Nýi tíminn - 24.03.1960, Side 10
i). — ÓSKASTUNDIN
ÓSKASTUNDIN — [(3
KROSSSAUMSMYNSTUR
Ingibjörg Norðdal 11
ára gömul, skrifar okk-
ur mjög gott bréf. Hún
sendir íáein krosssaums-
mynstur, sem hún hefur
teiknað sjálf. Mynztrin
eru reglulega skemmti-
leg og slæmt að við
skulum ekki getað lit-
prentað þau. Þessi mynd
af kóngi er ein af mynd-
unum í'rá henni, seinna
birtum við eflaust hinar,
þegar rúm er í blaðinu.
Okkur þætti gaman að
frá Ritu 13 ára
100. bréfið var
. : 11 Oíi; i jj ,■ j
Eskifirði 8. marz.
Kæra Óskastund!
Ég ætla að senda þér
fáein'ar skrítlur í sam-
keppnina. Ég sendi þér
iíka í skriftarsamkeppn-
ina og fáeinar myndir.
Mér finnst gaman að
framhaldssögunum og
mér datt í hug hvort ekki
væri hægt að taka kafla
úr íslenzkum skáldsögum
t. d. Fjalikirkjunni. Svo
ætla ég að senda þér
fyrripart. ef þú viit láta
botna hann. Hann er
svona:
Öskastundin ýniislegt
ágætlega birtir,
Ég nota dulnefnið Rita.
Hvernig finnst þér það?
Blessuð.
P.s. — Ég safna tíeyring-
um og á 363 stykki með
10 ártölum. Svo safna ég
líka myndunum „Láki og
lífið“ úr Þjóðviljanum og
lími þær inn í stílabók.
Rita.
Þetta var bréfið frá
henni Ritu. Hún var svo
heppin að skrifa hundr-
aðasta bréíið. Við erum
íá mynzturteikningar frá ,búin að velja handa henni
fleirum. I íalleg bréfsefni með
--------------------*--<$> Framhald á 4. síðu
Mamma við pabba; Þú
átt að fara með hann Jóa
litla í dýragarðinn í dag.
Pabbi: Ertu frá þér, ég
fer ekki fet, ef þeir vilja
fá hann geta þeir sótt
hann sjálfir.
SKRÍTLA
14 bréf í skriftarsamkeppnína
’Guðríður Ágústsdóttir,
'14 ára, KÍeppjárnsstöð-
urriv. Tunguhreppi. Gígja
Garðarsdóttir, 15 ára,
Hríshuli, Reykhólahreppi.
Elín Þorsteinsdóttir Snæ-
dal, 13 ára, Skjöldólfs-
stöðum, Jökuldal. Guð-
mundur Tegeder, 10 ára,
Brekkustíg 35, Vest-
mannaeyjum. Sigurborg
Hiimarsdóttir, 13 ára,
Eskifirði. Gunnar Þór
Guðmundsson, 12 ára.
Hlíðarbergi, Mýrum, A-
Sk. Theódóra Ingvarsdótt-
ir, 12 ára, Arnarholti,
Biskupstungum. Hólm-
fríður Ófeigsdóttir. 9 ára.
Reykjaborg, Skagafirði.
Páll Guðmundsson, 9 ára.
Hlíðarbergi, Mýrum. Sig-
ríður Karlsdóttir, 13 ára.
Hvallátrum, Patreksfirði.
Halldóra Helgadóttir, 9
ára, Hvallátrum, Patreks-
firði. Bergur Jón Þórðar-
son, 8 ára, Skagaströnd.
Björk Sigurjónsdóttir. 10
ára, Hvammi, Vopna-
SKRÍTLUR
Raggi; Þetta er skrítinn
hundur. sem þú ert með.
Maggi: Það er lög-
regluhundur.
Raggi: Mér sýnist hann
tæplega geta verið það.
Maggi: Jú, hann er í
leynilögreglunni.
—000—
Kona: Er móðir þin
heima, drengur minn?
Strákurinn; Heldurðu
að ég væri að sópa stétt-
ina, ef hún væri ekki
heima?
FANGINN
Tunguhreppi.
ára, Kleppjárnsstöðum,
firði. Víðir Ágústsson, 12
Maður sat í fangelsi.
Hann fékk heimsókn, og
þegar gesturinn var far-
inn frá honum, spurði
fangavörðurinn: „Hvaða
maður var þetta, sem var
að heimsækja þig?“
Fanginn svaraði með
þessari gátu: „Bræður
eða systur á ég ekki, en
fáðir mannsins er sonur
íöður míns“.
Hvernig var gesturinn
skyldur fanganum?
Svar í næsta blaði.
SKRÍTLA
Jói: Hvernig fékkst þú
þessa hræðilegu kúlu á
höfuðið?
Maggi: Ég meiddi mig
á tómötum.
Jói: Á tómötum?
Maggi: Já, þeir voru
í dós.
Dömulegar
ömmur
Við báðum ykkur að
teikna mynd af ömmu
gömlu í stað þess að
teikna ailtaí ungar tízku-
dömur. Eins og áður
þurftum við ekki að bíða
lengi eítir svari frá ykk-
ur. Tvær stúlkur, sem
ekki vilja láta nafns sins
getið, sendu okkur strax
ömmumyndir. Teiknar-
arnir kalla sig S K. og
K.S.
10) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 24. marz 1960
Söluskatturinn veldur floðöldu
Framhald af 9. síðu.
mörgum tilfellum tvíheimtur
af sömu vörunni, Þannig leiða
ákvæði 3. málsgreinar 3. gr.
frumvarpsins og fleiri frum-
varpsákvæði af sér að veru-
legur hluti af andvirði allra
innlendra iðnaðarvara, þ.á.m.
allra unninna landbúnaðar-
vara og flestrar eða allrar
þjónustu sem fram’kvæmd er,
er tvískattaður. Hverskonar
framleiðslufyrirtækjum er með
þessum ákvæðum gert að
greiða söluskatt af keyptri
raforku, öllum tegundum hrá-
efna til hitunar, öllum orku-
gjöfum véla, hverskonar við-
gerðum á framleiðslutækjum,
öðrum en skipum, einnig af
kaupum framleiðslutækjanna
flestra, niðursetningu véla og
ýmsum þáttum mannvirkja-
gerða sem reksturinn til-
heyra. Ennfremur af öllpm
umbúðum um framleipsluvör-
urnar og hjálparefnum hvers-
konar.
Þessir þættir framleiðslu-
kostnaðarins mynda mjög
verulegan hluta hins endanlega
verðs til neytenda og skatt-
lagning á þá kemur að fullu
fram í því verði sem neyt-
endur verða að greiða. Hér
er því um svo augljósa tví-
sköttun að ræða að ekki þarf
um að deila. Það er því ein
blekkingin ofan á aðra að hér
sé um eitthvert algert eins-
stigs álag að ræða að því er
almenna skattinn snertir.
Raunveruleg verðlagshækkun
af hans völdum eins er því
miklu meiri en 3%.
Innlend matvara skat»t-
lögð í fyrsta skipti
I öllu því skattaflóði sem
dunið hefur yfir á liðnum
tí.mum hefur innlendri mat-
vælaframleiðslu með öllu ver-
ið hlift við beinni skattlagn-
ingu. Jafnvel hinum hug-
kvæmnustu valdamönnum í
þéim efnum hefur aldrei dott-
ið í hug að menn mundu una
því að skattlögð væri neyzla
nauðsynlegustu matvæla, sem
þjóðin sjálf framleiðir svo
sem kjöts, fisks,;.grænmetis og
mjólkúrvara. Allir hafa talið
jafn sjálfsagt að þessi undir-
stöðufæða sem þjóðin sjálf
aflar, að sumu leyti við erfið
skilyrði, væri friðhelg fyrir
oki skatta og tolla. Nú fær
bóndinn og skyldulið hans
einn að neyta kjöts og mjólk-
urvara og grænmetis án þess
að greiða af þe’:m vörum
skatta til ríkissjóðs, en þetta
leyfist honum aðeins af náð
undantekningarákvæðis í Iög-
um. Alljr aðrir verða að
gjalda skatt af slíkri neyzlu
annarri en mjólkurdrykkju í
heimahúsum og ekki aðeins
einu sinni heldur tvívegis að
því er varðar unnar búvörur.
Þessi nýi siður er áreiðan-
lega í. fullri andstöðu við all-
ar hugmyndir manna um vit-
lega skattheimtu' — en ég
fæ he’dur ekki betur séð en
hann brjóti einnig algerlega i
bága við 'gildandi reglur um
verðlagningu búvara. Því
hvers virði er samkomulag
bænda og neytenda um bú-
vöruverð ef stjórnarvöld
leyfa sér strax og þessir að-
ilar standa upp frá samninga-
borðinu að stórhækka verðið
til neytenda með margfaidri
skattlagningu. Ég hef leyft
mér að flytja breytingartil,-
lögu um að allar landbúnað-
arvörur verði söluskatts-
frjálsar og þannig horfið frá
því eindæma glapræði að
skattleggja neyzlu þeirra mat-
væla sem almenningi eru
nauðsynlegust og liindrað að
samkomulag bænda og neyt-
enda um verðlagningu þeirra
sé brotið.
Refsað fyrir bætt
vinnubrögð
Þá flyt ég einnig breyting-
artillögu um að öll veiðarfæri
sjávarútvegsins verði skatt-
frjá'.s. Sýnist ærið að gert er
ýmsir stærstu kostnaðarliðir
útvegs'ns svo sem allar olí-
ur, viðgerðir vélaverkstæða
og fæði skipverja eru reyrðir
undir skattaokrið.
Einnig flyt ég breytingar-
tillögur við 3. ■ grein og a-lið
6. greinar sem miða að þvi að
draga úr tvísköttun á inn-
lendar framleiðsluvörur og
skatt’agn'ngu á útflutnings-
vörur.
Samkvæmt 1. lið 7. greinar
er öll vinna við húsa- og
mannvirkjagerð — sem ekki
er unnin á byggingarstað
skattskyld en hins vegar
undanþegin sú vinna sem
unnin er á sjálfum bygging-
arstaðnum.
Með þessum ákvæðum tel
ég að verst þokkuðu ákvæði
eldri söluskattslaga um þessi
efni séu látin ganga hér aft-
ur. Þróun í húsabyggingum
og mannvirkjagerð stefnir æ
meira í þá átt að vinna og
framleiðsla fari fram á verk-
stæðum og í verksmiðjum,
þar á meðal framleiðsla á
heilum húshlutum. Virðist
með öllu óeðlilegt að refsa
þeim sérstaklega með skatt-
lagningu umfram aðra, sem
leitast við að innleiða ný og
bætt vinnubrögð.
Auk þess virðist að érfið-
leikar þeirra sem koma þurfa
þaki yfir höfuð sér séu þegar
alveg nægilega miklir þótt
þeim sé hlíft við freklegri
skattlagningu á mikinn hluta
bygg'ngarkostnaðarins- Breyt-
ingartillaga min við a-i;ð 7.
greinar miðar að því að frýja
alla vinnu við húsabyggingar
þessari skattlagningu.
Refsivald lag*i ráðherra
í hendur
Loks flyt ég breytingartil-
lögu v'ð 25- grein ■ frum-
varpsins. Samkvæmt þeirri
gre'n er f jármálaráðherra
ve'tt vald til þess að meta
sakir í brotamálum varðandi
þessa lögg.jöf og ákveða refs-
ingar samkvæmt þvi mati
sínu. Pólitískum ráðherra er
því ferigið í hendur vald sem
dcmstólunum einum ber að
hafa. Þetta atriði ræddu bæði
ég og fleiri svo við 1. umræðu
má'sins að ekki er þörf um
að, fjö'yrða nú. Jatyþvel þíest;
virtur fjármálaráðherra varð
þá að viðurkenna að hér
kynni að vera óþarflega
langt gengið. Verður því að
óreyndu ekki trúað að hann
og aðrir hæstvirtir stjórnar-
liðar fallist ekki á að þessi
óhæfa verðL máð á brott úr
frumvarpinu.
Um aðrar breytingartillög-
ur- mínar þarf ekki mörg orð
að hafa. Þar er að því leyti,
sem ég hef ekki þegar rakið
um svo augljósar leiðrétting-
ar að ræða að skýringa er þar
vart þörf. Þessar leiðrétting-
ar eru að sjálfsögðu aðeins
örlítið brot af þeim sem gera '
þyrfti og fer því víðs fjarri
að samþykkt þeirra mundi
nægja mér til stuðnings
frumvarpinu í heild.
Þjngst byrði á þá
fátækustu
Þótt nokkrir agnúar yrðu
sorfnir af þessu frumvarpi
standa aða'atriðin óhögguð,
en þau eru:
1. að með þessari nýju skatt-
heimtu er nýrri flóðöldu
verðhækkana og dýrtiðar
skel'.t yfir almenning í
skjóli þeirra kúgunarlaga,
sem stjórnarflokkarnir
hafa þvingað fram urn lög-
bann við greiðslu verðlags-
bóta á laun.
2. að skattheimtan kemur
jafnt á. brýnustu nauð-
þurftir sem óþarfa eyðslu
og verður því þeim þvngst
í skauti, sem áður hö’fðii
aðeins til hnífs og skeiðar.
3. að skatthe’mtukerfið fel-*:
, , ur í sér miktar hættur á-ij
Framhald á 11. siðu.