Laugardagsblaðið - 24.09.1955, Blaðsíða 3
Laugardagur 24. sept. 1955
LAVGARDAGSBLAÐIÐ
8
Tvær konur
Sönn og spennandi ástarsaga.
5.
Ég kvæntist Inger til þess að íorðast það, að hún yrði íyr-
ir vonbrigðum, og vegna þess að ég áleit að Eva yrði of
mikil freisting fyrir mig. Nú var Eva frjáls. Að nokkrum
tíma liðnum yrði hún búin að yfirstíga sorgina. Þá mundi
hún aftur geta farið að njóta lífsins, elska og verða elskuð.
En ég var bundinn á höndum og fótum, beinlínis vegna þess
að ég var kjarklaus og heimskur.
En Erik var frjáls, hinn góði félagi minn, sem upp á síð-
kastið gat varla horft í augu mín.
Er ég var að hugsa um þetta, hringdi Inger til mín og bað
mig að borða úti. Hún kvaðst ekki hafa tíma til þess að mat-
reiða.
Ég var ekki umburðarlyndur við hana um þessar mund-
ir. Var fljótur til að láta í ljós gremju. Ég kom ekki fram
við Inger eins og góðir eiginmenn eiga að breyta við konu
sína.
Morgunn nokkurn — tveim mánuðum eftir andlát Dal-
sted — sagði Inger að hún ætlaði að heimsækja systur sína
aftur. Hún kvaðst hafa í hyggju að dvelja nokkra daga hjá
Margit. Bað Inger mig að lána sér bílinn.
„Ég þarfnast bílsins sjálfur,“ mælti ég.
„Þú getur farið með strætisvagninum til verksmiðjunn-
ar,“ sagði hún gremjulega. „Ég hefi jafnmikinn rétt á bíln-
um eins og þú. Það eru ekki svo margar skemmtanirnar
mínar í hjónabandinu. Mér viroist því sannarlega ekki á-
stæða til þess að þú neitir mér um bílinn.“
Ég gat ekki stillt mig og sagði æstur: „Það varst þú, sem
stakkst upp á þessu hjónabandi.“ Ég sá þegar eftir að hafa
sagt þetta.
„Jæja,“ sagði hún. „Þar sem það var ég, sem stakk upp
á hjónabandinu, get ég einnig stungið upp á því að við
skiljum. Þú munt verða all forviða, er þú heyrir hver það
sé, sem er orðinn ástfanginn af mér. Ég hefi séð að þú hefir
reynt til þess að ýta undir Erik, svo hann gefi sig að Evu
Dalsted. En það er ég, sem hann er orðinn ástfanginn af.
Skilurðu það?“
„Þú átt þó ekki við að — að------?“
„Jú. Erik er ástfanginn af mér. Spurðu hann, hver hafi
verið með honum daginn, sem Dalsted dó. Og spurðu hann
að því með hverri hann ætli að vera í kvöld og annað kvöld.
Þú skalt spyrja hann. Hann mun svara.“
Ég gat ekki trúað að þetta væri satt.
Sama dag fór ég imi í skrifstofu Eriks.
„Hvað er að þér?“ spurði hann, er hann sá mig.
„Inger vill skilja við mig. Hún mun hafa augastað á öðr-
um.“
Erik roðnaði og sagði: „Jæja. Ertu nokkuð á móti því að
losna við hana?“
„Það er þá satt,“ sagði ég. „Ég áleit að hún hefði skrökv-
að þessu.“
Mér hafði ekki til hugar komið, að Erik dytti þvílíkt í
hug. Mér leið illa. Erik var bezti vinur minn. Hann olli mér
miklum vonbrigðum. En mér stóð á sama þótt Inger væri
mér ótrú.
Erik'ræskti sig dálítið og mælti: „Ég verð að viðurkenna,
að ég hefi verið með Inger við og við.“ Hann horfði á mig
góðlegu, gráu augunum. „Langar þig til þess að berja mig,“
spurði hann rólega.
Ég hristi höfuðið og fór.
Sama dag fórum við, ég og Inger, til málflutningsmanns
og undirrituðum nauðsynleg skilnaðarskjöl. En ég skildi
þetta ekki enn. Erik var miklu meiri sálfræðingur en ég.
Hann þekkti mannfólkið betur en ég. Hann hafði sagt mér,
að ekki mundi Inger reynast vel sem eiginkona. Hann vissi
því að hverju hann gekk. Nei, ég skildi þetta ekki. Hvers
vegna breyttist álit hans á Inger svo skyndilega?
Fréttir frd ixejarstjórn Akureyrar
Stræfisvagnaferðir
í okfóber.
Þess hefir áður verið getið í
blöðum bæjarins, að samþykkt
var snemma í sumar, að gera til-
raun með strætisvagnaferðir á
Akureyri nú í haust. Hafði for-
stjóri Strætisvagna Reykjavíkur
verið í ráðum með þetta og heitið
aðstoð sinni með að lána vagn lil
tilraunarinnar. Snemma í þessum
mánuði barst bæjarstjórn bréf
frá honum þess efnis, að sakir
ýmiskonar óhappa gætu Strætis-
vagnar Reykjavíkur ekki lánað
vagn á þessu hausti. Var því út-
lit fyrir að málinu yrði siglt í
strand á þessu hausti. En 19. sept.!
s. 1. gerði Norðurleið h.f. bænum
tilboð að taka að sér tilraun með
reksíur strætisvagna nú í október
gegn 15 þúsund króna styrk frá
bænum.
Bæjarráð leggur til samhljóða,
að því verði heimilað að gera
samning við Norðurleið h.f. um
rekstur strætisvagna í október- j
mánuði þannig, að félagið hafi
hér 1 bíl í föstum rekstri allan
mánuðinn ca. 14 kls. á degi
hverjum og einnig annan bíl hér
slöðugt til taks, er geti tekið
nokkrar ferðir á hverjum degi
þegar þörfin virðist mest. —1
Norðurleið h.f. gefur bænum ná-
kvæma skýrslu um reksturinn,
daglegar tekjur og gjöld. Gert erl
ráð fyrir, að gjald fyrir fullorðna'
verði kr. 1,25 en kostur verði
gefinn á að kaupa 10 miða í einu
fyrir kr. 10,00. Gjald fyrir börn
3—12 ára verði kr. 0,50.
Tillaga bæjarráðs var sam-
þykkt.
Ekki er enn fullgengið frá því
hvaða leið vagninn muni fara, cn
gert er ráð fyrir að ivær aðal-
leiðir verði farnar á hálftíma
fresti, en þó svo, að þegar mest er
að gera verða báðar leiðirnar
farnar á sama tíma. Miðstöð
vagnanna verður við Ráðhústorg.!
Verða tvær aðalleiðir þaðan, í
stórum drá'.tum, sem hér segir:
Strandgata (eða Gránufélagsgata)
á Oddeyrartanga, norður hjá U.
A., að Gefjuni, upp í Mýrahverfi
og síðan á Ráðhústorg. Hin Ieið-
in: Frá Ráðhústorgi inn í bæ, upp
Spítalaveg, Hrafnagilsstræti, Þór-
unnarstræti (seinna Byggðaveg),
um Grófargil á Ráðhústorg. í
annað hvort skipti verður þessi
leið farin þannig, að fyrst verður
farið á Suðurbrekkur og síðan í
Innbæ og þaðan á Ráðhústorg
um Aðalstræti og Hafnarstræti.
Til ferðanna verða notaðir á-
ætlunarbílar Norðurleiða af
Scania Vabis-gerð. Er þeim
breytt nokkuð í þessum tilgangi,
þannig að vagninn taki 80—100
manns.
Lítill vafi er á því, að margir
muni fagna þessari tilraun, en
þess er þó að gæta, að naumast
verður með vissu sagt um, mögu-
leika á rekstri strætisvagna hér
eftir henni einni saman, er bæði
þess að gæta að tíminn er stuttur,
og vafasamt hversu vel hann er
valinn með tilliti til þess að finna
rekstursgrundvöll strætisvagna.
Eins ber að líta á hitt, að vagnar
þeir, sem notaðir verða eru ekki
af venjulegri strætisvagnagerð,
eru t. d. ekki með nema einum
dyrum, svo að afgreiðsla öll hlýt-
ur að ganga seinna en annars, og
getur það haft áhrif á rekstur
vagnsins.
Iðgjöld Brunabóf'a-
félagsins lækka.
Fyrir lá tilboð frá Brunabóta-
félagi Islands þess efnis, að fé-
lagið væri reiðubúið að lækka
núgildandi taxta frá 15. okt. n.k.
þannig:
í I. flokki 0,6%o
- II. — 1,0%C
- III. — 1,8%0
- IV. — 2,5 %o
Sériðgjald lækki um 25%.
Agóðahluti bæjarins verði 25%.
Enda verði núverandi samning-
ur við Brunabótafélagið fram-
lengdur um þrjú ár til viðbótar
frá núverandi samningstíma.
Bæjarstjórn samþykkti að
ganga að þessu tilboði að því til-
skyldu að Brunabótafélagið láni
á samningstímabilinu. 1 milljón
króna viðbótarlán við áðurfeng-
ið og lofað lán til aukningar
vatnsveitunnar.
Gafnaheifi í
Glerórþorpi.
Bygginganefnd leggur til, að
þj óðvegurin n norður frá Glerá
verði nefn dur Hörgárbraut.
Hverfið ofan Hörgárbrautar heiti
Hlíð, en hverfið neðan Hörgár-
brautar heiti Holt. Ennfremur
leggur nefndin til, að gamli veg-
urinn, sem nú er um Hlíðahverf-
ið heiti Glerárhlíð. Götur þær,
sem eru á hinu skipulagða svæði
sunnan hennar heiti, næst ánni:
Langahlíð, efri gatan: Fagrahlíð,
þvergöturnar tvær, sem liggja á
milli Glerárhlíðar og Lönguhlíð-
ar heiti: Austurhlíð og Vestur-
hlíð. Gamli vegurinn í Holta-
hverfinu heiti Stórholt. Syðsta
gatan í Holtahverfi heiti Stein-
holt, gatan austan Hörgárbrúar
heiti Lyngholl.
Var það samþykkt með þeirri
breytingu frá Steindóri Steindórs
syni, að í staðinn fyrir Glerárhlíð
kæmi Lögmannshlíð, hinsvegar
var feld tillaga hans um að hverf-
ið, sem byggingarnefnd kallar
Holt, skyldi heita Gerði. Þá var
og .samþykkt að gatan, sem liggur
milli Byggðavegar og Þórunnar-
strætis skuli heita Ásvegur.
Kosið í iðrtskólanefnd.
Samkvæmt hinum nýju lögum
um iðnskóla tekur bærinn nú við
reks'ri iðnskólans, og var kosið
í iðnskólanefnd. Þessir voru
kosnir: Jón Þorvaldsson, Guð-
mundur Guðlaugsson, Steindór
Steindórsson og Gunnar Óskars-
son.
\. U. F. A.
HÖFUM VENJULEGA FYRIRLIGGJANDI:
Heilhveiti, nýmalað. RúgmjÖl, nýmalað.
Bankabygg, nýmalað. Hafra, saxaða.
Hrísgrjón, ófægð. Hveitiklíð.
Hveitikím. Grænar baunir.
Soyabaunir. Linsubaunir. Nýrnabaunir.
Hörfræ. Þurrger.
Hunang. Eplasýróp. Mjólkursykur.
Kandís. Púðursykur. Fjallagrös. Söl.
Smóramjöl. Súrkól. Lauktöflur.
Þaratöflur. Vifa-Bran.
Tejurtir, margskonar. „Karno"-duft.
Jurtakraft. Rúsínur m/ steinum. Sana sól.
Wöiaulitisið b.f.
Ullargrarn
Hið velþekkta og margeftirspurða
Sportgarn
er nú fáanlegt í fjölda fallegra lita.
Ennnfremur
Cameliogarn
með silkiþræði, og
Babygarn.
Verzlið þar sem úrvalið er bezt!
V efnaðarvörudeild.