Foreldrablaðið - 01.03.1951, Qupperneq 14

Foreldrablaðið - 01.03.1951, Qupperneq 14
Marteinn M. Skaftfells: Rætt um sælgæti og heilbrigðismál ÉG SKAL STRAX TAKA ÞAÐ FRAM, að ég er ekki á móti því, að framleitt sé sælgæti. Það má færa frambærileg rök fyrir því, að þess sé þörf. En ég er á móti því, að á markaðinn sé mokað sæl- gæti, sem beinlínis er skaðlegt, ekki sízt „vorgróðri“ landsins, eins og æskulýður- inn stundum er nefndur í hástemmdum há- tíðaræðum. I þessu sambandi vil ég leyfa mér að spyrja sælgætisframleiðendur: Er ekki unnt að framleiða heilsusamlegt sæl- gæti eða að minnsta kosti óskaðlegt? Valtýr Albertsson læknir skrifar 1949 grein „Tannskemmdir og fæðan“ í Heil- brigt líf. Þar skýrir hann meðal annars frá því, að amerískir vísindamenn frá Columbíaháskólanum hafi tekið sér ferð á hendur norður til Alaska og fundið þar afskekkta eskimóabyggð, þar sem lítið var um tannskemmdir. Meðal barnanna völdu þeir allmörg með sérlega góðar tennur og gæddu þeim daglega á sætindum, eins og þau gátu torgað, auk síns óbrotna fæðis. Afleiðing þessa sælgætisausturs í börnin varð sú, að 3 börn af hverjum 4 höfðu fengið tannátu eftir 6 vikur. Tilgreint dæmi er skýrt og ótvírætt og eitt af ótal, því að læknar um allan heim munu hafa sömu sögu að segja af óholl- ustu og afleiðingum sætindaáts, þótt í smærri stíl sé en í greindu dæmi. Víðtæk fræðsla í þessum efnum virðist því vera svo sjálfsögð, að óþarfi sé um að ræða. Hún myndi áreiðanlega spara heilsu margra barna og unglinga og mikið fé. Og eðlilegasti vettvangur slíkrar fræðslu eru skólarnir, æðri sem lægri, einnig blöð og útvarp. Gegnir mikilli furðu, hve heilsufræði er mikil hornreka í fræðslukerfi þjóðarinnar. Er hún þó án efa mun mikilvægari flestum öðrum náms- greinum, ef ekki öllum, og ætti að vera kennd þegar í yngstu bekkjum barnaskól- anna. Þörf fræðslu um heilnæma lifnaðar- háttu yfirleitt hlýtur að vera auðsæ öll- um, er um þessi mál hugsa, þótt þeir hafi ekki talandi tölur úr heilbrigðisskýrslum við að styðjast. Allir vita, að sjúkrahús eru allt of fá, þótt þeim fjölgi. Allir vita, að læknum fjölgar með hverju ári, en af atvinnuleysi fer lítið orð í þeirri stétt. Allir vita, að mikið magn alls konar lyfja er flutt inn í landið og dreift með lyfseðl- um læknanna líklega inn á flest heimili landsins, þótt í misjöfnum mæli sé. Og snemma á fyrra ári var frá því skýrt í blöðum, að útgjöld Sjúkrasamlagsins myndu aukast um 425000,00 kr. þá 8 mánuði, sem eftir væru af árinu, vegna hækkaðs verðs á lyfjum. Þetta eru tölur, sem tala skýru máli um lyfjanotkunina í höfuðborginni. Það skyldi ekki vera, að hún væri komin út í öfgar og langt um þarfir fram? Ég minntist á þetta við einn okkar ágætu lyflækna. Hann sagði, að það væri ekkert leyndarmál, að læknar hefðu ekki eins mikla trú á lyfjum og ætla 1 4 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.