Nýi tíminn - 24.03.1960, Síða 6
<>) — NÝI TÍMINN -- Fimmtudagur 24n marz 1960
NYI TIMINN
CTtgpfs»i)ál: Sósíalhtaflokkui'nn.
* Ritstjóri og á bgðannaður • A,sinur.diir Sigurðsson.
Áskriftargjald kr. 50 á ári.
ar er „varnar
Stjórnarstefna til ófarnaðar
Ijegar Gunnar Thoroddsen f jármálaráðherra
lýsti því yfir í þingræðu fyrir nokkrum dög-
um að það væri stefna ríkisstjórnar Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflokksins að koma íslandi
á næstunni inn í fríverzlunarsamtök Vestur-
Evrópu, fékkst staðfesting á því sem þingmenn
Alþýðubandalagsins hafa hvað eftir annað bent
á að væri einn megintilgangur hinna nýju efna-
hagsráðstafana. Áhugi erlendra stjórnmálamanna
fyrir leiðum íslands í efnahagsmálum og þau
beinu áhrif sem erlendar auðvaldsstofnanir og
Atlanzhafsbandalagið hafa haft á stefnu núver-
andi ríkisstjórnar beinist að því fyrst og fremst
að eyðileggja hin miklu austurviðskipti sem Is-
lendingar hafa haft undanfarin ár, gera með því
Ísland ósjálfstætt efnahagslega og innlima það
í kreppukerfi auðvaldsins í Vestur-Evrópu og
Ameríku. Mpnn eins og Birgir Kjaran og Gunnir
Thoroddsen fara ekki dult með þessar fyrirætl-
anir, sem hlytu að þýða stórfelld markaðsvand-
ræði, samdrátt framleiðslu og atvinnuleysi á ís-
landi. Hins vegar er Gylfi Þ. Gíslason látinn
< n.h gefa um það yfirlýsingar á Alþingi að ríkis-
stjórnin sé öll af vilja gerð að viðhalda austur-
viðskiptunum. Geta menn gert það upp við sig
hver og einn hvor aðilinn muni fara nær því að
túlka stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu mikilvæga
máli.
í þessum umræðum á Alþingi bentu þeir Einar
* Olgeirsson og Lúðvík Jósepsson á hve alvar-
legar afleiðingar framkvæmd þessarar stefnu rík-
isstjórnarinnar hlyti að verða fyrir atvinnlíf ís-
lendinga og lífskjör allrar alþýðu á Islandi.
Lúðvík spurði ráðherrann hvort hann hefði gert
sér grein fyrir því, hvernig íslendingar ættu að
selja afurðir sínar, þegar ríkisstjórnin væri búin
áð innlima landið í þessi fríverzlunarbandalög
Vestur-Evrópu. íslendingar hefðu reynt allt hvað
þeir hefðu getað að selja útflutningsvörur sínar
á svæðum þessara fríverzlunarbandalaga, meira
að segja hefðu verið hafðar strangar hömlur á
í því skyni að knýja íslenzkg framleiðendur til
að selja á þessum svæðum allmikið af fram-
leiðslu sinni fyrir miklum mun lægra verð en
þeir gátu fengið fyrir það annars staðar. „Er
það kannski pieining ráðherrans að við eigum
að taka á okkur þann bagga,^ sel^J,gll§rr
hraðfrysta fiskinn', sem 'við nú seljum utan
þessara svæða, til fríverzhmarlandanna, fyrir
miklu lægra verð en við höfum hingað til talið
• okkur kleift?“ spurði Lúðvík. „Ríkisstj'órnin hef-
ur gengið langt í þessu síðustu mánuðina með
því að knýja íslenzk fyrirtæki til að selja afurð-
ir inn á þessi fríverzlunarsvæði við svo lágu
verði að fyrirsjáanlegt er að bau geta ekki með
því móti borið reksturskostnað sinn og haldið
eðlilegum rekstri áfram.“ Varaði Lúðvík ríkis-
stjórnina við að rígbinda- ísland við fríverzlunar-
svæðin, og stefna þjóðinni í það öngþveiti að
eiga ekki í önnur hús að venda með afurðir sínar..
'C’átt varð um svör, og mun samráðherrunum
1 hafa þótt Gunnar óþarflega lausmáll um
þetta stefnumál ríkisstjórnarinnar. Mikill meiri-
hluti þjóðarinnar skilur að með því að eyðileggja
austurviðskiptin og innlima ísland í kreppukerfi
Vestur-Evrópu er verið að stefna markaðsmálum,
atvinnumálum og efnahagslegu sjálfstæði ís-
lenzku þjóðarinnar í stórhættu. Gegn þeim fyrir-
ætlunum ríkisstjórnarinnar verður þjóðin að rísa
áður en það er um seinan. — s.
Islendingur sem staríar á Keflavíkurflugvelii
hefur sent þættinum „Djúpir eru íslands álarv‘ eftir-
íarandi grein. Þar er hlutverki og háttum Banda-
ríkjahers á íslandi lýst af miklum kunnugleik. Bent
er á hin breyttu viðhorf bandarísku herstjórnarinn-
ar sem koma fram í umskiptunum á Keflavíkur-
ílugvelli, brottför landhersins og fyrirhugaðri komu.
sjóliða í staðinn.
Þeir stjórnmálaflokkar, sem
hafa leyft setu Bandaríkjaílug-
hers á Keflavíkurflugvelli og
víðar um landið hafa jafnan
fullyrt við landsmenn, að brýn
nauðsyn bseri til þess að hafa
þetta svokallaða „varnarlið“ í
landinu til þess að vernda
eignir og líf fslendinga ef til
styrjaldar kæmi milli austurs
og vesturs. Hefur í því sam-
bandi verið gert mikið úr ófrið-
arhættunni í heiminum á hverj-
um tima t.d. Kóreustyrjöldinni
og uppreisninni í Ungverja-
landi. Þessa hlið málsins er
rétt að leiða hjá sér nú, þvi
hún hefur verið margrædd.
Hitt er svo aftur rétt að at-
huga, hver er og hefur verið
varnarmáttur hins svokallaða
„varnarliðs" Bandaríkjamanna
þau ár sem setulið þeirra hefur
verið hér á landi og hvaða
hlutverki þetta setulið gegnir í
dag.
Islendingar
vita ekkert
Áður en farið er útí þessa
sálma er rétt að benda á að
íslendingar hafa enga séríróða
menn og ekki hafa heldur ís-
lenzk stjórnarvöld notazt við er-
lenda sérfræðinga til þess að
fylgjast með því hvaða vörn-
um setuliðið hefur komið upp
hér á landi, né heldur því
hvernig setuliðið hefur hugsað
sér að verja land og fólk fyrir
árásum ef til styrjaldar kæmi.
Um þetta hefur setuliðið ver-
ið algerlega einrátt og íslenzk
stjórnarvöld í algerri barnatrú
tekið það sem góða og gilda
vöru hvað þessum „sérfræðing-
um“ hefur dottið i hug að að-
hafast eða réttara sagt að van-
rækja á hverjum tíma. Allt
hefur þetta verið gersamlega
eftirlitslaust af íslenzkum
stjórnarvöldum, sem þó hafa
alltaf talið að hér væri um
fjöregg þjóðarinnar að tefla.
Rétt er að byrja á því að at-
huga í grófum dráttum hvernig
setuliðið er skipað og hvaða
hlutverki þvi er ætlað að gegna.
Hér eru nú og hafa verið stað-
settar fjórar deildir Banda-
ríkjahers eða floti, flugher,
landher og verkfræðingadeild
hersins. Með æðstu stjórn fara
aðalstöðvar setuliðsins (Ice-
land Defense Force) sem heyra
undir Cinclant í Norfolk, Virgi-
níu. Stjórn orustuflugvéla,
radarstöðva, rekstur flugvallar-
ins, viðhald tækja og mann-
virkja og stjórn björgunarflug-
véla (Air Sea Rescue) er í hönd-
um flughersins (Iceland Air De-
fence Force) sem lýtur stjórn
yfirmanns setuliðsins og flutn-
ingadeildar flughersins í Banda-
ríkjunum (Military Air Trans-
port Command). Flotinn stjórn-
ar sinni flugsveit og landherinn
á að hafa með höndum land-
varnir Keflavíkurflugvallar og
gæzlu olíubirgða setuliðsins í
Hvalfirði.
Milli þessara aðalstöðva setu-
liðsins hafa alltaf verið slík-
ar erjur og afbrýðisemi að
hægri hendin hefur aldrei vit-
að hvað sú vinstri gerði, enda
ringulreiðin eftir þvi. Þetta
sanna til dæmis s'felldar erjur
og mistök setuliðsins í við-
skiptum þess við íslendinga og
íslenzk stjórnarvöld
Þri&ja flokks
menn
Ekki er heldur að furða, þó
að sífelldir árekstrar eigi sér
stað, þegar þess er gætt hvers-
konar manntegund það er, sem
skipar setuliðið. Yfirleití eru
þetta þriðja flokks menn. menn
sem á friðartímum hafa ekki
reynzt samkeppnisfærir við
aðra í lífsbaráttunni og hafa
því flúið á náðir herþjónust-
unnar, sem veitir þeinv það
Hfsöryggi sem þeir ella hefðu
ekki getað skapað sér. Auk:
þess eru svo nýliðar sem eru
að gegna herskyldu og eru
flestir óþroskaðir til þess að
vera sendir. til starfa út í'
heim.
Allir þessir menn eru send-
ir hingað til eins eða tveggja
ára dvalar. Þeir eru vaidir til
starfans á íslandi holt og bolt
án þess' að minnsta tillit sé
tekið til getu þeirra til þess að
starfa á íslandi. Það heíur
ekki ósjaldan kdmið fyrir þeg-
ar snjó hefur sett niður á
Keflavíkurflugvelli, að setu-
liðið hefur lokað allri starf-
semi og í útvarpi sinu skipað
mönnum að halda^ sig innan
dyra og fara alls ekki frá.
húsum nema margir saman. Á
sama tíma hafa börn á Suður-
nesjum labbað í skólann eins'
og venjulega. Ekki er hægt að
búast við því að þessir menn
væru neitt til stórræða ef á
reyndi.
Setuliðsmenn líta á dvöl sína
hér sem útlegð sem nálgist
fangelsisvist enda eru öll vinnu-
brögð þeirra og íramkoma í
samræmi við það. Ef gengið er
um skrifstofur setuliðsins sit-
ur þar aragrúi manna með
fætur uppi á skriíborðum og
drepur tímann með kaffisötri
og við að segja klámsögur og
eru kaffilögunartækin mest á-
berandi skrifstofuáhalda.
Alltaf hefur það verið svo að
ráðamenn setuliðsins hafa lagt
meiri áherzlu á það að nægar
birgðir væru af Coc-acola,
Kleenex og tyggigúmmi heldur
en tækjum og varahlutum,
Svona marséraði bandaríski landherinn á hersýningu á Keflavíkurflugvelli í sumar. Nú er
liéi var, farið en í staðinn koma sjóliðar, þar á meðal skiptiáhafnir á kjarnorkukalbáta,
hers^jórnin setur nú mest trausít á.