Foreldrablaðið - 01.03.1951, Blaðsíða 12

Foreldrablaðið - 01.03.1951, Blaðsíða 12
Rödd foreldra: Heimanám — námsstofur HEIMANÁM BARNA er vandamál, sem kennarar og foreldrar verða að leysa með náinni samvinnu, ef vel á að fara. Sá þáttur skólanámsins er svo mikils verð- ur, að námsárangurinn er að mjög veru- legu leyti kominn undir því, hvernig hann tekst. Enn sem komið er, hefur þessu vanda- máli verið lítill gaumur gefinn. í skólan- um hafa börnin tiltölulega jafna aðstöðu til náms; hvað heimanámið snertir gegnir hins vegar öðru máli, og kemur þar margt til greina. Sum börn búa við svo þröngan húsnæðiskost, að það torveldar þeim allt heimanám eða gerir þeim það ókleift með öllu; sumir foreldrar hafa hvorki hæfileika né menntun til þess að veita börnum sínum aðstoð við heimanám, og standa þau börn er við slíkar aðstæður búa, að sjálfsögðu mjög illa að vígi, hvað námsárangur snertir. Margir foreldrar hafa reynt að leysa þetta vandamál á eigin spýtur, tekið þann kostinn að kaupa börnum sínum dýra Enda eru skilyrðin til þess óneitanlega æskileg, því að glögg athugun á verkefni skýrir hugtök og hugmyndir og vekur í hita námsstarfsins þörf og löngun til að læra orð og fara rétt með þau. Gera mætti t. d. ráð fyrir því, að í verkefninu: fötin mín, — „frá lagði til flíkur'* — þekki borgar- og bæjarbörn ekki merkingu orðanna: þel, tog, taka ofan af, tæja, kemba, tvinna, kambur, snúðsnælda, o. s. frv. En nú gefst þeim einkakennslu, einkum þegar börnin nálg- ast fullnaðarpróf. Veldur þetta foreldr- unum tilfinnanlegum aukakostnaði, sem á stundum að minnsta kosti, ber svo ekki þann árangur, sem skyldi. Þetta mál er örðugt viðfangs. Foreldr- arnir geta aldrei leyst það, svo að vel fari, nema með aðstoð skólanna. Ef til vill eru skólalesstofur hugsanleg lausn; námsstof- ur, þar sem börnin gætu stundað nám á kvöldin og hefðu aðgang að nauðsynleg- um bókakosti. Að sjálfsögðu yrðu slíkar lesstofur að vera starfræktar undir umsjá kennara, sem þá einnig gætu veitt börn- unum nokkra leiðbeiningu og tilsögn við námið. Enn sem komið er mun húsnæðis- skortur barnaskólanna reynast fram- kvæmd slíkrar hugmyndar örðugasti Þrándur í Götu, en námsárangurinn er í heild að svo miklu kominn undir lausn þessa vandamáls, að það mundi að öllu leyti borga sig að verja nokkru fé og starfi til þess, að hún kæmi öllum aðilum að til- ætluðum notum. tækifæri til að læra þau við góð skilyrði. Þau geta hermt verknað eftir, horft á hluti og þreifað á þeim og lært þannig á hag- kvæman hátt sagnir og nafnorð. Samtal og munnlegar athuganir á við- fangsefni geta þreytt, þó að þeim sé vel fyrir komið, kennarinn sleppi við að vera leiðinlegur, sé röggsamur í stjórn, skarpur í viðhrögðum og árvakur í bezta lagi. Hópkennsla ætti þess vegna aldrei að vera mjög löng. 1 2 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.