11. Hólmar Magnússon, 12. Hulda Ottesen, 13. Steingrímur Aðalsteinsson. I flokksstjórn fyrir Suður- land voru kjörnir: Guðmundur Jóhannesson, Gunnar Benediktsson, Hermann Jónsson, Hjalti Þorvarðarson, Hjörtur B. Helgason, Sigurbjörn Ketilsson, . Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Stefánsson. Varamenn fyrir Suðurland voru kjörnir: * 1. Geir Jónsson, 2. Oddbergur Eiriksson, 3. Lárus Ilalldórsson, 4. Halldór Þorsteinsson. í flokksstjórn fyrir Norður- land voru kjörnir: Arnór Kristjánsson. Elísabet Eiríksdóttir, Friðjón GuÖmundsson, Einar Olgeirsson Guðrún Guðvarðardóttir, Haukur Hafstað, Jóhann Hermannsson, Jón Ingimarsson, Olgeir Lúthersson, Tryggvi Helgason, Þóroddur Guðmundsson, Þorsteinn Jónatansson. Varamenn fyrir Norðurland voru kjörnir: 2. T.árus Guðmundsson, 3. Ragnar Þors.teinsson. 1 flokksstjóm fyrir Vest- urland voru kjörnir: 1. Einar M. Albertsson, Albert Guðmundsson, Halldór Ólafsson, Ingimar Júlíusson, Skúli Guðjónsson. Varamenn fyrir Vesturland voru kjörnir: * 1. Guðmundur Amason, 2. Friðgeir Magnússon. 1 flokksstjórn fyrir Austur- land voru kjörnir: Alfreð Guðnason, Benedikt Þorsteinsson, Bjarni Þórðarson, Jóhannes Stefánsson, Steinn Stefánsson, ■ Þórður Þórðarson. Varamenn fyrir Austurland voru kjörnir: 1. Aðalsteinn Halidórsson, 2. Þorsteinn Þorsteinsson. Þeir Björn Kristmundsson og Björn Svanbergsson voru kosnir endurskoðendur flokks- reikninga og Sigurður Baldurs- son til vara. Fundir voru á flokksþinginu allan laugardaginn og fram á nótt. Voru umræður miklar og tóku margir þingfulltrúa til máls. Lauk umræðum um stjórnmálaályktunina um eitt- leytið og var henni þá visað til stjórnmálanefndar. Á sunnudag hófust þing- fundir kl. 1.30 en þingnefndir Lúðvík Jósepsson höfðu starfað um morguninn og héldu nefndarstörf áfram allan sunnudaginn jafnframt hinum almennu umræðum. Reikningar flokksins og fjár- hagsáætlun voru samþykkt ein- róma. Rætt var um bætt tækni- skilyrði Þjóðviljans og blaðið almennt. Þá voru á sunnudag* afgreiddar ályktanir og tillög— ur varðandi verkalýðsmál* menningarmál, landbúnaðar—- mál, sjávarútvegsmál, iðnaðar— mál, málefni kvenna, æskulýðs— mál og fleira, og mun nánar“- skýrt frá ályktunum og tillög—«* um á næstunni. ★ Flokksþingið samþykkti aö senda Sigursveini D. Iíristins- syni tónskáldi heillaóskir. Og þingfulltrúar hylltu Frimaim‘: Einarfison, fulltrúa Sósíalista- félagsins á Se’fossi, en hann átti sjötugsafmæli í gær. Mikílvægt þing 1 lok þingsins þakkaði Þór' oddur Guðmundsson þingfor- seti fulltrúum ágæt störf og,, góða samvinnu, en fonnaður flokksins, Einar Olgeirsson, flutti siðan lokaræðu. hakkaði hann sérstaklega fulltnúnn d:t- 1 an af landi fyrir hina'-ágætu ■ þátttöku þsirra í þinginu, framlag þeirra nú sem fyrr til að efla Sósíalistaflokkinn og auka áhrif hans. Einar kvaðst telja störf þessa flokksþings mikilvæg og árangursrík, það mundi gera flokkinn hæfari til þess að leysa þau stóru verk- efni sem framundan bíða í þjóðmálabaráttunni. Að lokum risu þingfulltrúar úr’sætum og' sungu alþjóðasöng verkalýðs- ins. - *iWp mm Falsaði gjaldeyrisleyfi fyrir hálfa milljón króna á tæpum þremur árum Nýl. barst Nýja tímanum skýrsla frá Guðmundi Ingva Sigurðssyni, fulltrúa sakadómara, um rannsókn á máli starfsmanns Innflutningsskrifstofunnar, Reynis Þor- grímssonar, en hann var kæröur fyrir misferli í starfi í júní í fyrra og hófst málsrannsóknin í sama mánuði. í skýrslunni segir, að Reynir hafi ráðizt ungur til starfa hjá innflutningsskrifstofunni. Starf- aði hann fyrst sem aðstoðarmað- ur, en um mitt ár 1956 var hon- um „falið að annast undirbúning og umsjón með öllum leyfisveit- ingum fyrir námskostnaði, ásamt færsiu spjaldskrár yfir slík leyfi“. Var Reynir tæplega tví- tugur að aldri er þetta gerðist. Haustið 1958 var honum einnig falið að undirbúa umsóknir og leiðbeina umsækjendum um bíl- leyfi. í fjarveru Reynis vorið 1959 kom í ljós, að námsmannagjald- eyrisleyfi fannst ekki skráð í spjaldskrá. Var farið að athuga málið og kom í ljós að 68 slík leyfi, sem gefin höfðu verið út á því tímabili, sem Reynir sá um þau, þóttu grunsamleg. Var málið kært til sakadómara 13. júní 1959 og Reyni jafnframt sagt upp starfi. Við heimkomu Reynis, sem var eriendis. 5 dög- um síðar hófst rannsókn máis- ins. Segir svo í skýrslunni um niðurstöðu hennar: „Af þeim 68 yfirfærslum, sem til kæru leiddu, virðist allt vera með felldu um 5 yfirfærslur. Reynir virðist því hafa i rösk- lega 60 tilfeilum fengið forstöðu- menn innfiutningsskrifstofunnar til að samþykkja umsóknir um yfirfærslu á gjaldeyri vegna námskostnaðar andstætt reglum um úthlutun gjaldéyris til náms- manna. Oftast bar hann sig þannig að við þetta, að hann bjó til námsmenn og notaði þá ýmist nöfn kuhningja sinna eða tilbúin nöfn. Önnur skipti útveg- aði hann raunverulegum náms- mönnum aúfcayfi'rfairslúr'eáa afl- aði sér persónulega yfirítersla út á leyfi námsmanna, sem þegar--- höfðu fengið það sem þeim bar„ Með þessu móti fékk hann for— stöðumenn innflutningsskrifstof— unnar tii að samþykkja umsókn— ir um gjaldeyrisleyfi sem námu samtals að fjárhæð um kr. 500.000.00 fyrrnefnt tímabil. Er þá lagt til grundvallar ieyíis- fjárhæðir. Eftir 30. maí 1958 var innheimt 30% yfirfærslugjald til útflutningssjóðs af leyfisfjárhæð- um. Reynir fór hægt í sakirnar í fyrstu, en gerðist æ frekari til fjárins. er stundir iiðu. Stór hluti þess gjaideyris. sem fenginn var með þeim hætti. er*- aþ framan er lýst, rann óskipt-*.. ur til ýmissa manna, sem voriaj Reyni meira eða minna k'unnug— ir, þannig að Reyni skein ekkB gott af. Þar virðist fyrst ogr fremst hafa ráðið greiðasemi og lipurð við galdeyrisþurfandii ferðalanga. í öðrum tilvikuirt virðist Reyni hafa gengið til hagnaðarvonin ein saman. Hanimg^ notaði hluta þess gjaldeyris, sem^^\ i Framhald á 11. síðu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.