Foreldrablaðið - 01.03.1951, Side 2

Foreldrablaðið - 01.03.1951, Side 2
Uppeldi og frœðsla MARKMIÐ SKÓLANNA er menntun, en menn greinir talsvert á um það, með hvaða ráðum hún verði bezt í té látin — hvort meira kapp beri að leggja á beina fræðslu, þekkinguna, eða að hinu leytinu á almennt uppeldi einstaklings eða þegns. Málið er heldur ekki eins ein- falt og það gæti sýnzt í fljótu bragði, sökum þess að þekkingin hefur geysimikið uppeldisgildi, en er þó ekki einhlít, og almennt uppeldi er bráðnauðsynlegt skil- yrði þekkingaröflunar, en þó ekki nema skilyrði. Þess vegna leikur vafinn í raun- inni á því, hvort bein fræðsla og þekking sé jafnframt bezta ráðið til þess, að börn- in ali sig vel upp sjálf, eða hvort gott upp- eldi sé um leið happadrýgsta hvatningin til þekkingaröflunar — og þá, hverju beri að fórna meiri tíma og fyrirhöfn í skóla og á heimili. * Því verður ekki á móti mælt, að öll þekking er í sjálfri sér bæði þörf og hag- nýt, einnig þær greinar hennar, sem ekki verða beinlínis látnar í askana. Hún víkkar sjóndeildarhring einstaklingsins og gerir hann færari um að ráða fram úr hverjum vanda, auk þeirrar hugsvölunar, sem hún veitir. Uppeldi segja menn vera það að stuðla að heilbrigðum vexti og þroska líkamans, hæfi- legri aðlögun að um- hverfi og samfélagsvenj- um, þjálfun hugans og rækt siðgæðisins. Ekkert af þessu má vanta og ekkert ganga úr hófi fram, svo að annað sé vanrækt. * Sú fræðsla, sem stuðlar að þessum at- riðum, er ómissandi þáttur uppeldisins. Hún er, ef rétt er á haldið, ekki fræðsla einvörðungu, heldur einnig mikilvægt uppeldi. Nú er það hverjum einstakling fyrir beztu að fá að þroskast sem mest frjáls og óþvingaður. Er því uppeldið mikið fólgið í því að koma í veg fyrir með lagni, að hann leiti inn á óheppilegar brautir. En vegna þess að frjáls þroski þykir ákjósanlegastur, er mikils virði, að menn temji sér að finna samband orsaka og afleiðinga við hvaðeina, þekki umhverfi sitt og sjálfan sig, en þar af leiðir aftur, að heppilegt og frjálst uppeldi hlýtur að vekja þekkingarþrá. * Vandinn er því ef til vill ekki fyrst og fremst í því fólginn, hvort meira kapp beri að leggja á beina fræðslu eða almennt uppeldi, heldur sá, hversu fræðslunni verður bezt hagað þannig, að hún stuðli að alhliða þroska og uppeldi, svo að löngun vakni eftir þekkingu. Vegna þekkingarinnar er meira virði að glæða áhugann en kenna einstök atriði fræðigreinarinnar mjög nákvæmlega, ekki sízt ef atriðastaglið kæfði þann áhuga, sem fyrir var. Og vegna uppeldisins er víð- sýni og skilningur á gildi sjálfsábyrgðar og sjálfs- uppeldis öllu öðru nauð- synlegra. Eykur fátt enda manngildið meira en sú þekking, sem menn afla sér af sjálfsdáðum, og ekkert uppeldi er giftu- drýgra en ræktun mann- kostanna, sem sprottin er af fúsum vilja. Slíkt uppeldi er farsælast, og slík þekking notast bezt. Útgefandi: Stéttarfélag barna- kennara í Reykjavík. Útgáfuráð: Guðjón Jónsson formaður, Jens Ní- elsson, Sigurður Magnússon, Stefán Jónsson og Valdimar Ossurarson. Ritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Alþýðuprentsmiðjan h.f. 2 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.