Foreldrablaðið - 01.03.1951, Page 18
Barnaskólarnir í Reykjavík
ALLS ERU NÚ 5347 BÖRN á barnafræðslu-
stigi (7—12 ára) í Reykjavík. Þar af eru 4725
við nám í barnaskólunum fjórum, Austurbæjar-
skóla, Miðbæjarskóla, Laugarnesskóla og Mela-
skóla. Þessi barnafjöldi skiptist þannig eftir
aldursflokkum, að 7 ára eru 923, 8 ára 951, 9 ára
797, 10 ára 730, 11 ára 700 og 12 ára 624. Athyglis-
vert er það, að yngri bömin eru miklum mun
fleiri en hin eldri, og boðar það allmikla fjölgun í
skólunum á næstu árum.
Fastir kennarar við barnaskólana fjóra eru
alls 136, en stundakennarar 23, eða samtals
159, og eru þá skólastjórarnir og forstöðukona
heimavistarinnar í Laugarnesskóla með talin.
Kennarar og börn skiptast þannig á skólana:
í Austurbæjarskóla eru alls 1475 börn — 272
7 ára, 297 8 ára, 257 9 ára, 231 10 ára, 229 11
ára, 189 12 ára. Kennarar eru alls 47, þar af
5 stundakennarar.
í Miðbæjarskóla eru alls 882 börn — 155
7 ára, 156 8 ára, 163 9 ára, 138 10 ára, 136 11
ára, 134 12 ára. Kennarar eru alls 34, þar af
4 stundakennarar.
í Laugarnesskóla eru alls 1330 börn — 297 7
ára, 271 8 ára, 221 9 ára, 197 10 ára, 171 11 ára,
1 8 FORELDRABLAÐIÐ
173 12 ára. Kennarar eru alls 42, þar af 6
stundakennarar.
í Melaskóla eru alls 1038 börn — 199 7
ára, 227 8 ára, 156 9 ára, 164 10 ára, 164 11 ára,
128 12 ára. Kennarar eru alls 36, þar af 8
stundakennarar.
I einkaskólum eru alls 396 börn á skólaskyldu-
aldri, ásamt þeim, er heimakennslu njóta, eða
dveljast í heimavistarskólanum að Jaðri. I skóla
Isaks Jónssonar eru 129, Landakotsskólanum 112,
Skóla S. D. A. 11, æfingadeildum kennaraskólans
62, öðrum einkaskólum 43. Heimakennslu nýtur
21 barn, en 18 eru í heimavistarskólanum að
Jaðri.
Átta börn eru sjúklingar, 24 mállaus, 13 van-
gefin. Utan bæjarins dveljast 181 barn.
Blað foreldra og
kennara
FORELDRABLAÐIÐ er málgagn
kennara og foreldra í Reykjavík, fjallar
um skólamál tíg barnauppeldi, en Stéttar-
félag barnakennara gefur það út. Það hef-
ur nú komið út annað slagið síðan árið
1934, en þó mjög óreglulega. Nú hefur
útgáfuráð Foreldrablaðsins hins vegar
ákveðið að láta það framvegis , ef unnt
verður, koma út á hverjum mánuði, sem
barnaskólar starfa, og kemur það nú fyrir
sjónir lesenda sinna í dálítið breyttum
búningi.
I