Foreldrablaðið - 01.03.1951, Síða 5

Foreldrablaðið - 01.03.1951, Síða 5
Arngrímur Kristjánsson: Enn nokkur orð um skólagarða Saga þeirra hér á landi rakin í fáum orðum og nokkrar tillögur um framtíðarskipan þeirra. Ritstjóri Foreldrablaðsins hefur farið fram á það við mig, að ég ritaði fyrir blaðið nokkur orð um skólagarða, og hef ég að nokkuð yfirveguðu ráði talið rétt að verða við beiðni hans, jn. a. vegna þess, að ég tel mig persónulega standa enn í óbættri sök við það mál frá því í gamla daga. ❖ * * Um þessar mundir verður skyldunáms- skólinn fyrir allharðri og að nokkru leyti réttmætri gagnrýni ýmissa hugsandi manna er segja þá eitthvað á þessa leið: Hið langa lögskipaða skyldunám drepur í dróma manndómslund barna og ung- linga, sljóvgar athafnaþrá þeirra og slítur þá um of úr tengslum við sjálft athafna- lífið. Afleiðing þessa verður kærulaust, sljótt og lítið vinnugefið fólk. — Einstrengingslegur skóli skapar náms- leiða og streitist oft með litlum árangri við að troða bókaramennt upp á hvern og einn, hvort sem honum finnst það ljúft eða leitt. Ut í þessa sálma skal ekki frekar farið að sinni, en viðurkennt, að skólum vor- um stafar mikil hætta af þessum einhæfa fræðalærdómi, en líftaug hins ferska glað- væra skóla er fyrst og fremst brugðin þáttum hinnar verklegu kennslu, þar sem hönd og hugur hjálpast að við að leysa hugþekk viðfangsefni. Með framangreindar staðreyndir í huga er enn sárar til þess að vita, hversu seint forráðamönnum skólanna hefur tek- izt að tileinka skólanum einn hagnýtasta og skemmtilegasta þátt verklegrar kennslu, en það er nám barna og unglinga í skólagörðum. Störfin í skólagörðunum vekja áhuga barna og unglinga. Þau skapa ekki náms- leiða, þvert á móti mun vart það dauð- yfli vera til í mannsmynd, að ekki sé þess kostur að vekja áhuga þess á við- fangsefnunum þar. Skólagarðurinn glæðir smekk og fegurðarkennd og kennir mönn- um að meta gróður og umgangast hann með varúð og virðingu. En auk þess fer þar fram hagnýt fræðsla, því að flestir menn, og þá ekki sízt konur þurfa að læra að sá og flytja til plöntur, (planta út), því að þeirra bíður ávallt fyrr eða síðar að bera ábyrgð á lífi og líðan ein- hvers gróðurs í eða við heimili sín í stærri eða minni mæli. — En uppskeran og ánægjan fer jafnan eftir því hvort menn kunna einföldustu atriði til verka eður eigi. * * * Þegar almenn lýðmenntun hófst meðal nágrannaþjóða vorra, komu skólamenn þar í löndum fljótt auga á hagnýtt gildi skólagarðanna í þjónustu fræðslu og upp- eldis. FORELDRABLAÐIÐ 5

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.