Foreldrablaðið - 01.03.1951, Qupperneq 10

Foreldrablaðið - 01.03.1951, Qupperneq 10
ingar sem svar við því, hvað átthagafræði er, verður nú gripið til þess að geta stað- reynda um starfsháttu átthagafræðinnar. Hentugt verkefnaval Hentugt verkefnaval er þýðingarmikið atriði til að ná settu marki. Og það á við um allt nám. Heppilegt þykir að velja átthagafræðileg verkefni með hliðsjón af umhverfi og lífsþörfum barnsins. Byrjað er jafnan heima fyrir og haldið frá þekktu, nálægu og hlutlægu til óþekkts, fjarlægs og óhlutlægs, þ. e. stækkandi sjónarsviðs um nánasta umhverfi barns- ins, hvað tíma og rúmvídd snertir, vax- andi geta til að nema sjálfur — læra að læra —. Enginn kostur er, í þessari stuttu rit- smíð, að gefa tæmandi dæmi um verk- efnaflokka þá, sem hægt er að taka til meðferðar í átthagafræðikennslunni. En eftirfarandi atriði ættu að gefa einhverja hugmynd: Barnið sem heimilis- eða skólaþegn. Leik- og svefnþörf barnsins. Barátta mannsins við kuldann, sultinn og myrkrið. Baráttan við óhreinindi, sjúkdóma og margvíslegar hættur. Félagsþörf barnsins. Ahrif veðráttunnar á lífsbaráttu manna, o. s. frv. Hver framangreindur verkefna- flokkur getur verið athugunarefni fyrir margar kennslustundir. Nú er það svo, að átthagafræðikennsl- an byrjar fyrir ólæs börn. Og þó að börn- in séu læs, er ekki gert ráð fyrir, að þau lesi sér til undir átthagafræðitímana. Þess vegna varðar það miklu, að hlut- fallið milli þess, sem ætla má að numið sé að fullu og hins, sem ónumið er, — þess, sem raunverulega á að kenna, sé æskilegt og hagstætt fyrir nemandann, eigi góður árangur að nást í átthagafræði- kennslunni. En svo mun þetta nú raunar vera í allri kennslú, bæði fyrir börn og fullorðna. Verkefnið lagt fyrir og afmarkað Það er annað þýðingarmikið atriði til að ná því marki, sem átthagafræðikennslan hlýtur að keppa að. Góður kennari telur ekki heppilegt að segja t. d.: „Nú ætla ég að kenná ykkur um þetta og þetta í dag“. Slíkt er talið minna um of á — „Þú skalt“! og álitið miður til þess'fallið að vekja eftirtekt og áhuga barns á verkefni því, sem taka á til athug- unar. Þess vegna er aðförinni hagað þannig, að börnunum finnist þau sjálf velja viðfangsefnið. Það á t. d. að gera athugun á vörn mannsins gegn kuldanum og tala um fötin. I hrollköldu veðri eru bömin vakin til skilnings á því, að nauðsyn er að hafa föt til að klæðast í. Og þá er t. d. spurt: „Væri nú ekki gaman að athuga, hvemig föt verða til?“ Og til þess að afmarka verkefnið til athugunar og hjálpa minni barnanna og kennaraiis, er börnunum sýndur ullarlagður og prjónaflík (peysa), og spurt: „Vitið þið, hvað þarf að gera til þfess, að þessi lagður verði að peysu?“ Með þessu hefur verkefnið verið „sett á svið“, sem kallað er á kennslufræðimáli. Þannig er séð fyrir því, að þörf og þróun stuðli að samhengi í athugunum og sam- ræmingu sjónarmiðs kennara og bama. Mikils vert er og, að fyrirfram er vitað, hvað athuga skal. Og komi hik á börnin, ætti að nægja að brýna með spuming- unni: „Er komin peysa? Hvað þurfti meira?“ Mörg átthagafræðiverkefni eru einkar vel fallin til slíkrar sviðsetningar. Sé verk- efnið t. d. garðávextir og verið að athuga gulrófuna, væri hægt að sýna gulrófnafræ og gulrófu, og spyrja: „Hvemig varð fræið að gulrófu?" Önnur verkefni þarf að sviðsetja með nokkuð öðrum hætti. Verið er t. d. að vinna með svefnþörf 1 0 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.