Alþýðublaðið - 13.11.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 13.11.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBL AÐIÐ 3 Auðvaldið ætlar að g'leypa ísland. Hér sjá menn mynd af auðvaldinu (ske)jaskrimsli, sem hefir peningalagaö hreistur), sem ætlar að fara að gleypa fsland. Á baki auðvaldsskrimslisins sitja þeir Jón og Sveinn, og er hinn siðar nefndi hálf- sokkinn ofan í peningahreystrið, enda stýrir haun taumi þess. Á hala auðvaldsskrímslisins dmglar Jakob, og kveður þar sinn vanasöng. Hinum megin sér maður þá Þorvaið og Ólaf geysa fram á hvitum hesti ráttlætisins, til þess að vinna á skrímslinu. Eins og menn sjá, þá er Reykjavik sérlega í hættu, stór vig- tönn skrímslisins miðar beint a borgina. Á myndinni sést andlit einhvers skapnaðar á t.ungu auðvaldsins, en ekki er gott að sjá, hvort það er mynd af Kölska eða einhverjum jafningja hans. Sveinn og Jakobina. Áður var þess getið að Sveinn væri að „dalla“ við Jakobínn í fjarveru Jónínu. Jakobína er kona Qiikil fyrir sér og hefir sig mjög i frammi og leynir í engu sam- bandi þeirra, en Sveinn hálfskamm- ast sín fyrir mök sín við hana °g vill aldrei sýna sig með henni úti á götu. Fyrir skömmu lék Jakobína (hún er leikkona góð) í Sárunni, hlutverkið „frambjóðand- inn sem fellur", og þótti mönnum henni takast vel, var hún óvenju stilt og brosandi, og hefir Sveinn auðsjáanlega haft góð áhrif á hana í Þá átt. En eitt þótti mönnum furða, og Það var, 'að Sveinn kom þar hvergi hterri, hann þóttist sem sé vera '»upptekinn“ annarsstaðar. Hann hefir konuríki, ef konuríki' skyldi hallast, því hann er ekki hrædd- ur við Jónínu, heldur við ættingja hennar og vini hér í Vík. Hann 0r hræddur við að frændi hennar einn, er Jón heitir, ungur maður, hnár og verkséður, husabraskari °g sementskaupmaður, kunni að hera honum illa söguna við Jón- ihu, og svo hefir hann líka beyg af Pétri smalamanni. Klaitfi. Vélrituðu bréfin. Vélritaða bréfið frá Jóni Magn- ússyni forsætisráðherra er nú borið til kjósenda í bænum. Mun margur vera hreykin af því, að fá slík bréf, með eiginhandar und irskrift forsætisráðherrans, að minsta kosti meðan þeir vita ekki, að bréfið er samið af skrifurum á skrifstofu Sjálfstjórnar og undir- skriftin stimpluð með stimpli sem hanu lét gera í líkingu við hand- skrift sína, þegar hann var bæjar- fógeti hér, og notaði undir lög- taksauglýsingar og þess háttar. í bréfinu er skýit írá þeim gleðiboðskap, að samkomulag sé nú orðið milli hans og Sveins Björnssonar, og að þeir bjóði sig fram saman. Skorar hann fastlega á heimastjórnarmenn að kjósa sjálfstæðismanninn Svein Björnsson!!! Er hætt við að sumum þyki til mikils mælzt, því naumast er hægt að gera minna úr stjórn- málafylgi kjósenda, en að gera ráð fyrir, að þeir geti sameinast um þá menn, sem öllum er vitan- legt að standa á öndverðum meið í öllurn þeim stórmálum, sem nú skifta málum hér í landi. Annað bréf með breyttum nöfn- um hafa nokkrir gamlir sjálfstæð- ismenn fengið, þar sem skorað er á sjálfstæðismenn að kjósa heirna- stjórnarmanninn Jón Magnússon!!!, að því viðbættu, að báðir ætli þeir Jón og Sveinn að vinna á móti Alþýðuflokknum (jafnaðar- mönnum). Gamli i Hetta. Símskeyti. Khöfn 11. növ. Anstnrrfkismenn fá matvæli. Bindamenn lána Austuniki 500 milljóna fránka viiði í matvælum og kolum. Rúmenar fingralangir. Rúmenar hafa lagt hald á 240 milj. ungv. króna á tollstofunni í Budapest. Lithá og Pólland. Lithá óskar að semja frið við Pólland. Friðurinn við Bolsivíka. Friðaruppastunga Lloyd Georges mætir harðri mótstöðu í blöðum Northcliffes lávarðar í Euglandi, og í frönskum blöðum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.