Foreldrablaðið - 01.03.1951, Page 16
Eyjólfur Guðmundsson:
HEIMANÁMIÐ
FLESTIR KENNARAR munu hafa fyr-
ir vana að setja börnunum fyrir til heima-
náms meira eða minna dag hvern. Svo
virðist sem flestum heimilum og forráða-
mönnum barnanna finnist þetta sjálfsagt,
enda kvarta foreldrar ekki ósjaldan yfir
því, sé börnunum ekki sett fyrir, eða ef
þau fást ekki til þess að leysa heimavinnu
sína þolanlega af hendi. Ærið er það mis-
jafnt, hve börnunum er sett fyrir eða hve
hart er gengið eftir heimanámi þeirra.
Sumir kennarar ætlast til mikillar yfir-
ferðar af nemendunum, en ganga ekki að
sama skapi eftir, að verkið sé sæmilega
unnið. Aðrir haga þessu öfugt, setja lítið
fyrir en ætlast til, að vel sé unnið. Arang-
ur heimavinnunnar er oft ærið misjafn.
Sum börnin vinna samvizkusamlega og
læra e. t. v. meira af heimavinnu en
nokkru öðru. Önnur gera heimavinnunni
lítil skil og fá jafnvel ekkert út úr henni.
Fer þetta eftir ýmsu, en þó mest aðstöðu
þarf að áminna þau um að gera það ekki.
En ef það vill til samt sem áður, þá ber
að snúa sér þegar í stað til dyravarðanna,
því að langoftast koma hinir týndu munir
í leitirnar til þeirra. Fatnaður og annað,
sem börn þurfa í skóla, er allt of dýrt og
torfengið til þess að láta það týnast og
verða engum að notum.
G. M. Þ.
barnsins til heimanámsins svo og upp-
lagi þess og áhuga til námsins.
Tilgangur heimanámsins er tvíþættur.
Ýmist undirbúningur og upprifjun í sam-
bandi við þær kennslustundir, sem fram-
undan eru, eða viðbót við kennsluefni
skólans. í fyrra tilfellinu er gert ráð fyrir,
að efnið festist betur í minni við upprifj-
unina en í síðara tilfellinu er um að ræða
aukningu við það nám, sem skólinn lætur
í té. Er þá oft um sjálfstætt og sjálfvalið
nám að ræða, eins konar tengilið milli
bóknáms og starfs.
En þýðing heimanámsins er meiri og
víðtækari en það að afla sér þekkingar.
Heimanámið er starf, sem barnið ber
ábyrgð á og verður að vinna á eigin spýt-
ur. A því læra börnin að skilja, safna
efni og undirbúa starf m. ö. o.: Börnin
æfast í að yfirvinna erfiðleika þá, sem í
starfinu felast, hvort heldur þeir eru and-
legir eða líkamlegir. Er því nauðsynlegt
að heimanám barnsins sé takmarkað,
einkum þó fyrstu árin. Hins vegar má
það aukast og breytast með aldrinum.
Kennarinn verður því að gæta þess vel
að ætlast ekki til of mikils af nemendun-
um. Þeir þurfa að hafa tíma til þess að
vera úti, til leika, og lesturs eftir eigin
vali o. s. frv. auk aðstoðar við heimilis-
störfin.
Þess verður að gæta, að nemendur
ofþreytist ekki, einkum með tilliti til
þess, að afköstin eru minni síðari hluta
1 6 FORELDRABLAÐIÐ