Foreldrablaðið - 01.03.1951, Blaðsíða 17
dags en fyrri. Eins og fyrr segir, eru
heimilisástæður mikið atriði, svo sem
birta næði loftræsting o. fl. Það sjá
allir, að barn, sem verður fyrir sífelldu
ónæði af yngri systkinum og verður að
læra, þar sem fullorðna fólkið er að
starfi, þar sem mikið er talað eða annar
hávaði er, hlýtur að hindrast við námið.
Þar við bætist, að það verður oft að
vinna að heimanáminu á þeim tíma, sem
ekki er sem heppilegastur, svo sem strax
eftir máltíðir. Það er varla hægt að gera
ráð fyrir góðu né miklu heimanámi undir
þessum kringumstæðum. Það er því ærið
þýðingarmikið, að heimilin reyni að taka
sem mest tillit til starfsþarfa barnanna.
Víða erlendis hafa skólarnir lesstofur,
þar sem börnin vinna heimanám sitt.
En gæta verður þá þess að þetta verði
ekki bein aukning við skólasetu barnsins
dag hvern. Nemendurnir eiga að vera
sjálfir ábyrgir fyrir því, sem þeim er ætl-
að að vinna heima og verða því að ljúka
starfinu í samræmi við tíma þann og
þær kröfur, sem í starfinu felast.
Því getur ekki talizt heppilegt, að for-
eldrar eða aðstandendur nemenda taki á
sig ábyrgðina á heimanámi þeirra og því
síður að þau vinni störfin fyrir þau. Hitt
er aftur jafn nauðsynlegt, að þeir hafi
áhuga á störfum barnanna. Hafi barn
dregizt aftur úr sökum veikinda, getur
verið réttmætt, að því sé hjálpað yfir
mestu erfiðleikana, meðan það er að
ná sér. A sama hátt getur lítils háttar
örvun verið æskileg, meðan barnið er að
koma sér að verki, ef áhuginn er lítill.
En þetta má ekki ganga svo langt, að for-
eldrarnir þurfi daglega að bera ábyrgð
á heimanámi barnanna, sitja yfir þeim, á
meðan þau ljúka námi, eða vinna fyrir
þau. Til eru þeir foreldrar, sem vinna öll
heimaverkefni fyrir börnin sín, og sjá
allir hvílík fjarstæða slíkt er. Börnin
njóta betur þess starfs, sem þau vinna
sjálf, og það þroskar þau miklu meira.
En eflaust er langþýðingarmesta at-
riðið í þessu sú siðferðilega þjálfun, sem
felst í því, að barnið vinni þau störf, sem
því eru ætluð. Við getum séð það í hendi
okkar, hvernig þjóðfélag vort yrði statt,
ef allir þegnar þess hliðruðu sér hjá þeim
skyldum, sem þjóðfélagið krefst af þeim.
Að leysa störf þau af hendi, sem skólinn
heimtar af nemendum, er e. t. v. einn þýð-
ingarmesti liðurinn í upþeldi barnsins.
En kröfurnar mega þá heldur ekki vera
því um megn.
Duldar hömlur geta einnig haft mikil
áhrif á heimanám barnsins. Það ber ekki
ósjaldan við, að barn hangir yfir bókun-
um, les lexíurnar yfir aftur og aftur en
er þó jafnnær. Gegn því duga engar
þvinganir né hótanir. I tilfellum sem
þessum vantar oft áhugann og þann
þroska, sem til þess þarf að einbeita sér
að ákveðnu námsefni. Eina ráðið, sem
til greina getur komið, er að ákveða
tíma þann, sem námið má taka og verð-
launa síðan með einhverjum smámunum,
sé vel gert, að náminu loknu.
♦-----------------------------------♦
Efnalaug Hafnarfjarðar h.f.
Sími 9389.
Gunnarssundi 2.
Kemisk fatahreinsun og litun
Vönduð vinna — Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu
um land allt
foreldrablaðið 1 7