Landneminn - 31.12.1942, Page 4

Landneminn - 31.12.1942, Page 4
4 LANDNEMINN Ávarp til íslenzkrar æsku Hér á eftir er birt ávarp það til íslenzks æskulýðs, sem 3. þing Æskulýðsfylkingarinnar samþykkti, en það var haldið hér í Reykjavík fyrir skömmu. „Meðan aðrar þjóöir hafa bar- izt fyrir frelsi sínu, hefur íslenzka yfirstéttin aðeins hugsað um að sölsa undir sig auð og allsnægtir. Til þess að vernda milljónagróða sinn, myndaði hún svokallaða þjóð- stjórn allra flokka sinna. Þessi stjóm milljónamæringanna leit á það sem fyrsta hlutverk sitt að halda launum verkalýðsins sem lægstum, lama samtök hans og of- sækja hina sósíalistisku hreyfingu. Hún varpaði fyrir borö öllum hug- tökum lýðræöisins. Hún tók kosn- ingaréttinn af þjóðinni. Hún of- sótti og hundelti menningu lands- ins og fremstu fulltrúa hennar. Hún vanrækti og sveik öll hin háværu loforð sín viö æskulýðinn. Hún hélt uppi fjandskap við frelsisstríð þjóð- anna. Hún skrúfaði upp dýrtíðina og áð lokum reyndu leyfar hennar að þrælfjötra verkalýðinn með gerð. ardómslögunum frægu. Aldrei hefur það sýnt sig greimlegra en á þess- um síðustu tímum, aö auðmanna- klíkan er orðinn fjötur allra fram- fara og framkvæmda. Eina aflið, sem ekki gerðist sara- ábyrgt afturhaldinu, var hin sósí- alistiska hreyfing. Undir forystu hennar tókst verkalýðnum að leggja þjóðstjórmna að velli. Og í tvennum kosningum á þessu ári hefur alþýð- an vottað sósíalismanum, hinu kom- andi skipulagi frjálsrar þjóðar, fylgi sitt. Kosningarnar, einkum þær síðari, sýndu, að það er æskulýðurinn, sem fylkir sér til baráttu gegn stríðs- gróðaklíkunni, gegn hinu fúna og feyskna auðvaldsskipulagi, að það er æskulýðurinn, sem skipar sér í fylkingarbrjóst baráttunnar fyrir sigri sósíalismans. Æskulýður Íslands! Ef auövaldið ræður áfram í landi ckkar, ef fámenn yfirstétt fær að einoka framleiðslutæki þjóðarinnar, ef afturhaldið fær að leika lausum hala til að ofsækja menningu og menningarfrömuöi þjóðarinnar, þá muntu upplifa aftur tímabilið fyrir styrjöldina, þegar þú þjáðist af at- vinnuleysi og neyð, þegar skólarnir voru lokaðir fyrir þér, þegar öll framtíð þín var skugguð allsleysi og óvissu. Ef auðvaldið ræður áfram í landi okkar, þá muntu sjá alla drauma þína um hamingjusama framtíð, um atvinnu, menntun cg menningu, hiynja í rúst, eins og farið hefur fyrir undangengnum kynslóðum. Ef auðvaldið ræður áfram í landi okkar, þá muntu sjá ættjörð þína og auðæfi hennar í greipum at- vinnurekendaklíku, sem lætur þig þræla, þegar hún getur grætt á þér, en ofurselur þig þess á milli atvinnuleysi og niðurlægingu. Til þess að tryggja framtíö þína og til þess að tryggja framtíðaryf- irráð þín yfir ættjörðinni, verður auövaldssk’pulagið að víkja og skioulag sósíalismans aö koma í staðinn. Reynslan hefur sýnt, að einungis þar, sem sósíalisminn ræð- ur, er framtíð æskulýösins, atvinna hans, menntun og hamingia tryggð. Reynslan hefur sýnt, að einmitt þar sem sósíalisminn ræður, er ætt- jarðarást æskunnar heitust og hreysti hennar og fórnfýsi mest, Æskulýður íslands! Um allan heim geisar frelsisstríð þjóðanna gegn kúgun og niðurlæg- ingu fasismans. Um allan heim magnast baráttan fyrir því að af- má í eitt skipti fyrir öll það þjóð- skiDulag. sem fætt hefur fasismann, auðvaldsþj óðskipulag;ð. Baráttan fyrir sigri sósíalismans á íslandi er komin á dagskrá. Þátt- taka þín í þessari baráttu er skil- yrðið fyrir því. að framtíð þinni og framtíð lands okkar verði borgið. Ungir íslendingar! Sameinizt til barátíu fyrir þjóð- skipulagi sósíalismans á Islandi. Sameinizt um að efla Æskulýðs- fylkinguna, Samband ungra sósíal- ista, og gera blað hennar, Land- nemann, að víðlesnu æskulýðsblaöi. Fram til sósíalismans, sem færir æskunni friö, frelsi og örugga fram- tíö“. 20. þing U.M.S.K Ungmennasamband Kjalames- þings hélt sitt 20. þing að Brúar- landi 13. des. s. 1. á þinginu mættu fulltrúar frá hinu nýstofnaða Ung- mennafél. Reykjavíkur. Þingið sátu alls um 15 fulltrúar frá 4 félögum. Á þinginu vom tekin til umræðu og samþykkt mörg mál má þav tilnefna hið stórfenglega verkefni, sem er fyrsta baráttumál Ung- mennafél. Reykjavíkur, stofnun æskulýðsheimilis í Reykjavík, 1 þvi máli var samþykkt áskorun til Al- þingis um rífleg fjárframlög, enn- fremur var samþykkt að leita stuðnings allra ungmennafélaga á landinu til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til aöstoðar við málið. Einnig voru gerðar ályktanir um eflingu, útbreiðslu- og skipulag- sambandsins. Ennfremur var samþ. áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar um að fara þegar aö undirbúa kcmu þess tíma sem óumflúanlega blýtur að koma að þessu atvinnu- ástandi loknu með ægilegu hörm- ungar afleiðingum, svo sem at- vinnuleysi o. fl. þess háttar ef ekki verður þegar brugðið við með gagn- legum ráðstöfunum. Ýmislegt fleira var og tekið fvrir og samþykkt, en ekki er rúm í blað- inu til að skýra frá að þessu s'nni, en vonandi verður skýrt nánar frá cpmb. bingsins seinna. í þing lok var kosin sambands- stjórn og fulltrúar á þing U.M.F.Í. sem háð verður að Reykholti í Borgarfirði á komandi sumr. Að þinginu loknu var haldin skemmtun, þar sem félagar úr öll- um deildum sambandsins höfðu að- gang að. Á skemmtuninni voru haldin erindi, þar sem mynnst var 20 ára starfs sambandsins og U.M. F.I., ennfremur var söngur og að lokum var stigin dans.

x

Landneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landneminn
https://timarit.is/publication/886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.