Alþýðublaðið - 12.11.1919, Síða 3
ALÞÝ ÐUBLAÐIÐ
3
Hrakfarir andstæöinganna.
Margt er það, sem notaö er
gegn fulltrúum alþýðunnar í kosn-
ingabaráttu þeirri, er nú stendur
yfir. Aðalvopnið virðist þó það, að
reynt er að telja alþýðufólki trú
um, að frambjóðendurinir séu
báðir kaupmenn og stórefnamenn,
ef ske kynni, að það hefði ein-
hver áhrif á þá, sem ekkert sjá
út úr bæjardyrunum. En þeir
góðu menn, sem bera þetta fram,
gá ekki að því, að íslenzk alþýða
er orðin það þroskuð, í skoðunum
jafnaðarmanna, að hún lætur ekki
slík ummæli hafa áhrif á sig.
Þeir gá ekki að því, að það eru
hin beztu meðmæli með þeim
Ólafl og Þorvarði, að kalla þá
kauþmenn, ef þeir væru það.
Það hefir sem sé sýnt sig, að
alstaðar þar, sem verkalýðshreyfing
hefir byrjað, hefir hún aldrei blóm-
gast, fyr en einhverjir, sem voru
öllum vinnuhöftum óháðir, hafa
tekið að sér forgöngu í barátt-
unni. Það er líka margreynt og
liggur í augum uppi, að þeir, sem
eru óháðir dutlungum og hleypi-
dómum vinnuveitenda, standa
miklu betar að vígi en þeir, sem
eru bundnir í báða skó við það,
aö afla sér og sínum viðurværis
með daglaunavinnu eða illa borg-
aðri iðn sinni. Ekkert má út af
bera, svo þeir missi ekki atvinnu
sína.
Með kaupmannaskrafi sínu hafa
því andstæðingar alþýðunnar og
jafnaðarmanna enn þá einu sinni
slegið vindhögg.
Allir jafnaðarmenn vita, að það
er stór sigur, þegar efnalega sjálf-
stæður maður verður jafnaðar-
maður. Og enginn þarf að óttast
að sá verði ekki jafnaðarmaður,
sem eitt sinn fæst til að lesa
með einlægni hin stórmerku hag7
fræðislegu rit, sem samin hafa
verið á grundvelli jafnaðarmensk-
unnar á síðustu áratugum og gefin
út á fjölda tungumála.
Það er því engiu furða, þótt
andstæðingum þeirra takist ekki
að hitta á gáfumenn, vel mentaða,
sem vilja gefa sig í það, að mót-
mæla kenningum jafnaðarmanna.
Þeir geta auðvitað altaf fengið til
þess einhverja illgjarna skrumara,
sem segja, að þetta og hitt verði,
Pakkarávarp.
Kæru félagar mínir í Dagsbrún
eg þakka ykkur innilega fyrir
gjöfina sem þið gáfuð mér á síð-
asta fundi.
Einnig þakka eg hjartanlega
þeim sem með gjöfum og á annan
hátt styrktu konu mína á meðan
eg lá á sjúkrahúsinu.
Helgi Guðmandsson.
komist þjóðfélagsskipulag jafnaðar-
manna á. En þeir geta aldrei
fengið í lið með sér áhugasama
og nýta menn, sem kunnir eru
jafnaðarstefnunni og vilja þjóð
sinni vel. Og það er af þeirri ein-
földu ástæðu, að enginn, sem
J kynnist jafnaðarmensku, kemst
hjá því að verða jafnaðarmaður.
En þeir, sem ókunnugir eru stefn-
unni og fara að skrifa á móti
henni, reka sig altaf á. Hver vit-
leysan rekur aðra. Þess vegna er
svo auðvelt fyrir jafnaðarmenn að
reka allar þeirra vitleysur öfugar
ofan í þá aftur. Þess vegna gekk
Mgbl. svo illa að fá stjórnmála-
ritstjóra, með það aðallega fyrir
augum, að kveða niður alþýðu-
hreyfinguna á íslandi.
Sig. Sig. frá Arnarholti sló það
vindhögg með árás sinni á jafn-
aðarstefnuna hér á landi, sem
reið honum að fullu sem stjórn-
málaritstjóra. Nafni hans frá ísa-
firði reið aldrei ut á sama kvik-
syndið. En nú er Einar Arnórs-
son, fyrrum ráðherra og prófessor
í lögum við Háskóla íslands, kom-
inn af stað. Og honum ferst ekki
betur, þrátt fyrir alla titlana. Eng-
inn tekur mark á orðum hans.
Hann er alt of vel þektur á stjórn-
málasviðinu til þess. Honum hefði
verið nær að sitja þar sem hann
var kominn, þá gat skeð, að hann
hefði getað gert þjóð sinni eitt-
livert gagn, þó efi leiki á, að svo
hefði orðið. Og þá hefði hann að
minsta kosti getað losnað við það
að verða að athlægi. Því óneitan-
lega er það hlægilegt, en þó jafn-
framt sorglegt til þess að vita,
þegar prófessor við Háskólann
sýnir jafn ófyrirgefanlegan ment-
unarskort, eins og E. A. hefir gert
í þeim stjórnmálaskrifum, sem
undanfarið hafa verið að birtast í
Mgbl.
En verið viss. E. A. mun ekki
langlífur sem stjórnmálaritari, á
þeim grundvelli, að ætla sér að
hefta alþýðuhreyfinguna. Hann
trénast upp á því, að hafa ekki
nema rangfærslur og visvitandi
slúður til þess að vega með.
Alþýðan sýnir það á laugardag-
inn kemur, að hún gengst ekkert
frekar upp við lygar, sem pró-
fessor lætur penna sinn flytja, en
hreint og beint kerlingaslúður.
Alþýðan kýs óskift ólaf og
og Porvarð!
Kvásir.
Símskeyti.
Kaupmannahöfn 10. nóv.
Frá Eystrasaltslöndnm.
Frá London er símnð að Þjoð-
verjar (Jarnsveit Gotz?) hafi raðist
á borgina L'bau í Lithá.
Lloyd George vill frið
við Bolsivíka.
Lloyd George viil að fulltrúar
Bandamanna og Bolsivíka hittist
á Prinseyju til þess að ræða um
frið.
Bolsivíkar lióta.
Bolsivíkar hóta að ganga í
baDdalag við f’ýskaland ef Banda-
menn neiti að semja frið.
Bolsivíkasamsæri í Ámeríku.
Frá New-Yo.k er símað að
komist hafi upp Bolsivíkasamsæri
í Bandarikjunura og að fjöldi
manns hafi verið teknir fastir.
^iþýðubrauBgerðin.
í dag eru 2 ár liðin síðan Al-
þýðubrauðgerðin tók til starfa.
Hún byijnði starfsemi sína 12.
nóv. 1917. Hefir það fyrirtæki
orðið bæjarbúum hið þarfasta, og
hefir án efa sparað þeim stórfé.
Þar sem flewtar nauðsynjnvörur
hafa stigið í verði síðan 1917, þá
hafa brauðin heldur lækkað, og
má áreiðanlega þakka það þessu